Morgunblaðið - 20.01.1976, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. JANUAR 1976
15
ííprðBirl
Sigurður var
rnaður mótsins
KIGURÐUR Haraldsson var
stjarna opins móts í badminton
sem fram fór á Akranesi á laugar-
daginn og var það jafnframt
fyrsta opna mótið f þessari
íþróttagrein sem fram fer f hinu
glæsilega fþróttahúsi Skaga-
manna. Vann Sigurður sigur f öli-
um keppnisgreinunum sem hann
var gjaldgengur f, þ.e. f einliða-
leik, tvfliðaleik og tvenndar-
keppni. Virðist Sigurður f betri
æfingu nú en oft áður og þá þarf
varla að sökum að spyrja. Alla
vega skortir hann ekki keppnis-
vilja og ákveðni.
Haraldur Kornelíusson, sem
verið hefur hálfgerður kóngur í
íþróttagrein þessari hérlendis
undanfarin ár, komst í úrslit i
öllum fyrrnefndum greinum, en
tapaði ævinlega fyrir Sigurði. I
einliðaleiknum vann Sigurður úr-
slitaleikinn 15:10 og 15:13, og var
viðureign þeirra félaga hin fjör-
ugasta og bauð upp á skemmtileg
tilþrif.
Til úrslita i tviliðaleiknum léku
Sigurður og Jóhann Kjartansson
gegn þeim Hæng Þorsteinssyni og
Haraldi og unnu Sigurður og Jó-
hann 17:18, 15:13 og 15:7. Eins og
úrlistaleikurinn í einliðaleik var
þarna um mjög skemmtilega við-
ureign að ræða, og var það ekki
fyrr en i oddaleiknum sem þeir
Magnús
skiptir
um félag
Hinn góðkunni skfðagöngu-
maður, Magnús Eirfksson hefur
nú skipt um félag og gengið úr
Skfðafélagi Fljótamanna f Skíða-
félag Siglufjarðar.
Sem kunnugt er þá var Magnús
valinn til æfinga vegna Olvmpfu-
leikanna f Insbruck, og var sfðan
ætlun Skíðasambandsins að hann
og Trausti Sveinsson kepptu um
hvor ætti að fara til leikanna. Af
því einvfgi varð ekki og varð
Trausti fyrir valinu.
Magnús Eirfksson hefur æft
mjög vel f vetur, og er ekki að efa
að hann mun verða skíðaliði Sigl-
firðinga mikill styrkur.
Sigurður og Jóhann tóku af skar-
ið.
I tvenndarleik keppti Sigurður
með Lovfsu Sigurðardóttur gegn
Haraldi og Hönnu Láru Pálsdótt-
ur og fóru leikar svo að þau fyrr-
nefndu sigruðu eftir oddaleik,
9:15,15:7 og 15:10.
I einliðaleik kvenna varð
Lovísa Sigurðardóttir sigurveg-
ari. Hún sigraði Svanbjörgu Páls-
dóttur, KR í úrslitaleik 11:5 og
11:4 og í tvfliðaleik kvenna sigr-
uðu Lovísa og Hanna Lára þær
Svanbjörgu og Kristínu Kristjáns-
dóttur 15:9 og 15:9, þannig að
Lovísa varð eins og Sigurður, þre-
faldur sigurvegari í mótinu.
Asgeir Sigurvinsson á fullri ferð f búningi Standard Liege. Myndin er tekin f leik liðsins uin fyrri helgi,
en f þeim leik meiddist Ásgeir einmitt og gat ekki leikið með á sunnudaginn.
iSGEIR OG GUDGEIR AHORFEIVD-
11AB STÖRSIGRIIM LIBA SINNA
Hvorki Guðgeir Leifsson né Ás-
geir Sigurvinsson léku með liðum
sfnum f Belgfu á laugardaginn, en
bæði félögin unnu þá stóra sigra í
leikjum sfnum, Charleroi sigraði
CS Brúgge á heimavelli með
fimm mörkum gegn einu og
Standard Liege sigraði Waregem
með fjórum mörkum gegn einu.
Ástæðan til þess að þeir Guð-
geir og Ásgeir léku ekki með að
þessu sinni var sú, að báðir eiga
við meiðsli að stríða.
— Guðgeir verður ekki með
næsta hálfa mánuðinn, sagði Ás-
geir Sigurvinsson i viðtali við
Morgunblaðið i gær, — hann
tognaði illa i læri og sprautaði
læknir Charleroi hann með ein-
hverju deyfilyfi til þess að hann
gæti leikið með gegn Beveren um
fyrri helgi. Eftir leikinn var Guð-
geir svo mjög þjáður og verður að
vera alveg frá á næstunni.
Sjálfur sagðist Ásgeir eiga við
ökla meiðsli að striða. — Ég er
stokkbólginn, sagði hann, — til
stóð reyndar að ég léki á laugar-
daginn, en af því varð ekki.
Ásgeir sagðist vera annars i
mjög góðu formi um þessar
mundir, — sennilega hef ég
aldrei verið í betri æfingu, sagði
hann og bætti þvi við að hann
hefði nú lézt úr 80 kg í 77 kg.
— Það er ekki hægt að segja að
við hjá Standard höfum verið
heppnir að undanförnu, sagði Ás-
geir. Fyrir leikinn á laugardaginn
vorum við með tvö töp í röð og um
fyrri helgi þurfti að bera tvo leik-
menn okkar af velli, þá Christan
Piot markvörð og Michel
Ranquin. Piot reyndist vera alvar-
lega meiddur, þannig að hann
verður ekki með næstu 4—6
mánuðina.
Bi ibi sl koraði sigurmi irk ( ’elt ;ic
— sem var þrisvar undir í leiknum við St. Johnstone -
JÓHANNES Eðvaldsson var hetja
Celtic-liðsins á laugardaginn er
hann skoraði sigurmark liðsins á
sfðustu mínútu gegn St. John-
stone. Hafði St. Johnstone, sem er
langneðst í skozku úrvalsdeild-
inni haft þrisvar forvstu f leikn-
um, áður en Jóhannes skoraði hið
glæsilega skallamark og færði
liði sínu 4—3 sigur.
Þrátt fyrir þennan sigur Celtic-
liðsins missti það af forystunni í
deildinni á laugardaginn, þar sem
Glasgow Rangers vann öruggan
sigur í viðureign sinni við Hibern-
ian á Ibrox-Ground. Sá leikur
þótti einnig mjög skemmtilegur.
Hibernian var meira í sókn i fyrri
hálfleiknum og átti þá góð mark-
tækifæri sem ekki nýttust. En i
seinni hálfleiknum náði Rangers
sér vel á strik og Derek Parlane
og Tom McLean skoruðu þá á 67.
og 85. mfnútu.
Dundee United, sem nú freistar
þess að fá Martein Geirsson til
liðs við sig átti ekki möguleika
gegn Motherwell jafnvel þótt á
heimavelli væri. Náði Motherwell
snemma forystu í leiknum og sigr-
aði síðan 4—1. Fylgir það lið
Rangers og Celtic eftir sem
skuggi og er sagt hafa komið mjög
á óvart meó getu sinni í vetur.
Sigurður Haraldsson kom, sá og
sigraði á Akranesi.
Staðan í skozku úrvaldsdeildinni er nú þessi:
Glasgow Rangers 22 10 1 1 26:8 3 3 4 12:11 30
Celtic 22 5 3 2 20:14 8 1 3 27:15 30
Motherwell 22 7 3 1 19:12 3 4 4 21:18 27
Hibernian 21 8 2 1 21:9 2 4 4 13:16 26
Aberdeen 22 5 4 1 19:13 3 3 5 16:19 23
Hearts 22 3 5 3 16:16 4 3 4 11:16 22
Dundee 22 5 3 3 22:20 2 3 6 15:23 20
Ayr United 22 7 2 2 20:15 1 2 8 9:22 20
Dundee United 21 3 2 5 12:16 1 4 6 13:20 14
St. Johnstone 22 2 2 7 14:23 0 0 11 9:29 6
KSÍ menn sverja af sér
Á stjórnarfundi Knatt-
spyrnusambands tslands sem
haldinn var s.I. fimmtudag kom
til umræðu fréttaviðtal
Morgunblaðsins við Hermann
Jónsson, formann Knattspvrnu-
ráðs tþróttabandalags Vest-
mannaeyja, er birtist f blaðinu
s.I. miðvikudag, en í þvf viðtali
kom fram, að menn sem ættu
sæti f stjórn KSl hefðu milli-
göngu f þvf að fá leikmenn tBV
liðsins til annarra félaga og
gerðu þeim girnileg tilboð.
A umræddum stjórnarfundi
KSl sóru allir stjórnarmennirn-
ir það af sér að eiga þarna hlut
að máli, og var framkvæmda-
stjóra KSl (út af fyrir sig svo-
lítið skemmtilegt hver það er,
en ekki skal það rætt frekar að
svo stöddu), falið að hafa sam-
band við þann fréttamann
Morgunblaðsins er skrifaði um-
rætt viðtal og fá upplýsingar
hjá honum við hvaða stjórnar-
mann eða menn væri átt við í
viðtalinu. Var framkvæmda-
stjóranum skýrt frá því að Her-
mann Jónsson hefði ekki talið
rétt að birta nöfn þeirra að svo
stöddu, og hefði hann ekki
gefið þau upp. Einnig var fram-
kvæmdastjóranum skýrt frá
því, að þó svo að Hermann
hefði sagt frá nafni eða nöfnum
þá myndi blaðið ekki gefa það
eða þau upp, ef það væri ósk
Hermanns að slikt yrði ekki
gert. Bað þá framkvæmdastjór-
inn um að það kæmi fram, að
stjórnarmenn KSl litu á það
sem fram kæmi i viðtalinu sem
dylgjur unz skýrt væri frá nafni
eða nöfnum viðkomandi.
Vitanlega er það mál Her-
manns Jónssonar og Knatt-
spyrnuráðs Vestmannaeyja
'hvort þeir vilja skýra nánar frá
máli þessu sem óhætt er að
fullyrða að vakið hefur mikla
athygli. Hingað til hefur Her-
mann Jónsson þótt fremur orð-
var maður, og hann hefur ekki
verið þekktur fyrir að fara með
fleipur. Þess vegna taldi
Morgunblaðið ekki ástæðu til
þess að draga orð hans í efa, og
vísar heim til föðurhúsanna áð
það hafi haft i frammi dylgjur.
Hafi stjórnarmennirnir lesið
viðtalið sæmilega, hljóta þeir
að sjá að blaðið lagði ekkert
mat á það sem fram kom hjá
Hermanni, heldur var þarna
um að ræða beina tilvitnanir i
orð hans.
—stjl.
Jóhannes Eðvaldsson hefur lag á
aó skora „réttu“ mörkin með
Celtic.
Upp en
samt niður
EINS og fram kemur ð öðrum stað i
íþróttafréttum Morgunblaðsins sigr-
aði Vikingur FH i leik liðanna i 1.
deildar keppni íslandsmótsins i
Hafnarfirði i fyrrakvöld. Fyrir þennan
leik var FH i öðru sæti i mótinu og
Vtkingur i fjórða sæti. Þrátt fyrir
þennan sigur gegn næst efsta liðinu i
deildinni færðust Vikingar niður um
tvö sæti á töflunni um helgina og eru
nú I sjötta sæti i deildinni. Mjótt er
þó á mununum þar sem Vikingar
hafa jafnmörg stig og liðin sem eru I
þriðja til fimmta sæti og markatala
liðanna er einnig mjög jöfn. Þannig
er t.d. markamismunur Þróttar og
Vikings sá hinn sami, en Þróttarar
hafa skorað fleiri mörk.
Ljóst má vera að baráttan I deild-
inni verður gifurlega hörð, þótt Itn
urnar geti skýrst verulega á miðviku-
daginn en þá leika Valur og FH. Fer
sá leikur fram I Hafnarfirði og ef að
likum lætur verður mikil aðsókn að
þeim leik.