Morgunblaðið - 23.01.1976, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1976
Endanlegs tjóna-
mats á Kópaskeri
ekki að vænta strax
BEÐIÐ verður með endanlega matsgerð á tjóninu á Kópaskeri f
jarðskjálftanum mikla þar til jarðskjálftahrinan nyrðra virðist gengin
yfir og fólkið hefur flutt í hús sín að nýju til að hægt verði að safna
sem gleggstum upplvsingum um tjón á einstökum heimilum, að þvl er
Asgeir Ólafsson, forstjóri Brunabótafélags Islands og forstöðumaður
Viðlagatrygginga ríkisins, tjáði Morgunblaðinu.
Ásgeir sagði hins vegar, að
matsmenn hefðu þegar farið
norður til að kanna fyrstu
skemmdir og gefa heimamönnum
ráð um hvernig hægt væri að
fyrirbyggja frekara tjón. Kvað
hann viðlagatrygginguna mundu
kosta þær bráðabirgðaráðstafan-
ir, sem talið væri nauðsynlegt að
gera á Kópaskeri en sá kostnaður
yrði síðan tekinn með heildar-
bótagreiðslunum til íbúa Kópa-
skers, þegar öll kurl væru komin
til grafar hvað þessar náttúru-
hamfarir áhrærði.
Þá kvaðst Asgeir vilja taka
fram til að koma í veg fyrir mis-
skilning, að viðlagatryggingin
næði til bóta á tjónum vegna eld-
gosa, jarðskjálfta, snjóflóða,
Skellinöðru
stolið í gær
MIÐVIKUDAGSKVÖLDIÐ 21.
janúar fór piltur einn í Austur-
bæjarbíó á skellinöðru, sem hann
á. Hjólið skildi hann eftir fyrir
utan húsið, Snorrabrautarmegin.
Þegar hann kom út að sýningu
lokinni var búið að stela hjólinu,
sem er af gerðinni Suzuki 50, og
er með einkennisstafina G-191.
Hjólið er appelsínugult að lit. Það
kemur sér mjög illa fyrir piltinn
Framhald á bls. 31.
skriðufalla og flóða en t.d. ekki
végna stormskaða einvörðungu.
Leander á
heimleið á
hálfri ferð
BRKZKA freigátan Leander
er væntanleg til hafnar f Skot-
landi í dag, en eins og fram
hefur komið f fréttum hreppti
Leander hið versta veður á
leið sinni af Islandsmiðum.
Fékk það á sig brotsjó úti af
Suðureyjum sem reif með sér
björgunarbáta og grindverk.
Stýrið varð óvirkt og bilun
varð í vél þannig að skipið gat
aðeins siglt með hálfum hraða.
Vélvirkjum um borð tökst að
koma stýrinu í lag og gat
Leander haldið ferð sinni
áfram í gær í fylgd systurskips
þess, Bacchante. Tveir af
dráttarbátum hersins voru
einnig til taks ef hið lasburða
herskip þyrfti á aðstoð þeirra
að halda.
I skeyti frá fréttamanni
Reuters um borð i Bacchante
kemur fram, að leki hafi komið
að Leander eftir ásiglingu frei-
gátunnar á Þór 9. janúar s.l.
Sæmileg færð víð-
Keðjur eru Ifklega einhver eftirsóknarverðasti hluturinn f borginni núna, og þeir sem voru svo heppnir
að tryggja sér þennan munað f tfma, þakka sfnum sæla og brosa af eintómu stolti, Ifkt og stúlkan hér a
myndinni. (Ljósm. Mbl. Friðþjófur)
Snjóhreinsunin hefur
kostað borgina 14 m.
MIKLAR annir hafa verið hjá starfsmönnum gatnamálastjóra Reykjavíkurborgar
vegna mikillar ófærðar á götum borgarinnar síðustu daga, enda kyngt niður
óvenjumiklum snjó undanfarið, svo sem kemur fram í annarri frétt í blaðinu.
Að því er Ingi U. Magnússon,
gatnamálastjóri, tjáði Morgun-
blaðinu hafa verið allt að 20 vélar
við snjóruðning af götum síðustu
dagana. Unnið hefur verið fram á
kvöld við ruðninginn en síðan
byrjað aftur kl. 4 á morgnana.
Stærsta tæki borgarinnar — snjó-
blásarinn — hefur verið að
störfum allan sólarhringinn með
vaktaskiptum.
Sagði Ingi að kostnaður við
snjóruðning frá áramótum væri
nú þegar orðinn um 14 milljónir
króna eða um tveimur milljónum
meira en gert var ráð fyrir að
verja til þessa þáttar samkvæmt
fjárhagsáætlun borgarinnar.
Taldi Ingi að þetta væru mestu
snjóar sem komið hefðu í borg-
inni aiit frá 1970.
Bifreiðaeigendur hafa margir
hverjir lent í hinum mestu
vandræðum vegna ófærðar á
götum borgarinnar, sérstaklega
þó í úthverfunum. Samkvæmt
upplýsingum nokkúrra verzlana,
sem verzla með bílavarahluti, eru
nú keðjur fyrir fólksbíla algjör-
lega ófáanlegar á borgarsvæðinu,
og eftir því sem verzlunarstjórinn
í Bílanausti tjáði Morgunblaðinu i
gær, voru verzlanirnar alls ekki
búnar undir þessa miklu eftir-
spurn, sem varð eftir bílkeðjum
vegna ófærðarinnar undanfarið.
Hins vegar veit Morgunblaðið til
þess að hugvitsamir bifreiðaeig-
endur á Reykjavíkursvæðinu
hafa gert ráðstafanir til að fá
keðjur frá varahlutaverzlunum í
bæjum norðanlands, þar sem fólk
er vanara færð af þessu tagi og
betur undir ófærðina búið.
22 sm jafnfalliim snjór
mælist nú í Reykjavík
VEÐURSTOFAN hefur undanfarna áratugi mælt snjóþykkt I Reykja-
vík, en þær mælingar eru af ýmsum orsökum erfiðleikum háðar og
kannski ekki sem áreiðanlegastar til samanburðar, að þvf er Adda
Bára Sigfúsdóttir veðurfræðingur tjáði Morgunblaðinu. Þær hafa I
gegnum árin verið framkvæmdar á ýmsum stöðum í borginni en þrjá
sfðustu vetur hafa þær verið gerðar á afmörkuðum bletti hjá veður-
stofuhúsinu við Bústaðaveg.
Þegar Morgunblaðið hafði sam-
band við Öddu Báru í gærdag var
22 sm jafnfallinn snjór á þessum
bletti, en hafði verið 20 sm daginn
áður. Er þetta mesti jafnfallinn
snjór sem mælzt hefur á þessum
ákveðna bletti við Veðurstofu-
húsið, að sögn Öddu Báru. Sjaid-
gæft er að jafnfallinn snjór
Framhald á bls. 31.
Ljósmynd Frirtþjófur
ÞÓR I VIÐGERÐ — Þegar varðskipið Þór kom til Reykjavikur úr
síðustu svaðilför sinni, hófst fljótlega viðgerð á skemmdum þeim
sem skipið varð fyrir vegna ásiglinga dráttarbáta og freigátna á
það á Austfjarðamiðum. Á þessari mynd sést hvár verið er að
lagfæra skorstein Þórs bakborðsmegin, en þeim skemmdum olli
Lloydsman á skipinu i mynni Seyðisfjarðar, sem kunnugt er.
ast hvar á þióðvegum
SAMKVÆMT upplýs-
ingum vegaeftirlitsins var
Ráðstefna um Islands-
þorskinn í Höfn í marz
ALÞJÓÐA Hafrannsóknastofnunin mun á næstu mánuð-
um gangast fyrir ráðstefnum í Kaupmannahöfn um
helztu nytjafiska Norður-Atlantshafsins. Kemur röðin
að Islandsþorskinum 8. marz n.k. og verður þá rætt um
þorskstofninn hér við land, stærð hans reiknuð út og hve
mikið er æskilegt að veitt verði af honum á næstu árum.
Jakob Jakobsson fiskifræð- ana og álagið, sem má bjóða þeim,
ingur er nýkominn af fundi Al-
þjóða hafrannsóknastofnunarinn-
ar, þar sem rætt var um nýjar
aðferðir við úttekt á fiskstofnum.
Sagði Jakob að samkvæmt
þessum nýju reglum væri farið af
meiri varfærni í útreikning stofn-
en gert hefur verið til þessa. Ef
farið verður eftir þessum nýju
reglum verða stofnarnir fljótari
að ná sér á strik, en það kom
einmitt fram á þessari ráðstefnu,
sem Jakob sat, að allir helztu
nytjafiskar Norður-
Atlantshafsins, nema kannski
loðna og kolmunni, eru nú of-
veiddir.
Jakob sagði að stofn Islands-
þorsksins hefði ekki enn verið
reiknaður út samkvæmt nýju
reglunum en það yrði gert á fund-
inum 8. marz. Sagði Jakob það
vera sína skoðun, að þá myndi
koma í Ijós að sízt væri æskilegra
að veiða meira af þorskinum en
þegar hefur komið fram hjá ís-
lenzkum fiskifræðingum, en
þeirra útreikningar voru gerðir
samkvæmt eldri reglum.
ástand þjóðvega víðast
hvar sæmilegt á landinu í
gær.
Þannig var góð færð um
Suðvesturland, Um Hellis-
heiði og Suðurlandsundir-
lendið allt til Víkur en
þaðan var stórum bílum
fært allt austur að Lóns-
heiði sem er ófær.
Á Vesturlandi var þokkaleg
færð og fært um vegi á Snæfells-
nesi en að vísu ekki fært smábíi-
um á norðanverðu nesinu sums-
staðar. Fært var um Heydal allt
vestur í Króksfjaðarnes og
stórum bílum í Reykhólasveit.
Frá Patreksfirði var síðan fært
suður á Barðaströnd fyrir stóra
bíla og eins norður í Bíldudal. Frá
Isafirði var fært út til Bolungar-
víkur og eins til Súðavikur, en
þangfært var orðið í önundarfirði
og ófært taljð í Dýrafirði.
Þá var i gær greiðfært um
Holtavörðuheiði allt til Akureyr-
ar og reyndar áfram um Dals-
mynni til Húsavikur fyrir stóra
bfla og þaðan áfram allar götur til
Kópaskers. Melrakkaslétta er
ófær en fært er i nágrenni Þórs-
hafnar. Af öðrum vegum er að
nefna að fært var til Ölafsfjarðar
fyrir Múlann í gær en Siglu-
fjarðarvegur var lokaður. Hann
verður væntanlega mokaðurí dag.
Ekki voru komnar fregnir af
ástandinu á Ströndum.
Um Austuriand er það að segja,
að sæmiieg færð var i nágrenni
Egilsstaða, Fagridalur var fær og
verið að ryðja Fjarðarheiði. Hins
vegar var óljóst um færð í Odds-
skarði en Vatnsskarð var ófært.
Þá var fært fyrir stóra bíla og
jeppa suður með fjörðunum allt
að Lónsheiði.
Varðandi snjóruðning á vegum
Vegagerðarinnar er stefnt að því
að draga úr kvöldvinnu og stytta
vinnutíma eins og hægt er,
þannig að hætt verði inokstri um
kl. 7 á kvöldin. Þess vegna er það
ábending vegaeftirlitsins til veg-
farenda að leggja upp i ferðir
tímanlega.