Morgunblaðið - 23.01.1976, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JANUAR 1976
11
Herra ritstjóri
Mjög þætti mér vænt um, ef þér
gætuð greint frá efni þessa bréfs,
sem sent er fjölmiðlum að gefnu
tilefni.
Að undanförnu hefur nokkuð
borið á þvi að eigendur einkabíla
hafa kvartað undan „yfirgangi"
strætisvagna Reykjavíkur í um-
ferðinni. Þessum almennings-
vögnum hafa verið valin ýms
nöfn, eins og til dæmis „forgangs-
flotinn“ og fullyrt að strætisvagn-
stjórar leyfi sér ýmislegt sem
öðrum liðist ekki.
I tilefni þessara ummæla um
akstur strætisvagna Reykjavíkur
er rétt að það komi fram, að í
hinni miklu slysaöldu sem gekk
yfir í umferðinni á s.l. ári, voru
strætisvagnsjórar svo lánssamir
að eiga þar ekki hlut að.
50 þúsund farþegar á dag.
Strætisvagnar Reykjavíkur
flytja um 50 þúsund farþega á
hverjum virkum degi. Þessi
hópur fólks á sama rétt og eig-
endur einkabíla til að komast
áfram í umferðinni. Þar talar
enginn' um forgang, aðeins óskað
eftir tillitssemi. Ökumenn strætis-
vagnanna verða að halda áætlun;
á því byggist stundvísi tugþús-
unda manna í vinnu og fólks i
skóla. Séu vagnar ekki á áætlun,
baka vagnstjórar sér óánægju far-
þega. Auðvelt er að gera sér grein
fyrir því álagi, sem á ökumönnum
er, einkum í færð eins og hefur
verið að undanförnu.
Strætisvagnar þurfa oft að
stöðva á leiðum sínum, og stund-
um gengur þeim mjög örðuglega
að komast út i umferðina aftur,
það eð í löngum röðum einkabila
sitja fáir menn, sem gefa
vögnunum tækifæri til að komast
út frá viðkomustöðum.
Getur tekið allt að 5 minútum að
komast af stað.
Dæmi um erfiðleika strætis-
vagnanna mætti nefna. Aður en
gerðar voru nauðsynlegar breyt-
ingar við Hlemm, gat það tekið
allt að 5 mínútum fyrir strætis-
vagn að komast inn í nær órjúfan-
lega röð bifreiða. Skilningur
einkabifreiðastjóra á nauðsyn
reglulegra og öruggra strætis-
vagnaferða virðist þó vera að
aukast og er það þakkar vert.
Fleiri og fleiri láta sig ekki muna
um örfáar sekúndur, sem það
tekur að hleypa strætisvagni frá
biðstöð og út í umferðina. En til
eru menn, sem finna strætisvögn-
um allt til foráttu. Kalla þá „for-
gangsflota" og ganga svo langt að
bera þá saman við breskar frei-
gátur i ofbeldi þeirra gagnvart
íslenskum varðskipum.
En hver er forgangsflotinn?
I augum þeirra 50 þúsund far-
þega, sem nota strætisvagna á
degi hverjum, má vafalaust nota
orðið „forgangsfloti" um aðra bíla
en strætisvagnana. Eða hafa
þetr menn sem bölva strætisvögn-
um Reykjavikur hugleitt aðstöðu
þess fólks, sem þarf að klöngrast
yfir skafla á gagnstéttum, sem
þangað hefur verið rutt svo bílar
komist óhindrað leiðar sinnar.
Þetta sama fólk getur þurft að
bíða úti í hvaða veðri sem er, ef
vögnum seiknar vegna þess að
þeir komast ekki áfram sökum
mikiilar umferðar. Við skulum
ekki gleyma því að á meðal þessa
fólks er gamalt fólk og öryrkjar.
Vart nefnir þetta fólk strætis-
vagna „forgangsflota".
Reynsla erlendis
I mörgum löndum vestur-
Evró'pu hefur forgangur strætis-
vagna af viðkomustað út i umferð
verið lögleiddur. Auk þess rikir
víðast hvar sú hefð, að bílstjórar
einkabíla víkja og stöðva fyrir
strætisvögnum, þegar unnt er að
koma því við og þörf gerist.Þar er
góð og örugg umferð almennings-
vagna mikils metin.Gagnkvæmur
skilningur á gildi almennings-
vagna er mikilvægur. Þeir efna-
minni; þeir sem ekki hafa fjárráð
til að festa kaup á einkabíl eiga
engan annan kost en að ferðast
með strætisvögnum. Réttur þessa
fólks til að komast áfram í um-
ferðinni verður ekki fyrir borð
borinn. Það er hlutverk forráða-
manna SVR að hlúa að þessu fólki
þeir geta því ekki tekið því með
þegjandi þögninni þegar að stofn-
uninni er ráðist með skömmum og
óréttlátum aðdróttunum.
Brosið horfið.
Eftir að hægri umferð tók gildi
var mikið um það rætt, að nú
skyldu íslendingar brosa i um-
ferðinni. Ekki er loku fyrir það
skotið, að þetta bros sé horfið af
andlitum margra og í þess stað
komin gretta. Væri nú ekki rétt
að endurvekja þetta bros og hafa i
huga, aó því betur sem strætis-
vögnunum gengur að flytja sína
50 þúsund farþega á -degi
hverjum, því meiri ástæða er til
að brosa!
Eirikur Ásgeirsson
Alta.ÝSlMiASIMINN KR:
22480
JW*t0tmbIat>it>
Utsala — Bútasala
Terelynebuxur frá 1 975 kr. Vattst. nylonúlpur
kr. 2675 kr. dömu og herra. Nærbuxur 1 50 kr.
Terelynefrakkar 3575 kr. Skyrtupeysur litil nr
675 kr. o.fl. Terelynebútar 670 kr. i herra-
buxur.
ANDRÉS, SKÓLAVÖRÐUSTÍG 22 A.
3T
Q) [.■IB i Skagfirðingafélagið
i Reykjavík
heldur almennan félagsfund sunnudag-
inn 25. janúar kl. 1 5 að Síðumúla 35,
3. hæð.
Fundarefni:
Húsbyggingarmál félagsins. |(Q
Væntanleg húsakaup fyrir félagsstarf- v
Qj semina. Stjórnin. C t
X'
hefst l dag
handklaedi™etr*vara,
°9^r9tf/e|.Þ^kUr
Selt fyrir ótrúlega lágt verð.
Egill 3acobsen
Austurstræti 9
HÚSGAGIMA-
DEILD
\f rifk^ / f I/ ■ _
Skrifborð
Kommóður
Stakir hvíldarstólar
bænsk sófasett
miög ódýr
Svefnbekkir með
skuffu
Járnrúm, svört
eða hvít
ÍrUPPÞV0^Vétrr'
skapar og frystj
?ó"rlitir
Brunt’ raut, /■•
gult f' l°sgra3nt
VEFNAÐAR-
VÖRUDEILD
SÍIVfl^86-1l3----__
Saengurfatnaður. sængur
og koddar.
Vörumarkaöurinn hf.
Ármúla 1A. Húsgagna og heimilisd. S-86-112
Matvörudeild S-86-111, Vefnaðarv.d. S-86-11 3
£
BIÍTASALA
ITSALA
mikið niðursett verð