Morgunblaðið - 23.01.1976, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 1976
13
WIB RVWIMIIIBIKIMI
— sagði Karl Benediktsson um dómarana,
sem segjast á móti vera ýmsu vanir frá honum
— Það er tilgangslaust að vera
að spila þegar þessir menn dæma.
Við töpum öilum þeim leikjum.
Þetta varð einum af leikmönnum
Víkings að orði eftir leikinn við
Gróttu I fyrrakvöld, en að vonum
var heldur þungt í mönnum í
búningsklefa Víkinganna eftir
leikinn, þar sem segja má að ósig-
ur þessi hafi gert vonir liðsins um
að halda Islandsmeistaratitlinum
litlar.
Víkingarnir eiga sjálfir nokkra
sök á því að tapa leikjum sem þeir
Magnús og Valur dæma. Þeir hafa
myndað sér þá skoðun fyrirfram
að þeir séu lélegir eða jafnvel
slæmir dómarar sem séu á móti
þeim, og láta allt sem þeir félagar
gera fara í taugarnar á sér.
Leikurinn mótaðist töluvert af
þessu i fyrrakvöld, og upp úr sauð
síðan þegar dómurunum urðu á
mistök. Karl Benediktsson,
þjálfari Víkinganna, kallaði til
þeirra og Valur Benediktsson
gekk þegar til hans og gaf honum
áminningu, en gaf honum síðan
merki um að yfirgefa bekkinn hjá
Víkingunum. Þráaðist Karl við i
fyrstu, en þegar dómararnir voru
ákveðnir að láta ekki leikinn
halda áfram fyrr en Karl væri
íarinn af bekknum fór hann yfir
á áhorfendapallana.
— Ég sagði ekkert við Val
annað en að hann yrði að horfa á
linuna. Var það að gefnu tilefni
þar sem Gróttumenn höfðu
skorað tvö mörk sem þeir dæmdu
lögleg, sem bæði komu af línunni,
sagði Karl Benediktsson, eftir
leikinn. — Að sjálfsögðu voru
þeir Valur og Karl að hefna fyrir
það að ég leyfði mér fyrr í vetur
að segja að það ætti að taka af
þeim dómararéttindin og þeir
væru engir menn til þess að
dæma handknattleiksleiki. Ég
stend við það, sagði Karl, — að
mér finnst það afar hart að
dómarar skuli vísvitandi hafa
áhrif á leiki til þess að breyta
úrslitum hans, eins og þessir
dómarar gera þegar Vikingur er
að spila.
— Ég vil ekkert tjá mig um
þetta mál, sagði Valur Benedikts-
son, þegar vió ætluðum að fá hans
skýringu á málinu. — Það kemur
hvort sem er aldrei nema sjónar-
mið annars aðilans fram. Það eina
sem ég get sagt var að þegar
maðurinn lét ekki segjast við
áminningu þá var ekkert annað
að gera en að visa honum frá
bekknum.
Gróttuliðið. sem flestir voru búnir
að afskrifa I íslandsmótinu að þessu
sinni lagði islandsmeistara Vikinqs
að velli i sogulegum leik i Hafnarfirði
i fyrrakvold 19—17 urðu úrslit
leiksins. og þar með á Grótta enn
góða von um að halda sér i deildinni,
er aðeins einu stigi á eftir Ármenn-
ingum. Það var því ekki bara að
staðan á toppnum opnaðist algjör-
lega i Hafnarfirði i fyrrakvöld, heldur
einnig á botninum.
Varla er á þvi vafi að það var sigur-
vissa sem varð Vikingum að falli i
leiknum i Hafnarfirði Það var sem
leikmenn liðsins tryðu þvi hreinlega
Magnús V. Pétursson var hins
vegar ómyrkari t máli. — Þið
getið haft það eftir mér sagði
hann, að ég tel að Karl Bene-
diktsson sé of dýr þjálfari til
þess að ná ekki betri ár-
angri sem slíkur en að kenna
dómurunum alltaf um ef liði
hans vegnar miður. Hann hef-
ur fyrr ráðist að okkur með
skömmum, þannig að framkoma
hans hér í kvöld er ekkert nýtt
fyrirbæri. Ég hef dæmt leiki hér
og erlendis bæði í handknattleik
og knattspyrnu og er reiðubúinn
að leggja dóma sem ég hef fengið
fyrir frammistöðuna, af eftirlits-
dómurum, fram á móti sleggju-
dómum og ósvífni Karls Bene-
diktssonar.
ekki að Gróttuliðið gæti staðið í þeim
og allur leikur þess bar þvi vitni fram til
síðustu minútnanna að það væri visst
um sigur Gróttuleikmenmrnir höguðu
hins vegar seglum mjög skynsamlega
eftir vindi og reyndu að halda knettin-
um fram i rauðan dauðann Nýting
liðsins var með miklum ágætum og
þegar mest á reið héldu leikmennirnir
allir ..sönsum" og biðu eftir þvi að
bráðlæti Vikinganna opnaði þeim leið
að markinu
Dómgæzlan í þessum leik var mjög á
oddinum Vissulega gerðu þeir Vatur
Benediktsson og Magnús V Pétursson
afdrifarikar skyssur og þær bitnuðu
Björn Pétursson, Gróttuleik-
maður gægist þarna milli þeirra
Skarphéðins og Páls, og virðist
íhuga hvort smugan sé nógu stór
meira á Víkingunum en Gróttuliðinu
Þannig dæmdu þeir mark af Vikingun-
um á mjög mikilvægu andartaki í leikn
um er staðan var 16—16 og skammt
til leiksloka Þá fór einn Vikinganna inn
úr horninu og skoraði örugglega, en
dómararnir dæmdu linu Augljóslega
var þó ieikmaðurinn langt utan lin-
unnar er hann fór inn
Einn leikmaður bar af öðrum á
vellinum i leik þessum og var það Árni
Indriðason i Gróttu Árni barðist eins
og Ijón leikinn út Róaði spil sinna
manna þegar það átti við og náði síðan
að opna Víkingsvörina hvað eftir annað
með hreyfanleik sínum og ákveðni
til þess að skjóta. Björn átti
góðan leik með Gróttuliðinu og
skoraði S mörk.
Auk þess fékk Árni oftsinnis dæmd
vítaköst i leiknum, er Vikingarnir lágu
á honum er hann lét sig vaða inn i
teiginn
Með þvi að sýna ámóta yfirvegun í
þeim leikjum sem liðið á eftir i mótinu
ætti Grótta að eiga góða möguleika á
að slita fleiri stig — jafnvel það mörg
að það nægi þeim til þess að halda sér
uppi i deildinni Kæmi það verulega á
óvart eftir það sem á undan er gengið
Þrátt fyrir tapið í fyrrakvöld eru V'k-
ingar ekki enn alveg út úr myndinni i
baráttunni um íslandsmeistaratitilinn,
þótt staða liðsins sé engan veginn
nógu góð Einhvern veginn finnst
manni aðeins skorta herzlumun til þess
að liðið nái sér vel á strik, eins og það
gerði reyndar gegn FH-ingum á dögun-
um, ög umfram allt verða leikmennirn-
ir að forðast að vera búnir að vinna
andstæðinga sina, áður en þeir koma
inn á völlinn
í leiknum i fyrrakvöld var Viggó
Sigurðsson einna atkvæðamestur i Vik-
ingsliðmu, átti falleg skot og mörk, en
aðrir leikmenn léku flestir undir getu
YFIRVEGUIM GRÖTTILIÐSINS
FÆRÐIÞVÍ TVÖ DIÍRMÆT STIG
Föt
Jakkar
Peysur
o.fl.
Buxur
Skyrtur
Nærföt
o.fl.
Nú er tækifæri
til að fata sig
upp hjá
oAndersen
Lauth hf.
Vesturgötu 17, Laugavegi 39.