Morgunblaðið - 23.01.1976, Side 32

Morgunblaðið - 23.01.1976, Side 32
Fékkst þú þér TROPICANA í morgun? AUGLYSINGASIMINN ER: 22480 JHorgunbtabib FÖSTUDAGUR 23. JANUAR 1976 Er lausnarorðið hjá sáttanefndinni? SAMNINGAFUNDUR var haldinn með samninganefnd- um Alþýðusambandsins og Vinnuveitendasambandsins f gær, og var þetta fyrsti fundur nýskipaðrar sáttanefndar með deiluaðilum, en hún hefur verið skipuð Torfa Hjartarsyni, ríkissáttasemjara, til aðstoðar, svo sem fordæmi eru fyrir í fyrri samningaumleitunum. Fund- urinn hófst kl. 4 og lauk um sjö-leytið. Að þvi er Snorri Jónsson, fram- viðræðurnar með tilkomu sátta- kvæmdastjóri ASI, sagði gerðist það helzt á fundinum, að samningsaðilar gerðu sátta- nefndarmönnum grein fyrir sjónarmiðum sínum. Snorri var að því spurður hvort hann vænti þess að meiri skriður kæmist á Upp undir 40 árekstrar urðu í Reykja- vík í gær MJÖG mikið hefur verið um árekstra í Reykjavík síðustu daga og á það ekki sízt rætur sínar að rekja til ófærðar á götum borgarinnar og oft og tíðum erfiðra akstursskilyrða. Um 11-leytið í gær- kvöldi höfðu þannig til að mynda orðið 38 árekstrar og þar af lang- flestir um daginn til kl. 19.30 eða alls 34. í fyrra- dag voru yfir 40 árekstrar tilkynntir lög- reglunni í Reykjavík. Að sögn lögreglunnar verða flestir árekstr- anna vegna skorninga sem myndazt hafa á götunum og kvað lög- reglan mikið skorta á að ökumenn sýndu næga aðgæzlu við þessi erfiðu akstursskilyrði. nefndarinnar, og kvað hann það vel mega vera, þar eð með því móti mætti skipta hinum fjöl- mennum samninganefndum aðila vinnumarkaðarins niður í starfs- hópa og með því móti e.t.v. flýta eitthvað fyrir. Hann sagði þó, að í júníviðræðunum á sl. ári hefði þó samningaviðræðurnar ekki farið að ganga að ráði fyrr en sátta- nefndin hefði komið fram með ákveðnar tillögur um lausn deil- unnar. Ölafur Jónsson, framkvæmda- stjóri Vinnuveitendasambands- ins, sagði, að sáttanefndin hefði bæði rætt við samninganefndirn- ar sina í hvoru lagi og sameigin- lega en sagði að nefndin þyrfti án efa meiri tima ti) undirbúnings. Félagsfundur var hjá vinnu- veitendum um stöðuna í kjara- málunum i gær og fundur hefur verið boðaður innan samtakanna á þriðjudaginn kemur. Nýr fundur hefur verið boðað- ur með samninganefndunum á mánudaginn. (Ljósm. Mbl. RAX) Á SAMNINGAFUNDI — Efst til vinstri sjást fjórir af fimm sáttanefndarmönnum, þeir Torfi Hjartarson, Jón Þorsteinsson, Geir Gunnarsson og Björn Hermannsson en Guðlaugur Þorvaldsson var fjarverandi. Á neðri myndinni sést ríkissáttasemjari ræða við forustumenn vinnuveitenda, þá Jón H. Bergs og Ólaf Jónsson, en á myndinni til hliðar við Björn Jónsson, forseta ASl. Sex brezk- ir togarar: Hlýddu fyrir- mælum Ægis og hífðu VARÐSKIPIÐ Ægir stuggaði í gær við sex brezkum togurum, sem voru að veiðum úti af Melrakkasléttu, og í gærkvöldi rak varðskipið togarana á undan sér f átt að Langanesi, þar sem meginhópur brezku togaranna er nú eftir að hafa flutt sig þangað í fyrrinótt af Austfjarða- miðum. Togararnir sex voru að veiðum, er varðskipið kom að þeim, og hlýddu þeir fyrirmælum skipherrans á Ægi, Þrastar Sigtryggssonar, um að hffa upp veiðarfær- in — með semingi þó. Mjög gott en ég á enn eftir að vinna skák” — sagði Friðrik Ólafsson er hann heyrði að freigáturnar væru farnar út fyrir landhelgina — en gerði svo enn eitt jafnteflið „MJÖG gott", sagði Friðrik Ólafs- son, sem nú teflir í Hollandi, þegar hann las um að brezku frei- gáturnar voru komnar út úr islenzkri landhelgi og bætti við: „En ég á enn eftir að vinna skák." Honum vegnaði ekki betur i sjöttu umferð skákmótsins í Wijk aan zee i Hollandi, er hann gerði jafntefli við hollenzka skákmann- inn Böhm. Raunar kom margt á óvart i sjöttu umferðinni, eftir þvi sem fréttaritari Morgunblaðsins. Barry Withuis. tjáði okkur i gær. Eftir 5 klukkustunda tafl var að- eins tveimur skákum lokið, og hafði þá júgóslavneski skák- maðurinn Kurajica sigrað Sovét- manninn Dvorecki fremur auð- veldlega og Hans Ree frá Hollandi hafði gert jafntefli við júgóslavneska stórmeistarann Ljubojevic. sem enn heldur forust- unni á mótinu. Þegar tekið var til við biðskákir skýrðust linurnar betur og ýmislegt óvænt kom á daginn Langeweg var með góða stöðu gegn Tal en gáði ekki að sér og tapaði skákinni óvænt Var þetta þar með fyrsti sigur Tal á mótinu. sem ekki þykir í góðu formi um þessar mundir Hollendingar töldu sjálfir að Böhm ætti góða möguleika gegn Friðrik framan af, en i Ijós kom að Friðrik hafði betri tök á taflinu en menn hugðu, og jafntefli var stað- reynd Sagði Friðrik eftir á, að hann hefði aldrei talið sig í hættu í þessari skák Önnur úrslit i gær urðu þau, að Sosinko frá Hollandi og Smejkal frá Tékkóslóvakíu gerðu jafntefli en Framhald á bls. 31. Við gæzluflug í gær kom I ljós, að brezku togararnir höfðu fært sig norður fyrir Langanes og voru þar að veiðum um 22—35 sjómíl- ur frá landi. Islenzku loðnuskipin höfðu hins vegar haldið áfram suður og austur með landgrunns- brúninni á eftir loðnugöngunni, þannig að þessir tveir skipahópar eru nú vel aðskildir, að því er segir í fréttatilkynningu frá Landhelgisgæzlunni. 1 gæzlufluginu í gær kom einn- ig f ljós, að sex togarar höfðu tekið sig út úr aðalhópnum og leitað norður fyrir Melrakka- sléttu, þar sem þeir voru að veið- um um 30 mílur út frá Hraun- hafnartanga þegar Ægir kom að þeim. Þröstur Sigtryggsson, skip- herra á Ægi, skipaði skipstjórnar- mönnum togaranna að taka inn veiðarfærin. Mölduðu þeir í mó- inn og spurðu um talstöðvarnar hvað varðskipið gerði, ef þeir hlýddu ekki. Kvaðst Þröstur ekki vilja segja neitt um það, en togararnir tóku þá inn veiðarfær- in og sigldu síðan austur á bóginn áleiðis að meginhópnum. Fór varðskipið á eftir togurunum og voru skipin að nálgast aðalflota brezku togaranna, þegar Morgun- blaðið hafði síðast fréttir af miðunum. AIIs var um 41 brezkur togari á svæðinu úti fyrir norðaustan- verðu landinu í gær en auk þess sáust í gæzluflugi i gær 3 togarar á siglingu á útleið en 2 togarar að koma til landsins. Fjögur gæzlu- skip gæta togaranna en einnig er annað varðskip ekki fjarri þess- um slóðum. Eftir þvi sem frétta- maður rikisútvarpsins um borð i Ægi skýrði frá í gærkvöldi, hafa varðskipin ekki átt við brezka togara fyrr en nú frá þvi að brezka ríkisstjórnin gaf út yfir- lýsingu sina um að hún hefði ákveðið að draga freigáturnar út úr fiskveiðilandhelginni á mánu- dag. Hann kvað Ægi ekki hafa ógnað togurunum úti af Mel- rakkasléttu með klippunum. Kaffi og brauð hækka — vínarbrauðin lækka VERÐLAGSSTJÖRI hefur heimilað hækkun á kaffi, hveiti-, heil- hveiti- og rúgbrauðum en ákveðið lækkun á vfnarbrauði. Allar stafa þessar hækkanir af hækkuðu hráefnisverði erlendis, og eru þannig f samræmi við lög um verðstöðvun hér á landi. Kaffið hækkar f heildsölu úr 457 kr. kílóið i 536 kr. eða um 17,3% og i smásölu úr 512 kr. kg i | 600 krónur eða um 17,2%. Franskbrauð og heilhveitibrauð hækka úr 65 krónum í 69 kr. eða um 6,3% og rúgbrauð úr 90 kr. i 96 krónur eða um 6,7%. Hins vegar lækka vínarbrauðin úr 19 krónum í 18 krónur, og stafar það af lækkun sykurverðs á heims- markaði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.