Morgunblaðið - 03.02.1976, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 03.02.1976, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRUAR 1976 Leiguflugvél til landhelgisgæzlu ÓLAFUR Jóhannesson dómsmálaráðherra gat þess I þættinum Bein Ifna I fyrrakvöld, að hann hefði farið þess á leit við rfkisstjórnina, að hún veitti heimild sfna fyrir þvf að Landhelgisgæzlan leigði af Flugfélagi fslands Fokker-Friendship-flugvél til landhelgisgæzlu, þar sem nauðsynlegt væri að hafa tvær flugvélar f gæzluflugi. Morgunblaðið spurði Pétur Ekki svart- olía heldur þarabreiða ÞEGAR flugvél frá Flugfélagi Islands var á leið meðfram Vestfjörðum töldu flugmenn hennar sig verða vara við svartan flöt á sjávaryfirborð- inu út af Látrabjargi og töldu þeir þar helzt geta verið um svartolíubrák að ræða. Gerðu þeir Siglingamálastofnuninni aðvart, sem aftur fékk menn í nágrenni þessa svæðis til að fara á stúfana og kanna málið betur. Þórður Jónsson á Látr- um, fréttaritari Mbl. var i þess- um hópi og kvaðst hann hafa farið út á bjargið. Sást þá fljót- Framhald á bls. 38 Sigurðsson, forstjóra Landhelgis- gæzlunnar, um þetta atriði og sagði Pétur að hann hefði farið fram á þetta við dómsmálaráðu- neytið fyrir skömmu. Mála- leitanin hefði enn ekki fengizt afgreidd i ríkis- stjórninni, en hann kvaðst vænta svars á næstunni. Pétur sagði að ljóst væri að ekki væri unnt að komast yfir það svæði, sem kanna þyrfti með einni flug- vél. Landhelgisgæzlan hefði undanfarið, er fært hefði verið út, ávallt fengið leigðar hjá Flug- félaginu vélar, þegar þess hefur verið þörf. Setur gæzlan þá í flug- vélarnar tæki sín og með áhöfn Flugfélagsins fer skipherra, stýri- maður og loftskeytamaður í hverja ferð. Nú nýlega, er SYR fór i skoðun, leigði Landhelgis- gæzlan Fokker af Flugfélaginu. Einn hængur er þó á þessu, að Flugfélagsvélarnar hafa ekki eins mikið flugþol og SÝR. Sama fiskverð til 15. febrúar Jóhann H. Kagnarsson, unglingaskákmeistari Reykjavfkur 1976. Skákþing Reykjavíkur: Margeir, Helgi og Björn bítast um efsta sætið SKÁKÞING Reykjavfkur er nú komið á lokastig og aðeins einni umferð ólokið. Standa ungu mennirnir þeir Margeir Pétursson og Helgi Ólafsson bezt að vfgi, en Björn Þorsteinsson á einnig möguleika á titlinum. Margeir hefur 7'A vinning, Helgi Ólafsson 7 vinninga og hagstæða biðskák en Björn hefur 6 vinninga og á óljósa biðskák. Á sunnudaginn vann Margeir Sævar Bjarnason, Helgi vann Gylfa Magnússon en Björn á óljósa biðskák við Magnús Sól- mundarson. I B-flokki er Hilmar Karlsson efstur með 8 vinninga af 10. I C-flokki sigraði Kári Kárason með 7'A vinning af 9, en Óli Valdimarsson og Jón. Þ. Jónsson hlutu 7 vinninga. I D-flokki er staðan óljós. I A-flokki kvenna er Svana Samúelsdóttir með 6V4 vinning af 8 en Birna Norðdahl hefur 6 vinninga af 7 mögulegum. Unglingameistari Reykjavíkur 1976 varð Jóhann H. Ragnarsson. Geirfinnsmálið: Hæstaréttar- úrskurður væntanlegur í dag HÆSTIRÉTTUR mun væntan- lega f dag birta úrskurð sinn á réttmætri gæzluvarðhaldsvistar- úrskurð Sakadóms Reykjavíkur yfir tveimur af þremur mönnum sem nú sitja inni vegna Geir- finnsmálsins. Eins og komið hef- ur fram í Mbl. kærðu mennirnir úrskurð Sakadómsins fyrir Hæstarétti f lok sfðustu viku. Að sögn rannsóknarlögreglunnar er ekkert nýtt að frétta af rannsókn Geirfinnsmálsins. Ber maður á ferli í Vesturbænum BER MAÐUR hefur verið á ferð i vesturborginni að undanförnu og hefur lögreglan fengið kærur hans vegna. Nú síðast aðfararnótt sunnudagsins varð maður þessi á vegi tveggja sómakærra stúlkna, sem voru að koma af dansleik. Hafði maðurinn í frammi ýmsa ósiðlega tilburði við stúlkurnar og kærðu þær athæfi hans. Var þetta við Melatorg. Málið er I rannsókn. VERÐLAGSRAÐ sjávarútvegsins hefur ákveðið að núgildandi fisk- verð skuli gilda enn um sinn eða til 15. febrúar nk. og segir f til- kynningunni að með þessari ákvörðun sé gefið svigrúm til þess að Ijúka setningu laga og reglugerða, svo og samningsgerð, sem nauðsynleg sé vegna fyrir- hugaðra breytinga á sjóðum sjávarútvegs. Þá fékk Mbl. þær upplýsingar f gær, að yfirnefnd verðlagsráðsins hefði komið saman til fyrsta fundar til að fjalla um nýtt loðnuverð, en búist var við frekari fundum f nefnd- inni áður en gengið yrði frá verð- ákvörðun. Fréttatilkynning Verðlagsráðs- ins vegna almenna fiskverðsins er svohljóðandi: Þar sem sýnt er, að boðaðar breytingar á útflutningsgjöldum og sjóðum sjávarútvegs muni ekki koma til framkvæmda þegar i febrúarbyrjun, hefur yfirnefnd Verðlagsráðs ákveðið, að fiskverð það, sem gilti í janúar 1976, sbr. tilkynningu ráðsins nr. 1/1976, skuli gilda áfram dagana 1. febrúar 1976. Ákvörðun þessi er reist á sömu forsendum og með sömu skilmál- um og fiskverðsákvörðun fyrir janúarmánuð. Með þessari ákvörðun er gefið svigrúm til þess að ljúka setningu laga og reglugerða og samnings- gerð, sem nauðsynleg er vegna fyrirhugaðra breytinga á sjóðum sjávarútvegs. Bæjarstjóranum vísað úr starfi í Vestmannaeyjum BÆJARSTJÓRN Vestmannaeyja kom saman til skyndifundar á laugardag, og var þar samþykkt að vísa Sigfinni Sigurðssyni bæjarstjóra úr starfi. Staðfesti Einar H. Eiríksson, forseti bæjar- stjórnar Vestmannaeyja, þetta í samtali við Morgunblaðið í gær, en kvaðst ekkert geta gefið upp um ástæður fyrir brottvfsun bæjarstjörans að sinni, þar eð ákvörðun þessi hefði verið tekin á lokuðum fundi og eftir væri að fjalla um málið frekar á öðrum vettvangi. Hins vegar kvað hann mega vænta greinargerðar frá bæjarstjóninni um málið sfðar. Þá hafði Morgunblaðið einnig samband við Sigfinn Sigurðsson, og spurði hann nánar út um þetta mál. Sigfinnur sagði, að það væri rakalaus ósannindi sem komu fram í öðru síðdegisblaðinu i gær á þá lund að ástæðurnar fyrir uppsögn Sigfinns úr bæjar- stjórnastarfi væri að rekja til Framhald á bls. 39 Tveir listar í Ný jarðskjálftahrina kjöri hjá Iðju byrjuð í Axarfirðinum 5 stiga skjálfti mældist þar í gær TALSVERÐ ókyrrð var á sunnu- dag og í gær á jarðskjálftasvæð- inu f Axarfirði, og laust eftir hádegið f gær kom þar mjög snarpur kippur, er mældist 5.0 stig á Riehterkvarða. Að sögn Ragnars Stefánssonar jarð- skjálftafræðings eru upptök þess- arar nýju hrinu á botni Axar- f jarðar, vestur af Núpum. Sr. Sigurvin Elfasson á Skinna- stað, fréttaritari Morgunblaðsins, sfmaði eftirfarandi f gær. Eftir margra sólahringa kyrrðartímabil með mjög vægum og strjálum hræringum eða ails engum, koma 2ja tím óróleiki i fyrrakvöld með a.m.k. einum all- stórum skjálfta um kl. 22.40. Aðfaranótt sunnudags var kyrrt veður, og þá heyrði ég eftir miðnætti dimmar drunur með hvíldum í fyrsta sinn í langan tíma. Slíkar drunur gátu vitað á iilt. Þó var þá kyrrt að kalla. Eftir hádegi í gær, sunnudag, var síðan 2—3ja tíma ókyrrðar- tímabil, svo að oft hrikti í húsum. Aðalhrinan hófst þó eftir kl. 22 á sunnudagskvöld og hefur staðið látlaust síðan með vaxandi þunga til þessa. Stórir skjálftar voru kl. 5.26, 7.02 og 7.37 í morgun og svo kl. 12.25, 13.16 og 14.06 með högg- um og hristingi, þyt og drunum. Þeir tveir síðustu virtust einna stærstir. Síðan í morgun hafa verið ólæti á öllu jarðskjálfta- svæðinu hér í Axarfirði, bæði í Kelduhverfi, Sandinum, Núpa- sveit og á Kópaskeri. En ekki er gott að glöggva sig á hvar þau eru mest. Varð að draga mjög niður í mælitækjum, og oftast var á þeim látlaus titringur. Ekki hef ég frétt um nýjar skemmdir í mannvirkj- um eða hlutum né um meiðingar á fólki eða fénaði. Hygg ég að ekkert sé um að slíkt hafi gerzt. Skjálftarnir virðast mest í 10—20 km fjarlægð frá Skinnastað, og eiga vafalaust upptök á löngum sprungum. Þá hafði Morgunblaðið sam- band við Ragnar Stefánsson jarð- Framhald á bls. 38 astliðinn var útrunninn frestur til þess að skila framboðslistum í Iðju, félagi verksmiðjufólks í Reykjavfk vegna kosninga til stjórnar og trúnaðarmannaráðs félagsins. Tveir listar komu fram, listi stjórnar og trúnaðarmanna- ráðs lagður fram af Runólfi Pét- urssyni, formanni Iðju og listi borinn fram af Bjarna Jakobs- syni og fleirum. Ákveðið er að kosningarnar fari fram helgina 14. og 15. febrúar næstkomandi. Listi stjórnar og trúnaðarmannaráðs er merktur bókstafnum B, en B-listann skipa eftirtaldir: Runólfur Pétursson, formaður, Ragnheiður Sigurðar- arliðason, ritari, Skarphéðinn Óskarsson, gjaldkeri og með- stjórnendur: Klara Georgsdóttir, María Vilhjálmsdóttir, Guðríður Guðmundsdóttir og i varastjórn: Auður Ingvarsdóttir, Ólafur Pálmason og Tryggvi Bjarnason. A-listinn er þannig skipaður: Bjarni Jakobsson formaður, Guð- mundur Þ. Jónsson, varaformað- ur, Jón Björnsson ritari, Gunn- laugur Einarsson gjaldkeri, með- stjórnendur: Sigríður Skarphéð- insdóttir, Guðmundur G. Guð- mundsson, Unnur Ingvarsdóttir og í varastjórn: Asdís Guðmunds- dóttir, Magnús Guðjónsson og Ólafur Þorbjörnsson. Annar skáksigur fslendings á örfáum dögum: Guðmundur sigraði á Orense skákmótinu GUÐMUNDUR Sigurjónsson stórmeistari bar sigur úr být- um f skákmótinu í Orense á Spáni, sem lauk á sunnu- daginn. Hlaut Guðmundur 7'A vinning og var jafn þeim Guillermo Gareia frá Kúbu og Kenneth Rogoff frá Banda- ríkjunum að vinningum. Hins vegar var Guðmundur stiga- hæstur af þeim þremenn- ingunum og hreppti þvf sigur- inn. Þessi sigur Guðmundar kemur aðeins örfáum dögum eftir sigur hins fslenzka stór- meistarans Friðriks Ólafssonar á skákmóti f Hollandi. Guðmundur mun á næstunni tefla á móti f Torremolinos á Spáni. I síðustu umferðinni tefldi Guðmundur við Garcia og var jafntefli samið eftir 10 leiki. Rogoff gerði jafntefli við Keene í 13 leikjum. Spánverj- inn Be/lon tefldi við Rodriques og með því að sigra í þeirri skák hefði hann orðið sigurvegari, því hann hafði betri stigaút- komu en Guðmundur. Hins vegar tapaði Bellon skákinni og Guðmundur varð því sigur- vegari. I næst síðustu umferð- inni átti Guðmundur biðskák við Spánverjann Fraguela og þegar þeir settust við taflið að nýju sigraði Guðmundur i 48 leikjum. Guðmundur var tap- laus í mótinu. Lokastaðan varð þessi: Guðmundur, Garcia og Rogoff hlutu 7i4 vinning, Rodriques hlaut 7 vinninga, Bellon og Keene 6'A vinning, Timman hlaut 6 vinninga, Pomar og Hernando 5 vinninga, Fraguela og Sanz 3 vinninga og Durao l'A vinning.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.