Morgunblaðið - 03.02.1976, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRUAR 1976
'STÁÐAN
Ármann 8 8 0 785:659 16
ÍR 9 7 2 817:688 14
KR 7 5 2 621:543 10
UMFN 9 5 4 733:708 10
ÍS 9 4-5 729:785 4
Valur 9 2 7 729 785 4
Fram 8 2 6 534:612 4
Snæfell 7-0-7 432 617 0
Stighæstir:
Jimmy Rogers Á 226
Carter „Trukkur" KR 199
Bjarni Gunnar ÍS 205
Kristinn Jör . ÍR 183
Það er Ijóst, að í uppsiglingu er
mikið einvígi milli þeirra Jimmy
og Carters um efsta sætið i stiga-
skorun. Carter er með bezt
meðaltal, 33,2 stig i leik, og
Jimmy 32,3 stig. Bezt meðaltal
þeirra ,,hvitu" hefur Þórir
Magnússon, 23,2, og Bjarni
(Skipper). Gunnar, ÍS, er með
22,8 stig að meðaltali. — Carter
á inni einn leik á Jimmy og
vantar 27 stig til að ná honum,
svo auðséð er að í hörkubaráttu
stefnir milli þeirra félaga um titil-
inn: Stighæsti leikmaður íslands-
mótsins 1 976.
BEZT VÍTASKOTANÝTING:
(Miðað við 23 skot sem lágmark)
Stefán Biarkason
UMFN 24:20 = 83%
Jón Jörundsson ÍR 42:33 = 79%
Kári Maríss. UMFN 42:32 = 76%
Jón Sigurðsson
Ármanni 34:26 = 76%
Ríkharður Hrafnkelss.
Val 41:29 = 71%
Steinn Sveinss. ÍS 55:37 = 67%
hgk-.
Möguleikar
Snœfells
úr sögunni
NÚ MÁ segja að lið Snæfells hafi
ekki lengur möguleika á að halda
sér uppi í 1. deild. Liðið hefur
tapað öllum leikjum sínum með
miklum mun, og Valur og Fram
hafa nú 4 stig og það bil vinnur
Snæfell aldrei upp.
Um helgina léku Snæfell og
Fram, og sigruðu Framarar með
miklum yfirburðum, skoruðu 73
stig gegn 54. Þeir höfðu ávallt
forustu í leiknum, 35:18 i hálf-
leik, og sigur þeirra var aldrei í
hættu. Helgi Valdimarsson var
stighæstur Framara með 20 stig,
Eyþór Kristjánsson skoraði 10
stig, Jónas Ketilsson 9, Ómar
Þráinsson og Þorvaldur Geirsson
8 hvor.
Kristján Ágústsson var að
venju langstighæstur Snæfells-
manna, og skoraði 22 stig, Bjart
mar Bjarnason 16 stig.
Rétt einu sinni hefur „trukkurinn“ betur f viðureign sinni við Valsmenn í leik KR og Vals a
laugardaginn. Valsmennirnir sem eru til varnar eru þeir Hafsteinn Hafsteinsson Lárus Hólm og Torfi
Magnússon. >
Ldkíð í Iráir áfóipn í NjariHnn
Ármann vann L\IF\ í framlenginp eftir að ritarar höfðu gert
slæm mistök og smala varð leikmönnum nr baði til að Ijúka leiknum
EINHVER sögulegasti leikur sem leikinn hefur verið I
mörg ár var leikinn I Njarðvíkum á laugardag. Eftir
venjulegan leiktíma stóð 97:96 á toflunni fyrir Ár-
manni, og áhorfendur, sem höfðu fyllt húsið og hvatt
sfna menn, sneru vonsviknir heim, og sumir leikmann-
anna voru komnir I bað. En þegar dómarar leiksins
höfðu farið yfir leikskýrsluna kom í Ijós, að skýrsla
ritara var vitlaus, leikurinn hafði endað með jafntefli
96:96. En þar sem jafntefli er ekki til i körfuknattleik
ákváðu dómarar leiksins að framlenging skyldi leikin í
1x5 mln. Og nú gerðust margir hlutir í senn. Áhorfend-
um var „smalað" saman á ný, leikmenn klæddust
svitastorknum búningum sínum og leita varð uppi nýja
menn til að taka að sér störf ritara og tímavarðar, því
þeir hinir fyrri voru báðir horfnir á braut. Og fram-
lengingin gekk þannig fyrir sig í stuttu máli: Jimmy og
Guðsteinn skoruðu 4 stig fyrir Ármann, staðan 100:96
þeim f vil. Kári skorar fyrir UMFN (98), Jimmy fyrir
Ármann (102), Jónas fyrir UMFN (100), Jón Sig. fyrir
Ármann 104. — 100:104 Ármanni i vil og ain mínúta
til leiksloka. Næst skorar Jónas úr einu vítaskoti fyrir
UMFN og Sigurður Hafsteinsson úr öðru. Sigurður hitti
ekki síðara skotinu en Jónas tók frákastið við körfu-
hring og „tróð" boltanum f körfuna — jafnt 104:104
og áhorfendur voru að sleppa sér á pöllunum. En fjögur
siðustu stigin skoruðu Jón Sigurðsson og Haraldur
Hauksson fyrir Ármann, og þeir sigruðu því 108:1 04.
TITILLINN BLASIR NÚ VIÐ: Nú
eygja Ármenningar íslandsmeistara-
titilinn í fyrsta skipti, og eru sumir
þeirra orðnir ansi langeygðir eftir hon-
um t d. Birgir Örn sem leikur sitt 18.
keppnistímabil
„Já það er meistaraheppni með Ár-
menningum," sagði Gunnar Þorvarðar-
son fyrirliði UMFN eftir leikinn, „enda
leikur Ármannsliðsins í mótinu mjög
góður," bætti Gunnar við „Við áttum
mJÖg góðan leik, en það bara dugði
ekki til. Þeir hljóta að vinna mótið "
Svæðisvörn UMFN í upphafi leiksins
var hreint út sagt hörmuleg, og Ár-
mann breytti stöðunni úr 6:6 í 23:8
sér í vil Þetta var sá kafli leiksins sem
gaf Ármanni þá forustu sem nægði.
Svæðisvörn UMFN var sem gatasigti
gegn skyttum Ármanns, og þegar
UMFN skipti loks yfir í maður gegn
manni í vörninni fór strax að ganga
betu*. Ármann hafði yfir í hálfleik
49 39, og í síðari hálfleiknum saxaði
UMFN hægt en bítandi á það forskot.
Ármenningar hefðu þó e.t.v. sigrað í
leiknum án framlengingar hefði færsla
ritara verið rétt því Jimmy Rogers átti
rétt á tveim vitaskotum 3 sek fyrir
leikslok En þar sem stigataflan sagði
97:96 fyrir Ármann völdu þeir fremur
að taka innkast, og héldu boltanum
það sem eftir var leiksins Þetta sýnir
mikilvægi þess að ritari fylgist vel með,
en það geta allir gert sín mistök (jafn-
vel unglingalandsliðspiltarnir, sem eru
starfsmenn allra leikja í 1 deild nema í
Njarðvík, en þar var þeim úthýst sök-
um mistaka, sem þelm urðu á).
Burðarásar Ármanns i þessum leik
voru að venju þeir Jimmy Rogers og
Jón Sig Þá var Guðsteinn Ingimars-
son mjög góður á köflum, en þeir
Birgir Örn og Björn Magnússon voru
báðir eitthvað miður sin.
Jónas Jóhannesson var langbezti
maður UMFN, og átti reyndar stórleik
— sinn bezta með UMFN frá upphafi
Stefán Bjarkason og Gunnar Þor-
varðarson áttu sæmilegan leik, Stefán
sótti sig mjög er á leikinn leið eftir
slaka byrjun. Og sömu sögu má segja
um Brynjar. Kári var í daufara lagi
Stighæstir hjá Ármanni: Jimmy
36, Guðsteinn 21, Jón Sig. 20.
Hjá UMFN: Stefán 24, Brynjar Sig-
mundsson 21, Jónas 20, Kári 13,
Gunnar Þorvarðarson 10
Mjög góðir dómarar voru Jón. S
Ólafsson og Hilmar Viktorsson.
—
Badmintonmót
OPIÐ mót í badminton verður
haldið í KR-húsinu 7. febrúar n.k.
og hefst kl. 13.00. Keppt verður í
tvíliðaleik karla og kvenna. Þátt-
tökutilkynningar þurfa að berast
til Friðleifs Stefánssonar, sími
12632, fyrir 4. febrúar n.k.
NaumthjáKRgegn Val
MEÐ sigri sínum yfir Val um helgina
eygja KR-ingar enn smávon um sigur
í 1. deild. Sú von er þó veik, því
Ármann er með mjög góða stöðu og
ekkert má fara úrskeiðis hjá KR til
að þessar vonir verði endanlega að
engu. Sigur KR yfir Val var aðeins
88:83 eða fimm stig, og leikurinn í
heild mjög slakur og leiðinlegur á að
horfa þr Jtt fyrir spennu undir lokin.
KR sLoraði fyrstu körfu leiksins, en
Valur svaraði strax með 6 stigum
Fram eftir öllum fyrri hálfleik var leikur-
inn mjög jafn, og mikil harka var í
honum á köflum Kom það mest til af
því að dómgæzla var yfir höfuð mjög
slök, og samræmi ekki til í dómum
Var oft á tíðum engu líkara en eitthvert
„uppbótarkerfi" væri notað við dóm-
gæzluna Þetta æsti leikmenn greini-
lega upp, og stundum virtist sem sum-
ir þeirra væru hreinlega að missa
stjórn á sér En upp úr miðjum síðari
hálfleik kom eini virkilega góði kafli KR
í leiknum og þá náði liðið sér í 10 stiga
forskot fyrir hálfleik 43 33. Og það var
þungt i mörgum á leið til búningskléf-
anna í hálfleik
KR hélt ávallt forustunni í síðari
hálfleiknum, og munurinn á liðunum
var mestur 1 2 stig en fór niður í fimm
stig Undir lokin tókst Valsmönnum þó
að minnka muninn í 3 stig, 80:77 Þá
voru tvær mín. til leiksloka og Valur
hafði tækifæri á að minnka muninn í
eitt stig, en þeir misstu boltann á mjög
klaufalegan hátt Og þá var engu líkara
en liðið gæfist upp og „Trukkur" og
Kolbeinn Pálsson sáu um að innsigla
sigur KR
Það er óhætt að segja að mikill
tröppugangur sé í leik KR Liðið nær
skínandi góðum köflum, en þess á
milli dettur allt niður. „Trukkur" Carter
var að venju drjúgur, og skoraði mikið
fyrir KR, en virtist samt ekki alveg
sáttur við það sem var að gerast i
leiknum. Oft var hann með 2 og 3
menn á bakinu og ekki var dæmt, og
hélt ég að hann ætlaði í eitt skiptið að
leggja til atlögu við annan dómarann.
Og svo fékk hann á sig sóknarvillur
sem hann tók mjög illa.
Árni Guðmundsson og Eiríkur Jóns-
son áttu báðir mjög góða kafla
Sömu sögu má segja um Bjarna
Jóhannesson og Birgi Guðbjörnsson
sem gerði marga mjög laglega hluti í
varnarleiknum.
Þórir Magnússon og Torfi Magnús-
son voru beztu menn Vals í þessum
leik, en annars hefur maður það á
tilfinningunni (gamla tuggan) að Vals-
liðið eigi að geta betur. Og þegar
leikmaður sem segir eftir leikinn að
hann „gutli" bara með, er ekki von á
góðu, og ekki hvað sízt þegar um er að
ræða leikmann í fremstu röð
Stighæstir hjá KR: „Trukkur" Carter
35, Jóakim Jóakomsson 12, Árni
Guðmundsson og Bjarni Jóhannesson
10 hvor Kolbeinn Pálsson skoraði 6
stig, öll í lok leiksins þegar Valur virtist
vera að komast í sigurham
Hjá Vai: Þórir 25, Torfi Magnússon
19, Þröstur Guðmundsson 16.
Dómarar voru Sigurður Valur
Halldórsson og Hólmsteinn ÍJgurðs-
son.
— gk—.
ÍS olli voárigðnm og ÍR vann anðveldlega
ÞAÐ er líkt á komið með gomlu
erkifjendunum í körfuboltanum,
KR og tR. Bæði liðin halda í
smávon um Islandsmeistara-
titilinn, en mikið er horft á hina
gððu stöðu sem Ármannsliðið er
húið að koma sér upp. Bæði lR og
KR mæna vonaraugum til and-
stæðinga Ármanns, en fram að
þessu er Ármannsliðið ósigrað —
KR og IR hafa tapað 4 stigum.
Bæði KR og IR eiga eftir leikinn
gegn Ármanni f sfðari umferð —
og svo er innbyrðisleikur KR og
IR sem útilokar endanlega annað
liðið.
ÖII þessi lið sigruðu í leikjum
sfnum um helgina, og þeir sem nú
lágu fyrir tR voru lið stúdenta,
IS.
IR þurfti ekki stórleik tii að
vinna þennan sigur. IS-liðið sem
lék á heimavelli var ömurlega lé-
legt, og varla hægt að tala um
nema tvo leikmenn sem eitthvað
sýndu. Það voru miðherjar liðsins
þeir Bjarni Gunnar og Jón
Héðinsson. Aðrir leikmenn voru í
aukahlutverkum og virtust kunna
þvf vel. — Og enginn skilur neitt í
því hvað veldur þessari tregðu á
góðum leikjum hjá iS-liðinu, liði
sem hefur mannskap til að vera í
fremstu röð.
Þeir bræður Kristinn og Jón
Jörundssynir voru beztu menn IR
í þessum leik ásamt Þorsteini
Hallgrímssyni. Góðir kaflar komu
einnig hjá Agnari, Kolbeini og
Birgi, en yfir höfuð má segja að ÍR
hafi dottið niður í þessum leik,
enda mótstaðan ekki þannig að
mikið þyrfti að hafa fyrir hlutun-
um.
I stuttu máli gekk leikurinn
þannig fyrir sig: IR tók strax for-
ustuna og komst í 14:6, og þeim
mun hélt liðið út fyrri hálfleik
sem endaði 45:34. — I síðari hálf-
leik varð munurinn mestur 26
stig, 76:50 fyrir IR á 11. mfn. Á
þessu sést að sigur IR var aldrei í
hættu, og naumast formsatriði að
ljúka leiknum. Lokatölur 98:78.
Stighæstir hjá IR: Kristinn og
Kolbein Kristinsson 19 hvor. Jón
Jörundsson 17, Agnar Friðriksson
13.
Hjá IS: Jón Héðinsson 28,
Bjarni Gunnar 25.