Morgunblaðið - 03.02.1976, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 03.02.1976, Blaðsíða 30
3Q MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRUAR 1976 Egill Ólafsson Minningarorð Fæddur 19 marz 1892. Dainn 26. janúar 1976. D«yr fé, deyja fraendur, deyr sjálfur hið sama. En ordstír deyr aldreígi hveim er sér gódan getur. Með afa mínum, Agli Ólafssyni, er til moldar gengin ein merkasta og eftirminnilegasta persóna í lífi minu. Bernskuár okkar svstkinanna bjó hann hjá okkur og vakti yfir okkur á sinn óeigingjarna og trausta hátt, allt til enda. A kvöld- in svæfði hann okkur með sögum og söng vísur, jafnt sjómannavís- ur sem vögguljóð með sinni hrjúfu rödd. Ætíð er eitthvert okkar gat ekki fest blund var far- ið til afa. Oft kom það fyrir að ekkert okkar gat sofnað og þá var þröng á þingi í afa-herbergi. Þeg- ar mamma og pabbi komu inn gat að líta gamlan mann, hokinn í baki með fimm krakkagrislinga í kringum sig. Þó árin liðu og við eltumst sleppti hann aldrei verndarhendi sinni af okkur. Margsinnis á dag hringdi síminn. Var það afi til að grennslast fyrir um fjölskylduna og ef einhver kom seint heim eða eitthvað var úr lagi, hafði hann sífelldar áhyggjur. Alltaf vorum við velkomin til hans hvort sem var til að fá kandís, ráðleggingar eða til að létta á hjarta okkar. Afi fæddist 19. marz 1892 í Ytri- Njarðvík. Foreldrar hans voru Ólafur Jafetsson og Elín Þor- steinsdóttir. Ólafur var sjómaður að atvinnu, bæði á opnum skip- um og þilskipum. Elín kona hans var mikil myndarkona og forkur dugleg til allrar vinnu jafnt inn- anhúss sem utan. Afi ólst upp í stórum systkina- hópi og lifa fimm þeirra en fjögur eru látin. Allir sem til þessara tíma þekkja, vita hversu bág lífskjörin voru oft. Varð afi að fara snemma til sjós til að kosta sig til náms. Lauk hann prófi frá Stýrimanna- skólanum 1917 og vélaprófi nokkru seinna. — Hinn djúpblái sær átti hug hans allan enda varð hann dugandi sjómaður. Var hann ýmist yfirmaður eða háseti á þeim skipum sem hann starfaði á, þar til hann fór i land og gerðist verkstjóri hjá Rafmagnsveitu Reykjavfkur. Einn mesti hamingjudagur i lífi hans var þegar hann kvæntist ömmu, Ragnheiði R. S. Stefáns- dóttur, 23. desember 1921. Sam- búð þeirra varð farsæl þvi amma var dugleg og átti hina rfku kær- leikslund sem alltaf var reiðubú- in til að rétta fram höndina, þeim sem á hjálp þurftu að halda. Börn þeirra eru Ólafur, Sigrfð- ur og Guðmundur. Tvö börn tóku þau i fóstur, Sigurð R. Blomster- berg og Valgerði Jónsdóttur, sem kom til þeirra tæpra tólf ára. Hinn 6. júlí 1949 Iést amma eftir langa og stranga sjúkdóms- legu. En afi gafst ekki upp, hélt áfram sem fyrr og mætti öllu mót- læti með óbilandi kjarki. Síðustu árin bjó hann á Hrafn- istu, dvalarheimili aldraðra sjó- manna, og stóð hann ævinlega i mikilli þakkarskuld við allt starfsfólkið. Það endurnýjuðust kynni gamalla vina frá sigl- ingaárunum. Afi var ætíð mjög hraustur og vann við netagerð og annað fram á síðasta dag. Þó hann sé lagstur í hina hinstu gröf munum við systkinin ætíð minnast hans með þakklæti og gera okkur far um að likjast honum. Munu ljóðlínur þessar eftir örn Arnarson oft koma okk- ur f hug f náinni framtíð. „Það var svo Ijúft, þvf lýsir engin tunga af litlum hert>um tókstu harnsins þunga.“ Þegar litið er til baka yfir lífs- starf hans að ævidegi hans lokn- um á ég aðeins þá ósk ættjörðu minni til handa, að hún eignist sem flesta menn á borð við hann afa minn. 1 dag er til moldar borinn merk- ismaðurinn Egill Ólafsson fyrrum verkstjóri hér í Reykjavík. Hann var fæddur 19. marz 1892 i Ytri- Njarðvík sonur hjónanna Elínar Þorsteinsdóttur og Ólafs Jafetssonar. Egill var einn af níu systkinum og eftir lifa fimm. Egill ólst upp í foreldrahúsum unglingsárin. Arið 1917 fer Egill i Stýrimannaskóla tslands og út- skrifast þaðan'. Egill stundaði sjó- mennsku í mörg ár á allskonar skipum, fyrst á kútterum og síðar á togurum. Hann hafði ávallt heppni með sér við störfin á sjón- um og var með í því að bjarga mönnum úr sjávarháska. Hann var lengi stýrimaður á togaranum Þórólfi með aflaskipstjóranum Guðmundi frá Nesi. Egill var einn af stofnendum Hásetafél. Reykja- víkur síðar Sjómannafélagi Reykjavíkur og var hann þar heiðursfélagi. Mesti hamingjudagur í lifi hans var 23. desember 1923 er hann kvæntist konu sinni Ragnheiði Stefánsdóttur frá Varmadal á Rangárvöllum. Ragnheiður var mesta myndar-og sæmdarkona og bjó hún manni sinum myndar heimili sem var þeim til sóma fyrir myndarskap og snyrti- mennsku. Avallt var gestkvæmt á heimili þeirra. Það var mikill söknuður þegar Egill missti konu sína 7. júlí 1949. Eftir það bjó Egill með börnum sínum og fóst- ursyni sem þá var ungur. Þau Egill og Ragnheiður eignuðust þrjú börn. Ólafur er elstur þeirra, giftur Erlu Guðmundsdóttur, Sig- ríður gift Þórólfi Ólafssyni, og Guðmundur giftur Hervöru Guð- jónsdóttur. Einnig ólust upp hjá þeim Valgerður Jónsdóttir, gift Einari Eiríkssyni, og Sigurður Ragnar Blomsterberg giftur Ólafíu Ólafsdóttur. Við bróðurdætur Ragnheiðar sem þessar línur ritum, bjuggum lengi I sama húsi með foreldrum okkar og var sú sambúð eins og eitt heimili sem aldrei féll skuggi á og var okkur tekið eins og þeirra börnum. Það er mikil eftin- sjá að slíkum mönnum sem Egill var. Hann var einn af þeim sem settu svip á Reykjavik. Margir samferðamenn sóttu til hans ráðleggingar á lausn sinna mála enda var hann ráðagóður og hvers manns hugljúfi. Þeir eru margir samverkamenn hans sem f t tlmaritinu Friendship Bullet- in, sem gefið er út af Fokkerverk- smiðjunum í Hollandi, er allöng grein um tsland. Greinin heitir F27 þarfasti þjóninn 1 fslenzkum flugmálum. Er hún 6 sfður og prýdd ágætum myndum frá Is- landi. Nokkuð er minnzt á útfærslu íslenzku landhelginnar í 200 míl- dag minnast hans með söknuði og líta með lotningu til liðinna sam- verustunda. Eftir að Egill hætti störfum á sjónum vann hann lengst af hjá Rafmagnsveitum Reykjavíkur og vann þar sem annarsstaðar störf sín af ein- skærri trúmennsku og dugnaði. Siðustu árin sem hann lifði var hann vistmaður á Dvalarheimili aldraðra sjómanna, Hrafnistu, og líkaði honum vistin þar vel, því enn rann sjómannsblóð í æðum hans. Þar v]ánn hann við sjóvinnu- störf og andaðist með verkefni í höndum sér. Við kveðjum Egil hinstu kveðju með þakklæti og vitum að vegur- inn yfir móðuna miklu verður honum greiðfær. Við vottum börnum, fósturbörnum, tengda- börnum og barnabörnum okkar innilegustu samúðarkveðjur. ur og sagt er frá, að 1952 hafi landhelgin verið 4 mílur, 1958 varð hún 12 mílur og 1972 var landhelgin færð út i 50 mílur. Síðan segir að svarið sem Islend- ingar gefi sé að þeir séu einfald- lega að berjast fyrir tilveru sinni með þvi að reyna að vernda fiski- miðin í kringum landið frá að verða hreinsuð af „ryksuguskip- um.“ I greininni er sagt nokkuð frá íslenzkum flugmálum og viðtal er við örn Johnson forstjóra og Einar Helgason yfirmann innan- landsflugs. Einnig er sagt frá notkun Landhelgisgæzlunnar á Fokker-vélum og rætt við Pétur Sigurðsson, forstjóra Landhelgis- gæzlunnar. Afmælis- . °? minning- argreinar ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og ipinningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verð- ur grein, sem birtast á f mið- vikudagsblaði, að berast f sfð- asta lagi fyrir hádegi á mánu- dag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera f sendibréfsformi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með góðu lfnubili. útfarasKreytlngar blómouol Groðurhúsið v/Sigtun simi 36770 BRYNDtS t Faðir minn, VALDIMAR ÞORVALDSSON, frá Suðureyri, Súgandafirði, lézt á Landspítalanum 1. febrúar sl Fyrir hönd systkina og annarra vandamanna, Þorvaldur Valdimarsson. t Eiginmaður minn og faðir okkar, WALTER BOURANEL, 1801 Albany Avenue, Brooklyn, New York 11210. andaðist að heimili sínu 28. 1. '76 Útför hans hefur farið fram. Margrét Lára Bouranel og börn. Eiginmaður minn, sonur og ^.v/w.., STEFÁN INGIMUNDARSON, kaupmaður, Vogagerði 8, Vogum, verður jarðsunginn frá Kálfatjarnarkirkju miðvikudaginn 4 febrúar kl Guðríður Sveinsdóttir, Abigael Halldórsdóttir, Guðrún Ingímundardóttir. t RÍKHARÐUR REIMAR JÓHANNSSON, frá Hofsósi, andaðist 1 febrúar að heimili sínu, Sogavegi 1 52, Reykjavík. Fyrir hönd aðstandenda Ingibjörg Jóhannesdóttir. Systir mírt. t MARGRÉT JÓHANNESDÓTTIR, Flfuhvammsvegi 25, Kópavogi, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju, i dag, þriðjudag kl 3. Guðjónína Jóhannesdóttir. t Faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir og afi EGILL ÓLAFSSON, Hrafnistu, verður jarðsunginn þriðjudaginn 3. febrúar frá Fríkirkjunni kl, 1 3.30. Blóm og kransar afbeðið en þeir sem vildu minnast hans láti Dvalar- heimili aldraðra sjómanna njóta þess. Ólafur Egilsson, Sigríður Egilsdóttir, Guðmundur Egilsson, Sigurður Blomsterberg, Valgerður Jónsdóttir t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andtát og jarðarför föður okkar, fósturföður, tengdaföður, afa og langafa, ÞORSTEINS JÓNASSONAR, Vtri-Kóngsbakka, Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks Sjúkrahússins I Stykkishólmi Sigurður og Jónas Þorsteinssynir, Þórleif Hauksdóttir, börn, og barnabörn. S.S. Ur ritinu Friendship Bulletin. ísland í riti Fokk- erverksmiðjanna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.