Morgunblaðið - 03.02.1976, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 03.02.1976, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRUAR 1976 17 Margrét Baldvinsdóttir sigraði I svigi og stórsvigi kvenna á Skálafells- mótinu. Margrét og Hafþór nrðn signrvegarar Hafþór Júlfusson frá tsafirði og Margrét Baldvinsdóttir frá Akur- eyri urðu sigurvegarar I fyrsta punktamóti vetrarins ( alpagrein- um, en það fór fram ( Skálafelli um helgina. Svip sinn á mót þetta setti auðvitað fjarvera nokkurra af beztu skfðamönnum landsins, sem nú eru komnir til keppni á Olympfuleikunum f Innsbruck f Austurrfki. Báðir sigurvegararnir á Skálafellsmótinu, Hafþór og Margrét, æfðu með fslenzka Ólympfuliðinu s.l. haust, en urðu ekki fyrir valinu til ferðarinnar. A ýmsu gekk á mótinu i Skála- felli og reyndust brautirnar hinar örðugustu fyrir keppendurna. Þannig luku t.d. aðeins 7 af 30 keppendum keppni í svigi karla sem fram fór á sunnudaginn, og í stórsvigi karla fengu líka margir byltu og urðu úr leik. Hafþór Júlíusson sigraði bæði í stórsvigi og svigi. I stórsviginu hlaut hann tímann 140,84 sek. Gunnar B. Ölafsson frá Isafirði varð annar á 140,89 sek. og í þriðja sæti varð Böðvar Bjarna- son frá Húsavík á 141,05 sek. I svigi var samanlagður tími Hafþórs 107,44 sek. Þar varð Is- firðingurinn Valur Jónatansson í öðru sæti á 108,66 sek. og þriðji varð Arnór Magnússon frá ísa- firði á 109,56 sek. I svigi kvenna hlaut Margrét Baidvinsdóttir tímann 134,51 sek. önnur varð Kristín Ulfsdóttir frá ísafirði á 141,02 sek. og þriðja varð Guðrún Frímannsdóttir frá Akureyri á 156,60 sek. I stórsvig- inu fékk Margrét Baldvinsdóttir tímann 135,89 sek. önnur varð Katrín Frímannsdóttir frá Akur- eyri á 141,63 sek. og þriðja varð Guðrún Frímannsdóttir frá Akur- eyri á 156,60 sek. Malmberget vann sinn fyrsta sigur SÆNSKA liðið Malm- berget sem Ágúst Svavars- son, fyrrum ÍR-ingur, hefur gengið til liðs við, vann sinn fyrsta sigur í sænsku 1. deildar keppn- inni í handknattleik á þessu keppnistímabili um helgina, er liðið vann Ystad með 26 mörkum gegn 22. Er þessi sigur liðs- ins þeim mun betri, að Ystad-liðið er í einu af efstu sætunum f deildinni. Hefur Malmberget alls hlotið 4 Agúst Svavarsson reynist Malm- berget drjúgur liðsmaður. stig í deildinni til þessa og öll eftir að Agúst kom til þess. Hins vegar er liðið enn langneðst og kemst varla hjá því að lenda í aukakeppni þeirri sem fram á að fara um sæti það sem fjölga á um í deildinni næsta vetur. Lugi, liðið sem Jón Hjaltalín leikur með, tapaði hins vegar leik sinum um helgina, en það keppti við Drott. 16—13 fyrir Drott urðu úrslit leiksins. Skoraði Jón Hjaltalín 5 mörk fyrir Lugi í leiknum. Staðan 1 sænsku 1. deildar keppninni er nú sú, að Heim hefur forystu með 20 stig, en síðan koma Ystad með 18 stig, Lugi með 18 stig, Hellas með 16 stig og Malmö IF er með 15 stig. Fjögur efstu liðin í deildinni keppa síðan um sænska meistara- titilinn og á Lugi góða möguleika á að vera með í þeirri keppni. I Þýzkalandi fóru leikar svo hjá liðunum sem Islendingarnir leika með, að Dankersen sigraði Wellinghofen 12—8 og Göpp- ingen tapaði leik sínum við Rintheim 17—19. Donzdorf, liðið sem Ólafur Einarsson leikur með vann sinn leik um helgina, en það gerðu einnig liðin sem eru fyrir ofan það i deildinni, þannig að staðan breyttist ekki. Er Donzdorf liðið einu stigi á eftir þeim tveimur liðum sem forystu hafa í riðlinum. GnðnwnÉr náði lágmarkinn GUÐMUNDUR Sigurðsson lyft- ingamaður úr Ármanni náði Ólympfulágmarkinu f sfnum þyngdarflokki á opnu lyftinga- móti sem fram fór f Sjónvarpssal á laugardaginn. Virðist svo sem að lyftingamenn kunni vel við sig í þessum sal, þar sem hann hefur verið vettvangur hinna ágætustu afreka f þessari fþróttagrein. Guðmundur byrjaði á að snara Celtic aftur í forystu CELTIC, liðið sem Jóhannes Eð- valdsson leikur með I Skotlandi, náði að nýju forystu I skozku úrvalsdeildarkeppninni á laugar- daginn, er liðið bar sigurorð af Dundee United, 2—1, á heima- velli. Glasgow Rangers, sem ver- ið hefur I forystuhlutverkinu að undanförnu, varð hins vegar að gera sér jafntefli að góðu I leik slnum við Dundee, en Rangers lék reyndar á útivelli. Baráttan er þó afar hörð, þar sem Celtic er aðeins með einu stigi meira en Rangers. j leik Dundee United og Celtic náði Dundee Utd. forystunni með marki Hall, en Kenny Daglish jafnaði siðan, og fyrir leikhlé hafði Celtic náð forystu með marki Poul Wilsons. í seinni hálf- leiknum sótti Celtic-liðið síðan án afláts, en Dundee Utd. varðist vel og fékk ekki fleiri mörk á sig. Staðan I Skotlandi. þegar leiknar hafa verið 23 umferðir, eru sú, að Celtic hefur hlotið 32 stig, Rangers er með 31 stig. Motherwell er I þriðja sæti með 29 stig. en síðan koma Hibernian með 28 stig, Aberdeen með 25 | stig, Hearts með 22 stig, Dundee með 21 stig, Ayr United með 20 stig, Dundee United er með 14 stig og St. Johnstone er á botnin- um með 6 stig og virðist dæmt til falls að þessu sinni. 145 kg í milliþungavigtarflokkn- um og síðan jafnhattaði hann 190 kg þannig að samanlagt lyfti hann 335 kg. Má get þess til gamans að Andon Nikolov frá Búlgaríu, sem sigraði í þessum þyngdarflokki á Ólympiuleikunum í Múnchen 1972, lyfti þá samtals í þessum tveimur greinum, snörun og jafn- höttun, 355 kg, og Svíinn Hans Bettembourg, sem varð í þriðja sæti, lyfti samtals 330 kg. Ætti Guðmundur því góða möguleika á að verða framarlega i keppninni í Montreal, jafnvel þótt um unitals- verðar framfarir hafi verið að ræða frá síðustu Ólympíuleikum. Guðmundur er annar Islending- urinn sem nær Ólympíulágmark- inu í lyftingum. Hinn er Gústaf Agnarsson, sem einnig var meðal keppenda á sjónvarpsmótinu og náði mjög góðum árangri með þvi að jafnhatta 190 kg. Birgir Örn Birgis sem þarna skorar fyrir Ármenninga, lék sinn fyrsta landsleik þegar sumir núverandi landsliðsmanna voru þriggja til f jögurra ára. Ilandsliðið eftir sex ára fjarveru „NESTOR“ ísl. körfuknatt- leiksmanna, Birgir Örn Birgis, lék sína fyrstu landsleiki árið 1959, og voru þeir leikir jafn- framt fyrktu landsleikir Islands f körfuknattleik. Þá var Birgir örn aðeins 16 ára gamall, og sá sem þessar línur ritar gekk í barnaskóla. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar, og enn er Birgir örn i fremstu röð í ísl. körfuknattleik, og undirritaður kominn af skólaaldri. Birgir lék 32 fyrstu landsleiki Islands, missti aldrei úr leik, og lék sfðast í landsliðinu á Polar Cup 1970 i Osló. En „sá gamli“ er ekki alveg búinn að segja skilið við landsliðið, og um helgina leikur hann á ný með því eftir 6 ára hlé. Birgir hefur hæft mjög vel í vetur, og aðspurður sagðist hann stefna að Islandsmeistara- titli í fyrsta skipti á sinum ferli, auk þess sem hann væri tilbúinn að taka á með þeim yngri í landsliðinu ef þörf væri fyrir sig þar. „Já, það er mjög gaman að vera kominn í landsliðshópinn á ný eftir 6 ára hlé. Þetta er mjög frábrugðið því sem áður var hvernig liðið er æft upp, það er miklu meira skipulag á öllum hlutum bæði hvað varðar varnar- og sóknarleik. Og svo er breiddin mun meiri. “ Við spurðum Birgi um hans eftirminnilegustu landsleiki. „Ætli fyrsti landsleikurinn sé ekki minnisstæðastur þrátt fyr- ir að hann tapaðist. En leikur- inn við Svíþjóð 1961 er einnig ofarlega í huga manns. Þann leik áttum við að vinna en töpuðum með 3 stigum eftir mikil villuvandræði. Og svo leikurinn gegn Dönum á Polar Cup 1966 þegar Kolbeinn Páls- son tók vítaskotin frægu eftir að venjulegum leiktíma lauk og skoraði úr báðum og tryggði sigurinn. Það var ógleymanlegt að sjá fögnuð fararstjóranna, þeir dönsuðu um allan völl við mikla kátínu áhorfenda." Þú hefur leikið á móti Bill Mclnnes fyrirliða brezka lands- liðsins? „Já, ég hef leikið nokkra leiki gegn honum og þekki hann vel. Hann er geysilega sterkur leik- maður, en orðinn gamall," sagði Birgir og hló mikið. „En mig langar að segja þér eina skemmtilega sögu svona í lokin, og hún sýnir vel hversu gamall ég er orðinn sjálfur. Þegar ég var að leika mína fyrstu lands- leiki 1959 voru yngstu leik- mennirnir sem leika núna i landsliðinu aðeins þriggja ára og voru rétt að byrja að ganga — og sögðu bara da da da“ gk—

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.