Morgunblaðið - 03.02.1976, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 03.02.1976, Blaðsíða 40
AUGLÝSENGASÍMINN ER: 22480 3H«r0un(>Uiíii& ttgnnftliitoffr AUGLÝSINGASÍMINN ER: 22480 }n«r0nn(>Ubib ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 1976 Alþýðusamband Islands: Allsherjarverk- febrúar fall 17. — hafi samningar ekki BAKNEFND Alþýðusambands Is- lands ákvað í gær, að stjðrn sam- bandsins færi þess á leit við aðildarfélog sfn, að þau boðuðu verkföll frá og með þriðjudegin- um 17. febrúar næstkomandi, hafi ekki samningar tekizt fvrir þann tíma. Eins og áður hefur komið fram í fréttum hefur Sjó- mannasamband Islands þegar farið þess á leit við aðildarfélög sín að þau boði verkföll frá og með 14. febrúar. Náist því ekki samningar, skellur brátt á alls- herjarverkfall f landinu. tekizt fyrir þann tíma Á baknefndarfundi ASI í gær gerði forseti sambandsins, Björn Jónsson, grein fyrir stöðunni í samningamálunum. Flutti hann ítarlega skýrslu um málið og spunnust umræður um skýrsluna, er Björn hafði lokið máli sfnu. Að umræðum loknum var samþykkt með atkvæðum allra fundar- manna tillaga samninganefndar ASI til allra verkalýðsféiaga, að þau lýsi yfir vinnustöðvun frá og með þriðjudeginum 17. þessa mánaðar, hafi samningar ekki tekizt fyrir þann tíma. Herra Kristján Eld- járn gefur kost á sér næsta kjörtímabil (Ljósm. Mbl. Frlðþjófur) FRÁ ALÞINGI I GÆR — Ráðherrarnir Einar Ágústsson, Gunnar Thoroddsen, Ólafur Jóhannesson og Geir Hallgrímsson hlýða á ræðu Sighvats Björgvinssonar í umræðum utan dagskrár í neðri deild. Klippt aftan úr brezk- um „sjóræningjatogara” VARÐSKIPIÐ Týr klippti f gær á togvfra brezka togarans Ross Kharthoum GV 120 um 40 sjðmflur austnorðaustur af Dalatanga. A miðunum fyrir austan voru f gær 30 togarar á svæðinu út af Glettinga- nesi og allt suður undir Hvalbak. Fjðrir togaranna voru mjög djúpt FORSETI Islands, herra Kristján Eldjárn tilkvnnti I gær þá ákvörðun sfna, að hann ætlaði að gefa kost á sér f for- setaembættið áfram næsta kjörtfmabil, sem hefst hinn 1. ágúst næstkomandi með þeim Forseti tslands, herra Kristján Eldjárn, á blaðamannafundin- um f gær. — Ljðsm.: Frið- þjðfur. fyrirvara að honum takist að afla meðmælenda, sem lög gera ráð fyrir. Á blaðahiannafundi í gær sagði herra Kristján Eldjárn, að hann hefði tekið þá ákvörð- un að tilkynna þetta með þess- um fyrirvara, þar sem margir hefðu verið að inna hann eftir því, hvort hann gæfi kost á sér. Auglýst verður eftir framboðum fyrir 1. marz. Þetta verður þriðja kjörtíma- bil herra Kristjáns Eldjárns. Forsetinn sagði, að starf forseta væri nákvæmlega hið sama og þegar hann hefði tekið við því — hann hafi þar engu breytt, enda kvað hann breytingar á embættinu þurfa að koma fram við stjórnarskrárbreytingu. Nefnd ynni að endurskoðun stjórnarskrárinnar, og kvaðst forsetinn búast við þvi að þar yrðu allir þættir endur- skoðaðir. Forsetinn kvaðst engar persónulegar óskir hafa um breytingu embættisins. Kristján Eldjárn sagði, að Framhald á bls. 38 undan landi. Á því svæði, sem klippt var á Ross Khartoum voru 14 togarar að veiðum. Er varðskipið kom að þeim, fyrirskipaði það togurunum að hífa inn veiðarfæri sín. Allir togararnir hlýddu fyrirmælum varðskipsins, nema Ross Khartoum. Er varðskipið nálgað- ist togarann kom í ljós að hann hafði uppi sjóræningjafána. Var togaranum skýrt frá því að ef hann ekki hífði inn vörpuna, yrði umsvifalaust klippt á togvíra hans. Togaraskipstjórinn sinnti engu viðvörunum og missti því vörpuna. Atburður þessi átti sér stað um klukkan 13 i gær, en togararnir ALLAR þrær á Austfjörðum eru nú fullar, og f gær sigldu fyrstu voru þá nokkuð dreifðir um miðin. Á meðal togaranna voru verndarskipin Lloydsman, Statesman og aðstoðarskipin Othello og Hausa. Við gæzlustörf fyrir austan voru varðskipin Týr, Ægir og Baldur. loðnubátarnir áleiðis til Vest- mannaeyja með aflatil löndunar. Fremur dræm veiði var f gær en þá tilkynntu* 11 skip um samtals 2700 tonn frá miðnætti sunnu- dags. Loðnan veiddist um 8—10 sjm. suðaustur af Hvalbak en var dreifð. Skipin sem tilkynntu um afla voru Örn KE með 260 tonn, Hrafn Sveinbjarnarson GK 200, Skógey SF 140, Magnús NK 270, Ásgeir RE 320, Höfrungur III. AR 230, Gunnar Jónsson VE 130, Þórður Jónasson EA 380, Vonin KE 50 tonn, en síðdegis í gær tilkynntu siðan Skírnir um 300 tonn og Arni Sigurður um 420 tonn. Sem fyrr segir eru allar þrær Framhald á bls. 38 Skýrsla for- sætisráðherra væntanleg í dag GEIR HALLGRlMSSON, for- sætisráðherra, mun væntan- lega gera Alþingi f dag grein fyrir viðræðum sfnum um landheigismálið f Lundúnum á dögunum. Sameiginlegum fundi utanrfkismálanefndar og landhelgisnefndar, sem halda átti f gær var frestað þar tíl kl. 11 fyrir hádegi í dag. Ólafur Jóhannesson: Engar greiðslur til Framsóknarflokksins frá Klúbbnum Hverjum og einum frjálst að skoða reikninga flokksins ORÐRÓMUR um fjárhagsleg tengsl Framsðknarflokksins og veitingahússins Klúbbsins kom til umræðu á þingsölum f gær, og neitaði Ólafur Jðhannesson dðmsmálaráðherra þvf þar f svarræðu til Sighvats Björg- vinssonar að um nokkur slfk tengsl væri að ræða. ,,Ég læt mér í léttu rúmi liggja það, sem látið er að liggja í þessum rógsskrifum (Vísis), að tengsl Framsóknarflokksins eða þá mín við Klúbbinn séu fjárhagslegs eðlis. Ég er nú sem betur fer bjargálna, og þarf ekki að vera í húsmennsku hjá einum eða neinum, kemst af, þarf ekki að leita á annarra náðir, hvorki Sigurbjarnar í Klúbbnum né annarra auð- jöfra. Og ég leyfi mér að full- yrða það, að Framsóknar- flokkurinn hafi ekki fengið neinar greiðslur frá Klúbbnum. Það er hverjum og einum frjálst og sjálfsagt að skoða í reikningum Framsóknarflokks- ins. Það er þessum háttvirta þingmanni (Sighvati Björgvinssyni) jafnfrjálst og öðrum, má meira að segja hafa bókhaldsfróðan mann í fylgd sinni.“ Þá sneri Morgunblaðið sér einnig til Þráins Valdimars- sonar, framkvæmdastjóra Framsóknarflokksins, og bar þetta atriði undir hann. Kvaðst Þráinn hafa starfað á vegum Framsóknarflokksins í 30 ár og á þeim tíma aldrei tekið á móti einum eða neinum greiðslum frá aðstandendum Klúbbsins til Framsóknarflokksins eða félaga hans. Hins vegar hefðu sömu aðilar um tfma leigt Glaumbæ af Framsóknar- flokknum þar til húsið brann, og væri honum kunnugt um að leigan hefi runnið í húsbygg- ingarsjóð Framsóknarflokks- ins. Um önnur skipti þessara aðila við Framsóknarflokkinn væri honum ekki kunnugt. Þá sneri Morgunblaðið sér einnig til Kristins Finnboga- sonar, sem er formaður Fram- sóknarfélagsins í Reykjavík og á sæti í húsbyggingarsjóði. Hann fullyrti, að engin tengsl væru milli húsbyggingarsjóðs- ins og aðstandenda Klúbbsins og ennfremur að ekkert fé hefði komið frá þessum aðilum til framsóknarfélaganna í Reykjavík. Hins vegar kvað hann það rétt, að Sigurbjörn Eiríksson og kona hans er nú stæðu að rekstri Veitingahúss- ins við Lækjarteig hefðu um tíma leigt Glaumbæ af Framsóknarflokknum, en þegar það hús brann hafi með öllu tekið fyrir viðskipti hús- byggingarsjóðsins við Sigur- björn. Síðan hafi engin tengsl né neinar greiðslur farið fram þar á milli, enda kvaðst Kristinn ekki sjá að Sigurbjörn væri aflögufær um fjármuni, eins og fjárhag fyrirtækis hans væri háttað samkvæmt síðustu upplýsingum er fram hefðu komið. Hins. vegar staðfesti Kristinn að leigan fyrir Glaumbæ á sínum tíma hefði runnið óskipt í húsbyggingar- sjóðinn. Allar þrær fullar á Austfjarðahöfnum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.