Morgunblaðið - 03.02.1976, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 03.02.1976, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 1976 23 Dregið í bikarkeppni HSI Þróttur - Haukar einu 1. deildar liðin sem leika saman í 1. umferð FYRSTA umferð bikarkeppni Handknattleikssambands Islands býður upp á einn stórleik, er 1. deildar liðin Þróttur og Haukar mætast. Eru það einu fyrstu deildar liðin sem drógust saman I I. umferðinni, en alls tilkynntu 22 lið þátttöku I bikarkeppni karla og 14 lið I bikarkeppni kvenna, sem nú fer fram 11. sinn. Þetta verður hins vegar í annað sinn sem bikarkeppni karla fer fram og eru FH-ingar núverandi bikarmeistarar. I bikarkeppni karla voru fyrst dregin út 10 lið, sem sitja hjá í 1. umferð, en síðan voru 12 lið dreg- in saman og voru það eftirtalin: HK — IR lA — Grótta Afturelding — Víkingur Þór — FH Þróttur — Haukar Fylkir — Leiknir Þau 10 lið sem sitja hjá í fyrstu umferðinni eru: Víðir, Breiða- blik, Stjarnan, Týr í Vestmanna- eyjum, Keflavík, Fram, Armann, Valur, KA og KR. Sem fyrr greinir má búast við því að Þróttur — Haukar verði aðalleikur 1. umferðarinnar, en hann á að fara fram f Laugardals- höllinni. Ætla má að úrslit í hinum leikjunum verði nokkuð „örugg“, þ.e. að IR, Grótta, Vík- ingur og FH eigi visa sigra. Búast má hins vegar við tvísýnum leik milli Fylkis og Leiknis, en óneitanlega er sfðarnefnda liðið sigurstranglegra, en það komst f undanúrslit keppninnar í fyrra. I 1. umferð bikarkeppni kvenna sitja tvö lið hjá, Fram og Haukar, en önnur þátttökulið leika saman sem hér segir: Þór — Valur Keflavík — FH Grindavík — Breiðablik Stjarnan — Ármann ÍR — Víkingur Njarðvík — KR Þá fer einnig fram bikarkeppni 2. flokks karla og tilkynntu þar 17 lið þátttöku sína. Aðeins einn leikur fer fram í 1. umferð og leika þá saman Grótta og Aftur- elding. I annarri umferð leika svo saman eftirtalin lið: KR — Njarðvík Valur — Fram Víkingur — FH Haukar—IR Armann — HK Fylkir — Þróttur UBK — IA Stjarnan — Grótta/Afturelding Þetta er f annað sinn sem keppt er f bikarkeppni 2. flokks karla. Benedikt Gunnarsson nær ekkí að hindra skot Sfmons Unndórssonar sem hafnar f Þórsmarkinu hægri takast þeir Ævar Sigurðsson og Sigtryggur Guðlaugsson á. n. -■* — 10 4l hafði bétúr í skotkeppni fþið EKKI var það rismikiil hand- knattleikur sem 2. deildar liðin KR og Þór buðu upp á f leik sfnum í Laugardalshöllinni á laugardaginn. Að vfsu var leikur- inn sæmilegur af beggja hálfu til að byrja með, en þar kom fljót- lega að hann riðlaðist, og var sfðan um hreina skotkeppni að ræða. 1 henni höfðu KR-ingar bet- ur og skoruðu 28 mörk gegn 23 mörkum Þórsara. Segja þessar töiur mikið um hvernig varnar- leikur liðanna var — þar gátu menn oftast gengið f gegn af vild og skorað. Leikurinn var nokkuð jafn fyrstu mínúturnar, eða til þess tíma að KR-ingar tóku það til bragðs að taka Þorbjörn Jensson úr umferð. Gegndi Asgeir Haraldsson hlutverki .ð'fir- frakkans“ svo vel að Þorbjörn gat eftir það lítið sem ekkert hreyft sig í leiknum. Má mikið vera ef það hafa ekki verið mistök hjá Þór að svara ekki þessum að- gerðum KR-inga með þvi að taka Hilmar Björnsson, sem er hálft KR-liðið, úr umferð. Það var ekki fyrr en undir lok leiksins sem þeir gerðu það og tókst þá verulega að saxa á muninn, sem orðinn var 9 mörk um tíma. Fæstir áttu von á því við upp- haf keppnistímabilsins í haust að Þórsliðið myndi berjast á botnin- um i 2. deildinni enda hefur liðið bæði mannskap og burði til alls annars. En það er sem mótlætið sem Þór varð fyrir í fyrstu leikjum sínum í deildinni, hafi brotið liðið niður og áhugi ein- stakra leikmanna virðist tak- markaður. Þó hefur Þórsliðið mannskap til þess að standa mun betur. Vörn liðsins er ákaflega gloppótt og gefur andstæðing- unum of mikið svigrúm til þess að leika sér. Farið er of seint fram á móti mönnunum, og ef slíkt var gert var viðkomandi varnarmaður það seinn aftur að auðvelt var að stinga sér inn fyrir aftan hann. Hilmar Björnsson var potturinn og pannan f öllu hjá KR-ingunum. Það var ekki bara að hann skoraði 13 mörk í leiknum, heldur átti hann hlut að miklu fleiri með gullfallegum línusendingum, eða þá hann dró 2—3 varnarmenn Þórs að sér og sendi síðan á sam- herja sinn sem var á auðum sjó. Mörk KR: Hilmar Björnsson 13, Ingi Steinn Björgvinsson 3, Þor- varður Guðmundsson 3, Kristinn Ingason 2, Ólafur Lárusson 2, Símon Unndórsson 2, Ævar Sig- urðsson 1, Sigurður Óskarsson 1, Friðrik Þorbjörnsson 1. Mörk Þórs: 'Sigtryggur Guðlaugsson 12, Þorbjörn Jens- son 4, Benedikt Guðmundsson 4, Einar Björnsson 2, Gunnar Gunnarsson 1. Maður leiksins: Hilmar Björns- son KR. Dómarar: Kjartan Steinbeck og Jón Hermannsson og dæmdu sæmilega. —stjl. Landsleikir í körfuknattleik viðBreta um nœstu helgi N.K. LAUGARDAG og sunnudag fara fram í Laugardalshöll tveir landsleik- ir í körfuknattleik, og hefjast leik- irnir kl. 14 báða dagana. Mótherji ísl. landsliðsins I þessum leikjum verður Ólympíullð Breta, sem er skipað 7 Englendingum og fimm Skotum. Brezka Ólympiuliðið er nú að hefja lokaundirbúning sinn fyrir forkeppni Ólympiuleikanna, en hún fer fram í Edinborg i maí. Þar leikur brezka liðið i mjög sterkum riðli, m.a. með Júgóslövum og Pólverjum. ísl. liðið mun einnig taka þátt í forkeppni ÓL, en keppni sú sem okkar menn taka þátt i fer fram i Kanada í júni. Þessir leikir eru fyrsti liðurinn i undirbúningi isl liðsins fyrir þá keppni Síðan verða þrir leikir hér heima við Portúgal í byrjun apríl og síðan Norðurlandamótið í lok april. Landsleikir íslands í undirbúningi fyrir ÓL í júní verða því 1 0 talsins. ísland hefur aldrei áður leikið lands- leik gegn sameinuðu liði af Bretlands- eyjum. Við höfum leikið 6 leiki gegn Skotum, unnið þrjá en tapað þremur Við Englendinga höfum við leikið einu sinni. Það var 1974 i Worthing í Englandi og tapaðist sá leikur eftir mikla baráttu lengst af. Segja má, að allur körfubolti i Skot- landi og Englandi i vetur hafi einkennzt af undirbúningi ÓL-liðsins fyrir for- keppni ÓL Liðið var valið endanlega fyrir áramót, og ekkert er til sparað til að árangur þess geti orðið sem beztur Nokkrir leikmenn brezka liðsins eru ..góðkunningjar" ísl. körfuknattleiks- manna, og er þar fremstur i flokki Skotinn Bill Mclnnes sem hefur leikið 93 landsleiki fyrir Skotland og 31 fyrir Bretland Mclnnes er frábær körfu- knattleiksmaður sem m.a. hefur leikið með Evrópuúrvali Hann hefur oft- sinnis hlotið verðlaun í alþjóðamótum fyrir frábæra frammistöðu. Þrír aðrir Skotanna eru úr sama liði og Mclnness, Boroughmuir Barr. Það eru bakverðirnir Carmichel og Guthrie Wil- son, og miðherjinn harði, McAlpine. Fimmti Skotinn i liðinu er Willie Cameron sem er 208 sm á hæð Hann leikur með skozka liðinu Paisley. Englendingurinn Peter Sprogis er talinn sterkasti bakvörður á Bretlands- eýjum i dag. Hann lék með Englandi í landsleiknum við ísland 1 974 og skor- aði 49 stig og hann brenndi einu einasta skoti af allan leikinn. Þar er frábær leikmaður á ferð sem verður að stöðva Þetta verða 57. og 58 landsleikur íslands í körfuknattleik. 24 leikir hafa unnizt — 32 tapazt Stigatalan er óhagstæð um 587 stig. Kolbeinn Pálsson, KR, er með flesta landsleiki íslendinganna, sem leika þessa leiki, og reyndar leikjahæstur allra sem hafa leikið í körfuknattleiks- landsliðinu með 41 landsleik. Birgir Örn Birgirs, sem kemur nú á ný inn í landsliðið eftir 6 ára hlé, hefur 32 leiki að baki Jón Sigurðsson, Ármanni, 29 leiki, og fyrirliðinn Kristinn Jörunds- son 23 leiki. Þrír nýliðar verða í isl. liðinu, þeir Jónas Jóhannesson, UMFN, Björn Magnússon, Ármanni, og Gúðsteinn Ingimarsson, Ármanni. Meðalhæð isl liðsins er 191 sm, en meðalhæð Bretanna er ívið hærri — eða 1 93 sm Góðir stökkvarar í Austnrríki SKlÐASTÖKKSMENN frá Austurrlki röðuóu sér f þrjú efstu sætin á stökkmóti sem fram fór 1 Murau 1 Austurrfki um helgina. í Sigurvegari varð Karl Schnabl, sem stökk 112 metra og 104 metra og hlaut 249J stig. I öðru sæti varð Willy Puerstl, sem hlaut 245,7 stig fyrir 104 metra og 111 metrastökk, og Hans Wallner varð þriðji með 231,3 stig fyrir 104 og 105 metra stökk. 1 fjórða sæti varð svo Norðmaðurinn Johan Sætre, sem hlaut 229,8 stig fyrir 100 metra og 104 metra stökk. Borussia út úr bikarnum ÞAÐ vakti mikla athvgli að Borussia Mönchengladback, vestur- þýsku meistararnir og bikarhafar f UEFA-bikarkeppninni, mis- tókst að komast f undanúrslit í vestur-þýzku bikarkeppninni f knattspyrnu að þessu sinni. Liðið tapaði á faugardaginn fyrir Fortuna Dússeldorf, sem er eitt af neðri liðunum f 1. deildinni, með 2 mörkum gegn 3. Um 65.000 áhorfendur fylgdust með Iciknum sem fram fór á heimavelli Fortuna, og var að vonum gffurlegur fögnuður heimamanna að leikslokum. Tvö heimsmet í Davos TVÖ NÝ heimsmet f skautahlaupum litu dagsins Ijós á móti sem fram fór f Davos í Sviss um helgina. Holfendingurinn Hans van Helden setti nýtt heimsmet f 5000 metra hlaupi karla og banda- rfska stúlkan Sheila Young setti nýtt met f 500 metra hlaupi kvenna. Yfirleitt náðist mjög góður árangur f öllum keppnis- greinum f Davos, enda voru skilyrði eins hagstæð og mögulega geta orðið, hiti var um frostmark og fsinn var sléttur og góður. Sheila Young hljóp 500 metra hlaupið á 40,91 sek., og bætti eldra metið sem sovézka stúlkan Tatiana Averina setti f fvrra um 0,15 sek. Önnur f þessu hlaupi varð Leah Poulos frá Banda- rfkjunum sem hljóp á 41,78 sek., þannig að af þvf má sjá að Young hafði umtalsverða yfirburði f hlaupinu, Poulos sigraði hins vegar Young f 1500 metra hlaupinu, hljóp á 2:13,98 sek., en Young varð þar önnur á 2:14,68 sek. Sem fyrr greinir setti Hollendingurinn Hans van Helden nýtt met f 5000 metra hlaupi og hann sigraði einnig f 1500 metra hlaupi á mjög góðum tíma 1:59,38 mfn. 1 500 metra hlaupi karla varð Peter Múller frá Bandarfkjunum hins vegar sigurvegari, hljópá 38,48 sek. A-Þjóðverjar unnu Breta AUSTUR-Þjóðverjar sigruðu Breta í landskeppni f frjálsum fþróttum innanhúss sem fram fór í Cosford f Bretlandi um helgina. I karlagreinunum hlutu Þjóðverjar samtals 78,5 stig gegn 48,5 stigum Breta og f kvennakeppninni hlutu þýzku stúlkurnar 55 stig gegn 37. Agætur árangur náðist f iillum greinum á móti þessu, en sigurvegarar f einstökum greinum urðu: KONUR: 800 metra hlaup: C. Neumann, A-Þýzkal., 2:05,8 mfn. 60 metra grindahlaup: A. Ehrhard, A-Þýzkalandi, 8,1 sek. 400 metra hlaup: D. Maletzki, A-Þýzkalandi, 53,6 sek. 1500 metra hlaup: W. Strotzer, A-Þýzkal. 4:12,4 mfn. Kúluvarp: I. Schoknecht, A-Þýzkal., 19,18 metrar. 60 metra hlaup: A. Lvnch, Bretlandi, 7,3 sek. Hástökk: R. Ackermann, A-Þýzkal., 1,88 metrar Langstökk: A. Boigt, A-Þýzkal., 6,45 metrar. 4x200 metra boðhlaup: Sveit Bretlands, 1:37,7 mfn. KARLAR: Hástökk: E. Kirst, A-Þýzkal., 2,24 metrar. 3000 metra hlaup: J. Straub, A-Þýzkal., 7:57,8 mfn. Langstökk: P. Rciger, A-Þýzkal., 7,57 metrar. 4x200 metra boðhlaup: Sveit Austur-Þýzkalands, 1:27,3 mfn. Stangarstökk: W. Reinhardt, A-Þýzkal., 5,30 metrar. 60 metra hlaup: E. Ray, A-Þýzkalandi, 6,6 sek. 800 metra hlaup: G. Stolle, A-Þýzkalandi, 1:49,6 mfn. 1500 metra hlaup: K.P. Justus, A-Þýzkalandi, 3:46,1 mfn. Kúluvarp: H. J. Rothenburg, A-Þýzkalandi, 20,36 metrar. 400 metra hlaup: A. Bennett, Bretlandi. 48,5 sek. 60 metra grindahlaup: T. Munkelt, A-Þýzkalandi, 7,7 sek. Tyldum í góðn formi NORÐMAÐURINN Pal Tyldum, sem hreppti gullverðiaun í 50 kflómetra göngu á Olympíuleikunum f Sapporo 1972, sýndi það f skfðagöngukeppni Norðmanna og Austurríkismanna, sem fram fór f Döllach f Austurríki um helgina, að hann er f góðu formi um þessar mundir og Ifklegur til þess að láta að sér kveða á Olympfuleikunum í Innsbruck. Tvldum sigraði mcð nokkrum vfirburðum f 18 kflómetra göngu í keppni þessari, gekk á 59:13,26 mín. Þó er svo stutt ganga ekki grein Tvldums. Norska göngufólkið var mjög sigursælt f umra'ddri keppni, og bcnda líkur til þess að Norðmenn verðí f fremstu röð i göngunni á Ölympfuleikunum, eins og svo oft áður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.