Morgunblaðið - 03.02.1976, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 03.02.1976, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 1976 31 UMHOftF Umsjón: Haraldur Blöndal Að hasla ungu fólki vöD tíl að vinna að málum sínum STJÖRN Heiindallar 1975—1976. Talið frá vinstri, standandi: Þorvaldur Mawby, Helena Alberls- dóttir, Árni Þ. Árnason, Hreinn Loftsson, frkv.stj. Heimdallar, Einar Oddur Ólafsson, Arni B. Eiríksson og Skafti Harðarson. Sitjandi: Júlfus Hafstein gjaldkeri, Björn Hermannsson varaformaður. Jón Magnússon formaður, Elfnborg Jónsdóttir og1 Gústaf Níelsson. Rœtt við Jón Magnússon, formann Heimdallar Þann fyrsta nóvember sl. var haldinn aðalfundur Heimdall- ar. Þessi fundur var óvenju fjölmennur, enda fór fram kosning um formann félagsins. Jón Magnússon var kjörinn for- maður með 135 atkvæðum, en Þorvaldur Mawby fékk 85 at- kvæði. Þar sem aðalfundurinn var haldinn seint, var ekki að vænta mikils starfs fyrir ára- mót, því að alltaf tekur tfma að undirbúa félagsstarf nýrrar stjórnar. Þó hafa verið haldnir nokkrir fundir. Umhorf hafði nú um ára- mótin stutt viðtal við Jón Magnússon: Þvf hefur verið haldið fram, að starf Heimdallar hafi stöð- ugt farið minnkandi undanfar- in ár og félagatalan hafi dregist saman? — Heimdallur hefur átt sin mögru ár og sín feitu. Starf síðustu stjórnar var á margan hátt meira en mörg ár þar á undan. Mér virðist, ef litið er yfir söguna, að pólitfskar svipt- ingar í þjóðfélaginu hafi mest áhrif á starf félagsins á hverj- um tíma, enda eðlilegt um póli- tískt félag. Vitanlega eiga svo stjórnirnar sinn þátt. Ef litið er hins vegar tii þess hvernig starf Heimdallar er, borið saman við starf æskulýðssamtaka annarra stjórnmálaflokka, þá er saman- burðurinn okkur i hag. Heim- dallur hefur löngum verið stærsta stjórnmálafélag ungra manna, og félagatala hans hefur ekki minnkað, en ef miðað er við fjölgun Reykvík- inga, hefur félagatalan ekki fylgt þeirri fjölgun. — Aðalfundurinn er þó alla- vega sá fjölmennasti, og því verið haldið fram í einu dag- blaðanna, að æsingar hafi verið með mönnum: — Ég held að þessi aðal- fundur sé fjölmennasti aðal- fundur Heimdallar um langa hríð. Hitt er ekki rétt að æsingar hafi verið með mönnum. Agreiningur var um kosningu formannsins og voru atkvæði Iátin ráða. Slíkt er ekkert einsdæmi í sögu félagsins og eðlilegt í svo stóru félagi. Nú voru hóparnir fjölmennari en áður. Ég hef heyrt því hald- ið fram að menn hafi gengið af fundi í reiði m.a. kom þetta fram í Dagblaðinu, þar var ákaflega frjálst farið með staðreyndir og óháð því, sem raunverulega gerðist. Því er til að svara, að allir, sem þekkja til félagsmála, vita, að í kosning- um koma oft fleiri til fundar en þeir, sem ætla sér að sitja allan fundinn. Menn gefa sér stund til þess að kjósa sinn mann og bíða úrslita, en fara síðan heim, eða til vinnu. Menn taka vitan- lega ósigri misjafnlega, en slfkt er eðlilegt. — Því var haldið fram gegn þér, að þú værir i miðstjórn flokksins, og gegndir þannig einni af æðstu stöðum innan hans. Öþarfi væri að kjósa slíka menn til formennsku i Heim- dalli enda í ósamræmi við vald- dreifingarkenningu ungra sjálfstæðismanna, sem þú hefur verið mikill talsmaður fyrir. — Það er vitanlega æskilegt, að völd safnist ekki á fárra hendur, — en ég get ekki fundið, að nein völd séu í sjálfu sér því samfara að vera for- maður Heimdallar, eða þá f miðstjórn flokksins. Menn verða hins vegar að hafa í huga, að ungir sjálfstæðismenn hafa ætíð talið nauðsynlegt að efla sem mest áhrif sfn innan flokksins og auka sér þannig áhrif til þess að koma hug- myndum sínum á framfæri. Ég hef tvívegis verið kjörinn í mið- stjórn Sjálfstæðisflokksins fyrir atbeina ungra sjálf- stæðismanna og hef ætíð litið á mig sem talsmann þeirra þar. Sem formaður Heimdallar hef ég sterkari stöðu þar. — Og að lokum. Hvert er helsta áhugamál þitt sem for- manns Heimdallar ? — Að sem flest ungt fólk vilji tengjast félaginu og berjast fyrir stefnumálum þess. Heim- dallur á að vera vettvangur skoðanaskipta og margvíslegrar félagsstarfsemi. Með því verður félagið öflugt, og tekið verður tillit til skoðana þess, bæði f þjóðfélaginu og innan flokks- ins. I islensku þjóðfélagi er við mörg vandamál að etja, sem ráðandi kynslóð sinnir ekki. Þeim verður ekki sinnt, nema ungt fólk komist til aukinna áhrifa. Þeim áhrifum nær ungt fólk ekki nema með vinnu og starfi. Fjöldi ungs fólks vill leggja á sig vinnu og starf til þess að ná þessum markmiðum. Ég keppi að þvf, að Heimdallur verði vettvangur þessa fólks. — Að skilja ekki sagnfræðina Framhald af bls. 29 hleður utanum sig, og komin er í þá buðlandi flækju, sem enginn ræður við. Að geta borgað kýrverð eftir nokkur ár með lambsverði er í sjálfu sér ræningjasaga. Að ræna sparifjáreigendur verð- gildi fjármuna sinna, svo sem gert hefir verið hér s.l. 45 ár, er aldeilis „Tyrkja“-ránssaga, og að ætla að láta atvinnuþætti þjóðarinnar bera það rán uppi með okurvöxtum er alger barnaháttur ráð- villtra manna, sem í hvorugan fótinn kunna að stíga til staðfestu þeirra hluta, sem lögmál lífsins býður að ekki verði um flúið. Það breyt- ir engu, þótt mörgum þyki þessi leið léttfær í bili, þyrnarnir skjóta ávallt rótum áður en leiðarenda er náð, og það sýnir sig að gerzt hefir. Að vísitölutryggja eitt en ekki allt er ekki hægt, þá fer allt úr skorð- um. Vísitala er ekkert annað en mælir, rétt eins og frostmælir hitamælir og vog. Ef við hættum að vikta eina vöru, en mæl- um alla aðra er allt komið úr reipunum. Að vfsitölu- tryggja kaupmátt launa er heldur ekki hægt. Til þess þyrfti að mynda óhemjusjóð. Við getum ekki keypt fyrir meira en verðgildi þess sem í bátn- um er hverju sinni, nema að taka til þess lán, sem við verðum að borga með næsta afla. Ef við gætum vísitölutryggt kaupmátt launa, væri alveg sama hvað varan kostaði, þá mætti sykur pokinn allt eins fara uppí 50 þúsund eins og tuttugu. Þetta er auðskilið mál öllum sæmilega gefnum mönn- um, og eftir því ættu þeir að vinna, sem ráða vilja högum lands og þjóðar, en ekki eftir pólitískum vitleysum. Hins vegar geta orðið sveiflur á kaupmætti launa eins og öðru, oft í stórkostlegan hag eins og stundum f óhag. Óverðtryggðu lífeyris- sjóðirnir eru skýrt dæmi uppá þessa kenningu mfna, þeir eru svo gott einskis virði, og sanna hér mál mitt. Hinir lærðu spekingar brjóta nú höf- uð sfn um það, hvernig með skuli fara. Það er svo kapítuli útaf fyrir sig, en meðan þetta lögmál er ekki leiðrétt verður eng- in fjármálastjórn í lagi. Þetta eru blákaldar staðreyndir. AUGLÝSINGASÍMINN ER: 22480 JW*rflunbInbib 128 Bíllirm, sem fullnægir kröfum flestra Fiat 128 er framhjóladrifinn með framúrskarandi Fiat 128 er kjörinn bíll fyrir þá sem vilja fá mikið fyrir peininginn. Verö frá kr. 1030.000.- aksturseiginleika í snjó og á slæmum vegum. Fiat 128 er hlýr og notalegur bíll. G/æsilega innréttaður með mjúkum stólum frammíogrúmgóðuaftursæt Fiat 128 er óvenju hár undir lægsta punkt og minnir stundum á jeppa þegar ekið er í ófærum. Fiat 128 er með stóra glugga sem gera bílinn bjartari að innan með mikið og gott útsýni sem tryggir öryggi FIAT EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI Dav/tf Sigurdsson h.f. SÍÐUMÚLA 35, SÍMAR 38845 — 38888.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.