Morgunblaðið - 03.02.1976, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRUAR 1976
2000 íþróttamenn eiga að
LÖGRMAA
HVERJU GÖTU-
HORM í
Þannig verður Olympfuþorpið sem keppendur og fararstjórar
búa f lokað með gaddavfr og hindrunum.
OL-gull gefur 30 millj. kr.
Það er ekki bara að gullverð-
laun á Olympíuleikunum gefi
heiður og frægð í aðra hönd. Ekki
er ósennilegt að þeim er hlotnast
slíkur málmur fái einnig álitlega
peningaupphæðir og hafa
upphæðir allt að 30 millj. króna
verið nefndar i því sambandi. Að
því er franska íþróttablaðið
l’Equipe skýrði nýlega frá, hafa
skiðasambönd ákveðinna þjóða
tilkynnt Olympíukeppendum að
þau muni „heiðra" þá með
peningagreiðslum sem verði mjög
mismunandi háar eftir frammi-
stöðu þeirra i keppninni. Þá er
einnig vitað, að flestir af beztu
skíðamönnum heims eru á mála
hjá fyrirtækjum sem framleiða
skíði og skiðabúnað, og teljast
reyndar sumir þeirra beztu sem
verzlunarmenn hjá slfkum fyrir-
tækjum. Meðal þeirra er hinn
frægi Gustavo Thoeni frá Italíu,
en áðurnefndt franskt blað hefur
það fyrir satt að fyrirtæki Thoeni
hafi heitið honum 30 milljónum
króna fyrir Olympíugull. Slíkt er
vitafilega ekki látið opinberlega
uppi, þar sem hætt er við að
Olympíunefndin yrði þá, nauðug
viljug, að grípa til ráðstafana.
búa í lokuðu þorpi á Olgmpíuleikunum
******
wSm
’****míi
mH' - .,;
Nýjasta tfzkan hjá skfðafólkinu verur afgjörlega bönnuð f Innsbruck, enda væri auðvelt að
skýia sér á bak við hana.
Hafa ekki glegmt atburðunum í Munchen
Vetrarólumpíuleikarnir sem
hefjast í Innsbruck í Austurríki 4.
febrúar n.k. hafa af heima-
mönnum verið nefndir „Olympíu-
leikar tímamótanna“. Forsenda
þeirrar nafngiftar er sú, að
Austurríkismenn hafa lagt
áherzlu á að hafa undirbúning
fyrir leikana eins einfalda og þar
af leiðandi ódýra og mögulegt
hefur verið. Þeir hlupu í skarðið
fyrir bandarísku borgina Denver
sem tekið hafði að sér að halda
leikana, en siðan gefist upp vegna
þess mikla kostnaðar sem fyrir-
sjáanlegur var við mannvirkja-
gerð sem þar var áætluð vegna
leikanna.
Austurríkismenn búa nú að
mannvirkjum sem gerð voru
vegna leikanna sem þar voru
haldnir 1964, en bæði í Innsbruck
og i Seefeld var þá komið upp
hinni ágætustu aðstöðu, þótt
tæpast sé hún eins góð og glæsileg
og gerist sums staðar, og t.d.
pánast hjóm í samanburði við
mannvirkjagerðina í Sapporo I
Japan fyrir leikana sem voru
haldnir þar 1972.
En á einu sviði hafa Austur-
ríkismenn ekkert til sparað. Er
þar átt við öryggisgæzlu. For-
svarsmenn leikanna hafa ekki
gleymt því sem gerðist í Míinchen
1972, er arabískir glæpamenn
urðu 11 israelsbúum að bana eftir
að hafa tekið þá sem gísla í
Olympíuþorpinu. Atburðir þeir
sem skeðu nýlega I Vín, er oliu-
ráðherrar OPEC voru teknir sem
gíslar hafa líka orðið rækilega til
þess að minna á að þörf er fyllstu
aðgæzlu vegna Ieikanna, og
ekkert er sennilegra en tilraunir
verði gerðar þar til skemmdar-
starfsemi af einhverju tagi.
Það er um hálfur mánuður
síðan öryggisgæzla hófst fyrir
alvöru í Innsbruck vegna
Olympíuleikanna. Enginn hefur
t.d. getað heimsótt stjórnstöð
leikanna að undanförnu án þess
að vera stöðvaður af lögreglunni
og krafinn um erindi, og i sjálfu
Olympíuþorpinu hafa lögreglu-
menn verið á hverju götuhorni s.l.
hálfan mánuð.
Olympúuþorpinu er skipt í tvo
hluta — hinn lokaða og hinn
opna. Hinn lokaði er rækilega
girtur af með gaddavír og
hindrunum og innan þessarar
girðingar eiga keppendurnir 2000
og leiðtogar þeirra að búa meðan
á leikunum stendur. Til þess að
komast þar inn og út þurfa við-
komandi að sýna sérstök skírteini
sem géfin verða út af öryggis-
gæzlunni. Ætli aðrir inn í þetta
lokaða þorp þurfa þeir að fá til
þess sérstök skírteini. Þeir einu
sem ekki verða undir verulega
strangri gæzlu eru blaðamenn, en
þeir verða þó einnig að sýna sér-
stakt skírteini sem gefið verður
út af öryggislögreglunni.
Við hvert hús í þorpinu verður
svo vopnuð öryggislögregla sem
viókomandi verða að ganga fram-
hjá þegar þeir fara inn og út úr
húsunum.
— Svo umfangsmikil öryggis-
gæzla hefur aldrei fyrr verið við-
höfð á Olympíuleikum, hefur
blaðafulltrúi leikanna, Bertil
Neumann, sagt — við höfum ekki
gleymt atburðunum í Munchen né
heldur því sem kom fyrir í Vin.
Yfirmaður gæzlusveitanna,
Edvard Obrist hefur ekki viljað
láta uppi hversu margir menn
muni starfa í þeim, en segir
aðeins að þeir séu nógu margir til
þess að koma í veg fyrir að eitt-
hvað alvarlegt kunni að koma fyr-
ir í búðunum. — Það er af
öryggisástæðum sem ég vil ekki
láta þetta uppi, sagði hann, — en
við munum sjá um að leikarnir
fari fram í friði og ró, og án þess
að þátttakendur eigi það á hættu
að verða ógnað. Það er ekki af
eigin hvötum sem við tökum svo
strangt eftirlit upp, heldur er það
alþjóða-Olympíunefndim sem
setti slíkt sem skilyrði.
öryggisgæzlan nær reyndar til
fleiri staða í Innsbruck en
Olympíusvæðisins. Öll löggæzla í
borginni mun verða stórefld
meðan leikarnir fara fram, og má
nefna sem dæmi að um 1100 lög-
reglumen munu halda vörð um
höll þá sem borgarstjórn Inns-
bruck býður þátttakendum og
leiðtogum til veizlu í fyrir
leikana.
A öllu keppnissvæðinu verða
svo fjölmargir lögreglumenn við
gæzlu á meðan á leikunum
stendur, en þar verður hins vegar
erfiðara að koma f veg fyrir að
hryðjuverkamenn geti athafnað
sig, sé það vilji þeirra. I Seefeld,
þar sem keppni í norrænu
greinunum fer fram, hefur t.d.
reynst mjög erfitt að koma við
mikilli löggæzlu, en harla ólíklegt
má teljast að hryðjuverkamenn
beini spjótum sínum að íþrótta-
mönnum meðan þeir eru í keppni.
Klammer von Austurríkis
AUSTURRÍ KISMENN fara ekki
dult með það að þeir binda miklar
vonir við sitt fólk á Olympíu-
leikunum I Innsbruck, enda má
segja að það verði þar á heima-
velli. Helzta átrúnaðargoð Austur-
rlkismanna um þessar mundir er
Franz Klammer, sem að undan-
förnu hefur sýnt að hann er I mjög
góðu formi og Ifklegur til afreka. f
keppni sem fram fór F Kitzbúhel
fyrir skömmu og var liður I heims-
bikarkeppninni á sklðum komu
t.d. um 10.000 áhorfendur til
þess að fylgjast með viðureign
garpanna, og auðvitað var það
Klammer sem fyrst og fremst dróg
að.
Austurrikismenn eiga annars
tæpr st von á mörgum áhorfend-
um á Olympfuleikana að þessu
sinni. Áhorfendur hafa aldrei verið
margir á vetrar-Olympfuleikunum,
enda keppnin þess eðlis að erfitt
er að fylgjast með henni. Helzt er
það skautafþróttin og fshokkf sem
fær nokkurn áhorfendafjölda.
Þannig hefur t.d. verið f mótum
heimsbikarkeppninnar í vetur, að
sárafáir áhorfendur hafa lagt leið
sfna á þau. Það þýðir þó alls ekki
að áhugi á sklðafþróttum fari
Klammer ætlar sér gull f Inns-
bruck. Með honum á myndinni
er Norðmaðurinn Erik Haaker,
sem vafalaust mun veita hon-
um harða keppni.
minnkandi, heldur miklu fremur
það. að áhugafólkið kýs fremur að
sitja heima f stofum sfnum og
horfa á keppnina f sjónvarpinu eða
lesa um hana f blöðunum.
Sjónvarpsstöðvar hafa mikinn
viðbúnað vegna leikana f Inns-
bruck og mun meiri hluta þess er
gerist á leikunum verða sjónvarp-
að beint til flestra Evrópulanda,
auk þess sem nokkrar bandarfskar
sjónvarpsstöðvar munu senda
meira eða minna efni út frá leik-
unum. Að sjálfsögðu verða
sendingar þessar að stofni til I lit.
Með tilliti til þessa hafa fram-
leiðendur skfðabúnaðar lagt nótt
við dag að undanförnu við að
finna ráð til þess að snúa á kerfið
og sjá til þess að merki fram-
leiðslu þeirra bregði fyrir á skján-
um eða á myndum dagblaðanna,
og af þessu njóta svo skfða-
mennirnir meira og minna góðs.