Morgunblaðið - 03.02.1976, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRUAR 1976 27
Fimmburar
í Japan
Kagoshima, 2. febrúar — AP.
FYRSTU fimmburarnir sem fæð-'
ast í Japan eru við góða heilsu, en
þeir fæddust síðdegis á laugar-
dag. Móðirin Noriko Yamashita,
27 ára að aldri, sagði í dag: „Ég
hef aðeins tvo handleggi og það
verður því erfitt fyrir mig að
faðma þá alla í einu. Tvö barn-
anna voru að sögn lækna með of
lítinn sykur í blóðinu en eftir að
hafa gengist undir lyfjameðferð
er líðan þeirra betri.
Handtökur í
Tamil Nada
Madras 2. febrúar
— Reuter.
AÐ MINNSTA kosti 37 fulltrúar á
fylkisþinginu í ríkinu Tamil
Nadu á Indlandi sem indverska
stjórnin hefur leyst upp hafa ver-
ið handteknir í kjölfar ákvörðun-
ar Indiru Gandhi forseta um að
setja ríkið beint undir stjórn rík-
isstjórnarinnar í Nýju Delhí, að
því er áreiðanlegar heimildir
hermdu í dag. Hin nýju stjórn-
völd í ríkinu, sem er undir forystu
landsstjórans, hefur ekki skýrt
frá fjölda þeirra sem handteknir
hafa verið. Eftir að forsetinn setti
stjórn ríkisins af vegna ásakana
um óstjórn, sem ýti undir aðskiln-
aðartilhneigingar og spillingu, er
aðeins eitt ríki í vesturhluta Ind-
lands undir stjórn andstöðu-
flokka. Fylkisstjórnin í Tamil
Nadu hafði barizt harðlega gegn
neyðarástandinu sem Indira
Gandhi lýsti yfir fyrir sjö mánuð-
um, handtökum og ritskoðunarað-
gerðum hennar.
— Amalrik
Framhald af bls. 16
Hann kveðst nú hafa dregið
umsókn sína um fararleyfið til
baka þar sem hann hafi ekki
hug á að leggja upp í utanlands-
ferð án konu sinnar, jafnvel
þótt hann fengi leyfi til þess,
þar sem vitað sé um mörg dæmi
þess, að menn hafi ekki fengið
leyfi til að snúa aftur til eigin-
kvenna sinna, sem hafa ekki
fengið að fara með þeim utan.
I bréfi sínu dregur Amalrik
síðan þá ályktun, að þetta beri
glöggt vitni um það að sovézk
yfirvöld hyggist ekki virða
ákvæði Helsinki-yfirlýsing-
arinnar.
— Observer
Framhald af bls. 16
hundraði aflaþarfar Breta, þá
mætti bæta það aflatap með því
að veiða meiri þorsk á heima-
miðum og með þvi að hagnýta
fisktegundir, sem athygli
manna hefur beinzt að í aukn-
um mæli að undanförnu, s.s.
kolmunna.“ Segir síðan, að
hugsanlega megi veiða um
milljón tonn af kolmunna á ári
á miðunum út af vesturströnd
Skotlands, sem Bretar fengju
yfirráð yfir ef ný fiskveiðitak-
mörk yrðu ákveðin.
Sá galli er þó sagður á gjöf
Njarðar, að því er blaðið segir,
að kolmunni sé lítill og smá-
beinóttur fiskur, sem valdið
geti frystiiðnaðinum erfið-
leikum, auk þess sem hann
verði líklega látinn gjalda þess
að vera ekki þorskur. Eða eins
og talsmaður Birdseye, sem er
einn stærsti aðili f brezkum
fiskiiðnaði, segir: „Hin
íhaldssama brezka húsmóðir.
er með þorsk á heilanum.
Við höfum nýlega eytt 250
þúsund pundum til að sann-
færa hana um að fiskstaut-
arnir okkar séu búnir til úr
þorski. Mér óar við tilhugs-
uninni um kostnaðinn við
að æsa upp i henni löngun i
kolmunna."
Observer bætir því við að lok-
um, að trúlega muni framleið-
endur fremur vilja flytja inn
þorsk frá Islar di og Noregi en
að reyna að breyta smekk neyt-
enda.
Þú getur enn hagnast
á kynningarvikunni. 20% afsláttur
og 100 teg. áklæða
•c:r
SMIÐJUVEGI6 SÍMI44544
NÝUNG í VESTURBÆ
^1%
HAGABOÐ
Allar nýlenduvörur með
10% lægri
álagningu
LEITIÐ EKKI LANGT YFIR SKAMMT
HJARÐARHAGA 47