Morgunblaðið - 04.02.1976, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRUAR 1976
3
Búnaðarbanki íslands:
32% innlánsaukning árið 1975
A FUNDI bankaráðs
Búnaðarbanka Islands
hinn 27. janúar s.l. gáfu
bankastjórar skýrslu um
starfsemi bankans á
árinu 1975 og kom þar
fram að árið hefur orðið
hið hagstæðasta í sögu
bankans í öllum greinum.
Innlán
Innlán í Búnaðarbankanum
voru tæpir 10 milljarðar um s.l.
áramót eða nánar til tekið 9.725
milljónir. Aukningin varð 2.360
milljónir á árinu eða 32%, og er
það mesti vöxtur bankans
nokkru sinni á einu ári, bæði í
krónum og hundraðshlutum.
Þar með hefur vöxturinn orðið
yfir 30% þriðja árið í röð. Hér
er um að ræða talsvert meiri
aukningu en búizt hafði verið
við, en spáð var 27% aukningii,
í bankakerfinu í heild.
Heildarinnlán viðskiptabank-
anna námu um áramót 41.9
milljörðum og varð meðalaukn-
ing 29%, á árinu 1975. Hlut-
deild Búnaðarbankans í
heildarinnlánum viðskipta-
bankanna sjö hefur aukizt á 10
ára tímabili úr 18% í 23,2% um
síðast liðin áramót.
Utlán
Heildarútlán Búnaðarbank-
ans námu 8.922 miilj. um ára-
mót. Jukust þau um 2.157 millj.
á árinu eða 32%. t þessari
heildartölu eru endurseld lán i
Seðlabankanum, sem að lang-
mestu leyti eru afurðalán land-
búnaðarins, svo og verðbréfa-
kaup bankans vegna fram-
kvæmdaáætlunar ríkisstjórnar-
innar.
Afar mikil breyting hefur
orðið á útlánaskipan síðustu
árin, þar sem afurðalánin hafa
aukizt mjög verulega umfram
önnur útlán. Nema þau nú 1/3
af öllum útlánum bankans og
jukust um 81% á liðnu ári á
sama tima og önnur útlán
jukust um 16%.
Til að sporna við hinni taum-
lausu þenslu í efnahagsmálum
átti bankinn aðild að sérstöku
útlánatakmarki, sem sett var i
marz byrjun og síðan framlengt
tvívegis i litið breyttri mynd til
áramóta. Tókst bankanum að
standast þetta markmið að
fullu enda voru afurðalán og
lán til Framkvæmdasjóðs
undanþegin útlánatakmörkun-
um. í heild náðu viðskiptabank-
arnir verulegum árangri í þess-
um þætti peningamálanna.
Útlánaflokkun Búnaðarbank-
ans sýnir að 6.775 millj. eða
76% er lánað til atvinnuveg-
anna, 1.277 milljónir eða 14%
til opinberra aðila og 920
milljónir eða 10% til einka-
aðila. Af lánum til atvinnuveg-
anna er hlutur landbúnaðarins
lang stærstur, en næstir koma,
iðnaður og síðan verzlun.
Staðan við Seðlabankann
Lausafjárstaða bankans var
mjög góð allt árið og myndaðist
aldrei yfirdráttarskuld við
Seðlabankann. Á áiamótum var
innstæða á viðskiptareikningi I
Seðlabankanum að upphæð
1.037 milljónir kr. vegna
ákvæða um 23% bindiskyldu
innlána. Jókst þessi innstæða á
árinu um 529 milljónir. Endur-
kaup Seðlabankans, voru 2.810
milljónir. Að mestu leyti er hér
um að ræða afurðalán land-
búnaðarins, en einnig að hluta
— Mesti
vöxtur
bankans
á einu ári
afurðalán sjávarútvegsins og
rekstrarlán til iðnaðarins. Af
þessu er ljóst að inneignir í
Seðlabankanum námu hærri
fjárhæð en heildarendurkaup
hans voru af Búnaðar-
bankanum.
Rekstrarafkoma
Rekstrarafkoma bankans var
hagstæðari en nokkru sinni í
sögu bankans en tekjuafgangur
til ráðstöfunar varð 124
milljónir. Heildarkostnaður við
rekstur varð 372.5 millj. og er
það 42% aukning, á móti 56%
aukningu árið áður.
Starfsmannafjöldi var um
áramót 217, en var árið áður
211. Er það meðtalið starfslið
Stofnlánadeildar landbúnaðar-
ins og Veðdeildar Búnaðar-
bankans.
Útibú bankans
Búnaðarbankinn rekur nú
fimm útibú f Reykjavík og er
Austurbæjarútibúið við Hlemm
stærst þeirra með 1.090 millj.
kr. innlán.
Utan Reykjavikur eru úti-
búin orðin 11 og frá þeim eru
svo reknar afgreiðslur á fimm
stöðum. Útibúið á Sauðárkróki
er stærst utan Reykjavíkur með
780 millj. kr. i innlán. Vöxtur
útibúanna hefur verið mjög
mikill og eiga þau sinn stóra
þátt i velgengni bankans bæði
að því er varðar innlánsaukn-
ingu og rekstrarafkomu. A s.l.
ári varð innlánsaukning þeirra
40% og nema innlán í þeim
öllum 4.4 milljörðum.
Nýtt útibú bankans tók til
starfa 1. nóvember s.l. í Vík í
Mýrdal á grundvelli samnings
við Sparisjóð Vestur-
Skaftafellssýslu. Afgreiðsla frá
hinu nýja útibúi er á Kirkju-
bæjarklaustri. Innlán útibúsins
voru 260 millj. um áramót. I
undirbúningi er stofnun nýs
útibús í Garðabæ, og standa
vonir til að það geti tekið til
starfa í vor.
Stofnlánadeild
landbúnaðarins
Stofnlánadeild landbúnaðar-
ins er helzti fjárfestingarsjóður
þessarar atvinnugreinar og
deild í Búnaðarbankanum.
Heildarútlán deildarinnar í árs-
lok voru 4.209 millj. kr. og juk-
ust um 1.214 millj., eða41%.
Lánveitingar á árinu námu
1.385 millj., sem var 31% aukn-
ing. Mestur hluti lánveitinga
fór til ræktunarframkvæmda
og útihúsabygginga eða 738
millj. Til íbúðarhúsa var lánað
185 millj., til vinnslustöðva 162
millj., til dráttarvéla- og vinnu-
vélakaupa 154 millj. og til
annarra framkvæmda voru
lánaðar 146 millj.
Lánveitingar deildarinnar
hafa stóraukizt á liðnum árum
og hefur geta deildarinnar til
að lána úr eigin sjóði minnkað
vegna óhagstæðra lánskjara. t
þessu sambandi má geta þess að
vextir og afborganir af útlánum
deildarinnar námu407 millj. en
Framhald á bls. 27
Stór áfangi í jafnréttisbaráttu karlmanna:
Karlmaður fær inngöngu
í kvenfélagið á Dalvík
Fær nú að sækja saumanámskeið félagsins í vetur
KARLMENN náðu nýlega mikil-
vægum áfanga í jafnréttisbaráttu
kvnjanna, þegar kvenfélagið á
Dalvík samþykkti að taka fyrsta
karlmanninn í félagatölu sfna.
Áður hafði stjórn kvenfélagsins
gengið úr skugga um að
hvergi væri fyrirstaða í lögum
félagsins né Kvenfélagasam-
bands tslands fyrir því að karl-
maður yrði félagi í þessum
samtökum kvenna. Raunar
tjáði Sigrfður Thorlacius
formaður Kvenfélagasam-
bandsins Morgunblaðinu að for-
dæmi væru fyrir þvf að karl-
menn ættu aðild að sambandinu,
VIKUNA 7. til 13. febrúar verður
haldin í Árósum í Danmörku ár-
leg tónlistarhátíð norræns æsku-
fólks, Ung Nordisk Musikfest.
Munu þar norrænir hljóðfæra-
leikarar innan þrftugs flytja tón-
list eftir norræn tónskáld á sama
reki. Gert er ráð fyrir að þátt-
takendur verði um 150, þ.ám. 40
tónskáld og verður flutt sitt
verkið eftir hvert þeirra. Tón-
smiðarnar og hljóðfæraskipan
eru mcð ýmsu móti, svo sem
hljómsvcitar-, kammer-, einleiks-
og elektrónfsk verk.
Tvær fslenzkar tónsmiöar veröa
fluttar. Eru það Sonata X, sem er
fyrir 2 flautur, 2 óbo, 3 klarinett
þar eð innan Bandalags kvenna í
Reykjavfk sem aftur væri aðili að
Kvenfélagasambandinu, væru
nokkur líknarfélög sem hefðu
karlmenn innan sinna vébanda
en félög þessi ættu það þó sam-
merkt að konur skipuðu stjórn
þessara félaga.
Hins vegar er ekki vitað til þess
að karlmaður hafi áður fengið að
ganga i hrein kvenfélög. Karl-
maðurinn sem hér um ræðir er
Sæmundur Andersen á Dalvík, og
er hann raunar einnig fréttaritari
Morgunblaðsins þar um slóðir.
„Það stóð þannig á þessu,“ tjáði
og 3 horn eftir Jónas Tómasson og
Beatriz Clara Coya, sem er fyrir
einleiksfiðlu eftir Rikharð Páls-
son.
Islenzkir hljóðfæraleikarar á
hátíðinni verða: Agústa
Jónsdóttir, vfóla, Hrefna Hjalta-
dóttir, víóla, Júlfana Elín
Kjartansdóttir, fiðla, en hún mun
flytja verk Ríkharðs, Ólöf
Sesselía Óskarsdóttir, selló, og
Sigríður Hrafnkelsdóttir. fiðla.
Þátttakan er kostuð af Menn-
ingarsjóði Norðurlandanna og
menntamálaráðuneyti Islands.
Ung Nordisk Musikfest er fyrir-
huguð næsta ár á Islandi.
Sæmundur okkur, „að ég hafði
fyrir um tveimur árum sótt sníða-
námskeið sem haldið var á vegum
kvenfélagsins. Nú í vetur stendur
hins vegar til að kvenfélagið
gangist fyrir saumanámskeiði og
mér fannst þá tilvalið að sækja
það, því að það er ekki mikið gagn
í þvf að kunna að sníða ef maður
getur ekki sett saman líka. Hins
vegar fylgdi sá böggull skammrifi
að saumanámskeiðið átti aðeins
að vera fyrir konur sem væru
félagar í kvenfélaginu. Ég sá því
ekki önnur úrræði til að komast á
námskeiðið en þau að sækja um
inngöngu i kvenfélagið. Skrifaði
ég stjórn félagsins bréf, þar sem
ég vitnaði m.a. til jafnréttis-
baráttu kvenna á síðasta ári, og
var það lagt fram á fundi sem
haldinn var í kvenfélaginu sl.
sunnudag. I gær fékk ég svo bréf
þar sem mér var tilkynnt að ég
væri samþykktur sem félagi í
því.“
„Jú, þetta er áreiðanlega sögu-
legur viðburður og algengt er það
vafalaust ekki að karlmaður
gangi f kvenfélag," sagði Friðrika
Óskarsdóttir, formaður kven-
félagsins á Dalvík, þegar Mbl.
hafði samband við hana. „Ég
held, aó okkur konunum lítist
öllum vel á það að fá karlmann í
okkar raðir, því að erum við ekki
alltaf að tala um jafnan rétt? Það
er þvi sjálfsagt að koma einnig
eitthvað til móts við karlmennina,
enda þótt ég eigi nú varla von á
því að það verði mikill fjöldi karl-
manna sem sækja muni um
inngöngu í kvenfélögin. En sem
sagt — mér finnst þetta bara
jákvæð þróun.“
Tónlistarhátíð
norræns æskufólks
Keflavíkúrflugyöllur:
2 af 3 varnarliðs-
mönnunum lausir
úr gæzluvarðhaldi
RANNSÓKN hins mikla fíkni-
efnamáls á Keflavíkurflugvelli
er á lokastigi, að sögn Sævars
Lýðssonar fulltrúa við embætti
lögreglustjórans á vellinum.
Eins og fram hefur komið í
Morgunblaðinu, er þarna um að
ræða innflutning á 25—30 kg af
fíkniefnum I fyrra og á fyrstu
dögum þessa árs og hafa banda-
rfskir hermenn staðið að þess-
um innflutningi.
Sævar tjáði Morgunblaðinu i
gær að tveir af þeim þremur
Bandaríkjamönnum, sem setið
hafa í gæzluvarðhaldi undan-
farið vegna rannsóknar málsins
væru nú lausir en þriðji
maðurinn sæti ennþá inni. Er
þar um höfuðpaur fikniefna-
smyglsins að ræða og hefur sá
maður setið inni síðan um miðj-
an desember. Maóur þessi er
rúmlega tvítugur að aldri.
Hann mun væntanlega fara til
yfirheyrslu hjá ffkniefnadóm-
stólnum á næstu dögum, en
dómstóllinn á að taka við þessu
máli. Sævar Lýðsson sagði, að
nokkuð öruggt væri, að mál
þessara varnarliðsmanna yrðu
tekin fyrir hjá islenzkum dóm-
stólum en ekki bandarískum.