Morgunblaðið - 04.02.1976, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRÚAR 1976
11
væri ekkert Palestínuvanda-
mál.
A vettvangi Sameinuðu þjóð-
anna ráða Arabar gengi mála
að mjög verulegu leyti. Það
virðist sama hvað þeim dettur í
hug að bera upp þar — allt er
samþykkt. Það mætti segja mér
að ef Arabar kæmu á Alls-
herjarþing Sameinuðu þjóð-
anna og segðu að jörðin væri
flöt, þá yrði það samþykkt með
um 100 atkvæðum."
Zrevlin var inntur eftir efna-
hagsástandinu f Israel eftir að
óeðlilegt ástand hefði ríkt í
landinu í mörg ár.
Hann sagði: „Fjárhagur
okkar er mjög erfiður, enda er
kostnaður við landvarnir gífur-
legur, auk þess sem aðstoð við
flóttamenn kostar svimandi
upphæðir á ári hverju. Þrátt
fyrir þessi útgjöld sem ekki er
hægt að draga úr hefur hag-
vöxtur orðið í landinu og út-
flutningur eykst stöðugt. Þar er
um að ræða alls konar iðn-
varning.“
Að lokum sagði David
Zrevlin: „Þrátt fyrir alla þessa
erfiðleika hef ég þá trú að ein-
hvers staðar leynist sá
siðferðisstyrkur sem mun ráða
úrslitum, þannig að réttlætið
beri hærri hlut að lokum. Á
þessu hef ég óbilandi trú, þrátt
fyrir olíudollarann, þrátt fyrir
alla fordóma og það sem nefnt
er anti-zíonismi, og þrátt fyrir
nýkommúnisma á Vesturlönd-
um og undanhald vestrænnar
menningar og brenglað veð-
mætamat.
Það getur verið að þessi trú
mín sé barnaleg en þetta er það
sem ég trúi á.“
Siálfkiörið
í félagi
járniðnaðarmanna
FRAMBOÐSFRESTUR til að
skila tillögum um stjórn og trún-
aðarmannaráð Félags járniðnað-
armanna rann út kl. 18.00 þriðju-
daginn 27. janúar s.l.
Ein tillaga kom fram, borin
fram af trúnaðarmannaráði fé-
lagsins, og urðu því þeir sem til-
lagan var um sjálfkjörnir í stjórn
og trúnaðarmannaráð.
Stjórn og trúnaðarmannaráð
Félags járniðnaðarmanna verður
því þannig næsta starfsár:
Formaður: Guðjón Jónsson, Vara-
formaður: Tryggvi Benediktsson,
Ritari: Jóhannes Halldórsson,
Vararitari: Gisli Sigurhansson,
fjármálaritari: Benedikt Sigur-
jónsson, gjaldkeri: Guðmundur
S.M. Jónasson, Meðstjórnandi:
Guðmundur Bjarnleifsson.
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
Jltorgtinkljifeib
r
Aætlanir og
námskeið í
uppeldi
þroskaheftra
EINS OG Mbl. hefur skýrt
frá, eru nú staddir á landinu
sænskir sérfræðingar I,
þroskaþjálfun, þær Karen
Axeheim rektor og dr. Ingrid
Liljeroth sálfræðingur. Hafa
þær haldið fyrirlestra og nám-
skeið fyrir starfslið stofnana
og skóla vanheilla hér á landi.
Var fjölmiðlum einnig kynnt
starf þeirra.
Axeheim og dr. Liljeroth hafa unnið
saman hátt á annan áratug að um-
bótum á umönnun og þjálfun vangef-
inna í Sviþjóð Þær hafa unnið að
mótun þjálfunaráætlana handa van-
gefnum, sem reynt hefur verið í for-
skóla, fyrir vangefna, á sjúkrahúsi og á
barnahæli í Sviþjóð
Þetta þjálfunarkerfi hefur verið gefið
út af sænska menntamálaráðuneytinu.
Hefur þetta kerfi átt miklum vinsæld-
um að fagna á Norðurlöndum
Þær Axeheim og Liljeroth hafa lagt
drjúgan skerf til námsskránna handa
skólum vangefinna, sem byrjað var að
gefa út 1973. Þessar námsskrár og
þau hjálpargögn, sem þeim fylgja, hafa
markað timamót í þróun kennslu van-
0 Frá blm.fundi á vegum Félags þroskaþjálfara, Háskóla íslands. Rlkisútgáfu námsbóka o.fl.
£ Karen Axeheim og Ingrid Liljeroth, höfundar bókarinnar „Þjálfunaráætlanir handa
þroskaheftum" ásamt þýðendum, Maríu Kjeld og Þorsteini Sigurðssyni.
gefinna og jafnframt allri umönnun
þeirra. Þá hafa þær Axeheim og Lilje-
roth hannað ýmis kennslugögn sem
mikið eru notuð.
Sú hugmyndafræði er liggur að baki
starfi þeirra mætti kalla mannúðlegt
viðhorf Felst það einfaldlega í að líta á
hina vangefnu sem manneskjur með
sömu tilfinningar, þarfir og reynslu-
heim og aðrir þó að fábreyttari sé. Er
gert ráð fyrir, að hinn vangefni búi við
sömu lifshætti og tíðkast í samfé-
laginu, búi innan um aðra, eigi heimili,
njóti þjálfunar og eigi tómstundir eins
og annað fólk.
Þær Axeheim og Liljeroth hafa heim-
sótt sérskóla og stofnanir fyrir vanheila
og rætt við starfsfólk. Þær hafa haldið
erindi í Þroskaþjálfaskólanum, Fóstru-
skólanum og Kennaraháskólanum
Einnig hafa þær setið fund með is-
lenzkum sálfræðingum og sálfræði-
nemum í Háskóla íslands. Þær hafa
flutt erindi á fundum með foreldrum
vanheilla og síðast en ekki sízt hafa
þær flutt erindaflokka á námskeiði i
kennslu og uppeldi þroskaheftra, sem
sóttu 260 manns, starfslið á stofn-
unum og skólum vanheilla hér á landi.
Á vegum Rikisútgáfu námsbóka
hefur nú verið gefin út bók þeirra
Axeheim og Liljeroth og ber hún heitið
„Þjálfunaráætlanir handa þroska-
heftum ** Bókina þýddu Maria Kjeld,
heyrnleysingjakennari, og Þorsteinn
Sigurðsson, sérkennslufulltrúi.
Áætlanir þær, sem bókin fjallar um,
eru einkum ætlaðar þeim er annast
daglega þroskaheft fólk á öllum aldri
Er bókin mjög aðgengileg og auðveld í
notkun Ennfremur eru gefnar
ábendingar um kaup og notkun margs
konar hjálpartækja. í formála bókarinn-
ar segir m.a. „Nú er litið svo á, að allir
geti lært eitthvað sem orðið getur þeim
að gagni til að aðlagast samfélaginu.”
Formála fyrir islenzku útgáfunni
skrifa Haukur Þórðarson yfirlæknir og
Sævar Halldórsson læknir
Að heimsókn Svíanna standa nær
allar stofnanir og skólar sem tengdir
eru starfi fyrir vanheila á íslandi, for-
eldra- og styrktarfélag þroskaheftra,
ásamt ýmsum fagfélögum og fagskól-
um. Allt undirbúningsstarf er unnið í
sjálfboðavinnu en annar kostnaður er
með þátttökugjaldi í námskeiðinu og
framlagi frá Félaginu Svölunni. Einnig
hafa Flugleiðir og Fræðsluskrifstofa
Reykjavíkurborgar veitt verulegan
stuðning
'o,
þess
að valda ekki
fjölmörgum
aðdáendum
Jvonbrigðum, höld;
!um við líka árlegu]
rýmingarsölu
okkar í dag
^g næstu dagáj
á eftirtöldum/
vörum
gf'
Agfacolcr
Fskuggamyndasýningavélar'
kr. 13.900,—
Utrunnar filmur af mörgum
gerðum á hálfvirði —
Skuggamyndaskoðarar kr. 300.—
Kvikmyndaskoðarar kr. 1.800.—
« >_.
Leifturljósatæki fyrir perur kr. 600.—'
Kvikmyndasýningavélar
fyrir Super 8 og Standard 8 með
lágspenntum lampa kr. 18.000.
Það, sem undan er talið,
er aðeins sýnishorn,
en margir fleiri
ihlutir eru að sjálfsögðu á<
rýmingarsölunni.
í.
$
i/J
TYLI
h/f.
Austurstræti 7
SÍÐASTIDAGUR KYNNINGARVIKUNNAR
20% AFSLÁTTUR
tarjE
km i w *
llt&Iilll iti • m >« *%» • » J 4'k c I xa li mHkÆtM •
SMIÐJUVEGJS-Smi-44544