Morgunblaðið - 04.02.1976, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRUAR 1976
19
Síra Þorgrímur V. Sigurðsson júbilkenn-
ari og fv. prófastur á Staðarstað sjötugur
Þegar skölanna á tslandi er
minnzt í þjóðarsögunni, gleymist
það harðla oft, að þeir voru
raunar fleiri en á biskups-
stólunum. A.m.k. liggur það
endranær í láginni, að á mörgum
prestssetranna voru haldnir lærð-
ir skólar, þar sem hæsta próf í
þjóðfélaginu, stúdentsprófið, var
undirbúið, og þreytt. Stór hluti
lærðra manna hafði löngum þá
menntun eina, sem þessir skólar
veittu og var að sönnu enginn
munur gerður á þvf, hvort stúd-
entinn hafði numið og braut-
skráðst í heimaskóla eða á stóls-
skóla, þegar til framhaldsnáms
erlendis kom eða starfsveitingar.
Ýmsir embættismenn, er vel
þóktu lærðir, höfðu aldrei á
annan skóla komið en að heima-
námi á prestssetri, en gjarna
höfðu þeir, sem kenndu að öllu til
stúdentsprófs og höfðu réttindi til
að brautskrá stúdenta, numið í
Hafnarháskóla, sem var að vísu
háskóli íslendinga, unz
embætttismannaskólarnir komu
og sfðan Háskóli íslands 1911.
Ekki er að efa, að prestssetra-
skólarnir áttu stóran hlut að
þeirri virðing og reisn, sem var á
kirkjustöðunum. Af þvi að þeir
fylgdu ekki setri en presti, færð-
ust þeir jafnan nokkuð til, og gat
svo farið, að námssveinn hlyti
allan sinn lærdóm á afskekktum
stað, sem nú þækti ærið
einangraður og er jafnvel með
öllu fallinn i auðn. Munu hin
gömlu prestssetur fá, þar sem
aldrei var haldinn lærður skóli,
og engin, að þar væru ekki kennd-
ar á tímabilum einhverjar hinna
fornu fræðagreina, griska og
söngur, guðfræði og saga, stjarn-
vísindi og latína, ræðulist og
stærðfræði. — Eftir að Presta-
skólinn var stofnaður 1847 varð
regla, að stúdentar, sem vildu
ganga í þjónustu kirkjunnar,
næmi þar, en hinir fáu útvöldu
fóru enn um sinn til Hafnar. Við
tilkomu Prestaskólans breyttist
stúdentnámið að nokkru sem eðli-
legt var, og dró þá heldur úr hinu
lærða skólahaldi prestanna, en
hitt færðist í vöxt, að þeir byggi
pilta undir skóla og kenndi til
bekkjarprófa. Löngu síðar sóktu
svo bæði piltar og stúlkur að
prestssetrunum og tóku þaðan
gagnfræða- og miðskólapróf. En
þá voru þessi kennslusetur i
sveitunum orðin fá, enda almenn
fræðslulög í gildi gengin og opin-
ber forsjá að þessu leyti næsta
yfirgripsmikil. Nema þegar eigin-
leikar, sem kröfðust sjálfstæðrar
mótunar, báru einhvern ungling-
inn út úr kerfinu.
Á fornum bautasteinum
gömlu prestanna má stundum
sjá titilinn júbilkennari.
Hafði sá prestur kennt í 50 ár
eða meir, eins og síra Jón
Konráðsson á Mælifelli og sfra
Jón Þorvarðsson á Breiðabólstað i
Vesturhópi. Meðal núlifandi
presta munu fáir júbilkennarar
og enginn, sem haldið hefur
heimaskóla í hálfa öld. Næst
þessu marki í orðsins fullu og
gömlu merkingu er síra Þorgrím-
ur V. Sigurðsson fyrrverandi
prófastur á Staðarstað. Hann varð
sjötugur hinn 19. nóvember sl.,
svo að hann hefur ekki haldið
heimaskóla nema f 40 ár að meira
og minna leyti, en hann var ekki
orðinn tvítugur, þegar hann tók
að -kenna. Allt frá unglingsaldri
hefur hann haft lifandi áhuga
kennarans og ávallt síðan stundað
kennslu. Því ber honum titillinn
júbilkennari — og hefur vel til
unnið. Kennarahæfileikar sfra
Þorgríms eru bæði erfiðir og
áunnir. Foreldrar hans voru þjóð-
kunnir fyrir lýðskólann á Hvftár-
bakka í Borgarfirði, Sigurður
Þórólfsson skólastjóri frá Holti á
Bárðaströnd og seinni kona hans
Ásdís Þorgrímsdóttir frá Ytri-
Kárastöðum á Vatnsnesi. Þessara
merku hjóna hefur svo oft og víða
verið minnzt og þá ekki sízt i bók
Þorsteins Sveinssonar um Hvítár-
bakkaskólann, að hér verður ekki
um bætt. En hitt er hverjum þeim
Ijóst, er hugsar til uppruna síra
Þorgríms og æskuára hans á
skólasetrinu, að eigi þarf langt að
leita. Það kemur og til, að hann
reyndist þegar við próf f Mennta-
skólanum, sem hann las a.m.l.
utanskóla, ekki aðeins mikill
námsmaður, en og frábærlega
jafn f greinum. Sveitaprestur,
sem heldur skóla, hlýtur að kenna
einn. Var síra Þorgrímur svo vel
til þess fær, þegar kornungur,
sem frekast gat verið, af þvf hve
föstum fótum hann stóð í öllum
kennslugreinum. Gildir einu fyrir
hann hvort hann les latínu með
nemenda til stúdentsprófs eða
náttúrufræði og algebru undir
miðskólapróf. Skilningur hans
sjálfs er svo fljótur og gagnger, að
útskýringin, kennslan, verður ljós
og árangurinn sýnilegur.
Aldarfarslegur aðstöðumunur á
skólahaldi síra Þorgríms og hinna
fyrri presta, sem getið var, er
mikill. Það eitt gæti sýnt, hver
samanburður hins fyrra og nýrra
er, að heimaskólar prestanna eru
nær úr sögunni. I þeirri veru má
nefna, auk fræðslulöggjafar-
innar, að áður fyrr var það hrein
undantekning, að nemanda skorti
námsgáfur, því að svo fáir lærðu,
en áhugaleysi var óþekkt. Þetta
tvennt, þó meir áhugaleysið, ein-
kennir nemendur, sem nú er
komið til einkakennara. Þessarar
grundvallarbreytingar hljótum
vér að geta, af þvi að hún færði
síra Þorgrími erfiðara hlutskipti
og harðla ólíkt forverum hans og
kollegum. Þá er og þess að
minnast, að fyrrum héldu
prestarnir kapelána og gátu því
helgað sig kennslu og fræðistörf-
um í ríkara mæli. Hitt ber þó enn
meir frá, að þótt þeir ræki stórbú
þurftu þeir ekki að hafa aðra
ívasan á þeim vettvangi en í
mesta lagi að halda dagönn vinnu-
fólksins i föstum skorðum með
návist sinni á staðnum. Með þessu
er ekki sagt, að allir prestar hafi
verið vinnulitlir við bústörfin.
Sumir sóktu m.a.s. sjó af kappi.
En það voru ekki kennararnir.
Hneigð þeirra var ekki til út-
sjónar og atvinnurekstrar. Bók-
fræðileg og húmanisk.
Auk hins orðlagða, langa
heimaskólahalds síra Þorgríms og
skólastjórnar hans einn vetur á
Reykjum i Hrútafirði og annan í
Olafsvík, er aðal starfs hans að
geta og raunar margvislegra
félagsstarfa er hlaðast jafnan á
slíka hæfuleikamenn. — En
hverfum aðeins til undirbúnings-
áranna. — Hann varð stúdent
vorið 1924, og er þessi árgangur
Reykjavíkurskóla nefndur eftir
árinu: Viginti quattor. 1 hópnum
voru 6 stúlkur, sem þókti svo
mikið, að á orði var haft, en hins
síðar iðulega getið, að 17 stúdent-
anna urðu guðfræðingar. Vígðust
15 þeirra, allir nema Sigfús Sigur-
hjartarson ritstj. og alþingis-
maður og Þórarinn Þórarlns-
son skólastj. á Eiðum.
Er ekki ofsögum sagt af því
hver prýði þessi stóri presta-
hópur var á löngu árabili í kirkju
vorri og þjóðlífi. Báru þeir allir
nokkur einkenni prófessoranna,
sem þá settu mestan svip á guð-
fræðideildina, síra Haralds Nfels-
sonar og síra Magnúsar Jóns-
sonar, í frjálslyndi og víðsýni og
fágun í prestsstarfi ásamt miklum
vöndugleik og starfstrúnaði, sem
síra Sig. P. Sívertsen mótaði. Á
þeim árum var lítið lagt upp úr
trúfræði, en í guðfræði sem ýms-
um öðrum húmaniskum greinum
eru einstakir vísindaþættir ýmist
hæst metnir eða hafnað um sinn,
unz nýr vitjunartími kemur og
allt er orðið breytt. Síra Þorgrími
þókti trúfræðin merkilegri skiln-
ingstilraun og djúpsóktari en svo,
að hann léti hjá líða að kynnast
henni nánar. Nam hann um sinn
við vildarsetur trúfræðinnar í
Þýzkalandi og síðar f framhalds-
námi í Lundi,. veturinn eftir að
hann lauk kandidatsprófi. Var
hann einn félaganna úr Viginti
quattor um þenna trúfræðiáhuga
og lærdóm og þvf jafnan talinn af
nokkuð öðrum guðfræðiskóla en
þeir. Predikanir hans, sem ég
kynntist þó fyrst, er hann var
kominn á miðjan aldur, virtust
mér samt mjög áþekkar ræðum
gömlu skólafélaganna, nema
þeirra, sem höfðu hneigzt
eindregið til sálarrannsóknanna.
— Eftir stúdentsprófið kenndi
hann einn vetur í Borgarfirði og
annan, er framhaldsnámi var
lokið, en vígðist hið næsta vor, 14.
júní 1931, til Grenjaðarstaðar í
Aðaldal. Fékk síra Þorgrímur
þar, sem verðugt var, greinda og
bóklesna áheyrendur og mat hvor
aðilinn hinn, presturinn og
sóknarbörnin, því meir, sem
kynnin urðu lengri. Og þegar síra
Þorgrímur fluttist vestur að
Staðarstað lýðveldisvorið, var
söknuðurinn gagnkvæmur, hans
og þeirra, sem bezt þekktu hann f
Suður-Þingeyjarsýslu. Fljótt var
þvf veitt athygli nyrðra, að síra
Þorgrímur var vel íþróttum búinn
og vaskur á löngum ferðalögum
og f harðræði á vetur. En enginn
gat séð ofsjónum yfir bújörðinni á
prestsetrinu Grenjaðarstað
framar, því að henni var skipt f 5
býli, áður en síra Þorgrími var
veitt brauðið og þessi hluti jarðar-
innar. Var því þröngt um og einn-
ig innan bæjar í fyrstu, en þar
kom, að byggt var á hverju býli og
einnig á staðnum. Var bærinn hin
versta íbúð og erfiður og lítil
eftirsjá ungu fólki, sem slíkum
húsakynnum var alls óvant, úr að
flytja. Hins vegar er Grenjaðar-
staðarbærinn héraðsprýði nú,
Framhald á bls. 17.
HMK
Aðalfundur
Aðalfundur Verzlunarmannafélags Reykja-
víkur verður haldinn að Hótel Sögu, Súlna-
sal miðvikudaginn 11. febrúar 1976 kl
20.30.
Dagskrá: Samkvæmt félagslögum.
IVerzlunarmannafélag Reykjavíkur.l
Suðusúkkulaði með fínasta átsúkkulaðibragði
mmntntntmtn
>»•»•»•»•»
bitterblock bitterblock bitter
Bitterblock frá Víkingi,
súkkulaðið
i í svörtu pökkunum.
Víkims
kRóm