Morgunblaðið - 04.02.1976, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. FEBRUAR 1976
21
Ast á indverskri gangstétt
VIMLA, 21 árs gömul indversk sveitastúlka (t.h.) giftist í vikunni sem leið miðaldra hnetusala i
Bombay. Athöfnin fðr fram á heimili þeirra — gangstéttinni andspænis borgarskrifstofunum i
Bombay. Það var félagsráðgjafi f borginni sem stóð straum af giftingarkostnaðinum, u.þ.b. 7 þúsund
krónum, en hann var svo hlédrægur að hann vildi ekki vera með á myndinni.
fclk í
fréttum
+ Diana Ross hefur haft
heppnina með sér öðru sinni,
nú f myndinni „Mahogany“ —
áður í „Lady Sings the Blues“,
um líf og starf djasssöngkon-
unnar Billie Ilolliday, en fyrir
leik sinn f þeirri mynd var
Diana m.a.s. nefnd f sambandi
við Óskarsverðlaun. Og pening-
arnir streymdu inn fyrir mynd
ina.
Gagnrýnendur hafa tekið
seinni myndinni fálega, sem og
hinni fyrri, en áhorfendur f
bandarfskum stórborgum virð-
ast vera á öðru máli, þvf að
myndin er grfðarlega vel sótt
þar. Virðist sagan um stúlkuna
úr fátækrahverfi Chicagoborg-
ar, sem getur sér frægð í tísku-
heiminum, en afsalarsér sfðan
frmanum til að aðstoða unn-
usta sinn í pólitískri baráttu
hans. Og gagnrýnendurnir
fundu myndinni flest til for-
áttu og brýndu kuta sfna eftir
frumsýninguna.
Diana Ross lét sér hvergi
bregða: — Gagnrýnendur mega
gagnrýna eins og þeir eru
menn til, það er þeirra starf. Eg
verð að viðurkenna það, að ég
hefði haft margt á annan veg f
þessari mynd ef ég hefði verið
framleiðandi hennar og stjórn-
andi. En það var mér dýrmæt
reynsla að leika f henni, og
ekki hef ég yfir neinu að
kvarta, segir hún.
Diana Ross er heldur enginn
stórbokki í einkalffi sfnu. Hún
býr f lftilli fbúð f Beverly Hills,
og það enginn súperstjörnu-
bragur á neinu. Þó virðist hún
fullkomlega sátt við lífið og til-
veruna. Hún er gift Robert Sil
berstein, umboðsmanni lista-
fólks (þó ekki hennar), og
þau eiga þrjár dætur saman.
Mörg verkefni bfða hennar
og hún kann þvf vel; hefur unn-
ið hörðum höndum frá þvf að
hún var 15 ára gömul. Nú er
hún 31 árs. Þegar hún gekk
með þriðja barn sitt ákvað hún
að rifta öllum sfnum samning-
um til þess að geta verið heima
fyrir og eftir barnsburðinn: —
Það var kjánaskapur af mér,
segir hún.— Vinnan er mér svo
mikils virði, að næst verða þeir
að draga mig niður af sviðinu
til þess að koma mér á fæðinga-
deildina, ef til þess kemur að
ég eignist fleiri börn.
Diana ráðgerir að fara f
Evrópuferð í þann mund sem
Mahogany verður frumsýnd
þar. Einnig langar hana til að
ferðast um Amerfku, en langt
er sfðan hún hefur látið það
eftir sér.
En ætlar hún að leika í
þriðju kvikmyndinni?
Hún hefur þegar staðið f
samningaviðræðum um að taka
að sér hlutverk f mynd, þar sem
hún á að leika Josephine Bak-
er.
— Mig langar að vfsu ekki til
þess að einskorða leikferil
minn við svartar stjörnur. En
það er annað mál með Joseph-
ine Baker. Hún hefur alla tfð
verið mér hugstæð. Eg verð að
kynna mér rækilega líf hennar
og starf áður en ég áræði að
taka að mér hlutverkið segir
hún.
BO BB & BO
MUAÐA SPBRKÍNCrVR
"TER 'I DÉR e>b&& !!?'.
rÖsT^Í7FERrEÍ<I77jT^NA7AaÁ86Íjtí^
FERU MARG 6NÚ\N AÐ AFTAN hj ---
tS/°6í/MUAJD
FRÁ LEIÐ-
BEININGASTÖÐ
HUSMÆÐRA:
Nokkur viðvörunar-
orð um vindlinga-
reykingar í
rekkju og um börn
og eldspýtur
„Vindlingur er prik með
glóð í öðrum endanum og fá-
bjána í hinum endanum".
Þannig skilgreina sumir Norð-
menn sígarettUrnar. Sennilega
eru ekki allir sammála þessari
skilgreiningu. En flestir munu
þó taka undir það, að það er
asnaskapur að reykja í rúm-
inu. Slíkt hátterni er vægast
sagt stór hættulegt. Nokkur
alvarleg slys sem urðu hér á
landi í skammdeginu benda til
þess að kviknað hafði í rúm-
fatnaði frá vindlingum.
Enginn veit nákvæmlega,
hvenær hann sofnar en þá
sekkur vindlingurinn ofan I
sængina og rúmfötin byrja að
brenna. En áður en eldurinn
nær sér almennilega niðri, get-
ur sá sem í rúminu er verið
dáinn af völdum kolsýrueitr-
unar. Ef ullarteppi eru í rúm-
inu myndast blásýra þegar ull-
arteppið fer að brenna og geta
menn þá auðveldlega dáið af
blásýrueitrun þar sem menn
þola ekki að anda að sér miklu
af slíkum gufum.
En hvar eru eldspýturnar
geymdar á heimilunum? Er
eldspýtustokkurinn i eldhús-
skúffu eða er hann látinn
liggja í öskubakkanum á sófa-
borðinu?
Það er ábyrgðarleysi að
geyma eldspýtur, þar sem börn
ná til a.m.k. á þeim heimilum
þar sem börn eru á óvitaaldri.
I grein í Forbruker-
rapporten sem norska Neyt-
endaráðið gefur út birtist fyrir
nokkru grein sem fjallar um
börn og eldspýtur. I greininni
segir að börn valdi að jafnaði
400—500 eldsvoðum á ári
hverju í Noregi. Ennfremur er
sagt að 27 börn hafi látist á 5
árum vegna þess að þau hafi
leikið sér að eldi.
Litlir brennuvargar eru
helst að verki á vorin, segir
ennfremur í greininni og
hættulegasti aldursflokkurinn
er 3—6 ára.
Sigríður Haraldsdóttir
EF ÞAÐ ER
FRÉTTNÆMT
ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU
Teg. 20
Litir: brúnt eða
svart leður.
Verð kr. 4.875 —
Teg 21.
Litur: antikrautt leður
Verð kr. 4.875 —
Teg. 22
Litur: Ijósbrúnt leður.
Verð kr. 3.975,—
Teg. 23
Litur: dökkbrúnt leður.
Verð kr. 3.975.—
Teg. 15
Litur: brúnt leður
Verð kr. 4.500.—
Póstsendum
Skóverzlun
Þórðar
Péturssonar,
--------1