Morgunblaðið - 02.03.1976, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. MARZ 1976
3
Kristfén Rsgnarsson
v/oru miðaðar við að fiskverð
hækkaði um 24%. Þorskur hækkaði
d. um allt að 36%, þ e. stóri
iskurinn, sem t.d allir netabátar fá
og allir sjómenn á netabátum fá því
iillir sérstaka 12% launahækkun
vegna fiskverðsákvörðunarinnar "
Þá sagðj Kristján: ,,Það hefur
komið fram hjá mörgum sjómönn-
um, að vegna þess að hlutaskipti
lækka, þá muni þeirra laun lækka
einnig Það er ekki rétt Það fá allir
sjómenn umtalsverða launahækkun
við þessa samninga 24% fiskverðs-
hækkun gefur frá 8—16% launa-
hækkun. Varðandi loðnuveiðarnar
er einnig um að ræða 8—10%
hækkun. í því sambandi verða menn
að athuga þegar þeir bera saman
„Kemur í Ijós á næstu
dögum hveriir vilia vera
a •/ 1 •• J 1 1
a sjo og hverjir ekki
- segir Kristján Ragnarsson form. L.Í.Ú.
„Þessir nýju samningar
eru sérstaks eðlis að þvi
ieyti að þeir breyta mjög
þessu margumtalaða sjóða-
kerfi i þá átt að fella niður
oliusjóð og hluta vátrygg-
ingarsjóðs. Það sem þarna
er um að ræða eru um
4000 milljónir króna og
vegna þess verður útgerðin
að greiða þennan hluta
sjálf, oliuverð upp á 25.30
kr. hvern lítra, i staðinn
fyrir 5.80 kr., og 2/3
vátryggingarkostnaðar af
skipum i staðinn fyrir
nánast ekkert. Af þessum
sökum verður að nota
þessa fjármuni fyrst og
fremst til að greiða þennan
kostnað," sagði Kristján
Rangarsson, formaður
Landssambands íslenzkra
útvegsmanna, þegar
Morgunblaðið ræddi við
hann.
Kristján sagði, að eigi að siður
hefðu sjómenn fengið hluta þessa
fjármagns i sinn hlut. „Sem dæmi i
þvi efni er, að á minnstu bátum
undir 60 rúmlestum fá sjómenn
16—20% launahækkun, á bátum
sem eru 100 rúmlestir um 10% og
síðan minna niður í 6 — 8% á
stærstu bátunum. Á skuttogurunum
nemur hækkun sjómannanna hins
vegar ekki nema um 2%. Ástæðan
til þess er að launakjör sjómanna á
minni skuttogurunum voru afskap-
lega góð fyrir og svo hitt að olíu-
kostnaðarhlutfall togaranna er meira
en annara skipa og þvi þurfa þeir I
ríkari mæli á þessu fjármagni að
halda
fil viðbótar við þetta kemur siðan
fiskverðshækkun, sem er umfram
24% Fyrri launahækkunartölurnar
núverandi verð og fyrra verð á ver-
tiðinni, að verðið hefur undanfarin
ár lækkað, eftir þvi sem liðið hefur á
loðnuvertiðina vegna minnkandi
fituinnihalds fisksins, þvi er ekki
hægt að bera saman það verð sem
nú er i gildi og það sem var fyrr á
vertiðinni Ef sjóðakerfisbreytingin
hefði ekki orðið, þá hefði loðnu-
verðið orðið miklum mun lægra "
,,Um kauptrygginguna er það að
segja, að hún hækkar eins og
aimennt kaupgjald, verður
90—100 þúsund krónur Siðan er
nýtt ákvæði, sem kveður svo á, að á
aflahlut sem er umfram hálfa kaup-
tryggingu greiðist 25% álag, þann-
ig að þeir sjómenn sem eru komnir
yfir hálfa kauptryggingu i tekjum fá
þarna sérstaka launauppbót upp
eftir kauptryggingarstiganum, en ef
hlutur verður meiri en þessi saman-
lagða kauptrygging og álag þurrkast
-þetta út Þetta getur þýtt t.d. að ef
aflahlutur er rétt um 90 þúsund
krónur, fá sjómenn 10 þúsund
króna álagsbætur, og getur þvi
kauptryggingin farið hæst i 105
þúsund krónur," sagði Kristján.
Að lokum sagði Kristján, að hann
teldi, að það sem skorti á i sambandi
við þessa viðtæku samninga væri,
að þá hefði þurft að kynna
miklu betur en gert hefði ver-
ið opinberlega. Þreyttir menn eft-
ir langar fundarsetur, hefðu þurft
að skýra þessa samninga og
hann hefði orðið var við, að menn
hefðu misskilið samningana.
þar sem þeir hefðu ekki verið lagðir
nógu vel fyrir menn, og kæmi það
bersýnilega i Ijós i atkvæðagreiðsl
unum. Þátttaka í atkvæðagreiðslun-
um væri dæmalaust léleg. Það hefði
verið eindregin afstaða fundar
stjórnar L í Ú i gær, að ekki kæmi
til nýrra samningaviðræðna við þá
sjómenn á næstunni, sem fellt hefðu
samningana og það yrði að koma i
Ijós næstu daga hverjir vildu vera á
sjó og hverjir ekki
Peningaskápur bæjarfögetaskrifstofunnar á Seltjarnarnesi fékk
ómjúka meðferð hjá þjðfunum eins og sjá má. Þeir hirtu úr honum
520 þúsund krónur en litu ekki við 3 milljónum i ávisunum.
Aftur stórinnbrot í sama hús:
Hálfri milljón stolið
á Seltjarnarnesi
Flugfreyjur
sömdu t3 okt. 77
MORGUNBLAÐINU barst í gær
eftirfarandi fréttatilkvnning frá
Flugieiðum og Flugfreyjufélagi
Islands:
Kl. 20.00 í gærkvöldi, hinn 29.
febr. 1976 var undirritaóur nýr
kjarasamningur milli Flugfreyju-
félags Islands og Flugleiða h.f.
vegna Loftleiða og Flugfélags Is-
lands, en eldri samningur milli
aðila rann út hinn 1. febr. s.i.
Samningar voru undirritaðir
eftir um það bil 55 klst. sáttafund
með litlum hléum undir hand-
leiðslu Torfa Hjartarsonar ríkis-
sáttasemjara og sáttasemjara
Loga Einarssonar hæstaréttar-
dómara.
Hinn nýundirritaði samningur
gildir frá 1. þ.m. til 15. okt. 1977. 1
öllum meginatriðum er stuðst við
nýgerða heildarsamninga milli
Alþýðusambands Islands og
Vinnuveitendasambands Islands,
og bilið frá 1. maí 1977 til 15.
október sama ár er brúað með
hliðstæðum kjarabótum.
Mótmæla-
aðgerðir
ÚTVEGSMENN og sjómenn á
Suðurnesjum og Hornafirði mót-
mæltu þróuninni i landhelgis-
deilunni f siðustu viku með því að
loka ákveðnum aðgönguleiðum að
Keflavíkurflugvelli og svæðum
sem varnarliðið hefur aðstöðu á
við Grindavik, Sandgerði og
Hornafirði.
Mótmælin við Grindavík og
Rockville stóðu yfir i liðlega 2
daga með því að lokað var með
stórgrýti leíðum að athafnasvæð-
um varnarliðsins og á milli kl.
7—10 á föstudagsmorgun var
lokað með bílum aðalhliðunum að
Kefiavíkurflugvelli. Aðgerðir
þessar fóru friðsamlega fram, en
eftir að Geir Hallgrímsson for-
sætisráðherra hafði boðað for-
svarsmenn aðgerðanna á sinn
fund s.l. föstudag og óskað eftir
þvi að aðgerðum yrði hætt, urðu
menn við þeirri beiðni og voru
grjót- og malarbingir fjarlægðir
þá þegar.
1 LOK sfðustu viku var brotist inn
i gamla Mýrarhúsaskólann á Sel-
tjarnarnesi, en þar hafa ýmsar
opinberar stofnanir bæjarins að-
setur. Unnu þjófarnir mikil
spjöll á skrifstofum í húsinu í leit
sinni að peningum og höfðu þeir
upp úr krafsinu 520 þúsund krón-
ur í beinhörðum peningum, sem
voru eign bæjarfógetans á Sel-
tjarnarnesi. Stórþjófnaður var
framinn i þessu sama húsi fyrir
jólin og þá stolið um 300 þúsund
krónum í peningum og á aðra
milljón króna í ávfsunum.
Þeir þjófar, sem nú voru að
verki, virtust engan áhuga hafa á
ávísunum, þvi þeir litu ekki við
ávísunum að upphæð um 3
milljónir króna, sem voru i sama
skáp og peningarnir. Þjófarnir,
sem brutust inn fyrir jólin
reyndu þá við þennan sama skáp
en tókst ekki að opna hann, en nú
varð skápurinn að láta undan.
Margar skrifstofur eru í húsinu
m.a. lögregluvarðstofan og var
rótað í þeim öllum og mikið
skenimt en þar var enga peninga
að finna og létu þjófarnir önnur
verðmæti eiga sig. Þjófnaðurinn
var framinn aðfararnótt s.l. föstu-
dags.
Bæði þessi innbrot eru til rann-
sóknar hjá rannsóknarlögregl-
unni í Hafnarfirði. Sveinn Björns-
son yfirlögregluþjónn sagði við
Mbl. i gær, að hann hefði eftir
fyrra innbrotið óskað eftir því að
vakt yrði höfð i húsinu, en því
hefði ekki verið sinnt.
Prentarar sömdu
BÖKAGERÐARMENN, þ.e. Hið
íslenzka prentarafélag, Grafiska
sveinafélagið og Bókbindarafélag
tslands, sömdu við prentsmiðju-
eigendur eða Félag íslenzka
prentiðnaðarins á laugardags-
morgun. Samningar þessara aðila
eru hliðstæðir kjarasamningi
milli ASI og vinnuveitenda.
Hefur því verkfalli verið af lýst.
Ölafur Emilsson, formaður
Prentarafélagsins, sagði að
prentarar hefðu utan heildar-
kjararammans fengið leiðréttingu
á veikindadagaákvæðum. Hefðu
veikindadagar nú fengizt 39 í
stað 33 áður og ennfremur hefðu
fengizt ákvæði i sambandi við
aukna tækni í prentsmiðjum. Þá
kvað hann 1.500 króna láglauna-
uppbótina aðeins hafa farið á
einn flokk í töxtum prentara.
Brezki sendi-
herrann farinn
Brezki sendiherrann, Kenneth
East, hélt af landi brott í gær til
Lundúna, en franska sendiráðið i
Reykjavík gætir nú hagsmuna
Bretlands á íslandi með sérstakri
hagsmunadeild er Brian Holt,
starfsmaður brezka sendiráðsins,
veitir forstöðu.
Feröamiðstöðin hf.
Aðalstræti 9,
simar 28133 og 11255
COSTA BLANCA— benidorm
Kaupmannahöfn
Tískusýning
(Scandinavian fashionweek)
Brottför 1 7. marz
(ath. breytta dagsetn.)
Gull og silfur
Vörusýning
Brottför 30. aprll
Húsgagnasyning
Brottför 11. mal
0
Leipzig
Alþjóðleg vörusýning.
Brottför 13. april.
Ódýru Spánarferðirnar eru að hefjast aftur.
Costa Blanca
Benidorm
2ja og 3ja vikna ferðir
Brottfarardagar:
9 apríl 28 iúní
19. júlí
9. ágúst
23. ágúst
1 3. sept.
Meðaltalshiti á Costa
Blanca:
Benidorm
er 10.000 manna bær við tvær
bestu sólarstrendur Spðnar,
Playa de Levante og Playa de
Poniente. dálltið sunnar en
Mallorka. Bærinn er um-
kringdur fjallahring á þrjá
vegu, sem orsakar að þar er
hæstur meðalhiti ð allri
spænsku ströndinni 22° C. allt
árið.
Loft Vatn
Jan. 13 17
Feb. 15 18
Marz 17 19
Apr. 20 20
Maf 23 20
Jún. 26 21
Júlí 29 22
Agúst 31 23
Sept. 29 22
Okt. 23 20
Nóv. 18 18
Des 14 16