Morgunblaðið - 02.03.1976, Page 13

Morgunblaðið - 02.03.1976, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. MARZ 1976 13 Flutningur af slysstað á sjúkra- hús tekur að meðaltali 6 mínútur AÐ GEFNU tilefni óskar Sjúkra- flutninganefnd Reykjavikurborg- ar, að eftirfarandi komi fram varðandi notkun neyðarbíls Reykjavíkurdeildar Rauða kross- ins. Er neyðarbifreiðin var afhent Reykjavíkurdeild Rauða krossins, var Slökkviliðinu í Reykjavík falið að annast rekstur hennar, svo sem annarra sjúkrabifreiða i borginni. Akveðið var í upphafi, að bifreiðin skyldi nýtt til flutn- inga í alvarlegustu veikindatil- fellunum, svo og til slysaflutn- inga. Aður en þessi ákvörðun var tekin höfðu verið kannaðar ýmsar leiðir í sambandi við rekstrar- form bifreiðarinnar, þ. á m. stað- setningu hennar á sjúkrahúsi, sérstaklega með tilliti til þess að unnt væri að manna bílinn með sérmenntuðu starfsliði, t.d. lækni. Kostnaður við þetta rekstrar- fyrirkomulag var talinn svo mik- ill, að ekki væri réttlætanlegt að í hann yrði lagt með tilliti til hins takmarkaða árangurs, er væri að vænta við okkar aðstæður. Við kannanir, sem gerðar hafa verið á sjúkraflutningum i Reykjavík hefur komið í ljós, að það tekur innan við 6 mín. að meðaltali, að flytja sjúkling frá heimili eða slysstað á sjúkrahús. Lögð hefur verið áherzla á að mennta og þjálfa sjúkraflutninga- menn i meðferð sjúkra og slas- aðra, t.d. hjartahnoði og öndun. Er þar farið að dæmi flestra ann- arra þjóða, er leggja mikla áherzlu á hæfni þessara aðila. Við slys eða alvarleg veikindi er að sjálfsögðu öllum heimilt að óska eftir neyðarbifreiðinni, en sá, sem við beiðninni tekur á slökkvistöðinni, spyrst ávallt fyrir um fáein atriði varðandi hinn sjúka, m.a. hvort búið sé að út- vega spítalarúm, til að átta sig á, hvort neyðarbifreiðar sé raun- verulega þörf. Munu allir skilja nauðsyn þessa atriðis, því óþörf notkun bifreiðarinnar getur leitt til þess, að hún verði ekki tiltæk í flutninga, þar sem hennar er sér- stök þörf. Gerð er sérstök skýrsla um allar ferðir bifreiðarinnar, þannig að ávallt er hægt að gera sér grein fyrir hversu góð nýting hennar er. Æskilegt hefur verið talið, að læknir, sé hann á staðnum, óski sjálfur eftir neyðarbifreið, til að taka af allan vafa um nauðsyn hennar, en náist ekki í lækni og hafi spítalarúm ekki verið út- vegað er regla að sjúklingur er fluttur á slysadeild Borgarspitala. Reykjavíkurdeild RK: Aðstoð við börn og sjúka REYKJAVIKURDEILD Rauða kross tslands selur sem aðrar deildir merki á öskudaginn, sem er hinn árlegi merkjasöludagur Rauða krossins. Eru merkin af- hent á 30 stöðum i borginni, i skólum og verzlunum, eins og auglýst er. Merkjasalan er sem kunnugt er tii ágóða fyrir starfsemina, en Reykjavíkurdeildin hefur mörg- um góðum málum að sinna. Hún annast í samvinnu við Reykja- víkurborg sjúkraflutninga, og er nú að koma til landsins nýr og fullkominn sjúkrabíll, sem deild- in hefur keypt. Námskeiðahald er stór iiður í starfseminni, Nú er nýafstaðið námskeið í skyndihjálp fyrir skólafólk. Yfir stendur námskeið fyrir konur, er starfa við að- hlynningu sjúkra í heimahúsum, og annað sams konar fyrir al- menning. Tvö sumardvalarheim- ili voru rekin í fyrrasumar, að Jaðri og Silungapoili, en þar hef- ur Rauði krossinn húsnæði, þar til hafizt verður handa um að byggja í Laugarási, þar sem félag- ið rak lengi sumardvalarheimili fyri börn. Þá hefur deildin útlán sjúkragagna, lánar rúm og borð í heimahús. Falleg rækja á Húnaflóa Framleiðsla BUR 1975: Flök fyrir 406 milljónir o.fl. A fundi útgerðarráðs Reykjavíkur 28. janúar lögðu framkvæmdastjór- ar fram skýrslu um rekstur Bæjarútgerðar Reykjavíkur árið 1975. Þar kom fram eftirfarandi: Á árinu 1975 námu beinar launagreiðslur til starfsmanna B.U.R. kr. 352.3 milljónum skv. 1.382 launamiðum, en að meðaltali starfa hjá Bæjarútgerð Reykjavíkur um 350—400 manns. Þessu til viðbótar koma svo óbeinar launagreiðslur til þeirra sem vinna við uppskipun úr togurunum og við aðra þjónustustarfsemi, svo sem viðgerðir og viðhald á togurunum o.fl. Rekstrarúthald togara B.U.R. var árið 1975 skv. eftirfarandi: „SU RÆKJA, sem við höfum fundiö í lsaf jarðardjúpi er svipuð þvf, sem við áttum von á, 2—3 ára gömul og frekar smá. Öðru máli gegnir um Húnaflóa, þar höfum við mest fundið af 4—5 ára fall- egri rækju, sem er ágætis hrá- efni,“ sagði Ingvar Hallgrfmsson, fiskifræðingur, sem nú er f rækjuleiðangri á rannsóknar- bátnum Dröfn. Ingvar sagði þegar Morgunblað- ið ræddi við hann, að þeir hefðu byrjað rannsóknir á friðuðu svæð- unum í Isafjarðardjúpi. Þar hefði ekki fundist mikið af rækju, en hins vegar mikið af smásild. Lítið hefði verið af þorsk- og ýsuveið- um, sem oft væri mikið -áf á þess- um slóðum. Þá sagði Ingvar að þeir hefðu haldið í Ofeigsfjarðar- flóa á Ströndum. Þar hefði fund- ist góð og falleg rækja, en mikill þari væri á þessum slóðum og torveldaði hann veiðarnar. I Reykjarfirði hefði síðan fundist góð rækja, 4—5 ára gömul og gott hráefni. Þeir ættu eftir að fara innar í Húnaflóann og því gæti hann ekkert sagt um ástand rækustofnsins þar. Ingvar sagði að þeir yrðu við þessar rannsóknir til mánaðar- móta, en þá tækju við rannsóknir á rækju í Arnarfirði og eins rann- sóknir á hörpudiski og kúfiski, sem augu manna beindust sífellt meira að. Meðal skipverja á Dröfn að þessu sinni er Sigurjón Rist vatnamælingamaður. Hann fór með í þessa för til að geta kannað vatnsmagn i Hvalá í Öfeigsfirði, en oft hefur verið rætt um að virkja hana. B.v.Þ.G. B.B. S.S. I.A. Rekstrardagar 361 354 376 362 Fjöldi veiðiferða 16 17 17 17 Landanir innanlands 15 16 16 17 Landanir erlendis 1 1 1 0 Stopp v/verkfalls dagar Viðg. og aðrar tafir 82 73 79 79 dagar 50 19 23.5 31 Siglingatími dagar 10 10 10 0 Löndunartími dagar 16 17 17 17 Veiðitími dagar 203 235 246.5 235 B.v.Þ.G. B.B. S.S. I.A. Aflamagn tonn 2.179 3.357 3.301 3.466 Aflaverðmæti þús kr. Aflaverðmæti 56.170 108.827 108.397 97.482 á úth.d. þús. kr. 252 444 423 415 Afli per veiðidag tonn 10.7 14.3 13.4 14.8 1974 9.2 15.8 14.8 16.2 Karfi í % af afla 71 48 56 50 Þorskur 1 % af afla 12 35 27 28 Ufsi í % af alfa 9 9 9 12 Mývatnssveit: Kirkjum gefnar gjafir Björk, Mývatnssveit 23. feb. VIÐ MESSU í Reykjahlíðarkirkju í gær las sóknarpresturinn sr. Örn Friðriksson eftirfarandi gjafa- bréf frá Kvenfélagi Mývatnssveit- ar. Kvenfélag Mývatnssveitar vill heiðra minningu prestshjónanna, sr. Hermanns Hjartarsonar og frú Kristínar Sigurðardóttur, með þvi að gefa kirkjum sveitarinnar gjafir. Skútustaðakirkju ljósa- kross, og Reykjahliðarkirkju tvær batikmyndir eftir Sigrúnu Jóns- dóttur listakonu i kórglugga, sem hér með afhendist kirkjunni. Með góðum óskum, 22. febrúar 1976. Kvenfélag Mývatnssveitar. Aðalfundur kirkjukórasam- band Suðurþingeyjarprófast- dæmis var haldinn i gær í Hótel Reykjahlíð. Stjórnina skipa nú Þráinn Þórisson formaður, sr. Sigurður Guðmundsson gjaldkeri og Friðrik A. Friðriksson ritari. Meðstjórnendur Stefán Þórarins- son og Sigrún Jónsdóttir. — Kristján. Á árinu var innvigtað hráefni til fiskiðjuvers B.U.R. 8.407 tonn að verðmæti kr. 211.3 milljonir kr. Framleidd voru á árinu 2.509 tonn af flökum að verðmæti kr. 406.9 milljónir kr. Á árinu 1975 var innvigtað hráefni til fiskverkunarstöðvar B.U.R. 3.467 tonn að verðmæti kr. 121.8 milljónir kr. Framleidd voru á árinu 65 tonn af fullþurri skreið að verðmæti kr. 32.5 milljónir kr. 917 tonn af fullstöðnum saltfiski að verðmæti kr. 150 milljónir kr. 37 tonn af ufsaflökum að verðmæti kr. 7.4 milljónir kr. 4.457 tunnur af síld að verðmæti kr. 51 milljón kr. og 160 tunnur af hrognum að verðmæti 1.9 milljónir kr. Hver selur hvad? Þegar þú þarft að afla þér upplýsinga um hver hafi umboð fyrir ákveðna vöru eða selji hana þá er svarið að finna í "(SLENSK FYRIRTÆKI” sem birtir skrá yfir umboðsmenn, vöruflokka og þjónustu sem íslensk fyrir tæki bjóða upp á. Sláið upp í "ÍSLENSK FYRIRTÆKI” og finnið svarið. FÆST HJÁ ÚTGEFANDA. j Útgefandi: FRJÁLST FRAMTAK hf. Laugavegi 178 - Símar: 82300 82302 Kalsö — Jarðarskórnir NÝKOMNIR Götuskór ínatureðarauðbrúnum lit — Töfflurogsandalaríbrúnumeðahvítum lit SKÓRNIR MEÐ MÍNUSHÆLUNUM Skóverzlun Þórðar Péturssonar, Kirkjustræti 8 v/Austurvöll, s. 14181

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.