Morgunblaðið - 02.03.1976, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 02.03.1976, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. MARZ 1976 Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavtk. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson Ritstjórar Matthtas Johannessen, Stycmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6, simi 10 100. Auglýsingar Aðalstræti 6, stmi 22 4 80 Áskriftargjald 800,00 kr. á mánuði innanlands. j lau'Sasölu 40,00 kr. eintakið. Kjarasamningar Verkföllum er að mestu lokið og kjaradeilur til lykta leiddar hjá flestum hópum launþega. Þessari niðurstöðu fagna að sjálfsögðu allir landsmenn. Það hefur vakið athygli, að almennu kjarasamningarnir hafa verið samþykktir í nær öllum laun- þegafélögum, sem hlut áttu að þeim, og í flestum tilfellum samhljóða. Þetta sýnir, að meginþorri launþega hefur viljað Ijúka deilum um kjaramál og aflétta vínnustöðvun. Er það staðfesting á þvi, sem haldið hefur verið fram hér í Morgun- blaðinu, að verkfall þetta hafi ekki notið almenns stuðnings meðal launþega Hins vegar veldur það að sjálfsögðu von- brigðum, að sjómannasamn- ingarnir hafa hlotið misjafnari undirtektir, sums staðar hafa þeir verið samþykktir, annars staðar hafa þeir verið felldir. í sambandi við þessi við- brögð sjómanna verða menn þó að gera sér grein fyrir því, að í þessum sjómannasamn- ingum var í raun verið að umbylta því kerfi, sem ríkt hefiir í sjávarútveginum síðustu árin. Sjóðakerfið svo- nefnda hefur verið skorið niður mjög verulega og af því hefur leitt mikla breytingu á fiskverði, hlutaskiptum og fleiru og þess vegna er kannski skiljanlegra en ella, að svo skiptar skoðanir skuli vera meðal sjómanna um hina nýju kjarasamninga. Hitt skiptir þó miklu, að sjómannasamn- ingarnir hafa verið samþykktir í svo þýðingarmiklum ver- stöðvum, að þess er að vænta, að fljótlega hefjist einnig róðrar frá þeim stöðum, þar sem þeir hafa verið felldir. Eftir hálfs- mánaðar stöðvun á miðri loðnuvertíð skiptir mestu að loðnuveiðar geti hafizt þegar i stað. Verkfallið, samningavið- ræður og afgreiðsla kjarasamn- inga vekja upp margar spurn- ingar, ekki sízt um uppbygg- ingu og starfshætti launþega- samtakanna. Það er t.d. Ijóst, að einungis 10—15% félags- manna í bátadeild Sjómanna- félags Reykjavíkur tekur þátt í atkvæðagreiðslu um hina nýju kjarasamninga og ákveður að fella þá Þessi niðurstaða gefur auð- vitað enga hugmynd um raun- verulegan vilja sjómanna í þessu stéttarfélagi, þar sem þátttaka er svo sáralítil og vafa- laust er svo í fleiri tilfellum. Launþegasamtökin eru svc þýðingarmikill þáttur í okkar samfélagi, að athyglin hlýtur að beinast mjög að starfsemi þeirra og starfsháttum. Þessi spurning vaknar einnig í sam- bandi við ákvarðanir í laun- þegafélögum um vinnustöðv- anir. Það mun samdóma álit manna, að óvenju litill áhugi hafi verið meðal launþega al- mennt á þv'Fverkfalli, sem stóð í nærfellt hálfan mánuð. Sú staðreynd, að verkfall skall á samt sem áður gefur nokkra vísbendingu um, að nokkuð skorti á lífræn tengsl milli verkalýðsforystunnar, sem ákvarðanir tekur um verkföll, og almennra félagsmanna launþegasamtakanna. Þó er ástæða til að taka fram, að milli 12—15 þúsund félagsmenn aðildarfélaga ASÍ munu hafa sótt fundi, sem afgreiddu kjara- samningana og er ólíku saman að jafna þeirri þátttöku og hinni ótrúlega litlu þátttöku í sjó- mannafélögunum. Áður en verkfallið skall á og u.þ.b. sem það var að hefjast sýndist mörgum, sem einhver pólitísk refskák kynni að líggja að baki þessari verkfallsboðun. Hvort sem svo hefur verið eða ekki er Ijóst, að þessi kjaradeila varð ekki pólitísk, þegar til kastanna kom. Hún var háð á faglegum grundvelli og þegar upp er staðið er ástæða til að þakka öllum þeim, sem unnu að því að koma hinum nýju kjarasamningum á Eins og að samningaviðræðunum var staðið virtist hinum almenna áhorfanda sem það væri nán- ast kraftaverk, að samningar tókust að lokum, svo viðamikið er þetta kerfi orðið. Samningaviðræður þær, sem staðið hafa að undan- förnu, hafa væntanlega sann- fært menn endanlega um það, að brýn þörf er á umbótum á skipulagi slíkra viðræðna. Þær þurfa í framtíðinni að verða einfaldari í sniðum og spurn- ing, hvort ekki er nauðsynlegt að efla áhrif og vald heildar- samtaka í slíkum viðræðum á kostnað einstakra félaga a.m.k. . Eru þetta verðbólgusamn- ingar eða ekki? Menn greinir á um það, Óhætt er að fullyrða, að þetta eru ekki jafn miklir verðbólgusamningar og þeir, sem gerðir voru í febrúar 1974. Á hinn bóginn er Ijóst, að atvinnuvegirnir standa ekki undir 25 — 30% kjarabótum á rúmu ári og að hluti þessara kauphækkana rennur út í verð- lagið. Hins vegar er það kostur, að þessi kauphækkun kemur í áföngum. Þá hljóta að vakna vissar vonir um, að verðhækk- anir á Bandaríkjamarkaði að undanförnu auðveldi atvinnu- vegunum að taka á sig nokkrar hækkanir, þegar frá líður. En meiri árangur hefði náðst i bar- áttunni við verðbólguna á þessu ári, ef kauphækkunum skv þessum samningum hefði verið meira í hóf stillt. Það hlýtur að verða eitt helzta verk- efni ríkisstjórnarinnar á næst- unni að meta hvernig bezt verði tryggður sá árangur, sem þegar hefur náðst í viðureign- inni við verðbólguna. Frá þingi Norðurl Geir Hallgrímsson, forsætisráðherra: Hr. forseti. I upphafi máls míns vil ég lýsa ánægju minni yfir því, aö taka þátt í fundi Norðurlandaráðs hér í Kaupmannahöfn, sem ætíð hefur verið mikilvægur tengi- liður milli tslands og umheimsins. Eg harma, að ég skuli ekki hafa tekið þátt í störfum ráðsins fyrr en nú á þessum síðdegisfundi vegna úrlausnar ýmissa mála heima fyrir, af þeim sökum hef ég ekki getað fylgst með þeim umræðum, sem hér hafa farið fram, en af frásögnum annarra Islendinga hér á fundinum er mér ljóst, að landhelgismálið hefur verið hér mjög til umræðu og fram hefur komið ríkur skiln- ingur og mikill áhugi á málstað Islands. Ég leyfi mér að þakka það. Ég held, að allir skilji, ef ég sem hvergi er dregin í efa, þar sem fullyrt er, að á árinu 1979 muni mikilvægasta fisktegund íslensku fiskstofnanna, þorskur- inn, hrynja, ef ekki er dregið úr sókninni. I því skyni að vernda þorskstofninn, mæltu vísinda- mennirnir með því, að á árinu 1976 yrði leyfilegur hámarksafli þorsks takmarkaður við 230 þús- und tonn, sem er svipað magn og árleg veiði íslenska fiskiskipaflot- ans. 80% af útflutningi Islend- inga eru sjávarafurðir, og í þeim skiptir þorskurinn mestu. Heildar þorskafli allra þjóða á Islands- miðum 1974 nam rúmlega 370 þúsund tonnum. Þetta voru þær staðreyndir, sem við okkur blöstu, og þess vegna ákváðum við að gera okkar ýtrasta til þess að vernda þverrandi auðlindir hafsins með Geir Hallgrfmsson flytur ræðu sl Bretar ættu að gera sö og þeir gera til aniu takmarka þau fáu orð, sem ég hér flyt, við landhelgismálið. Á fundum Norðurlandaráðs i Alborg 1974 og í Reykjavík í febrúar í fyrra gerði ég grein fyrir þeirri stefnu íslensku ríkis- stjórnarinnar að færa fiskveiði- lögsögu Islands út í 200 sjómílur 1975. Deilan stöðugt alvarlegri Síðan útfærslan kom til fram- kvæmda 15. október á síðasta ári hefur þetta mál verið helsta við- fangsefni Islendinga á sviði utanríkismála. Fiskveiðideilan við Breta verður alvarlegri með hverri vikunni sem líður og enn sjáum við ekki fram á friðsamlega lausn. Utfærsla íslensku fiskveiðilög- sögunnar í 200 sjómílur, grund- vallast á þeirri staðreynd, að íslenska þjóðin, sem byggir efna- hagslega afkomu sína einvörð- ungu á strandfiskveiðum, átti æ erfiðara með að sætta sig við ástandið á fiskimiðunum, þar sem heildaraflinn jókst ekki þrátt fyrir meira en tvöföldun fiski- sóknar. Haustið 1975 sendu íslenskir fiskifræðingar frá sér skýrslu, því að færa út fiskveiðimörk okkar. Með hliðsjón af fiskveiðihags- munum okkar er eðlilegt, að við höfum alltaf verið í hópi braut- ryðjenda við mótun löggjafar i hafréttarmálum. Um það mál hefur verið fjallað af þremur haf- réttarráðstefnum Sameinuðu þjóðanna, sem eiga rætur að rekja til tillögu, sem Island lagði fram á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóð- anna 1949. A þriðja fundi þeirrar hafréttarráðstefnu sem nú er að störfum, í Genf 17. mars til 9. maí á síðasta ári, hittust norrænu sendinefndirnar reglulega til að ræða sameiginleg áhugamál og nefndirnar munu halda nánu samstarfi sínu áfram á fjórða fundinum, sem verður haldinn í New Vork frá 15. mars til 7. maí 1976. Enda þótt störfum þriðju haf- réttarráðstefnu Sameinuðu þjóð- anna sé ekki lokið, er nú ljóst, að yfirgnæfandi meirihluti ríkja styður meginregluna um að strandríki megi taka sér 200 milna efnahagslögsögu og ákveða leyfilegan hámarksafla á þvi svæði, sem og getu sina til að nýta þann afla. Utfærsla íslensku fisk- veiðilögsögunnar í 200 mílur er þess vegna í samræmi við þróun alþjóðalaga. Bretar setja fram óhóflegar kröfur Við gerðum okkur grein fyrir því, að ákvörðun okkar gæti leitt til árekstra við aðrar þjóðir, en við gátum ekki beðið með útfærsl- una, þar sem næstu eitt eða tvö ár gætu þýtt hrun þorskstöfnsins. Aðrar þjóðir gera sér grein fyrir vilja okkar til að draga úr veiðum og setja þær undir virka stjórn. Og ég fagna því, að okkur hefur tekist að leysa ágreining okkar við Vestur-Þýskaland og Belgíu með gagnkvæmum samningum. Samningaviðræður við Noreg og Færeyjar munu vonandi einnig leiða til sameiginlegrar niður- stöðu þar sem tekið er tillit til núverandi ástands fiskstofnanna. Þegar við færðum lögsögu okkar í 12 mílur 1958 og 50 mílur 1972, hafði Bretland aðgerðir okkar að engu, og breska ríkis- stjórnin sendi flota sinn til þess að verja ólöglegar veiðar breskra togara áíslensku yfirráðasvæði. Báðum þessum deilum var hins- vegar lokið með samkomulagi. Nú ber svo við í þriðja sinn á 18 árum, að við stöndum frammi Hvað dvelur Orminn langa? — spurði Sverrir Hermannsson Herra forseti. Það rikir hernaðarástand á Is- landsmiðum. Að vísu ekki blóðugt stríð enn sem komið er, en svo mjög fer harkan í átökunum vaxandi að enga spádómsgáfu þarf til að segja fyrir um til hvers leiða kunni. Ég vil I upphafi orða minna ekki draga dul á þá trú míha og von að þetta þing veiti málstað Islands stuðning og Norðurlandaþjóðir hver og ein veiti okkur meiri stuðning en hingað til, þótt sízt skuli það vanþakkað, sem gert hefir verið. Þegar Islendingar biðja um stuðn- ing við málstað sinn þurfa þeir fyrst að rökstyðja svör við tveimur spurn- ingum aðallega. Hin fyrri er: Hvers vegna biðu Islendingar ekki úrslita hafréttarráðstefnu Sameinuðu þjóð- anna, sem allar líkur benda til að lögleiði 200 mílna efnahagslögsögu? Og hin síðari: Hvers vegna semja Islendingar ekki við Breta? Þorskstofninn ofnýttur Dagana 8.—14. marz 1972 var haldinn í aðalstöðvum Alþjóða haf- rannsóknaráðsins í Charlottenlund hér í Danmörku fundur i sameigin- legri vinnunefnd Alþjóða hafrann- sóknaráðsins (ICES) og Norð- vesturatlantshafsfiskveiðinefnd- arinnar (ICNAF) um ástand þorsk- stofnanna í Norður-Atlantshafi og horfur í þeim efnum. Slík sameigin- leg úttekt á öllum veigameiri þorsk- stofnum N-Atlantshafsins var orðin nauðsynleg vegna stóraukins sóknarþunga í þorskstofnana. Niðurstaða ráðstefnunnar var sú, að allir stærri þorskstofnarnir voru fullnýttir og sumir ofnýttir. Þegar árið 1962 var talið að þorskstofn- arnir í Norðaustur-Atlantshafi væru fullnýttir. Þessari ráðstefnu reikn- aðist til að æskilegasta sóknin i þorskstofna Norður-Atlantshafs væri um helmingur þess sem þá var. Vísindamönnum reiknast svo til, að þorskstofninn á Islandsmiðum gæti gefið af sér 450 til 500 þús. tonn á ári ef sókn í hann væri hæfi- leg og að vernd ungfisks og friðun hrygningarstöðva væri staðið á vís- indalegan hátt. Árið 1975 voru veidd 380 þús. tonn af þorski á Islandsmiðum. Is- lenzkir fiskifræðingar telja algjört hámark þess sem veiða megi 280 þús. tonn eins og nú er ástatt, eða 100 þús. tonn minna en veitt var s.l. ár. Brezkir fiskifræðingar álita að veiða megi allt að 300 þús. tonn, svo að ekki munar miklu á skoðunum þessara sérfræðinga. Til þess að hindra áframhaldandi ofveiði með ólýsanlegum afleiðingum fyrir efna- hag tslendinga, var þeim nauðugur einn kostur þegar í stað að færa fiskveiðilögsöguna út í 200 mílur M Í

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.