Morgunblaðið - 02.03.1976, Page 22

Morgunblaðið - 02.03.1976, Page 22
26 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. MARZ 1976 Útför eiginkonu minnar. t RAGNHEIÐAR KONRÁÐSDÓTTUR, hjúkrunarkonu, Vesturbergi 97 sem andaðist 20. febrúar s.l., fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 3 marz kl. Fyrir hönd vandamanna, 1.30 e.h Skúli Matthlasson. t Eiginkona mfn, móðir okkar, tengdamóðir og amma MARGARET STEINSSON Búðargerði 1 verður jarðsungin frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 3. marz kl 1 3.30. Þorkell Steinsson, Sigríður Oddgeirsdóttir, Eric Steinsson, Þorgerður Friðriksdóttir, Steinn Steinsson, Anna Kjaran Raymond Steinsson, og barnabörn. t Jarðarför móður okkar, og tengdamóður, UNNAR SIGRÍÐAR EINARSDÓTTUR, Nýlendugötu 18, fer fram frá Dómkirkjunni i dag, þriðjudag 2 marz kl 1 3.30 Þeim, sem vildu minnast hennar er bent á Styrktarfélag vangefinna Jónfna Ingólfsdóttir, Sigurjón Kristinsson, Jóhannes Ingólfsson, GySa Sigfúsdóttir, Einar J. Ingólfsson, Arndfs Sigurðardóttir Minning: Sigríður Guðrún Friðriksdóttir I dag er til moldar borin Sigrið- ur Guðrún Friðriksdóttir, fædd að Drangavík í Strandasýslu 10. október 1879. Foreldrar hennar voru Friðrik Jóhannesson bóndi í Drangavík og Guðbjörg Björns- dóttir. Systkinin voru mörg og fluttist hún 5 ára gömul til föður- bróður síns, Hallvarðar Jóhanns- sonar, og Sigríðar konu hans að Skjaldarbjarnavík og ólst þar upp til 22 ára aldurs. Þaðan fór hún út á Snæfjallaströnd og vann þar í verstöðvum sem ráðskona, þar kynntist hún ungum manni, Berg- sveini Sveinssyni, Kristjánssonar bónda að Sunnudal og konu hans Bjargar Ólafsdóttur. Þau felldu hugi saman og giftust 1905 og hófu búskap að Kirkjubóli en fluttu þaðan ári seinna að Ara- tungu í Staðardal í Steingríms- firði. Þar bjuggu þau í 22 ár, eignuðust 15 börn, 12 af þeim komust til fullorðinsára en 3 ólust upp hjá föðurbróður sínum, Magnúsi á Kirkjubóli. Siðan flutt- ust þau að Vatnshorni í Skeljavík en munu ekki hafa stundað þar búskap en Bergsveinn fékkst við barnakennslu. Þaðan fóru þau til Hólmavíkur og var Sigríður eftir hjá börnum sinum til skiptis og hylltist til að vera þar sem þörfin var mest fyr- ir vinnu hennar. Sigríðu missti mann sinn eftir langvarandi veikindi 1967. Þessi fáu orð eru rammi um líf 96 ára gamallar konu sem kvödd er í dag, en á bak við þennan ramma er hetjusaga fátækrar konu sem barðist hlífðarlausri baráttu við að sjá sér og sinum farborða i hörðum heimi. Já, víst var heimurinn harður og lífsbaráttan ströng. Hver getur sett sig i þau spor móðurinnar, sem verður að láta börnin í burtu sökum fátæktar og langur hefur vinnudagur Sigríðar verið en hún æðraðist ekki og ræddi litið um sína erfiðleika. Fyrstu kynni okk- ar hjóna af Sigríði urðu á þann veg að hún kom til dóttur sinnar, Önnu, sem býr á Blesastöðum, konu Magnúsar Guðmundssonar, og dvaldi hjá þeim nokkrum sinn- um. Sigríður var ein þeirra kvenna, sem aldrei vilja sitja auðum hönd- um, og var tóskapur hennar aðal- vinna á efri árum. Þannig kom hún inn á okkar heimili og prjón- aði og vann í höndum nokkrum sinnum. Sigriður var sérstök kona, það andaði frá henni hlýju og velvilja til allra. Hún var ákaflega þakklát hvað sem fyrir hana var gert. Fá- mál var hún og sveipaði um sig dálitilli skel en fyrir innan þessa skel var hlýtt og gott hjarta, fullt af velvilja og umhyggju. Lífsbar- áttan hafði leikið hana hörðum höndum en þó var ekki til beizkja eða særindi til neins heldur að- eins þakklæti. Líf hennar beind- ist að því að gera hverjum eins mikið gagn og gott og hún gat. I dag, þegar við kveðjum þessa konu, finnum við að við eigum henni mikið að þakka. Hennar líkar hafa valdið því að við höfum búið hér í þessu landi í ellefu hundruð ár, þrautseigja, þolgæði og úrræði hafa valdið þvi að þjóð- in hefur ekki gefizt upp. Astúð, nægjusemi og góðvilji hafa gætt verðandi æsku þeirri trú að þrátt fyrir allt skyldum við búa í þessu landi. Blessuð sé minning hennar og það fordæmi er hún gaf. Hermann Guðmundsson. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi GUÐMUNDUR MARINÓ JÓNSSON, rafmagnseftirlitsmaður. Vatnsnesvegi 26. Keflavlk, verður jarðsunginn frá Keflavikurkirkju, miðvikudaginn 3 marz kl 14 Blóm vinsamlegast afþökkuð. en þeim sem vilja minnast hans, er bent á minningarkort Styrktarfélags Sjúkrahúss Keflavíkur Malena Jónsson, börn, tengdabörn og barnabörn. t RAGNA HALLDÓRSDÓTTIR Norðurbrún 1, lést i Landakotsspitala að morgni 1 marz. Ellert Árnason, Sigrún Ellertsdóttir. Sigurþór Ellertsson. t Móðir okkar EMMA JÓNSDÓTTIR Kvisthaga 25 lézt sunnudaginn 29 febrúar að Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund Jarðarförin auglýst síðar Astrlður Jakobsdóttir Jóhann Jakobsson Jón Jakobsson Björn Jakobsson t GUÐJÓN MARTEINSSON, Brðvallagötu 42, lézt i Landspitalanum 1 1 febrúar 1976 Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna Steinunn G. Árnadóttir, Marteinn Guðjónsson, Gerður Hannesdóttir, og barnabörn. t Alúðarþakkir, til allra þeirra sem heiðruðu minningu SOFFÍU ELÍSABETAR GUÐMUNDSDÓTTUR Vlðimel 66, með naerveru sinni við útför hennar Sérstakar þakkir færum við læknum og starfsfólki á Vifilstaðasúkrahúsi fyrir frábæra umönnun I veikindum hennar Vandamenn. Kveðja: Jóhanna Margrét Magnúsdóttir Laugardaginn 3. janúar s.l. var til moldar borin Jóhanna Margrét Magnúsdóttir, Núpum, Ölfusi. Hún andaðist á heimili sinu þann 27. desember eftir langvarandi vanheilsu og þráða hvíld. Hún var skaftfellingur, fædd að Hörgs- landi á Síðu þann 14. nóvember 1889. Foreldrar hennar voru Ingi- gerður Jónsdóttir og Magnús Þor- láksson hreppstjóri. Ung að árum fluttist hún með foreldrum sínum að Fossi í sömu sveit og ólst þar upp til fullorðins- ára. Þau systkin voru fjögur auk Jóhönnu: Helgi sem dó í blóma lífsins, Rannveig sem nú er ein á lífi þeirra systkina og býr í Reykjavík, Þorfinnur, siðast bóndi í Hæðargarði og Sigurveig sem mörg siðustu árin var á Núpum. Á Fossi var margbýli og ólst þar upp margt ungmenna. Jóhanna minntist jafnan uppvaxtaráranna þar með mikilli hlýju og virtist í minningunni eins og þar hefði t Eiginmaður minn, FINNBOGI GUÐMUNDSSON. Bárugötu 18, Akranesi sem lézt 25 febrúar verður jarðsunginn frá Eyrarbakka- kirkju, miðvikudaginn 3. marz kl 2 Guðrún Diðriksdóttir. t Þökkum hlýhug og samúðar- kveðjur vegna fráfalls móður okkar RÓSU EIRÍKSDÓTTUR. Djúpavogi. Fyrir hönd venzlafólks. Lára Hlöðversdóttir, Sigurbjorg Hlöðversdóttir, Eirlkur Hlöðversson. verið um einn stóran systkinahóp að ræða. Frá Fossi lá leiðin til Reykjavíkur en þar stundaði hún saumaskap o.fl. En leiðin lá aftur til æsku- stöðvanna. Vorið 1916 hafði ein leiksystirin frá Fossi, Ragnheiður Helgadóttir, gifst Jóhanni Sig- urðssyni frá Breiðabólstað og hafið þar búskap, en þau voru foreldrar minir. Við fæðingu mína veiktist móðir mín, Ragn- heiður af barnsfararsótt, sem þá var varla læknanlegur sjúk- dómur. Kom þá mamma eins og ég kallaði Jóhönnu alltaf, á heimilið til hjálpar. Móðir mín lést eftir nokkurra mánuða legu og gekk þá Jóhanna mér þegar í móðurstað. Ég tel það mitt mikla lán að hún gerðist svo síðari kona föður míns. Þau bjuggu á Breiða- bólstað til ársins 1923 en þá urðu þau að flytjast þaðan, þar sem sú jörð var þá læknissetur og læknir- inn settist þar að búi. Fluttust þau að Kirkjubæjarklaustri og bjuggu þar í sambýli við móður- bróður minn, Lárus Helgason. En með ört vaxandi fjölskyldu þurfti rýmra jarðnæði, en jarðir lágu ekki á lausu eystra um þær mundir. Þau keyptu því Núpa í ölfusi árið 1927 og fluttust þangað um vorið. Áreiðanlega var þeim báðum óljúft að yfirgefa æskustöðvarnar en börnin voru þá orðin sex, frá 1—11 ára, svo að um nóg var að hugsa. Ferðasagan frá Klaustri er sem ævintýri á nútímamæli- kvarða. Hestarnir voru farar- tækin og allar ár óbrúaðar. A Núpum var landrými nóg og ræktunarskilyrði góð og því hag- stætt vaxandi fjölskyldu. Vélaöld- in var að ganga í garð, verkefnin óþrjótandi og þörf vinnandi handa úti og inni. Vinnuaflið brást ekki. Með okkur að austan fluttust tvö systkini mömmu, Þorfinnur og Sigurveig, maður Sigurveigar, Guðmundur Ölafsson, ásamt ung- um fóstursyni, Sigmundi Bergi Magnússyni, móðir hennar Ingi- gerður og ungmenni þ. á m. Lilja Björnsdóttir sem var lengi á Núpum og tengdist heimilinu traustum böndum. Þetta fólk hjálpaði á frumbýlisárunum, lengur eða skemur eftir þörfum. En Þorfinnur þráði æsku- byggðina og hélt þangað aftur áður en langt um leið. Ingigerður andaðist árið 1930. En árið 1935 dregur skjótlega ský fyrir sólu, faðir minn veiktist af blóðeitrun og lést innan fárra daga. Stóð nú ekkjan uppi með niu börn, það yngsta fjögra ára og fjárhagurinn eins og hjá flestum barnmörgum fjölskyldum á kreppuárunum. Almanna- tryggingar voru þá ekki til. En með guðshjálp og góðra manna blessaðist allt. Hallgrímur Jónsson, nú hús- vörður hjá Sláturfélagi Suður- lands, æskuvinur föður míns kom strax til hjálpar og dvaldist á Núpum til næsta hausts. Slikt gleymist ekki og skulu honum hér hjartans þakkir færðar og hans góðu konu. Sigurveig og Guðmundur, sem þá bjuggu í Reykjavík, komu svo um haustið ásamt Bergi fóstur- syni sinum. Þau urðu okkur systkinunum sem aðrir foreldrar og Bergur sem einn bróðirinn. Þær systur voru alla tíð mjög sam- rýndar og var Sigurveig mömmu mikill styrkur á allan hátt. Sigur- veig og Guðmundur áttu svo heimili á Núpum til dauðadags en hann lést árið 1941 og hún árið 1961. Systkinin á Núpum eru þessi: Ragnheiður, stjúpdóttirin, gift Engilbert Hannessyni, bónda á Bakka i Ölfusi, Helgi, bóndi á Núpum, kvæntur Jónu Mariu Hannesdóttur; Siggeir, bóndi á Núpum, kvæntur Vilnýju Bjarna- dóttur; Magnús Ingólfur, bif- Framhald á bls. 22

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.