Morgunblaðið - 04.03.1976, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. MARZ 1976
römm, sem dregur fátækan,
íslenzkan bóndason, fæddan
fyrir 100 árum, til listnáms er-
lendis og til að helga sig mynd-
listarstörfum af þeirri alvöru
og elju, aó hann er ótvírætt
meðal þeirra fremstu, sem
fengizt hafa við myndlist á Is-
landi. Ásgrimur Jónsson hefur
lýst því i endurminningum
sínum, sem Tómas Guðmunds-
son færði í letur fyrir 20 árum,
að þegar í bernsku hafi hann
fest sig í þeirri trú, að hann
ætti að verða málari. Þó hefði
hann á þeim árum víst sjaldan
eða aldrei heyrt minnzt á list-
málara og ekki kynnzt myndlist
af eigin sjón, fyrr en hann var
orðinn fulltiða maður og
kominn til Kaupmannahafnar.
„En allt að einu“, segir
Ásgrímur, „undi égöllum
stundum, er ég mátti, við að
festa á blað þær myndir úr
náttúrunni, sem mér voru hug-
leiknastar, og það var eiginlega
mesta furða, hvað ég gat orðið
mér úti um mikinn pappír til
þeirra hluta, en sjálfsagt hef ég
haldið eins spart á honum og
mér var unnt.“
Ásgrímur Jónsson var braut-
ryójandi i ísienzkri myndlist.
Hann var að vísu ekki fyrsti
íslenzki myndlistarmaðurinn,
en hann flutti með sér ferskan
andblæ og lífsþrótt i íslenzkt
myndlistarlif. Með verkum
sinum þroskaði hann þekkingu
landsmanna á myndlist, og
yngri mönnum varð hann fyrir-
mynd og aflgjafi, en margir
okkar beztu listamanna, sem á
eftir honum komu, nutu leið-
sagnar hans, áður en þeir héldu
utan til náms.
Flestar fyrirmyndir sótti
hann i islenzka náttúru og
landslag. Enginn islenzkur
málari hefur náð lengra en
hann í túlkun á stórbrotnu
landslagi okkar og fáir náð að
standa jafnfætis honum í þeirri
list. Annar athyglisverður
þáttur í list Ásgríms er túlkun
hans á íslenzkum þjóðsögum,
þar sem hann dregur fram af
skarpskyggni atburði og nöfn
úr hinum kynlega þjóðsagna-
heimi okkar. Þannig stendur
list hans djúpum rótum í
islenzkri þjóðarsál.
Ásgrimur ferðaðist víóa um
landið til að viða að sér hug-
myndum i myndir sínar. Lengst
af bjó hann þó í Reykjavik. Hér
starfaði hann og var áberandi
persónuleiki í bæjarlífinu. Hér
hélt hann fjölda sýninga, sem
settu mikinn svip á listalífið í
bænum.
Ásgrímur Jónsson hefði orðið
100 ára þann4. marz 1976.
Minningu þessa mikilhæfa
listamanns vill Reykjavikur-
borg heiðra með þvi að halda að
Kjarvalsstöðum yfirlitssýningu
á verkum hans í samvinnu við
Ásgrímssafn. Þess er að vænta,
að borgarbúar og landsmenn
allir kunni að meta þá ákvörð-
un og að sýningin
verói einn af
meiri háttar
listviðburðum
ársins."
ASGRIMSSYNING verður
opnuð n.k. laugardag i báðum
sölum Kjarvalsstaða og i göng-
um hússins eru einnig Ásgríms-
myndir, alls 274 verk og er
þetta stærsta yfirlitssýning á
verkum eins málara á Islandi.
Reykjavíkurborg stendur fyrir
sýningunni og á blaðamanna-
fundi í Kjarvalsstöðum gat
Birgir Isleifur Gunnarsson
borgarstjóri þess að á s.l. ári
hefði verið tekin ákvörðun um
það hjá Reykjavíkurborg að
heiðra minningu hins mikil-
hæfa listamanns, Ásgríms Jóns-
sonar, með þvi að halda yfirlits-
sýningu á verkum hans í Kjar-
valsstöðum í samvinnu við
Ásgrímssafn, en í Ásgrímssafni
er aðeins unnt að sýna um 30
myndir í einu.
Ásgrímur Jónsson var fædd-
ur 4. marz 1876 og á því 100 ára
afmæli um þessar mundir. I
sýningarnefndinni eru Bjarn-
veig Bjarnadóttir, Guðmundur
Benediktsson, Hjörleifur Sig-
urðsson og Þorvaldur Skúlason.
Ásgrímssýningin verður opin í
marz og apríl og verður hún
öllum opin frá kl. 5 á laugar-
dag, en Bjarnveig Bjarnadóttir
í Ásgrímssafni þakkaði borgar-
stjórn þá miklu rausn að hafa
sýninguna opna ókeypis fyrir
alla sýningartimann, en á sýn-
ingunni eru tæplega300 af
þeim málverkum sem Ásgrím-
ur gaf íslenzku þjóðinni á sín-
um tíma og varðveitt eru í
Ásgrimssafni.
Ásgrímssýningunni í
Kjarvalsstöðum er skipt i
nokkrar deildir, m.a. myndir
frá Húsafelli, eldgosamyndir,
Reykjavíkurdeild, Þingvalla-
deild, þjóðsagnamyndir o.s.frv.
Ölafur B. Thors, forseti
borgarstjórnar Reykjavíkur,
formaður stjórnar Kjarvals-
staða, tjáði fréttamönnum að á
sýningartímanum yrðu haldnir
tveir Mozarttónleikar, en
Ásgrímur var mikill unnandi
tónlistar og þá sérstaklega
Mozarts og á yngri árum átti
hann i baráttu um að velja á
milli hvort hann ætti að sinna
tónlist eðalistmálun. Olafur
kvað Kammersveit Reykja-
víkur sjá um aðra tónleikana,
en Félag íslenzkra tónlistar-
manna um hina og tilgangurinn
væri að gera þessa sýningu enn
meiri hátíð.
I spjalli við fréttamenn
rifjaði Bjarnveig upp fyrstu ár
Ásgríms sem málara og þá
erfióleika ogoft skilningsskort
sem við var að glíma en aldrei
kvað hún málarann hafa
gleymt orðum Ara bónda á
Fagurhólsmýri er hann sagði
við Ásgrim: „Þetta hlýtur að
vera einhverskonar ættjarðar-
ást að mála landið."
Ásgrimssýningin er fjórða
viðamikla listsýningin sem
Reykjavikurborg stendur fyrir
í Kjarvalsstöðum. Sú fyrsta var
Kjarvalssýning, þá
sýning á eigin verk-
um borgarinnar og
svo sýning fjögurra
listamanna sem
borgin bauð aó sýna
sameiginlega í húsinu.|
Hér fer á eftir
ávarp Birgis Isleifs
Gunnarssonar borg-
arstjóra, sem birt er i
sýningarskrá Ás-
grímssýningarinnar
að Kjarvalsstöðum:
„Sú taug hlýtur
að vera
Þessa mvnd tók Ólafur K. Magnússon ljósmvndari Morgunblaðs-
ins, af Ásgrími Jónssvni listmálara þegar hann afhenti íslenzku
þjóðinni á sínum tíma að gjöf tæplega 500 málverk eftir sig, en
listamaðurinn andaðist 5. apríl 1958. Myndin er tekin í vinnu-
stofu listamannsins við afhendingu málverkanna, en síðar var
Asgrímssafn opnað f vinnustofu og heimili listamannsins að
Bergstaðastræti 74 árið 1960.
Reykjavíkurborg efnir til stærstu yfir-
litssýningar
eins málarai
á íslandi
Á blaðamannafundinum i Kjar-
valsstöðum í gær í tilefni
opnunar Asgrimssýningar-
innar. Frá vinstri: Alfreð
Guðmundsson, forstöðumaður
Kjarvalsstaða, Ólafur B. Thors,
forseti borgarstjórnar Reykja-
víkur formaður stjórnar Kjar-
valsstaða, Guðmundur Bene-
diktsson og Hörleifur Sigurðs-
son listamenn, Bjarnveig
Bjarnadóttir og Birgir tsleif-
ur Gunnarsson borgarstjóri
Ljósmynd Mbl. Ol.K.M.
41
Asgríms-
sýningin
að heíjast
í Kjarvalsstöðum