Morgunblaðið - 20.03.1976, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. MARZ 1976
5
Seltirningum
boðið að hlaupa
af sér hornin
LEIKFÉLAG Seltjarnarness er
nú að hefja sýningar á gaman-
leiknum Hlauptu af þér hornin
og verða sýningarnar i Félags-
heimilinu áSeltjarnarnesi.
Leikfélag Seltjarnarness var
stofnað 13. október 1971. Fy.rsti
formaður félagsins var Sig-
urður Sigmundsson, síðar Jón
Jónsson, en núverandi for-
maður er Guðjón Jónatansson-.
Félagið sýndi árið 1972 ein-
þáttungana Jóðlíf eftir Odd
Björnsson og Sköllóttu söng-
konuna eftir Ionesco. Leikstjóri
var Hákon Waage. Arið 1973
barnaleikritið Gosa eftir Jó-
hannes Steinsson, Geimfarann
eftir Hreiðar Eiríksson árið
1974, og með það leikrit fór 4
manna leikflokkur til Alands-
eyja i tilefni 10 ára afmælis
sambands finnsk—sænskra
áhugaleikara. Leikstjóri við tvö
síðasttöldu verkin var Jón
Hjartarson, sem jafnframt var
kennari á framsagnarnám-
skeiði. Hefur félagið efnt til
fimm framsagnarnámskeiða, og
notið þar leiðsagnar Péturs
Einarssonar, Hákonar Waage,
Jóns Hjartarsonar og Ingunnar
Jensdóttur.
13. febrúar s.l. kom finnskur
leikflokkur frá Braga Dramat-
en í Helsinki í boði Leikfélags
Seltjarnarness, og hafði hér 4
sýningar í félagsheimílinu við
ágætar undirtektir. Einnig tók
félagið á móti og liðsinnti
finnska leikflokknum Tilatteri
frá Helsinki árið 1975.
Félagið hefur undanfarin 3
ár séð um skemmtiatriði á Sel-
tjarnarnesi 17. júní í samvinnu
við Iþróttafélagið Gróttu.
Núverandi verkefni félagsins
nefnist „Hlauptu af þér horn-
ín“ (Come Blow Your Horn) og
er eftir bandaríska leikrita-
skáldið Neil Simon. Höfundur-
inn hefur samið fjöldann allan
af leikritum og sjónvarpsþátt-
um, og hafa mörg verka hans
verið kvikmynduð. Hefur
Simon bæði hlotið Emmy og
Tony verðlaunin fyrir verk sin.
Hlauptu af þér hornin er
gamanleikur í þremur þáttum.
Framhald á bls. 18
Leikarar og aðrir aðstandendur sýningar Leikfélags Seltjarnarness, Hlauptu af
þér hornin. Ljósmynd Mbl. Ól.K.M.
Audi ÍOO
er stór, glæsilegur fjöl-
skyldu-, atvinnu- og lúxus
ferðabíll, sem er laus við
allt prjál — Audi 100 er
mjög lipur í borgarakstri
og rásfastur í langferðum.
Auói ÍOO
er tæknilega leiðandi,
þægílegur og öruggur.
Rúmgóður og BJARTUR.
Vélin, sem er fram í er
vatnskæld fjögurra
strokka, fjórgengisvél.
Hún er fremur hraðgeng
og hefur gott viðbragð
enda er hlutfall milli orku
vélarinnar og þunga bíls-
ins sérlega hagstætt og
eyðir hún því litlu eld-
sneyti (8,9 I pr. 100 km)
miðað við afköst.
ORYGGISSTYRKT
YFIRBYGGING
ÖRYGGI AuóilOO
Framhióladrif, öryggisstyrkt
yfirbygging. Styrking yfir-
byggingar er tölvuútreiknuð
með tilliti til höggdeyfingar að
framan og aftan. Öryggis-
stýrisás. Öryggisgler. Tvöfalt
krosstengt bremsukerfi með
sjálfvirkum bremsujafnara
(Við bendum yður á að kynn-
ast því sérstaklega).
AuÓl bremsujafnarinn
kemur í veg fyrir hliðarrennsl
á hálum og blautum vegum.
ÞÆGINDI Auól ÍOO
Hann er sérlega vandaöur að öllum innra
búnaði. Fráqanqur í hæsta vestur-bvzka
gæðaflokki. Upphituð afturrúða, glæsilegt
mælaborð með quartsklukku og rafknúinni
rúðusprautu og fjölstilltum rúðuþurrkum.
Svefnsæti með höfuðpúðum, sjálfstillanleg
rúllubelti. 680 lítra farangursrými.
Auói lOO er rúmgóður og bjartur,
það fer vel um 5 farþega á ferðalagi
og svo erfarangursrýmið sérlega stórt
Hitunar- og loftræstikerfi er af fullkomnustu
gerð. Dreifingu og styrkleika loftstreymis og
hitastig er hægt að stilla að vild.
SYNINGARBÍLAR Á STAÐNUM HEKLA HF.
Laugavegi 170—172 — Sfmi 21240