Morgunblaðið - 20.03.1976, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 20. MARZ 1976
29
VELX/AKAIMOS
Velvakandi svarar i síma 10*100
kl 14—15, frá mánudegi til föstu-
dags
0 Brenglað mál
Stefán skrifar:
Enn hafa islenzkir kaupmenn
afbjagað íslenzkt mál, en flestir
munu kannast við Kjör-Val-Verin,
Mömmusálina, Buxnaklaufina
ógeðfelldu, Kyss Kyss-
hörmungina og svona mætti lengi
telja.
Nú koma þessir menn með ein-
dæma afbökun þ.e. þessi sífelldu
„tilboð“ Tilboð dagsins er þetta
og hitt. Vita islenzkir kaupmenn
ekki hvað tilboð er? Þeir ættu að
fletta upp i dönskubókinni sinni,
sem þeir lærðu i skóla. Þeir ættu
að fara til Danmerkur og þá
munu þeir sjá víða „Dagens
tilbud" osfrv.
Það ætti að hafa eftirlit með
þessum mönnum, það ætti að
banna þeim að brengla og böglast
með móðurmálið ef þeir geta ekki
betur gert en dæmin sýna.
Enginn vafi er á þvi, að áður en
langt um liður verður sett á stofn
verzlun hér sem ber heitið Pabba-
rass og svo t.d. Gotraufin, Puss
Puss, Flatlúsin og Eistað.
Íslenzkir kaupmenn eru ekki
frjóir í nafngiftum og ekki eru
þeir smekklegir, þvi fer
viðsf jarri.
Stefán
0 Þakkir til
leikfélagsins
Ungur maður Kristinn
Guðmundsson kom að máli við
blaðið og bað um innilegar þakkir
til Leikfélags Reykjavíkur fyrir
boð þess til fötluðu barnanna I
Hliðaskóla i Reykjavík á barna-
sýninguna Kolrassa á kústskaft-
inu. Sáu börnin sýninguna s.l.
sunnudag og höfðu hina beztu
skemmtun af.
0 Svar inn-
heimtumanns
ríkissjóðs
í Rangár-
vallasýslu
Velvakanda nefur borizt bréf
frá Birni.
Fr. Björnssyni, sýslumanni
vegna bréfs sem birtist hér í
dálkunum. Segir hann að svarið
sé nokkuð seint á ferð, en eftir
efni máls ætti það ekki að saka
verulega. Svarið frá innheimtu-
manni rlkissjóðs I Rangárvalla-
sýslu er svohljóðandi:
„Skattgreiðandi I Rangárvalla-
sýslu sem ekki hefur látið nafns
síns getið, hefur í Velvakanda-
þætti sent frá sér 4 fyrirspurnir
til innheimtumanns ríkissjóðs I
sýslunni undir yfirskriftinni
„Hvers vegna er innheimt
svona?“.
Þar sem nokkur timi er liðinn
frá birtingu fyrirspurnanna þykir
rétt að taka upp efni þeirra ásamt
með svari.
1. Spurt er hvers vegna skyldu-
sparnaðargreiðsla sé talin með við
innheimtu fyrirframgeiðslu
skatta.—
Álagning fyrirframgreiðslufjár-
hæðar er reiknuð af heildarþing-
gjaldi að frádregnum barnabót-
um. Regla þessi, sem tíðkuð er
vfðast hvar í umdæmum, er til
hægri verka og hún ekki verið
átalin, svo kunnugt sé. Um það
hvort rangt sé að beita reglunni
má að sjálfsögðu leita úrskurðar.
2. Þá er spurt hvernig á því
standi, að aðeins sé fyrirfram-
greiðsla skatta innheimt hjá
„sumum" þeirra sem taka laun
hjá launadeild fjármálaráðu-
neytisins. —
Hingað hefur verið send skrá
frá launadeild yfir þá sem taka
laun á vegum hennar Eftir
þessari skrá er farið við inn-
heimtuna. Einar tvær undan-
tekningar eru í þetta sinn. Annar
gjaldþeginn var sjúklingur til
lengri tima, en hinn óskar að
greiða sjálfur eftir settum reglum
og stendurvið greiðslur.
3. Spurt er hvort rétt sé að þeir
vinnuveitendur sem halda eftir af
launum starfsmanna sinna vegna
skatta hafi vilyrði innheimtu-
manns 'fyrir því að þurfa ekki að
skila skatti fyrr en i lok greiðslu-
tímabils. —
I fyrra, þegar hér var fyrst
komið á fyrirframgreiðslu skatta
hjá fyrirtækjum innan héraðs,
var í bréfi til þeirra m.a. tekið
fram, að þeim gæfist kostur á að
hagræða fyrirframgreiðslu á
gjalddagana í samráði við starfs-
mennina en heildarskatti skyldi
skila i siðasta lagi fyrir 15. júni.
Má hver og einn túlka þetta
frávik sem honum sýnist, en
vissulega var gert ráð fyrir og því
treyst að fyrirtækin misnotuðu
ekki þessa tilhögun, en slíkt
hefur ekki komið i ljós.
4. Loks er spurt hverju sæti að
ofgreiddir skattar fáist ekki
endurgreiddir fvrr en eftir marg-
ítrekaða eftirgangsmuni. —
Endurgreiðsla ofálagðra skatta
fer daglega fram í skrifstofu inn-
heimtumanns á venjulegum
vinnutíma gegn kvittun við-
komandi skattgreiðanda eða um-
boðsmanns hans.
Hafi fyrirspyrjandi orðið
persónulega fyrir meintri mis-
gjörð af hálfu innheimtumanns
þá er ofur auðvelt fyrir hann að
gefa sig fram, svo að koma megi
við leiðréttingu, hafi honum á
annað borð verið rangt gjört, sem
enn er óvíst."
færðu sig frá þegar David hóstaði
kurteisiega.
— Afsakið. £g bið afsökunar.
Eg bið inniiega afsökunar.
Þessi ofboðslega kurteisi hefði
dugað til að þau vissu að fólkið
var enskl þó ekki hefði annað
komið til. Það er svo afskapiega
enskt að þakka meira að segja
slmsvaranum og ef einhver rekst
ft Englending ft götu, biður sft
slðarnefndi að sjftlfsögðu afsök-
unar, þótt sökin hafi öll verið
hins.
Maðurinn var um fhnmtugt
með breitt andlit, grámvglulegur
nokkuð eins og sól hefði hann
ekkí séð um langa hrfð. Eigin-
kona hans var litlaus og skftta-
stúlkuleg og brosti út að eyrum
með glampandi gervitönnum.
Hún hló vandræðalega sem hún
skipti frft töskunni sinni svo að
Helen og David gætu komist að.
Helen sagðist ætla að fara og
þvo sér og hvarf inn eftir gangin-
um og gaf það til kynna að hún
væri tiður gestur hér & hótelinu.
David fór til herbergis sfns að þvo
sér og hafa sig til. Þegar hann leit
út um gluggann vakti það áhuga
hans að sjft að enska parið hafði
HOGNI HREKKVISI
„Hann kemur bráðum! — Hann er að þvo dallinn
sinn.“
Jarðeigendur
Ahugasamt fólk um búskap vantar jörð til leigu
eða kaups. Má hafa verið í eyði í 1 —2 ár.
Sama hvar er á landinu. Tilboð sendist Mbl. f.
1 5. apríl merkt: Bújörð -— 2304
Jörð til sölu
Jörðin Hvalnes, Skefilsstaðahreppi fæst til
kaups og eða ábúðar í vor. Á jörðinni er 23
hektara tún. Nýlegt steinhús. Silungsveiði í
vötnum. Reki og grásleppuveiði. Vélar og bú-
stofn getur fylgt. Nánari uppl. gefur Búi Vil-
hjálmsson, Hvalnesi, sími um Skefilsstaði og
Egil Bjarnason, Sauðárkróki, símar 5181 —
5224. Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði
sem er eða hafna öllum.
Kjarvalsstaðir
Um helgina
Laugardagur 20. marz
Sýning á verkum Ásgríms Jónssonar i
báðum sölum og göngum.
Opin 14—22. “
Björn Th. Björnsson listfræðingur verður
sýningargestum til leiðsögu milli 1 5 —
^ 1 7
Sunnudagur 21. marz
Asgrímssýning opin frá 14—22.
Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur verð-
ur sýningargestum til leiðsögu milli 1 7
— 19.
Dagskrá með Ijóðum og tónlist í Aust-
ursal kl. 22. Aðgangur 300 krónur.
Fram koma: Hrafn Gunnlaugsson,
Jóhann Hjálmarsson, Nina Björk Árna-
dóttir, Steinunn Sigurðardóttir, Þorsteinn
frá Hamri og Þorvarður Helgason, ásamt
bresku Ijóðskáldunum Keith Armstrong,
Peter Mortimer og David McDuff, hljóm-
sveitinni Diabolis in Musica og öðrum
tónlistarmönnum. Kynnir: Aðalsteinn
Ingólfsson.
Veitingar á staðnum