Morgunblaðið - 20.03.1976, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. MARZ 1976
GIsli Torfason fagnar I leik gegn
IA; spurningin er hvort hann fær
tækifæri til þess I dag.
Meistaraslagur
í Keflavíkinni
ANNAR leikur Meistarakeppn-
innar I knattspyrnu verður I dag í
Keflavfk og mætast þar Bikar-
meistarar ÍBK og íslands
meistarar ÍA Hefst leikurinn
klukkan 14.00 og er seinni
heimaleikur Keflvfkinga f
meistarakeppninni. Um sfðustu
helgi léku Keflvfkingar við Fram
og lauk þeirri viðureign með 1:1
jafntefli. Síðast er ÍBK og ÍA
mættust var það í úrslitaleik
bikarkeppninnar sfðastliðið
haust. Þá vann ÍBK 1:0.
Víðavangs-
hlanpínn fresíað
VÍÐAVANGSHLAUP íslands átti
að fara fram nú um helgina og
var meiningin að hlaupa um
Vatnsmýrina Vegna veðurs
undanfarna daga hefur nú verið
ákveðið að fresta keppninni um
viku og fer hlaupið fram annan
sunnudag, hefst við Háskólavöll-
inn, hlaupaleið og tfmasetningar
verða eins og áður hafði verið
ákveðið.
99
Gamlingjarnir”
bvrja að blaka
AÐEINS einn leikur verður leik
inn f 1. deild íslandsmótsins f
blaki um helgina og er sá undir
veðrinu kominn, því það eru
stúdentar sem fara norður og
leika gegn ÍMA. Sá leikur hefst
kl. 16:00 og verður leikið í
Skemmunni. Það má segja að
stúdentar séu að halda á heima
slóðir, þvf flestir ef ekki allir leik
menn liðsins voru fóstraðir í blak-
inu fyrir norðan, svo þeir ættu að
kannast við sig.
Á morgun verður hins vegar
meira um að vera. í fþróttahúsi
KHÍ verða þrir leikir. Kl. 16:30
hefst leikur Þróttar og USK í 2.
deild og á eftir honum um kl.
17:30 hefst leikur HK og Stíg
anda, einnig i 2. deild Kl. 19 00
hefst svo leikur Vfkings og
Breiðabliks f íslandsmóti kvenna,
en Vikingsstúlkur hafa þegar
tryggt sér rétt til þátttöku i úr-
slitakeppni íslandsmótsins sem
fram fer á Húsavfk um næstu
helgi
Á sunnudagskvöld hefst ,,öld-
ungamót" i blaki. Þátttaka i mót-
inu er mjög góð, alls þrettán lið.
Þetta er fyrsta íslandsmót i öld
ungaflokki hérlendis, ef öldunga
skyldi kalla, 30 ára og eldri.
Leikið verður f þremur riðlum, f
A-riðli eru fimm lið — Ármann,
Vikingur, Þróttur, Stjarnan og
Keflavfk. í B-riðli eru einnig fimm
lið — Breiðablik, Reynir, ísa-
fjörður, HK og íslendingur. C-
riðillinn er fyrir norðan og eru
þijú lið í honum, — Skautafélag
Akureyrar, Siglufjörður og Óðinn,
Akureyri.
Fyrsti leikurinn í mótinu verður
á milli Þróttar og Keflavfkur og
hefst hann kl. 19:00, síðan verða
fjórir leikir og er leikið upp á tvær
unnar hrinur. Leikið verður í
íþróttahúsi Hagaskólans.
Dregið í undanúrslitum Evrópumótanna þriggja í gœr:
Ekkert lið öruggt
um að komast í úrslit
UNDANÚKSHTALEIKIRNIR í Evrópumótunum í knattspyrnu ættu aó geta orðið
æsispennandi og ekkert liðanna sem eftir eru í keppninni er öruggt að komast í
úrslit. I gær var dregið um það í Zurich hvaða lið leika saman í næstu umferð og eru
þau sem hér segir:
IMcislar ukcppnin:
St. Kticnne— PSV Kindhoven
Reai Madrid — Bayern Munchen
Bikarmeislarar:
Kintracht Kra'nkf'urt
— West Ham United
Sachsenrtnp Zwickau
— Anderlecht
l'KKA-keppnin:
Barcelnna — Liverpool
IIaniJ)or{> SV — Bruj>Ke
UppKjör Real Madrid ö« Bayern
Munchen er af morpum álitinn
úrslitaleikurinn í meistarakeppn-
ínni oe vist er art þessi tvö lid eru
nú mjÖK sterk. l>á hel'ur leikur
Barcelona og Liverpool ekki á sér
minni elæsibran pótt hann sé i
UKKA-keppninni.
Vióstaddir dráttinn í «ær voru
forystumenn flestra lióanna, sem
eftir eru í keppninni o>> höfðu
þeir þetta um leikina aó segja:
Walter Kemback, framkvæmda-
stjóri Bayern: — Vió heföum
frekar óskart okkur aö leika
St. Ktíenne, þaö veröur erfitt að
leika keftn Real Madrid, en það
kemur okkur til nóöa aö við eig-
um seínni leikinn á okkar heima-
velli.
Hierre Gronnaire, St. Ktienne:
— Viö þekkjunt liö Kindhoven og
höfum fylgid náiö meö þeim að
undanförnu. Þeir verða okkur
erfiöir andstæðinf>ar.
Fulltrúi Real Madrid: — St.
Etienne var ofar á óskalistanum
hjá okkur en Byern. Við fengum
erfiðasta andstæðinginn, sem við
gátum fengið.
Ioan Granodas, framkvæmda-
stjóri Bareelona: — Við þekkjum
Liverpool, við hefðum ekki valið
það lið ef við hefðum sjálfir
fengið að ráða hverjir yrðu and-
stæðingar okkar. Eg er ekki sér-
lega bjartsýnn fyrir okkar hönd.
Leikirnir í undanúrslitunum
eiga að fara fram 14. og 31. apríl.
Kapparnir á ntyndunum verða allir meðal keppenda í I.andsflokkaglímunui sem fram fer í dag.
Sexmenningarnir slóðu sig he/l í hikarglímu tslands, sem fram fór á llúsavík fvrir nokkru síðan. Frá
vinslri; Þorsleinn Sigurjónsson Víkverja. Guðmundur Olafsson Armanni, Ingi Ingvason IISÞ, Jón
Magnússon KR. Iljörleifur Sigurðsson IISÞog Kyþór Pélurson HSÞ.
Landsflokkaglíman í dag
ALLS eru 29 þátttakendur skráöir til keppni í Landsflokkaglímunni, sem fram fer
í íþróttahúsi Kennaraháskólans og hefst klukkan 14.00 í dag. Meðal keppenda
veröa flestir heztu glímumenn landsins og veröur keppt í þremur þyngdarflokkum
fulloröinna og í þremur flokkum unglinga. Keppendur í glímunni-að þessu sinni
eru frá Keykjavíkurfélögunum, HSÞ og UÍA. 5 Keyðfirðingar halda uppi nafni
Austfjarðanna í þjóðaríþróttinni að þessu stnni.
Verða Ármenningar meist-
arar ífgrsta skipti í dag?
TEKST Armenningum að tryggja sér
íslandsmeistaratitilinn í körfuknatt
leik í fyrsta skipti í dag? Þetta er
stóra spurningin varðandi leiki
helgarinnar í 1. deild, en heil umferð
verður leikin í dag og á morgun.
Armennmgar sem eru ósigraðir í
íslandsmótmu leika gegn íslands-
meisturum ÍR í dag á Seltjarnarnesi
kl. 14, og nægir sigur í þeim leik til að
tryggja sér sigurinn í 1 deild Takist
þeim það ekki, þá eiga þeir eftir einn
leik, gegn KR um næstu helgi og fá þá
annað tækifæri til að handsama
íslandsmeistarabikarinn En fari svo að
þeir tapi báðum þessum leikjum og ÍR
sigri Njarðvik um næstu helgi þá þarf
aukaleik milli Ármanns og ÍR um
titilinn Af þessu má sjá að staða
Ármanns er góð, þó ekki sé hinn
langþráði titill tryggður
Um leiki þessara liða þarf vart að
fjölyrða hér, þeir eru ávallt jafnir og
fjörugir en svarið við spurningunn!
sem varpað var fram í upphafi greinar-
innar fæst á Seltjarnarnesi í dag.
Framhald á bls. 18
Sex stiga sigur Njarðvíkinga
UMFN sigraði Val með 80 stigum
gegn 74 í síðari leik liðanna í 1.
deildinni í körfuknattleik sem leikinn
var i Njarðvík i fyrrakvöld. Þetta var
siðasti leikur Vals i mótinu, en
UMFN sem stefnir nú hraðbyri að 4.
sæti i mótinu á tvo leiki eftir
Leikurinn í fyrrakvöld var mjög jafn
allan fyrri hálfleikinn, og Valur hafði
oftast forustu Staðan í hálfleik var
35 32 fyrir Val. en strax í upphafi
síðari hálfleiks náði UMFN góðum
kafla sem gaf 1 2 stig i Töð án svars, og
réð þessi kafli úrslitum leiksins
Valsmenn með Þóri Magnússon
meiddan á hendi (e.t v brotmn rétt
einu sinni) náðu ekki að brúa þetta bil,
en minnkuðu muninn samt niður í 6
stig fyrir leikslok
Jónas Jóhannesson var besti maður
UMFN í leiknum. sérstaklega í síðari
hálfleik Aðrir voru jafnir Hja Val bar
Þröstur Guðmundsson af og lék sinn
besta leik með Val til þessa Torfi átti
góða kafla og sömuleiðis Ríkharður
Hrafnkelsson
Stefán Bjarkason var stighæstur í liði
Njarðvíkinga með 21 stig, Brynjar Sig-
mundsson skoraði 18, Gunnar Þor-
varðsson 1 7
Þröstur Guðmundsson var langstig-
hæstur Valsmanna með 30 stig gk—.
Brenndi skóna
ÞAÐ er oft talað um það, að þessi eða hinn íþróttamaðurinn sé að hugsa um
að leggja skóna á hilluna", og er þá að sjálfsögðu átt við að viðkomandi sé
að hætta íþróttaiðkunum. En að menn haldi brennu að því tilefni er öllu
fátíðara.
Þetta ferðist þó I Njarðvík í fyrrakvöld eftir leik UMFN og Vals. Guðmundur
Þorsteinsson þjálfari Vals hellti bensíni yfir íþróttaskó sína að leik loknum og
kveikti síðan í öllu saman.
„Þetta var eina leiðin" sagði Guðmundur við undirritaðan. „Ég hef ætlað
mér i 5 — 6 ár að hætta afskiptum af körfubolta, en það er erfitt að slíta sig
frá þessu. Það var því ekki um neitt að ræða annað en gera þetta á þennan
hátt, og vera svo harður á því i haust að kaupa sér ekki nýja skó."!!
Guðmundur Þorsteinsson hóf feril sinn hjá ÍR og var aðalmiðherji félags-
ins, auk þess sem hann var fastur miðherji i landsliðinu á meðan hann keppti
sjálfur. Siðan hefur hann fengist mikið við þjálfun, og m.a. þjálfað landsliðið
auk þriggja liða i 1. deild. gk—.
Með sigri gegn KR verða Oddný
og stollur hennar í Fram íslands-
meistarar.
Verða Fram-
stúlkurnar
meistarar?
TALSVERT verður um að vera I
handknattleiknum um helgina.
Þannig lýkur keppninni I 1. deild
kvenna á morgun og I 2. deild
verður aðeins ein umferð eftir að
helginni lokinni. Þá verður einnig
keppt i bikarkeppni HSÍ um helg-
ina.
HANDKNATTLEIKURINN UM
HELGINA VERÐUR SEM HÉR
SEGIR:
1. DEILD KVENNA, SUNNU
DAGUR21 MARZ
Njarðvik kl. 14.35: IBK — Valur
Garðahreppur kl. 17.35: UBK —
FH
Laugardalur kl. 20.30: Fram —
KR
Laugardalur kl. 21.55: Vfkingur
— Armann
2. DEILD KARLA:
LAUGARDALSHOLL,
LAUGARDAG
kl. 16.05 KR — KA
18.05 Fylkir— Þór
LAUGARDALSj-ftÍLL
SUNNUDAG:
kl. 14.20 ÍR — Þór
FH áfram
FH SLÓ hið sterka kvennalið Vals
út úr bikarkeppninni í fyrrakvöld
er Hafnarfjarðarliðið vann 11:10
eftir spennandi leik. í leikhléi
leiddi FH 4:3, en Valur komst yfir
og leiddi 9:7 er aðeins fáar
mínútur voru eftir. Endasprettinn
átti FH-liðið og halda þær því
áfram f keppninni ásamt Vikingi,
Fram og Ármanni, sem vann
Njarðvík auðveldlega i fyrra-
kvöld.
Júdémeistaramótið
MEISTARAMÓTIÐ í júdó fer fram
nú um helgina. Karlarnir keppa i
iþróttahúsi Hagaskólans i dag og
hefst keppni þeirra klukkan
14.00. Á sama tima á morgun
byrja konurnar, en þær glíma í sal
JFR að Brautarholti 18.
Bikarkeppni
í Njarðvík
SÍÐASTI leikurinn i 8 liða úrslit-
um Bikarkeppni K.K.Í. verður
leikinn í Njarðvík kl. 14 f dag. Þá
kemur lið Snæfells í heimsókn til
Njarðvíkur og leikur gegn UMFN.
Þrjú lið hafa þegar tryggt sér
rétt I 4 liða úrslit, það eru lið
Ármanns, ÍS og Fram, og fjórða
liðið kemur siðan úr leik UMFN
og Snæfells. Undanúrslitaleikirn-
ir verða leiknir í Hagaskólahúsinu
á þriðjudag
GK—.