Morgunblaðið - 01.04.1976, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. APRlL 1976
3
- ' . rrv. _ ..
---‘ ’ ' '
« - ■ «
• ... O. „w^. .... «•“ . .*-•
Ljósm Mbl.Ol. K. M.
FRAMKVÆMDIR í nýja miðbænum eru nú óðum að hefjast og verður væntanlega í þessum mánuði
tekin fyrsta skóflustungan að húsi verzlunarinnar en það verður fyrsta húsið sem rís I miðbænum.
Þegar eru hafnar framkvæmdir við gatnagerð og eru jarðvegsskipti i þeim tilgangi þegar hafin.
Meðfylgjandi mynd var tekin í gær er unnið var við undirbúning gatnagerðarinnar i nýja miðbænum.
Fjölbýlishús fyrir
aldraða í undir-
búningi á Þórshöfn
Gamla fólkið mun sjálft eiga íbúðirnar
t UNDIRBÚNINGI er bygging fjölhýlishúss fyrir aldraða á Þórshiifn á
Langanesi. Standa fjórir hreppar að byggingunni, Þórshafnarhreppur,
Svalbarðshreppur, Sauðaneshreppur og Skeggjastaðahreppur og mein-
ingin að hún verði byggð f tengslum við fyrirhugaða heilsugæzlustöð á
Þórshöfn.
Pálmi Ólason oddviti á Þórs-
höfn sagði við Mbl. í gær, að hug-
myndin væri sú að leysa hús-
næðismál aldraðra með öðrum
hætti en víðast annars staðar.
Væri ætlunin að byggja fjölbýlis-
hús, þar sem gamla fólkið legði
sjálft fram peninga i íbúðirnar og
yrði þar með eigandi að þeim.
Siðan myndi ríkið koma til móts
við gamla fólkið með fjárframlög-
um. Þessar íbúðir myndu siðan
ganga kaupum og sölum og gengi
aldrað fólk fyrir um kaup á þeim.
Ef gamalt fólk gæfi sig ekki fram
sem kaupendur gæti stofnunin
gengið inn i kaupin og ráðstafað
íbúðinni eins og hún teldi bezt.
Pálmi sagði að mál þetta hefði
verið rætt við gamalt fólk í við-
komandi hreppum og hefur það
sýnt mikinn áhuga á framgangi
þess. Pálmi endurtók að þetta
væri allt á byrjunarstigi og ekki
væri farið að ræða um stærð fjöl-
býlishússins né þá þjónustu, sem
veita á gamla fólkinu, sem þar
kemur til með að búa.
Leigjandi réðst á
hálfníræða konu
IIÁLFNlRÆÐ kona var hætt komin um hádegisbilið í gær þegar
leigjandi konunnar réðst á hana f æðiskasti. Telur konan sér hafa
orðið það til Iffs, að annar leigjandi hennar, aldraður maður, tókst að
koma henni til hjálpar en hann varð fvrir nokkrum áverkum f átökum
við hinn manninn. Lögreglan handsamaði sfðar árásarmanninn, sem
er óreglumaður og hefur áður komizt f kast við liigregluna.
Konan heitir Kristín Jóhanns-
dóttir og býr að Freyjugötu 6 í
Reykjavík. Hún var vel málhress,
þegar Morgunblaðið hafði sam-
band við hana í gærkvöldi og
kvaðst ekki hafa orðið fyrir alvar-
legum áverkum. „Þessi maður
leigir hjá mér herbergi og er
búinn að vera hér síðan 10. þ.m.,“
sagði Kristin i samlali við
Morgunblaðið. „Það bar ekkert á
neinu varhugaverðu í fari hans
fyrst og mér virtist hann hinn
almennilegasti maður að sjá.
Siðar fór ég þó að verða þess vör,
að það barst svo einkennileg lykt
úr herberginu hans, svo að það
var eins og hann væri með ein-
hvern húsgagnaáburð eða eitt-
hvað því um likt en ég hef nú
komizt að að það var þynnir. Um
leið fór mér að virðast maðurinn
nokkuð undarlegur, svo að í gær
fór ég inn til hans og spurði hvaða
lykt þetta væri. Ég hafði opnað
herbergið hans með mínum eigin
lyklum og var með þá í höndunum
en þá gerist það að maðurinn
stendur upp án þess að segja orð
og rífur af mér lyklana. Mér tókst
þá að komast út og ekkert frekar
varð úr þessu.“
Kristín kveðst síðan hafa verið
inni á baði hjá sér í gær að stússa,
en verður þá mannsins vör og
heldur að hann sé að fara út. „En
þá er ekkert annað en hann
vindur sér inn á bað til mín, lokar
hurðinni og aflæsir með renni-
loku. Ég spyr hann hvort hann
ætli ekki að hleypa mér út en
hann ræðst á mig. Eg reyni eins
og ég get til að opna en hann
skellir mér þá I gólfið og leggst
ofan á mig. Þann þjarmaði þannig
svo að mér, að ég hélt ég væri að
kafna og svo verð ég þess vör að
hann reynir að koma höndunum
um háls mér. Einhvern veginn
tókst mér þó að koma í veg fyrir
það. Hins vegar vissi ég af 73ja
ára gömlum manni í næsta her-
bergi, sem ég leigi einnig, og ég
kalla í hann. Og það var hann sem
bjargaði mér. Ég kallaði til hans
og bað hann að hringja í lögregl-
una en hann heyrði það ekki
heldur kom að hurðinni og
skipaði hinum manninum að
opna. Hinn þvertók fyrir það og
kvaðst þá gamli maðurinn mundu
brjóta upp hurðina, ef hann
opnaði ekki. Við það losaði hinn
Framhald á bls. 22
Rannsóknarlögreglan í Keflavík:
Yfirlýsing vegna
myndbirtinga
MORGUNBLAÐIÐ hefur verið beðið að birta eftirfarandi yfirlýsingu:
Af gefnu tilefni skal eftirfar-
andi tekið fram, varðandi þá
ákvörðun okkar, er höfðum með
höndum rannsókn Geirfinnsmáls-
ins á sínum tima, að birta ekki
ljósmynd þá af Geirfinni Einars-
syni, sem nú hefur verið birt í
fjölmiðlum:
I upphafi rannsóknarinnar
fékk lögreglan í hendur ljósmynd
þá af Geirfinni Einarssyni, sem
birt var i fjölmiðlum. Okkur var
ljóst að útlit Geirfinns hafði
breytzt talsvert frá þvi myndin
var tekin, þar til hann hvarf. Var
því leitazt við að fá nýrri Ijós-
mynd af honum. Ljósmynd sú,
sem nú hefur verið birt og sýnir
Geirfinn allmikið breyttan frá
þeirri mynd er áður hafði birzt,
kom fram 15 dögum eftir að eldri
ljósmyndin birtist. Þá þegar var
haft samband við eiginkonu Geir-
finns og hún spúrð álits á mynd
þessari. Þar sem hún taldi að
nýrri ljósmyndin næði ekki að
sýna betur en sú fyrri helztu út-
litseinkenni Geirfinns af ástæð-
um sem hún taldi upp, var sú
ákvörðun tekin að birta þá mynd
ekki i fjölmiðlum. Meðal annars
var Geirfinnur kominn með mun
meira og úfnara hár þegar hann
hvarf, en hin nýbirta mynd sýnir
og einnig var hann grennri i and-
liti en myndin sýnir.
Rannsóknarlögreglan
I Keflavfk.
Ólafur Ólafsson
kristniboði látinn
Olafur Olafsson
ÖLAFUR Olafsson kristniboði
lézt á Landakotsspít alanuni i
Revkjavík að morgni 30. marz.
Olafur var 80 ára að aldri þegar
hann lézt.
Olafur Olafsson fæddist að
Desey i Norðurárdal 14. ágúst
1895. Foreldrar hans voru Olafur
Ölafsson bóndi þar og kona hans
Guðrún Þórðardóttir. Hann
stundaði nám i Hvítárbakkaskóla
1912—T4, var i kvöldskóla í
Reykjavik einn vetur og braut-
skráðist frá kristniboðsskóla í
Noregi árið 1920 eftir 5 ára nám.
Ölafur var kristniboði í Honan-
héraði i Kina árin 1921—’37 og
var fyrsti Islendingurinn, sem
sendur var til kristniboðs hjá
þjóð, sem ekki var kristin. Frá
háustinu 1937 var Ölafur starfs-
maður Sambands islenzkra
kristniboðsfélaga og var búsettur
i Reykjavík.
Ölafur’ lét málefni kirkjunnar
Framhald á bls. 22
ALLT FYRSTA FLOKKS FRÁ KENWOOD
the sound approach to quality
ENWOOD
Einkaumboð
FALKINN
Suðurlandsbraut 8, Reykjavík.
Sími 84670.