Morgunblaðið - 01.04.1976, Síða 13

Morgunblaðið - 01.04.1976, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 1976 13 mörg ár. Áöur en stríðið hófst var Angola annað mesta kaffifram- leiðsluland Afríku, næst á eftir Fílabeinsströndinni. Þar að auki verður Benguela-járnbrautin óstarfhæf i marga mánuði, þar sem mikilvægustu brýrnar á henni lengst í austri voru sprengdar í loft upp, og járn- brautin verður auðvelt skotmark skæruliða ef þeir láta til skarar skriða. Auk þess er mikill hörgull á hæfum embættismönnum og tæknifræðingum, þar sem flestir hvítir menn í Angola flýðu til Portúgals í stríðinu. Þó hafa þeir verið svo óánægðir með dvölina i Portúgal vegna öngþveitisins þar, að margir þeirra vilja snúa aftur. Angola hefur mikla þörf fyrir þá en MPLA hefur hafnað beiðni margra þeirra um að koma aftur af hugsjónafræðilegum ástæðum. LEIFTURSÓKNIN MPLA vann sigur sinn í borgarastríðinu eftir fimm daga leiftursókn. Þegar henni lauk réð MPLA yfir landinu öllu nema strjálbýlu eyðimerkursvæði lengst í suðri, þar sem um 5.000 suður-afrískir hermenn bjuggust til varnar umhverfis orkuverið við Cunene-ána og smásvæði lengst í norðri. Herlið MPLA náði fyrst undir sig stjórnarsetri Unita, Huambo, sem er önnur stærsta borg Angola með 65.000 íbúum. Unita hélt því fram, að liðsmenn hreyfingar- innar hefðu varizt hreystilega, en í raun og veru höfðu þeir hörfað frá borginni nokkrum klukku- stundum áður en liðssveitir MPLA sóttu inn í hana, ef til vill til að koma i veg fyrir mannfall meðal óbreyttra borgara. Einum degi siðar skýrði Luanda-útvarpið frá því, að herlið MPLA hefði náð á sitt vald hafnarbæjunum Lobito og Benguela. Skömmu síðar náðu liðssveitirnar bænum Luso og þar með réð MPLA yfir allri Benguela-járnbruatinni sem kopar frá Zambiu og Zaire, er studdu Unita og FNLA, hefur verið flutt um til strandar. Að svo búnu sótti MPLA austur á bóginn og tók Silva Porto, sem nú heitir Bie og var aðsetur herstjórnar Unita. Hergögnin sem MPLA fékk frá Rússum (siðan virðast rhódesískir skæruliðar hafa eitt- hvað af hergögnunum), voru m.a. skriðdrekar af gerðunum T-54 og PT-76, sem er hægt að beita bæði á landi og sjó, eldflaugaskot- pallar, loftvarnaeldflaugar af gerðinni Sam-7 orrustuþotur af gerðinni MIG-21 og auk þess nokkur herskip. Rúmlega 1.000 sovézkir hernaðarráðunautar voru sendir til Angola, en beiting þessara hergagna var fyrst og fremst í höndum kúbönsku hermannanna. Um 7.000 kúbanskir hermenn tóku þátt í sókninni í Suður- Angola auk sovézkra hernaðar- ráðunauta. 1 árásinni á Huambo 'var teflt fram 6.000 kúbönskum hermönnum og 20 vopnuðum þyrlum, 70 brynvörðum vögnum og skriðdrekum, tveimur MIG- 21-orrustuþotum auk eldflauga og loftvarnaeldflauga, sem ollu miklu manntjóni. Eldflaugum var fyrst beitt að ráði í fyrstu viktr desember, þegar margir óbreyttir borgarar féllu í árás á bæ í Norður-Angola, Ampriz, sem var jafnaður við jörðu. Einum mánuði síðar biðu þúsundir óbreyttra borgara bana i loftárás- um á Negage og annan bæ. I janúarlok voru þrír bæir í Mió- Angola, Kibala Santa-Koma og Cela, jafnaðir við jörðu. Sama dag hermdu fréttir, að sovézkir og kúbanskir hermenn hefðu myrt 250 óvopnaða þorpsbúa, þar á meðal konur, börn og gamal- menni, i bænum Busaki, 72 km fyrir norðan Luso. „CALLAN OFURSTI“ A norðurvígstöðvunum var ástandið rólegra. Þar unnu liðs- sveitir MPLA auðveldan sigur á sundurleitum liðsafla málaliða og FNLA-hermanna í hafnarbænum ZAIRE Ivador Bengueía Santo Antonio do Zaire við Kongófljót. Síðan þjörmuðu þeir að síðasta virki FNLA, í Sao Salvador, rétt hjá landamærum Zaire. Sigrar MPLA urðu alvarlegt áfall fyrir hvita málaliða, öðru nafni „villigæsirnar'1, sem hafa haft orð fyrir að vera ósigrandi í Afriku síðan þeir börðust i Biafra og Kongó. Brezkir málaliðar í þjónustu FNLA reyndu að stöðva sókn kúbanskra skriðdreka i bar- dögunum um Santo Antonio do Zaire, en þar er mikilvæg oliu- hreinsunarstöð. Þeir urðu að lúta í lægra haldi þar sem þeir höfðu engin vopn til að berjast með gegn skriðdrekum Kúbumanna, og flýðu við lítinn orðstír. Mikið mannfall varð í liði þeirra, og Holden Roberto, foringja FNLA tókst með naumindum að flýja í lítilli flugvél til Zaire. Málaliðarnir urðu jafnvel fyrir enn meira áfalli þegar upp komst um fjöldamorð illræmds málaliða- foringja, Kýpur-Grikkja að nafni Costas Georgiou, sem mála- liðarnir kölluðu Callan ofursta og hafði verið rekinn úr brezku fall- hlífasveitunum á Norður-Irlandi fyrir glæpastarfsemi. Einn undir- manna hans hafði sprengt upp jeppa sem honum sýndist vera einn af skriðdrekum fjand- mannanna. Georgiou og aðstoðar- maður hans leiddu þá fjórtán málaliða út á akur og skutu þá til bana með köldu blóði. Seinna bárust þær fréttir að Georgiou hefði fallið, en aðstoðarmaður hans var tekinn af lífi. I London urðu þessir atburðir til þess að rannsókn var fyrirskipuð á ráðningu málaliða þar. Frá því var skýrt, að talið væri að allt að 100 málaliðar hefðu fallið í Angola. LOKASÖKNIN Meðan þessu fór fram sótti suðurfylking MPLA með stuðningi sovézkra skriðdreka af gerðinni T-34 og þyrlna búnum fallbyssum og með Kúbumenn í broddi fylkingar 320 kílómetra vegalengd í suður frá Huambo án þess að mæta mótspyrnu. Liðs- aflinn tók bæinn Sa da Bandeira, sem nú heitir Lubango, hafnar- bæina Maeamedes og bæinn Serpa Pinto, sem Unita hefði getað notað fyrir bækistöð. Þar með átti liðsaflinn aðeins 240 km ófarna að landamærum Suðvest- ur-Afríku og varnarlínu Suður- Afrikumanna. Þar með leit út fyrir að til landamærastyrjaldar gæti komið milli Suður-Afríkumanna og MPLA og Kúbumanna. Öttazt var að Kúbumenn mundu veita liðs- mönnum Unita eftirför inn í Suð- vestur-Afriku (Namibíu) þar sem 12000 flóttamenn höfðu safnazt fyrir, og að þar með gæti hafizt „hræðileg styrjöld í sunnanverðri Afríku", eins og brezki utanríkis- ráðherrann James Callaghan komst að orði. Um þetta leyti voru 80.000 flóttamenn á suðurleið og Sameinuðu þjóðirnar synjuðu Suður-Afríkustjórn um fjárveit- ingu til að sjá fyrir þeim, en hins vegar sendi Alþjóða Rauði krossinn ábreiður, tjöld og hjúkrunargögn. En stjórnin i Luanda hélt aftur af kúbönsku hermönnunum, þegar minnstu munaði að til átaka kæmi milli þeirra og Suður- Afríkumanna. Landvarnaráð- herra Suður-Afriku, Pieter Botha hélt því fram að suður- afríska herliðið mundi auðveld- lega ,ráða við MPLA og Kúbu- mennina þrátt fyrir hinn mikla sovézka vopnabúnað þeirra. Jafn- framt vildi Botha ekki útiloka möguleika á samkomulagi við stjórnina í Luanda, og ljóst var að Suður-Afríkumönnum var um- hugað um að ekki kæmi til bar- daga umhverfis orkuverið við Cuene-ána. Orkuverið er metið á 300 milljónir dollara og er aðal- lega reist fyrir suður-afrískt fé. Gert er ráð fyrir því að starf- ræksla orkuversins hefjist á næsta ári og það er undirstaða uppbyggingar í iðnaði og land- búnaði Suðvestur-Afríku. Upp- haflega var gert ráð fyrir að Ang- ola fengi litla orku frá Cuene- verinu, en nú segja Suður- Afríkumenn að auðvelt sé að breyta fyrri áætlunum þannig að það geti komið íbúum Suður- Angola að gagni. VIÐBUNAÐUR Auk þeirra 5.000 suður-afrisku hermanna, sem bjuggu rammlega um sig við Cunene-orkuverið, tóku þúsundir til viðbótar sér stöðu handan landamæranna í Suðvestur-Afriku. En fljótlega spurðist að Suður-Afríkumenn væru reiðubúnir að kalla burtu herlið sitt frá Suður-Angola gegn því að hagsmunir þeirra í landinu yrðu tryggðir. Margt benti til þess, að MPLA teldi hagsmunum sínum bezt borgið með því að draga úr átökunum og treysta yf- irráð sin í Angola. En hermenn nýju stjórnarinnar i Angola þar á aðskilnaðarsinna og foringi þeirra, Antoine Gizenga, hefur látið á sér skilja að hann muni láta til skarar skríða gegn stjórn Mobutu. Síðan hafa stjórnir Angola og Zaire gert samning um eðlileg samskipti landanna og samkvæmt honum verða FNLA, Unita og frelsishreyfingin í Cabinda, FLECað hætta starfsemi sinni í Zaire, Angólskir flóttamenn í Zaire fá að snúa aftur til Angola og þeir 6.000 aðskilnaðarsinnar frá Katanga, herlögreglumenn sem Zairestjórn segir að barizt hafi með MPLA, verða fluttir til Zaire að beiðni Mobutu forseta. VELÞJALFAÐIR Talsmenn Unita gerðu lítið úr frammistöðu liðsmanna MPLA eftir ósigurinn, en þeim mun væri komið fyrir á vegum og brýr væru sprengdar í loft upp tafði það ekki sókn þeirra. Aróðursstarf Kúbumenn hafa notað tækifær- ið til að stunda áróðursstarfsemi, að því er virðist með góðum árangri. Þeir hafa endurskipulagt herlið MPLA þannig að yfirmað- ur á hverjum stað hefur stjórn- málaliðsforingja sér við hlið. Námskeið eru haldin fyrir ang- ólska blaðamenn í notkun áróðurs og æ meira hefur borið á kú- bönskum ráðunautum í ráðuneyt- isskrifstofum. Hermennirnir sjálfir eru orðnir áberandi i Luanda, gagnstætt því sem var í upphafi, þótt enn beri litið á ráðunautum Rússa Sam- meðal kúbönsku hermennirnir, og suður-afrískir hermenn, standa enn andspænis hver öðr- upt nálægt landamærunum og ef þessum andstæðu herjum lýstur saman getur brotizt út hættuleg styrjöld i sunnanverðri Afriku. Það hefur orðið til að auka alvöru ástandsins, að Rússar og Kúbu- menn hafa lýst yfir stuðningi við samtök blökkumanna i Suðvestur- Afriku, Swapo. Fréttir voru um að stjórn Zaire vildi friðmælast við nýju stjórn- ina í Angola eftir sigur MPLA en þó komi fram hjá utanríkisráð- herra landsins, Nguza Karl- I-Bond að það væri forsenda fyr- ir góðum samskiptum við Angola að öryggi Zaire yrði tryggt. Hann vildi einkum tryggingu fyrir því, að 6.000 hermenn aðskilnaðar- sinna í Katanga, sem hafa barizt með MPLA „yllu ekki vandamál- um“ í Zaire. Rússar hafa verið grunaðir um stuðning við þessa meira úr hlut kúbönsku hermann- anna, sem þeir sögðu svo vel búna sovézkum hergögnum, að aðeins hefði verið hægt að reyna að tef ja framsókn þeirra, ekki stöðva hana. En þeir héldu því statt og stöðugt fram, að baráttunni yrði haldið áfram. “Við erum staðráðnir i að halda áfram baráttunni fyrir frelsi okk- ar og ættjörðina í skógum, fjöll- um og dölum,“ sögðu talsmenn Unita eftir ósigurinn. Um ihlutun Rússa og Kúbumanna sögðu þeir: „Þeirra biða sömu örlög í Afriku og portúgölsku nýlendusinn- anna.“ Fáir höfðu búizt við því fyrir- fram að kúbönsku hermennirnir væru eins vet þjálfaðir í meðferð nýtízku vopna og aginn í röðum þeirra væri eins og góður og raun bar vitni. Það vakti ekki siður athygli, að gott skipulag var á birgðamálum og varahlutaþjón- usta þeirra. Þótt jarðsprengjum kvæmt sumum fréttum eru Kúbu- mennirnir orðnir 20.000 talsins og ekkert bendir til þess að þeir séu á förum. Greinilega er að því stefnt :ð gera sambandið milli Kúbu og Angola náið og Kúbu- menn telja sig geta orðið betur ágengt í því en Rússum, sem hafa verið lagðir að jöfnu við vestræn- ar þjóðir í ýmsum Afrikuríkjum, þar sem þeir hafa seilzt til áhrifa. Margt bendir þá til þess að til- raun Kúbumanna til að taka að sér hlutverk verndara angólsku byltingarinnar valdi vaxandi árekstrum. Kúbanskir liðsforingj- ar þykja hrokafullir og hafa lítil- lækkað angólska yfirmenn. Þegar Kúbumennirnir létu lítið á sér bera voru stuðningsmenn MPLA þakklátir þeini, en siðan hefur það breytzt og þeir eru jafnvel farnir að ræða um hvernig þeir eiga að losa sig við „frelsara' sína. Sovézkur eldflaugaskotpallur á hersýningu í Luanda. Kortið sýnir undanfara lokasóknar MPLA. Jonas Savimbi, foringi Unita, í Silva Porto sem nú heitir Bie. Troop movemants A Refugee camps 0_____>___ CONGO F.N.l.A. ZAMBIA Hydroelectnc projocl SOUTH WEST AFRICA (NAMIBIA) Grootfonlein* (S.A military boroj TIME Mop by PJ. Pugliote BOTSWANA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.