Morgunblaðið - 01.04.1976, Síða 17

Morgunblaðið - 01.04.1976, Síða 17
4 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. APRIL 1976 17 0 VlÐAR er fylgst með land- helgisdeilu Breta og Islendinga en í fljótu bragði skyldi haldið. Mbl. hefur borizt úrklippa og teikning í forystugrein í kana- disku blaði Stonewall Argus & Teulon Times sem er gefið út í Manitoba í Kanda og kemur út einu sinni f viku hverri. I yfir- skrift leiðara segir: „Vfkingaandinn lifir enn góðu Iffi á Islandi." Þar er vak- in athygli á því, að glíma, er lftil erlend þjóð eigi f, haf i ekki vakið vkja mikla eftirtekt á þeim slóðum, en full ástæða sé til að gefa gaum að. „Þetta litla land er Island. Ekki vkja fjarri okkur. Manitobabúar þekkja íslendinga og dást að þeim vegna þess hve mætir borgarar þeir eru. Þess vegna kemur það sem reiðarslag að heyra að hinn voldugi brezki floti sé að aðstoða brezka togara við að hrifsa lifibrauðið frá tslending- „Island var byggt af land- námsmönnum frá Noregi um 870. Til að binda enda á ágrein- ing sem upp kom hættu þeir að berjast innbyrðis (þvert ofan í það sem við í Kanada gerðum) og hinar tvær stríðandi fvlk- ingar komu sameiginlega á stofn alþingi sem er elsta stofn- un sinnar tegundar f heimin- um. Eini útflutningur Islands er fiskur. Eldfjallaeyjan er ekki vel fallin til akuryrkju. Reynd- ar eru eldsumbrot enn og þvf vofir stöðugt hættan yfir. En þótt gosaskan leggist yfir byggð taka fslendingar til við að byggjaupp áný. Blaðið segir að slfka stað- festu megi heimurinn dá. Það sé vond og ömurleg til- finning að sjá brezk herskip sigla af ásettu ráði á lítil fslenzk varðskip, sem séu að reyna að verja tvö hundruð mílurnar. Það sé afleitt til þess að vita að brezkir sjómenn láti hafa sig í þetta. Bretland sem eigi sér mikilvægan sess í lýð- ræðisframþróun ríkja og ætti að vera síðasta land sem gerði sig sekt um slíka yfirgangs- semi. Sfðan er minnt á að Kanada sé að berjast fyrir allt að eitt hundrað mflna fiskveiði- lögsögu og öðru hverju séu sýndar myndir í sjónvarpi þar sem flugvélar Kanáda séu á flugi yfir flotum frá Sovét- ríkjunum og öðrum löndum á þessu miðum. En ekkert sé gert. lslendingar hafi aftur á móti klippt á togvíra hjá togur- um sem veiða innan tvö hundruð mílnanna. Það sé ekki svo Iftið afrek þegar á það sé litið að allur íbúafjöldi tslands sé tuttugu þúsund manns færri en íbúar Winnipeg borgar einnar. „tslendingum er fiskur ekki aðeins matur sem þeir þurfa að neyta. Fiskurinn á miðum þeirra er Iffsblóð fslenzks efna- hags... Að horfa upp á eitt ríkja brezka samveldisins beita örlitla þjóð eins og tsland yfir- gangi, er verra en nokkuð ann- að sem hægt er að gera sér i hugarlund og brýtur í bága við þá hugmvnd sem við höfum alltaf viljað gera okkur af þvf fegursta f brezkri þjóðarsál. Jimmy Carter þykir flestum snjallari að láta vel að börnum svo sannfærandi sé og hrífi hugi nærstaddra ... • I KOSNINGABARATTU í Bandarikjunum ríður á miklu að frambjóðendur séu nægilega alþýðlegir og sérstaklega mæl- ist það vel fyrir að frambjóð- endur láti vel að ungum börn- um og þrýsti gamlar konur. Samkvæmt fréttaflutningi af þeirri keppni sem nú stendur yfir f landinU þykir Jimmy Carter til dæmis hafa tekizt sér- staklega vel upp hvað þessi atr- iði snertir og hefur framkoma hans fengið fegurstu undirtekt- ir. Aftur á móti segja sérfræð- ingarnir að Henry Jackson sé ekki nándar nærri eins eðlileg- ur í vinsemd sinni og allan sannfæringarkraft vanti. Þótt slík yfirborðsframkoma þyki hjá okkur ekki vænleg til árangurs hefur þó verið gerð á því athugun i Bandaríkjunum fyrir nokkru með viðtölum við fólk hvaða augum það líti þessa baráttuaðferð. Kom þá upp úr dúrnum, að konur á öllum aldri töldu þetta ákaflega viðfelldið og gæti oft sýnt betur en marg- ar ræður hvern mann fram- . .. en Henry Jackson á erfiðara með leikinn en gerir þó heiðar- legar tilraunir. bjóðandinn hefði að geyma og hvort hann væri líklegur til að leyfa hinum manneskjulegu hliðum að njóta sín. Körlum þótti aftur á móti minna til um baráttu-aðferðina þótt þeir segðust margir ekki sverja fyr- ir það að þeir yrðu dálítið upp með sér ef þeir sæju forseta- frambjóðendurna gæla við börn sin. 1896 1976 í tilefni af 80 ára afmæli okkar í dag, 1. apríl, veitum við 10% staðgreiðsluafslátt af öllum vörum í verslunum okkar Álafoss Þingholtsstræti Álafoss Skúlagötu 61 Verksmiðjuútsalan Álafossi & /Moss hf i

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.