Morgunblaðið - 01.04.1976, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. APRIL 1976
Fyrsti skuttogarinn
að bryggju í Sandgerði
Sandgerði 25/2 ’76.
SKUTTOG ARINN Erlingur
varð fyrsti togarinn sem kemur
til Sandgerðis, kom hann
hingað um hádegisbilið á
þriðjudag þrátt fyrir mjög
óhagstæð skilyrði, 6—7 vind-
stig af suðvestan sem er hér ein
alversta áttin, auk þess var alls-
herjar landlega hór, er hann
kom og voru 35 bátar I höfninni
svo það var þröng á þingi við
bryggjuna, þá einu sem hór er,
en hún er um 250 mctrar að
lengd.
Þó svo að veður og þrengsli
gerðu þessa fyrstu togaramót-
töku hér erfiðari en ella, tókst
hún mjög vel i alla staði, og
hnekkti þar með því áliti og
hrakspám ýmissa manna að hér
væri ekki hægt að skapa að-
stöðu fyrir þetta stór skip.
Ekki var að heyra á skip-
stjóranum á Erlingi, Sveini
Jónssyni, sem gerðist braut-
ryðjandi hér á þessu sviði, að
hann sæi þvi neitt til foráttu að
koma hér inn á svona skipi, þó
hann hitti á hinar erfiðustu að-
stæður.
En það skal tekið fram að
Sveinn skipstjóri var
alókunnur aðstæðum hér í
Sandgerði og hafði t.d. aldrei
komið hér á skipi fyrr.
Og hér liggur togarinn nú i
góðu yfirlæti í dæmigerðum
„útsynnings- og vestanrudda”.
Með tilkomu skjólgarðanna
sem lokið var á s.l. hausti og
loka höfninni að mestu, hefur
orðið gjörbreyting á, til hins
betra, hvað skjólið varðar, en
bryggjuskorturinn, sem búinn
er að vera hér til margra ára, er
enn óleyst vandamál og hefur
hann valdið geysilegum
erfiðleikum á yfirstandandi
vertíð, sem og oftast áður svo
vart er á þau þrengsli bætandi.
En von er á tveim nýjum
skuttogurum á þessu ári sem
fyrírtæki í Sandgerði eiga og
munu þeir þar af leiðandi landa
hér ef aðstæður eru fyrir
hendi, en til að svo sé vantar
bryggju þá sem búin er að vera
í hugum manna og á pappír s.l.
2—3 ár.
Ekki er nein aðstaða fyrir öll
þessi skip sem til eru, hvað þá
fleiri, annarstaðar hér á Suður-
nesjum. Og hvað skal þá til
bragðs taka?
Aka aflanum annaðhvort frá
Hafnarfirði eða Reykjavík
virðist kannski svar við því, en
yrði það ekki nokkuð dýr og
óhentug lausn?
Skuttogarinn Erlingur sem
hér um ræðir var að koma úr 9
daga veiðiferð með um 100
lesta afla.
Erlingur var byggður í
Noregi og kom til landsins um
siðustu jól eins og kom fram i
fréttum á sínum tíma. Er hann
eign hlutafélagsins Fjarðar h.f.
en aðilar að því hlutafélagi eru
Guðbergur Ingólfsson og Is-
stöðin h.f. í Garði, Jón Erlings-
son í Sandgerði bg skipstjórinn
Sveinn Jónsson.
Það hefur staðið til allt síðan
togarinti kom til landsins að
hann kæmi til afgreiðslu hér í
Sandgerði, en ekki orðið af þvi
fyrr en nú, aðallega sökum
hinnar stöðugu ótiðar sem hef-
ur verið hér ríkjandi siðan i
nóvember í haust.
Jón.
Skuttogarinn Erlingur við bryggju I Sandgcrði.
Ljósm. Ileimir Stfgsson.
SMIÐJUVEGI6 SÍMI44544 m KJÖRGARÐI SÍMI16975
VERÐLÆKKUN
Vegna hagræðingar og betri aðstöðu í nýjum húsakynnum að Smiðju-
vegi 6 hefur okkur tekist að lækka framleiðslukostnaðinn verulega:
Bergamo
Sófasettið hefur nú lækkað í verði um kr. 53.000
Staðgreiðsluverð í dag kr. 179.000
Bergamo er nýtízku sófasett í „Airliner’’ stíl.
Traustbyggt, afburða þægilegt og fallegt.
Meiri framleiðsla — betri vara — lægra verð
LEIKFELAG Seltjarnarness hefur að undanförnu sýnt gamanleik-
inn „Hlauptu af þér hornin" f félagsheimili bæjarins við mjög
góðar undirtektir áhorfenda. Fimmta sýningin er í kvöld.
Þessi gamanleikur er eftir bandarfska rithöfundinn Neil Simon,
sem hefur samið fjölda leikrita og sjónvarpsþátta, og verið sæmdur
bæði „Tony“ og „Emmy“ verðlaununum fyrir. Meðal þekktra
leikrita hans má nefna „Promises, Promises", „Barefoot in the
Park“, „The Odd Couple" og „The Last of the Red Hot Lovers".
A myndinni eru þau Jórunn Karlsdóttir og Htlmar Oddsson í
hlutverkum sfnum í gamanleiknum, sem á frummálinu heitir
„Come, Blow Your Horn“.
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
LUXO LAMPINN
ER NYTSAMASTA FERMINGARGJOFIN
LUXO
er ljósgjafinn,
verndið sjönina,
varist eftiriíkingar
1001
ALLAR GERÐIR - ALLIR LITIR