Morgunblaðið - 01.04.1976, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. APRIL 1976
27
Um
dalíur
II
4. Þegar stönglar taka að vaxa
upp af brumhnöppunum skal sá
sem hraustlegastur er látinn vaxa
áfram en hinir brotnir eða skorn-
ir af niðri við rótarhálsinn og skal
þetta gert þegar stönglarnir hafa
náð 6—8 sm hæð. Þessa sprota er
rétt að nota sem græðlinga og er
auðvelt að láta þá skjóta rótum í
„jiffy-kökum“ eða vikursandi. Sól
má ekki skína á græðlingana á
meðan og er þvi rétt að hvolfa yfir
þá plastpoka eða gagnsæju íláti til
þess að draga úr útgufun.
Græðlinga er einnig hægt að taka
þannig að skera þá af (með vel
beittum hníf) rétt neðan við
neðstu blaðöxl (sbr. mynd 2)
5. Þegar stöngullinn er orðinn
15—18 sm hár skal stýfa ofan af
honum vaxtarbroddinn. Eftir
2—3 daga á að vökva plöntuna
með áburðarvatni (t.d. Substral).
Ut úr blaðöxlunum vaxa þá fljót-
lega nýir sprotar sem bera blóm-
in. Hæfilegur fjöldi þessara blóm-
stöngla er 3—5. Rétt er að brjóta
af þá hliðarsprota sem eru um-
fram 5.
6. Nauðsynlegt er að plöntur í
uppvexti standi á björtum stað,
fremur svölum (10—15°C). Hit-
Smjörfram-
leiðslan eykst
með hverri viku
TALIÐ er að nú séu framleidd
um 10 tonn af smjöri á viku hjá
öllum mjólkurbúum, og fram-
leiðsla á smjöri eykst með hverri
viku úr þessu, segir I frétt frá
Upplýsingaþjónustu land-
búnaðarins. Smávegis er til afð
bögglasmjöri I landinu, sem verið
er að selja þessa dagana.
Övenjulega mikil sala var á
smjöri hjá Osta- og smjörsölunni í
marzmánuði. Það var bæði vegna
þess að smjör var þrotið í verzlun-
um eftir verkfall og vegna vænt-
anlegra verðhækkana var keypt
meira en venjulega. Frá 'áramót-
um og fram til 23. marz var heild-
arsala á smjöri hjá Osta- og smjör-
sölunni 294 tonn. Sala á öllu Iand-
inu hefur verið um 420 tonn, en
það jafngildir að seld hafi verið
152 tonn á mánuði. Á s.l. ári var
meðalsala á mánuði 130 tonn.
Hefði salan verið svipur nú og þá,
hefði ekki þurft að grípa til
skömmtunar á smjöri. Mjólkur-
framleiðsla eykst verulega nú og
lagt verður kapp á að auka smjör-
framleiðsluna, svo reikna má með
að þessi skortur á smjöri standi
ekki lengi úr þessu.
My*e{. Z
inn má þó vera töluvert hærri
fyrst eftir að hnýðin hafa verið
gróðursett. Séu plönturnar rækt-
aðar í gluggum íbúðarhúsa er ráð-
legt að bera þær út á daginn
þegar hlýtt er og gott veður en
taka þær inn á nóttunni svo lengi
sem hætta getur verið á nætur-
frosti. Síðast i maí er rétt að láta
plöntunar standa úti í góðu skjóli
allan sólarhringinn. Snemma í
júni skal siðan gróðursetja
plönturnar á sólríkum, skjól-
góðum stað. Rétt er að binda þær
strax við bambusprik og fjölga
böndunum eftir því sem plantan
hækkar.
7. Þegar knúppar fara að
myndast geta menn valið á milli
þess hvort þeir vilja fá mörg blóm
á hvern stöngul eða aðeins eitt,
sem þá að jafnaði verður stærra
og þroskameira. Sé siðari kostur-
inn valinn skal láta stærsta
knúppinn á hverjum stöngli
standa en brjóta hina af.
E.Öl.
MEKKA
Nýja skápasamstæðan frá Húsgagnaverksmiðju Kristjáns Siggeirssonar
hefur vakið sérstaka athygli fyrir smekklega hönnun, fallega smíði og
glæsilegt útlit. Sérstök hillulýsing í kappa.
Þér getið valið um einingar, sem hæfa yður sérstaklega, hvort sem þér óskið
eftir plötuhillum, vín-og glasaskáp, bókaskáp, hillum fyrir sjónvarp og
hljómburðartæki, o.s.frv.
Mekka samstæðan er framleidd úr fallegri eik í wengelit, sem gefur stofunni
höfðinglegan blæ. Mekka er dýr smíði, sem fæst fyrir sérstaklega hagkvæmt
verð.
Skoðið Mekka samstæðuna hjá:
UTSÖLUSTAÐIR:
Reykjavík: Kristján Siggeirsson hf,
Jón Loftsson hf.
Híbýlaprýði
Borgarnes: ' Verzl. Stjarnan
Bolungarvík: Verzl. Virkinn,
Bernódus Halldórsson
Akureyri:
Húsavík:
Selfoss:
Keflavík:
Augsýn hf.
Hlynur sf.
Kjörhúsgögn
Garðarshólmi hf.
FRAMLEIÐANDI:
KRISTJÁN SIGGEIRSSON HF.
HÚSGAGNAVERKSMIÐJA
Aukin þjónusta
Almenn bankaviðskipti
Til þess að geta haldið áfram að
veita viðskiptavinum sínum per-
sónulega þjónustu, samfara auknum
umsvifum í almennum sparisjóðs-
viðskiptum, mun Sparisjóður
Reykjavíkur og nágrennis lengja
daglegan afgreiðslutíma sinn um
þrjár klukkustundir.
Framvegis verður afgreiðslutími
okkar:
Kl. 9.15 til 12.00
Kl. 13.00 til 16,00 (NÝR TÍMI)
Kl. 17.00 til 18.30
HIYKJ. IENMS
Afgreiðslutímarnir verða fyrir all-
ar viðskiptagreinar sparisjóðsins, svo
sem ávísanareikning, sparisjóðsbæk-
ur, innheimtu, víxla og skuldabréf,
bankahólf, gíróþjónustu, greiðslur
Tryggingastofnunar ríkisins, m.a.
ellilífeyri og eftirlaun.
Sparisjóður Reykjavíkur og ná-
grennis væntir þess að hinir nýju af-
greiðslutímar verði til hagræðis fyrir
viðskiptavini sína.
SPARISJÓÐUR
Reykjavlkur& nágrennis
Skóiavörðustíg 11