Morgunblaðið - 01.04.1976, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. APRlL 1976
39
ÚRSLITAKEPPNI íslandsmótsins í blaki kvenna fór fram á Húsavík á laugardaginn. Þrjú lið höfðu unnið sér rétt til
þátttöku í úrslitakeppninni. tvö lið úr Suðurlandsriðli, Víkingur sem sigraði og Þróttur, og eitt úr Norðurlandsriðli,
HSÞ. sem er skipað stúlkum úr Laugaskóla f Þingeyjarsýslu.
Húsvíkingar buðust til að sjá um úrslitakeppnina þó svo að aðstæður til þess arna væru ekki meira en svo
fullnægjandi þvf fþróttahúsið á Húsavfk er mjög Iftið. Hins vegar er vonandi að þetta verði lyftistöng fyrir fþróttina
nyrðra og áhugi aukist fyrir henni. Framkvæmd mótsins var Húsvfkingum til sóma og áhorfendur létu sig ekki
vanta og tóku dugiega undir með stelpunum.
Fyrsti leikurinn var á milli Þróttar og
HSÞ Það kom strax í Ijós hver var
sterkari aðilinn i þeirri viðureign og átti
Þróttur ekki i miklum erfiðleikum með
HSÞ en tapaði þó einni hrinu, en vann
leikinn 3—1 — Þróttararnir léku
ágætlega fyrstu tvær hrinurnar og
unnu þær 15 — 7 og 15 — 6 Þriðja
hrinan var nokkur barningur og tókst
HSÞ að sigra í henni naumlega,
15—12 Fjórða hrinan var likt og
fyrstu tvær, Þróttur hafði alltaf yfir og
sigurinn var þeirra, 15 — 8. Góð
byrjun hjá Þrótti þetta i úrslitakeppn-
inni Hjá þeim áttu Sigríður Þorsteins-
dóttir og Sigurlín Óskarsdóttir bestan
leik sem fyrr en i liði HSÞ var engin
sem skar sig úr. liðið er mjög jafnt og
margar efnilegar blakkonur þar á ferð
sem eiga örugglega eftir að láta að sér
kveða i framtíðinni
Eftir ósigurinn gegn Þrótti komu
HSÞ stúlkurnar heitar og hressar til
leiks gegn Víkingi og ætluðu sér engu
minna en sigur í honum Vikingur
byrjaði þó mjög vel og komst í 10—3
í fyrstu hrinunni og sigraði síðan
örugglega 15—8 Þetta likaði Hús-
vikingum ekki og næsta hrina var
þeirra Víkingarnir byrjuðu á því að
setja þrjár uppgjafir í netið en HSÞ
svaraði með sjö þrumu uppgjöfum frá
Laufey Skúladóttur og tóku forystu
sem dugði þeim til sigurs og úrslit
hrinunnar urðu 15 — 8 fyrir HSÞ
Þriðju hrinunni töpuðu Vikingar á
klaufalegan hátt. Eftir að hafa komist i
14—12, töpuðu þær niður forskotinu
og HSÞ sigraði naumlega, 16—14
Fjórðu hrinuna vann Vikingur nokkuð
örugglega, 15—11 og höfðu þá
komist í 7—0 í byrjun hennar og settu
samt fjórar uppgjafir i netið en það átti
eftir að koma þeim i koll i næstu hrinu,
úrslitahrinunni HSÞ byrjaði vel, hafði
yfir 8 — 5 og munurinn hélst áfram
upp í 12 — 9, en þá náðu Víkingar að
komast yfir, 13—12 og spennan i
hámarki, en þá mistakast tvær uppgjaf-
ir í röð hjá Vikingum og HSÞ gekk á
lagið og með hjálp áhorfenda. sem
studdu þær dyggilega allan timann,
sigruðu þær naumlega, 15—13. Ekki
voru Víkingsstúlkurnar ánægðar með
dómarana i leiknum og fannst þeim
súrt að sjá andstæðingana taka fastar
uppgjafir frá þeim með fingurslagi og
voru dómararnir vægast sagt lélegir
Fararstjóri hjá liði Þróttar lét þau orð
falla að þetta væri móðgun við kvenna-
liðin að hafa annars flokks dómara i
úrslitakeppni íslandsmóts
Ekki var það beint upplifgandi hjá
Vikingsstúlkunum að tapa svo naumt
fyrir HSÞ og fara síðan beint í leik
gegn Þrótti En það var ekkert um
annað að ræða því þessi leikur varð að
vinnast til að möguleikar á islands-
meistaratitli yrðu einhverjir Leikurinn
hófst og byrjaði Þróttur mjög glæsilega
og ætlaði sér auðsjáanlega að sigra
Þróttur náði yfirburðastöðu 14 — 8, og
virtist sigurinn i höfn, en með hörkunni
hafði Víkinqur það af að jafna og
komast yfir og sigra 16—14, ótrúlegt
en satt Við þetta mótlæti dofnaði yfir
Þrótturum og sigraði Vikingur næstu
hrinu nokkuð örugglega 1 5 — 8 Eftir
svona byrjun fékk lið Víkings byr undir
báða vængi, en Þróttur gerði nú úr-
slitatilraun til að rétta sinn hlut og
börðust þær nú af krafti í þriðju hrin-
unni og tókst að sigra, naumlega þó,
15—13 Þróttur hafði alltaf forystu i
hrinunni en undir lokin sóttu Vikings-
stúlkurnar fast og náðu að jafna
13—13, en Þróttarar innsigluðu sig-
urinn með tveimur siðustu stigunum
— Víkingsstúlkurnar voru dæmdar til
að tapa þessari hrinu Að setja niu
uppgjafir i net i emni hrinu þykir ekki
gott og lið sem gerir það á ekki skilið
að vinna þá hrinu — Siðustu hrinuna
vann Vikingur mjög glæsilega 15 — 2
°9 t^yggði sér það með sigur í mótinu
Vikingsliðið átti góðan leik á móti
Þrótti, en Anna Aradóttir var áberandi
best Liðið varð þó fyrir þvi óhappi að
missa fyrirliðann frá keppni i síðustu
æfingunni fyrir keppnina, Ernu
Kristjánsdóttur, og var þar skarð fyrir
skildi því hún hefur átt góða leiki með
liðinu i vetur Þróttarliðið hefur oft sýnt
betri leik, og náðu þær aldrei að
komast á skrið og brjóta Víkingana
niður, og nutu þær þó styrks
áhorfenda
Dómarinn Haukur Valtýsson, komst
vel frá þessum leik, enda munurinn á
liðunum minni en milli HSÞ og hinna
liðanna — PÓL
Jk' ■ mSXB
Jpí' ^Li v- JPSti HKy ' i
1 T<jyyÉfl v j mmm wm WW H > |||| X;
Vfkingsstúlkurnar sem vörðu Islandsmeistaratitil sinn f blaki á Húsavík um sfðustu
helgi. Með þeim á myndinni er Elfas Nfelsson þjálfari þeirra.
Á FOSTUDAGINN barst Morgun-
blaðinu greinargerð frá Iþróttafélag-
inu Gerplu í Kópavogi, þar sem út-
skýrð var ástæða þess að ákveðið
var að senda ekki keppendur frá
félaginu til keppni á Fimleikameist-
aramóti íslands sem fram fór um
helgina. Vegna þrengsla i laugar-
dagsblaðinu var ekki unnt að birta
greinargerð félagsins, en hún fer hér
á eftir:
Stúlkur i íþróttafélaginu Gerplu í
Kópavogi hætta við þátttöku i meist-
aramóti F.S.Í. vegna ástands í dóm-
aramálum hjá sambandinu.
Á meistaramótinu verður ekki keppt
i efri ..gráðunum" i fimleikastiganum
hjá stúlkunum vegna ástands í dóm-
aramálum.
Ekki verður heldur keppt á tvislá
stúlkna, þótt stúlkurnar hjá Gerplu
hafi æft á henni af miklu kappi i vetur
Það er mjög slæmt að ekki sé keppt á
öllum áhöldum hjá stúlkunum, eins og
hjá piltunum Ekki er lengur hægt að
bera því við að ekki sé til 1. flokks
keppnistvíslá, því að Reykjavíkurborg
keypti um 300 þús kr tvislá s I vor,
en hún hefur ekkert verið rvotuð í allan
vetur.
Fimleikasambandið hefur ákveðið að
ekki verði dæmt í hærri gráðu en 8
gráðu í stökki, 9 gráðu á jafnvægisslá
Gerplnstúlkur
og meistaramót
í fimleikum
og 10 gráðu í æfingu á gólfi Nú
standa málin þannig að i dag eru
duglegustu stúlkurnar i félögunum
búnar að ná tilskildum einkunnum í
þessum gráðum og hafa undanfarið
æft hærri gráður, sem þær fá ekki
dæmdar á þessu móti Aðrar stúlkur fá
að spreyta sig á næstu gráðu og reyna
þannig að bæta við sig þrepi sem þær
hafa ekki verið dæmdar í
Ef öllum væri gert jafn hátt undir
höfði yrðu allir þátttakendur mótsins
þar af leiðandi að keppa aftur í gráðum
sem þeim þegar hefðu náð tilskildum
einkunnum i
Fimleikastiginn er þannig upp-
byggður að innan þessa kerfis keppir
hver einstaklingur við sjálfan sig hverju
sinni og reynir að komast einni gráðu
ofar Við teljum ekki æskilegt að
þvinga þær stúlkur sem mest hafa
æft til þess að bíða eftir hinum.
í venjulegum fimleikamótum keppa
allir f einni ákv. skylduæfingu og
sfðan f frjálsri æfingu.
Nú þarf ákveðna undirstöðu hjá fim-
leikaiðkendum til að slikt sé hægt
Fimleikastiginn hefur verið talinn
heppilegt æfingakerfi til að byggja upp
grunnæfingar, en i honum verða æf-
ingarnar þyngri með hverju þrepi
Sú mótsögn felst i skipulagi þessa
móts veldur miklum vonbrigðum hjá
stúlkunum og kennslufræðilega kemur
það fram sem refsing í stað umbunar
Það var áhugi meðal dómara á að
sækja norrænt dómaranámskeið sem
haldið var í Danmörku f janúar, en
ekkert var þá gert i málinu af hálfu FSÍ
Hjá íþróttafélaginu Gerplu æfa nú
rúmlega 200 einstaklingar og meiri-
parturinn æfir fimleikastigann Það er
mikilvægt fyrir þessa fimleikaiðkendur
að það kerfi sem æft er, sé varanlegt.
Hvort eðlilegt sé að æfa áfram fim-
leikastigann við þessar aðstæður i
dómaramálum er spurning sem hlýtur
að vera ofarlega á baugi, þótt vonandi
sé að þessi mál taki jákvæðari stefnu.
Stjórn félagsins mun nú reyna að
kynna sér þessi mál hjá þeim þjóðum
þar sem fimleikar eru mikið iðkaðir og
skipuleggja starfsemina fyrir næstu ár
Fimleikadeild íþróttafélagsins
Gerplu Kópavogi.
MYNDIR þær sem hér birtast eru
teknar á Hermannsmótinu á skið-
um sem fram fór á Akureyri um
síðustu helgi. Á efstu myndinni
afhendir Hermann Stefánsson
Hauki Jóhannssyni Hermannsbik-
árinn. Mót þetta er einmitt kennt
við Hermann, sem ötullega hefur
unnið að framgangi íþróttamála á
Akureyri, þó svo að skerfur hans
til blak- og skíðaíþróttanna sé ef
til vill stærstur.
Stúlkurnar á efri myndinni hér
til hliðar voru sigursælastar í
kvennagreinunum á mótinu og
hafa verið á öðrum skiðamótum i
vetur. Margrét Baldvinsdóttir frá
Akureyri er lengst til vinstri, en
hún stóð sig bezt stúlknanna
þriggja á mótinu. Steinunn Sæm-
undsdóttir er i miðið, en Jórunn
Viggósdóttir er lengst til hægri.
Karl Frimannsson frá Akureyri
er mjög efnilegur skiðamaður og á
neðri myndinni hér til hfiðar má
sjá hann á fullri ferð niður brekk-
urnar i Hliðarfjalli. Þar verður
landsmótið haldið um páskana og
Karl mun örugglega gera sitt til að
skjóta þekktari nöfnum aftur fyrir
sig, enda verður hann á „heima-
velli".
Á neðstu myndinni eru svo þeir
þrír sem bezt stóðu sig í 15 km
göngunni. Magnús Eiriksson,
Siglufirði, t.v., Halldór Matthias-
son Akureyringur i miðið og ísfirð-
ingurinn Þröstur Jóhannesson
lengst til hægri.
(Ijósmyndirnar tók Ffermann Sig
tryggsson).
Svipmyndir
frá
Hermannsmótinn