Morgunblaðið - 10.04.1976, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. APRlL 1976
3
Friðunin tilkynnt
í öllum fjölmiðlum
— segir sjávarútvegsráðuneytið
Ur Pétri og Rúnu í flutningi Grlmnis í Stykkishólmi. Ljósm.
Bæringur.
Stðr dagur hjá
Grímni í Stykkishðlmi
4 af hverjum 10 í leikhúsið
SUNNUDAGINN 4. apríl var
mikið um að vera hjá leik-
félaginu Grimni i Stykkishólmi.
Kl. 2. frumsýndi félagið barna-
leikritið „Drekinn Hási“ eftir
Benny Andersen. Kl. 5 var önn-
ur sýning á sama leikriti og var
uppselt á báðar sýningarnar.
Leikstjóri er Signý Pálsdó'ttir.
Með hlutverk fara: Hrafnkell
Alexandersson, Friðrik
Kristinsson, Ölafur Þorvalds-
son, Rannveig Sigurðardóttir,
Hrafnhildur Hrafnkelsdóttir,
Skúli Ingvarsson, Gísli Björg-
vin Konráðsson, Hannes Stígs-
son og Þór Sigurðsson. Kl. 9
(21) sama dag var sýning á
Pétri og Rúnu og var það jafn-
framt fyrsta leiksýningin i
Nýja félagsheimilinu í Stykkis-
hólmi. Næstu sýningar hjá
félaginu verða sem hér segir:
laugardaginn 10. april verður
farið með bæði leikritin í leik-
ferð og verður farið að Loga-
landi, Reykholtsdal. Borgar-
firði. Þar verður barnaleikritið
sýnt kl. 4, en Pétur og Rúna kl.
9. Þá verður barnaleikritið sýnt
i Samkomuhúsinu í Grundar-
firði, sunnudag 11. apríl. Þess
má geta að sunnudaginn 4.
apríl sáu 4 af hverjum 10
Stykkishólmsbúum leiksýningu
hjá leikfélaginu. Sýningunum
var vel tekið og var leikendum
vel fagnað i lokin.
Börkur og Sigurður fara til Nýfundnalands:
Óvíst um veiðar 1
Norðursjó í sumar
„ÞAÐ þýðir ekkert fyrir skip-
stjórna að afsaka sig með þvi að
þeir hafi ekki vitað um friðun
svæðisins á Selvogsbanka," sagði
Þórður Asgeirsson skrifstofu-
stjóri sjávarútvegsráðunevtissins
1 samtali við Morgunblaðið i gær,
en einn skipstjórinn á netabátun-
um, sem teknir voru með net sfn í
sjó á svæðinu, sagði við blaðið I
gær að skipstjórarnir hefðu ekki
vitað um friðunina og hennar
væri ekki getið f sjómannaal-
manakinu.
Þessi friðun var að sögn Þórðar
ákveðin 19. janúar s.l. og gilti hún
frá 1. febrúar. „Fréttatilkynning
um þessa friðun var send til allra
Sýningu
Jönasar
að Ijúka
Málverkasýningu Jónasar
Guðmundssonar í Hamragörð-
um, Hávallagötu 24, Rvk, lýkur
á sunnudagskvöld.
Sýningin hefur nú verið
opin í eina viku og hafa all-
mörg verkanna selzt og sýning-
in hefur verið fjölsótt.
Jónas heldur nú senn til
Þýzkalands, þar sem sýning
verður opnuð á verkum hans i
Ntirnberg i V-þýzkalandi en
þar mun hann sýna rúmlega 20
myndir. Sýningin er i sam-
bandi við sérstaka Islandsviku,
sem haldin verður i NUrnberg.
fjölmiðla á sínum tíma og birtist
hún i öllum blöðum, sjónvarpi og
útvarpi. Auk þess birtist kort,
sem sýndi hvar friðaða svæðið var
og var sérstaklega tekið fram að
breyting hefði orðið á því og það
fært til austurs," sagði Þórður.
Og hann vildi sérstakiega taka
fram, að miðað við þau mótmæli,
sem bárust víða að vegna þessarar
friðunar, væri ólíklegt annað en
hver einasti skipstjóri hefði vitað
um hana.
Myntuppboð í dag
GUÐMUNDUR Axelsson i Klaust-
urhólum heldur myntuppboð i
Tjarnarbúð í dag kl. 14. 179 núm-
er eru þar á uppboðsskrá. Meðal
peninga á uppboðinu er mynt frá
Alþingishátíðarárinu 1930, 5 kr.,
10 kr. og sett með 2 kr., 5 kr. og 10
kr. Þá er einnig Ásmundarskjöld-
ur frá 1930, bronspeningur. Einn-
ig er nokkuð af þjóðhátíðarmynt
1974 auk fjölda mynteintaka úr
ýmsum áttum.
Góður afli neta-
báta á Eskifirði
Eskifirði 9. apríl
AFLI hefur verið góður hjá
netabátum s.l. viku og eru þrfr
að landa f dag um 140 lestum,
Sæberg er með 65 lestir, Haf-
alda með 45, en aflinn sem hún
er með er aðgerður og fsaðar f
kassa, en óaðgert hjá hinum
bátunum. Votaberg er með 36
lestir.
Alls róa 8 bátar með net frá
Eskifirði um þessar mundir og
hefur afli minni báta einnig
verið ágætur. Einn 14 lesta bát-
ur, Guðmundur Þór, kom með
11 lestir og annar, Bliki, með 6
lestir úr lögn í gær.
Togararnir lönduðu um síó-
ustu helgi, Hólmanes 110 lest-
um og Hólmatindur 118 lestum.
Koma þeir aftur inn eftir helgi.
Ekki hafa enn verið talin at-
kvæði sjómanna um samning-
ana, en atkvæðagreiðsla hefur
verið undanfarna daga um þá.
Sjómenn segja að fiskurinn,
sem fæst í Reyðarfirði, sé full-
ur af loðnu og er það óvanalegt
á þessum tíma við Austfirði.
MARGIR útgerðarmenn
hafa áhuga á að senda skip
sín til loðnuveiða á Ný-
fundnalandsmiðum í vor
og þegar er ákveðið að Sig-
urður og Börkur fari á þær
slóðir í byrjun maí. Eiga
skipin að landa í bræðslu-
skipið Norglobal. Sigurður
var við veiðar á þessum
slóðum í 6 vikur á s.l. ári og
fékk þá um 16 þúsund lest-
ir. Þeir aðilar, sem sendu
skip sin til Máritaníumiða í
fyrrahaust, munu hafa
fengið loforð frá útgerð
Norglobals um að hafa for-
gang að löndun í skipið við
Nýfundnaland í vor. Sig-
urður og Börkur voru þar
sem kunnugt er og enn-
fremur Reykjaborg, Ás-
berg og Óskar Halldórsson.
Að sögn Jónasar Haraldssonar
hjá Landssambandi íslenzkra út-
vegsmanna er enn óákveðið hvort
einhver islenzk skip haldi til
veiða i Norðursjó i sumar. Is-
lendingar mega veiða 5000 lestir
af síld í Norðursjó i vor, en svo
getur farið að þessi kvóti verði
enn minnkaður á fundi Norðaust-
ur-Atlantshafsnefndarinnar í
Kaupmannahöfn á næstunni, en
fundurinn hefst eftir páska og á
að ljúka 21. apríl n.k. Fiski-
fræðingar telja ástand sildar-
stofnsins í Norðursjó mjög alvar-
legt og jafnvel hættu á að stofnin-
um verði útrýmt verði ekki gripið
í taumana.
Jónas sagði, að af þessum sök-
um væri hreint óvist um útgerð
stórs hluta nótaveiðiflotans í
sumar. Ekki væri hægt um vik,
þar sem friða þyrfti þorskstofn-
inn eins og hægt væri. Einstaka
menn hefðu imprað á því að fara
á linu, en erfitt væri að fá menn
til starfa á útilegubátum. Helzt
væri að menn settu línuvélar um
borð í bátana eins og Bergþór er
með og söltuðu síðan fiskinn um
borð, en allt væru þetta vanga-
veltur.
Enn frest-
ast Alfsnes-
uppboðið
ENN hefur orðið frestur á því
að uppboð á Alfsnesi i Kjósar-
sýslu, eign Sigurbjarnar
Eirikssonar veitingamanns,
geti farið fram til lúkningar
söluskattsskuldum, sem Sigur-
björn stofnaði til við rekstur
Klúbbsins.
Eins og fram hefur komið í
Mbl. óskaði lögmaður Siguc-
bjarnar eftir því við sýslu-
mann Kjósarsýslu, að uppboðs-
skilmálum yrði breytt. Þessu
hafnaði Einar Ingimundarson
sýslumaður. Nú hefur lög-
maður Sigurbjarnar áfrýjað
þessum úrskurði sýslumanns
til Hæstaréttar, og sagði Einar
Ingimundarson sýslumaður
við Mbl. i gær, að þetta þýddi
að enn yrði frestun á því að
uppboðið gæti farið fram.
Björn flýgur
þyrlunni
þvert yfir
Bandaríkin
BJÖRN Jónsson þyrluflugmað-
ur Landhelgisgæzlunnar er nú
farinn til Bandarikjanna til að
taka við Hughes-þyrlunni, sem
gæzlan hefur fest kaup á.
Björn mun veita þyrlunni við-
töku eftir nokkra daga, og síð-
an á hann að fljúga henni
þvert yfir Bandarikin frá verk-
smiðjunum, sem eru á vestur-
ströndinni, til austurstrandar-
innar, þar sem þyrlan verður
sett i skip, sem flytur hana til
Islands. Sú ráðstöfun að láta
Björn fljúga þyrlunni þvert yf-
ir Bandaríkin þykir mjög
heppileg, það sparar flutninga-
gjöld og auk þess fær Björn
mjög góða æfingu á þessu
flugi.
Rólegt á
miðunum
I GÆR var talið að 31 brezkur
togari væri að veiðum við land-
ið og voru einir 24 komnir á
veiðar djúpt úti af Vestfjörð-
um. Þeim til varnar voru þrir
dráttarbátar, tvær freigátur og
aðstoðarskipið Miranda.
Á Hvalbakssvæðinu voru
nokkrir togarar að veiðum, en
þeim fer ört fækkandi á þeim
slóðum, hafa sumir haldið í
söluferð til Englands, en aðrir
farið á Vestfjarðamið.
Islenzku togararnir hafa
ekkert verið á Vestfjarðamið-
um að undanförnu, en í fyrri-
nótt munu einhverjir hafa
komið á þau mið aftur og voru
í gær á veiðum á Kópagrunni.
Freyja á
að heita
Hjörleifur
ÁKVEÐIÐ er að skuttogarinn
Freyja, sem Bæjarútgerð
Reykjavíkur keypti nýlega aá
Gunnari I. Hafsteinssyni,'skuli
framvegis heita Hjörleifur RE-
211. Hjörleifur er nú i slipp og
verið að mála skipið í litum
B.Ú.R.
— Ævar
Forseti Islands, herra Kristján Eldjárn, keypti fyrstu „Rauðu fjöðrina" er forvígismenn Lionshreyf-
ingarinnar heimsóttu hann, en sala á „Rauðu fjöðrinni" til styrktar vangefnum hófst f gærmorgun um
allt land.
Við þetta tækifæri gat forseti tslands, Kristján Eldjárn, þess, að þetta verkefni Lionshreyfingarinnar,
f járöflun fyrir vangefna, væri sérlega þarft og lét hann f Ijós þá von að vel mætti til takast með sölu á
„rauðu f jöðrinni".
Á myndinni eru auk forseta Islands fulltrúar Lionshreyfingarinnar, þeir Jóhann Briem, Jósep
Þorgeirsson, Gunnar Þormar og Þorvaldur Þorsteinsson.