Morgunblaðið - 10.04.1976, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 10.04.1976, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. APRIL 1976 5 Fundur um ísland og Nato í Lögbergi LAUGARDAG 10. apríl 1976, kl. 15.00 verður haldinn fundur á Vegun funda- og menningarmála- ^efndar Stúdentaráðs Háskóla Islands. Fundurinn fjallar um efnið tsland og N.A.T.Ö. Fundur- •nn verður haldinn í Lögbergi, núsi lagadeildar, stofu 101. Fram- sögumenn verða Jón E. Ragnars- son, Már Pétursson, Svavar Gests- son og Unnar Stefánsson. Fram- sögumenn munu m.a. fjalla um það, hvort aðild Islands að N.A.T.Ó. hafi orðið Islendingum til góðs og hvort íslendingar eigi að stefna að áframhaldandi aðild landsins að Atlantshafsbandalag- inu. Öllum er heimill aðgangur að fundinum. Að loknum framsögu- ræðum verða frjálsar umræður. — Sendum í póstkröfu um land allt — r Jón H. Bergs endurkjörinn formaður V.S.I.: Hver 4 manna fjölskylda skuldar 1,6 m. kr. í erlendum gjaldeyri AÐALFUNDI Vinnuveitenda- sambandsins lauk i Revkjavfk 1 8®r. Jðn H. Bergs var endurkjör- •nn formaður sambandsins og öunnar Guðjónsson varafor- ntaður. I ályktun frá fundinum kom n> a. fram, að nú skuldar hver 4 manna fjölskylda á Islandi til íafnaðar um 1.6 millj. kr. í erlend- um gjaldeyri og er nú svo komið, að af hverjum 100 millj. kr. i útflutningi verður að taka strax tæpar 20 millj. kr. í greiðslu á erlendum lánum. Utlit er fyrir, að með sama áframhaldi muni hlið- stæð tala árið 1980 verða um 25 millj. króna eða að fjórða hver gjaldeyriskróna fari til greiðslu erlendra skulda. Segir í ályktun- inni, að þetta sé langt umfram það, sem geti talizt viðunandi Halldór og Manuela leika á háskólatón- leikum kl. 15.00 í dag elleftu og næstsíðustu háskólatónleikar vetrarins verða í Félagsheimili Stúdenta í dag klukkan 15. Þar leika Manuela Wiesler flautuleikari og Halldór Haraldsson píanóleikari stórt verk eftir Schubert og tvö litil nútimaverk eftir Tomasi og Joli- vet. Athygli skal vakin á þvi, að tónleikarnir hefjast klukkan 15 en ekki klukkan 17 eins og fyrri háskólatónleikar. fyrir þjóð, sem vilji halda efna- hagslegu sjálfstæði. Þvi sé aug- ljóst að, að allur hugsanlegur bati þjóðarbúsins á næstu árum verði að fara til jöfnunar á hinni miklu skuldasöfnun, og takmarki það mögulei'ka á að bæta lífskjör landsmanna á næstunni. Þá lýsir fundurinn þeim slæmu skilyrðum sem frjálsum atvinnu- rekstri eru búin hér á landi og varar við afleiðingum efnahags- málaóstjórnar undanfarinna ára á rekstrargrundvöll og framtíð frjáls atvinnurekstrar. Aðalfundurinn leggur til: Að afskriftarreglum hjá hinum frjálsa atvinnurekstri verði breytt og þær gerðar ekki lakari en hjá hinu opinbera. Að flýtt verði tollalækkunum á öllum efnisvörum svo og vélum og tækjum til framleiðslu. Að útgáfu verðtryggðra ríkis- skuldabréfa verði hætt og hið opinbera látið búa við sömu lána- möguleika og hinn frjálsi at- vinnurekstur. Að kostnaðarveltuskattar verði felldir niður í því formi, sem þeir nú eru i, enda Verði fyrirtækjum búin slik starfsskilyrði að þau geti greitt eðlilega tekjuskatta. Að arður af hlutabréfum njóti sömu skattameðferðar og sparifé. Ekið á bíl RANNSÖKNARLÖGREGLAN I Hafnarfirði hefur beðið Mbl. að auglýsa eftir vitnum að ákeyrslu þar í bæ. Var ekið á bifreiðina G-9989, sem er dökkgræn Crysler 160, þar sem bifreiðin stóð fyrir utan Vesturbraut 3. Gerðist þetta á tímabilinu frá kl. 22 s.l. mið- vikudagskvöld til kl. 9 daginn eft- ir. Dæld var á hægra afturbretti ofarlega. Gul málning var í sár- inu. Grunur leikur á því að Fiat- bifreið hafi valdið tjóninu. Jón H. Bergs. Að fram fari könnun á arðsemi opinbers rekstrar og verði einka- aðilum falinn rekstur, sem nú er í höndum hins opinbera, þar sem slíkt reynist hagkvæmara. Að komið verði á verðbréfa- markaði. Að ýmis þjónustugjöld hins opinbera sem snerta atvinnu- reksturinn sérstaklega, verði leið- rétt til samræmis við það, sem tíðkast í helztu samkeppnislönd- um okkar. Einnig vekur aðalfundurinn at- hygli á, að gert verði verulegt og sérstakt átak í verk- og tækni- menntunarmálum og heitir á ríkisstjórnina að standa við gefin loforð í þeim efnum. Staðgóð þekking og tæknimenntun sé for- senda framfara og framleiðni- aukningar atvinnuvega og vax- andi hagvaxtar þjóðarinnar allrar. Leiðrétting I afmælisgrein hér í blaðinu á föstudag um Gísla Jónsson, Höfn i Hornafirði, hefur misritazt nafn Ragnhildar á Rauðabergi. Hún hét Ragnhildur en ekki Ragn- heiður. Þetta leiðréttist hérmeð. Vitni vantar FÖSTUDAGINN 9. april var ekið á bifreiðina 1-1875, sem er Fíat 600, græn að lit, árgerð 1973. Bif- reiðin stóð á Rauðarárstíg, við stöðumæli á móts við Búnaðar- bankann. Var þetta um klukkan 13. Vinstra afturhorn var dældað og ljósker brotið. Þeir, sem geta veitt upplýsingar um þessa ákeyrslu, eru beðnir að hafa sam- band við Slysarannsóknardeild lögreglunnar. Sértilboð á DAHLIUM Bjóöum þessa helgi 10 stk. Dahlíulauka á aðeins i ^nn_w Á þriójudag veróur dregió í 4.flokki. 9.000vinningar aó fjárhœó 118.350.000.00 A mánudag er síóasti endurnýjunardagurinn. 4. flokkur: 9 á 1.000.000 kr. 9.000.000 kr. 9 - 500.000 — 4.500.000 — 9 - 200.000 — 1.800.000 — 315 - 50.000 — 15.750.000 ’ 8.640 - 10.000 — 86.400.000 — 8.982 117.450.000 kr. Aukavinningar: 18 á 50.000 kr. 900.000 — 9.000 118.350.000.00 L

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.