Morgunblaðið - 10.04.1976, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. APRIL 1976
I mörg horn að líta við undirbnninginn
„JU, ÞAÐ er ekki lftil vinna, sem
f þvf er fólgin að halda Lands-
mótið á skfðum.“ sagði Hermann
Sigtryggsson, mótsstjóri, þegar
Morgunhlaðið innti hann frétta af
undirbúningi og ýmsu fleiru við-
víkjandi Landsmóti skíðamanna,
sem haidið verður á Akureyri um
páskana. Mótið hefst þriðjudag-
inn 13. aprfl og lýkur á páskadag
þann 18. aprfl. Daginn eftir
verður efnt til Akureyrarmóts í
bruni, ef aðstæður leyfa og er
keppendum á Landsmótinu
heimil þátttaka. Dagskrá mótsins
má annars sjá hér annars staðar á
sfðunni.
„Það má segja að undirbúníng-
ur hafi raunar hafizt i sumar sem
leið,“ hélt Hermann áfram. ,,Þá
var stökkaðstaðan lagfærð. Auk
þess hafa verið unnar miklar end-
urbætur á fjarskiptakerfinu hér í
Hlíðarfjalli og aðstaða til tíma-
töku lagfærð með tilkomu start-
húss fyrir alpagreinarnar."
Kemur lítill snjór til með að
hamla framkvæmd mótsins?
„Að óbreyttu ástandi, nei. Það
verður hins vegar að flytja eitt-
hvað til snjó vegna stökkkeppn-
innar, en það er alls engin
nýlunda. Auðvitað er þó nóg að
gera, en það er virkilega ánægju-
legt til þess að vita hve hendurnar
eru orðnar margar hér á
Akureyri, sem starfa að undir-
búningnum. Ég get t.d. nefnt það
að starfsmenn verða um 30 við
keppnirnar, auk hópa skíða- og
áhugafólks, sem munu verða til
aðstoðar."
En hvernig er fjárhagshlið slíks
móts tryggð?
„Jú, ekki er það minnstur vand-
inn. Fyrir að fá að halda mótið
þurfum við að greiða Skíðasam-
bandinu 50 þús. beint. Ef til vill
ekki miklir peningar, en
kostnaðarliðirnir eru miklu fleiri
og meiri, en tekjumöguleikar
fremur rýrir. Við gefum út leik-
skrá, og seljum auglýsingar í
hana. Auk þess munum við selja
styrktarmerki. Þá er ekki sízt að
segja frá því að Skiðaráð
Akureyrar mun meðan á þessu
Landsmóti stendur sem og áður
efna til dansleikja og skemmtana
í Sjálfstæðishúsinu og hafa þess-
ar skemmtanir ætíð stutt veru-
lega við bakið hvað kostnað af
Landsmótinu áhrærir. Það má
svona I lokin geta þess, að
kostnaður við rekstur Skíðaráðs
Akureyrar i vetur verður líkast til
í kringum 2,5 milljónir, og það er
mikill höfuðverkur að afla svo
mikils fjár.“
Miklatúnsh laup
Miklatúnshlaup Armanns fer
fram i dag og hefst á venjulegum
stað kl. 14.00.
Borðtennismeistaramótið
hefst kl. 14.00 á morgun
Meistaramót fslands í borð-
tennis hefst nú um helgina og
verður þá keppt f tvfliðaleikjum
og I tvenndarkeppni. Byrjar
keppni kl. 14.00 á sunnudaginn f
Laugardalshöllinni, og verða
keppendur alls um 120 talsins —
þeirra á meðal allt bezta borð-
tennisfólk landsins. Hefur það
æft mjög vel að undanförnu og
verður þvf fróðlegt að fylgjast
með viðureign þess sem búast má
við að verði hin jafnasta og tví-
sýnasta.
I fyrra sigruðu þeir Hjálmar
Aðalsteinsson og Finnur Snorra-
son, KR, f tvfliðaleik karla og
fslandsmeistarar f tvenndarleik
urðu þá Björgvin Jóhannesson og
Guðrún Einarsdóttir úr Gerplu f
Kópavogi.
Keppni í einliðaleik mun svo
fara fram n.k. fimmtudag f
Laugardalshöllinni og hefst
keppnin þá kl. 10 fyrir hádegi.
Jónas Jóhannesson hirðir frákast undir körfu Portúgalanna, en við
slfkt var hann iðinn f landsleiknum f fyrrakvöld.
0RIIG6UR SIGURISLANDSI
FYRSTA LEIKNHM VID PORTVGAL
Árni GuSjónsson lék sinn 300. leik með meistaraflokki FH f bikarkeppni HSÍ
gegn KR á miðvikudagskvöldifl og var heiðraSur af félagi sínu I þvf tilefni. I
dag nær Geir Hallsteinsson þessum áfanga Myndina af Árna tók Friðþjófur,
Ijósmyndari Mbl . og meS Arna á myndinni er ungur sonur hans. sem
vafalaust á eftir að feta i fótspor föðursins á handknattleiksvellmum.
ISLENZKA landsliðið í körfu-
knattleik þurfti ekki að sýna
neinn stórleik til þess að bera
sigur af portúgalska liðinu f
fyrsta leik liðanna að þessu sinni.
Eftir fremur jafnan fyrri hálfleik
sem fór 46:40 Isl. f vil tóku okkar
menn öll völd f sfðari hálfleik og
sigruðu með 92 stigum gegn 76.
Sigurinn hefði getað orðið mun
stærri ef okkar mönnum hefði
tekizt vel upp, en f heildina séð
var þessi leikur slakur hjá okkar
mönnum þótt stöku kaflar kæmu
sem voru virkilega góðir.
„Þetta var ekki mjög góður leik-
ur hjá okkur," sagði fyrirliði
portúgalska liðsins að honum
loknum. „Við hljótum að gera
mun betur í hinum leikjunum.
Það sem fyrst og fremst var að,
var það að við tókum litið af frá-
köstum, og þar af leiðandi kom-
umst við aldrei í gang með hraða-
upphlaupin sem hafa oft verið
okkar sterkasta vopn.“
Jón Sigurðsson átti að mörgu
leyti mjög góðan leik i fyrrakvöld,
hann skoraði mikið og var góður í
vörninni, en sumar sendingar
hans voru heldur slakar. Jónas
Jóhannesson var afar grimmur i
fráköstunum og tók alls 18 slík
sem er mjög gott. Jónas er greini-
lega ekki enn orðinn nógu sterkur
sem sóknarmiðherji, en hann bæt-
ir það talsvert upp með frábærum
varnarleik á köflum. Af öðrum
leikmönnum isl. liðsins má nefna
Þóri Magndsson og Kolbein Páls-
son sem báðir áttu góða kafla og
Kára Marísson sem var sterkur í
vörninni að venju. Aðrir leik-
menn voru jafnir, en geta betur.
Framan af fyrri hálfleik var
leikurinn mjög jafn, og þá voru
það aðallega Jose Luis bakvörður
nr. 10 og fyrirliðinn Joaquim Ani-
ceto nr. 14 sem höfðu sig í frammi
af hálfu Portúgalanna, enda
greinilega langbeztu menn liðs-
ins. En um miðjan hálfleikinn
kom bezti kafli ísl. liðsins og stað-
an breyttist úr 10:9 í 28:16. En
undir lok hálfleiksins virtist mjög
af ísl. liðinu dregið og Portú-
galarnir náðu nokkrum hraðaupp-
hlaupum sem gáfu þeim körfur og
í hálfleik var staðan 46:40 Isl. í
vil.
Strax í upphafi síðari hálfleiks
réðust úrslit þessa leiks, þá kom
annar góður kafli ísl. liðsins og
staðan var fljótlega 58:42 og eftir
það var ekki um neina keppni að
ræða.
Það er greinilegt að fsl. liðið
þarf að fá meiri samæfingu áður
en haldið verður á Polar Cup
síðar í þessum mánuði. Það kom
allt of oft fyrir að leikaðferðirnar
sem æfðar hafa verið gengu ekki
upp, en þetta stendur vonandi allt
til bóta með meiri samæfingu.
Stig tslendinga. Jón Sigurðsson
23, Kolbeinn Pálsson 14, Jónas
Jóhannesson 13, Þórir Magnússon
11, Agnar Friðriksson 8, Bjarni
Gunnar og Gunnar Þorvarðarson
7 hvor, Kári Marísson 4, Kol-
beinn Kristinsson 3, Jón Jörunds-
son 2. >
Stig Portúgala. Joaquim
Aniceto 21, Jose Luis 18,
Francisco Carvalho 13, Francisco
Froes 8.
Mjög góðir dómarar voru þeir
Kristbjörn Albertsson og Jón Otti
Olafsson. Um það voru allir sam-
mála — Portúgalarnir einnig. gk.
Tekst íslenzku haníknattleiks-
mönnunnm að standast Partizan snnning?
Júgóslavneska handknattleiksliðið
Partizan Bjelovar kom til landsins I
gærkvöldi og leikur þrjá leiki við
íslenzk lið um helgina. Verður fyrsti
leikur liðsins við Íslandsmeístara FH
og hefst sá leikur i Laugardalshöll-
inni kl. 1 5.00 í dag. Kl. 20.30 annað
kvöld leikur liðið svo við úrvalslið,
sem nefnt hefur verið Suð-
Vesturlandsúrval, í Laugardalshöll-
inni og kl. 20.30 á mánudagskvöld
leika Júgóslavarnir við gestgjafa
sina, Valsmenn, i jþróttahúsinu á
Akranesi. ,
Lið Partizan Bjelovar er vel kunn-
ugt hérlendis. en þarna er tvímæla-
laust um að ræða eitt bezta félagslið
I heimi. Hefur það oftsinnis verið i
fremstu röð I Evrópubikarkeppninni
og m.a. slegið FH-inga út i átta liða
úrslitunum. Sennilega er liðið ekki
eins sterkt nú og það var þá. en það
varð i öðru sæti i júgóslavnesku 1.
deildar keppninni sem lauk nú
nýlega.
í leiknum [ dag mun Geir
Hallsteinsson leika sinn 300.
meistaraflokksleik með FH-liðinu, og
verður væntanlega heiðraður af fé-
lagi sinu fyrir. Er mjög athyglisvert
að Geir skuli þegar hafa náð þessum
leikjafjölda. þar sem hann er enn
„á bezta aldri" og hefur auk þess
misst eitt keppnistimabil úr hjá
félaginu er hann lék með þýzka
liðinu Göppingen. Kemur þar fyrst
og fremst til hversu ungur Geir var
hann byrjaði að leika með
meistaraflokki.
Fróðlegt verður að sjá hvernig ís-
landsmeisturunum vegnar i baráttu
sinni við Partizan-liðið, en sem kunn-
ugt er lenti FH i hinum mestu
vandræðum með 2. deildar lið KR i
undanúrslitum bikarkeppninnar s.l.
miðvikudag. Það er hins vegar
gömul saga og ný að FH-liðið magn-
ast upp þegar það keppir við erlend
lið og ekkert félag hérlendis hefur
náð eins góðum árangri I leikjum
sinum við útlendinga og FH-ingar
hafa gert.
Sá leikur i heimsókn Partizan sem
vekur hins vegar mesta athygli er
viðureignin á sunnudagskvöld er það
mætir Suð-Vesturlandsúrvalinu, en i
þvi liði eru m.a. núverandi og fyrr-
verandi landsliðsþjálfarar Íslands,
Viðar Simonarson og Hilmar Björns-
son og tveir leikmenn sem ekki hafa
gefið kost á sér í úrvalslið eða lands-
liðað undanförnu. þeir Pálmi Pálma-
son úr Fram og Geir Hallsteinsson,
FH. Má mikið vera ef liðíð sem
mætir Partizan á sunnudagskvöldið
er ekki sterkara en t.d. landsliðið
sem lék við Kanadamenn á dögun-
um.
Siðasti leikurinn i heimsókninni
við Valsmenn á Akranesi, ætti einnig
að geta orðið hinn skemmtilegasti,
en sjálfsagt leggja Valsmenn áherzlu
á að kveðja gesti sína með þvi að
sigra þá.
FH — IA
í DAG kl. 14.00 fer fram á Kapla
krikavelli i Hafnarfirði leikur í
Litlu-bikarkeppninni milli FH-inga
og Akurnesinga. Verður leikið
bæði i meistaraf lokki og 1. flokki.
Verður fróðlegt að sjá hvernig
FH-ingum vegnar undir stjórn
hins nýja þjálfara sins, en liðið
hefur æft mjög vel að undanförnu
og hafa leikmenn sézt á hlaupum
uppi um fjöll og firnindi.
Úrslit í 3. deild
I DAG kl. 18.00 fer fram f
Laugardalshöllinni úrslita-
leikurinn f 3. deild lslands-
mótsins í handknattleik karla.
Leika þá til úrslita Stjarnan úr
Garðahreppi og lið Iþrótta-
bandalags tsafjarðar, en lið
þessi sigruðu f sfnum riðlum f
deildinni. Það lið sem sigrar f
ieiknum I dag tekur svo sæti
Breiðabliks f 2. deildinni að
ári.