Morgunblaðið - 10.04.1976, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. APRÍL 1976
35
Mrnnt á hugsanlega
úrsögn úr BSRB
Morgunblaðinu barst ígær eftir-
farandi frétt frá gagnfræðaskóla-
kennurum í Keflavík:
„Fundur haldinn í Kennara-
félagi Gagnfræðaskólans í Kefla-
vik haldinn 9. apríl 1976 telur
undirritað samkomulag milli
BSRB og fjármálaráðuneytisins
„I frumvarpinu setjum við fram
okkar ftrustu tillögur en ég tel að
við myndum verða mjög sáttir við
það ef samþykkt yrði að gera það
að skvldu að sýna nafnskfrteini
við áfengiskaup," sagði Helgi
Seljan aiþ.m., einn flutnings-
manna frumvarps um breytingu á
áfengislögum. Eins og komið
hefur fram í fréttum, er m.a. lagt
til f frumvarpinu að tekið verði
upp sérstakt áfengiskaupaskír-
téini.
Helgi sagði aðspurður, að hug-
myndin um áfengiskaupaskirteini
væri komin frá þingnefnd, sem
ísland sigraði
Portúgal
82:75
í körfubolta
ISLAND sigraði Portúgal f lands-
leik f körfuknattleik f gærkvöldi
82:75. Leikið var f Njarðvík. Stað-
an f hálfleik var 42 stig gegn 39,
Portúgal í vil. Stigahæstir í
fslenzka liðinu voru Bjarni Gunn-
ar Sveinsson með 22 stig og Birgir
Jakobsson með 15 stig.
I dag klukkan 14 fer þriðji
landsleikur þjóðanna fram í
íþróttahúsinu í Njarðvik kl. 14. Á
undan leikur 2. flokkur UMFN
gegn unglingalandsliðinu, en með
því leikur Pétur Guðmundsson,
sem er 2,17 metrar á hæð.
Rækjubát
naumlega
bjargað
Skagaströnd 9. april
1 NÓTT sem leið fékk rækjubát-
urinn Hringur frá Skagaströnd
rækjutroll f skrúfuna, þar sem
hann var á veiðum útaf Strönd-
um. Þorsteinn Vald frá Skaga-
strönd ætlaði þá að draga Hring
til Skagastrandar en á leiðinni
slitnaði dráttartógið þrisvar sinn-
um og í þriðja sinn er það slitnaði
voru komin suð-vestan 6—8 vind-
stig og átti.þá báturinn aðeins
skammt eftir til Skagastrandar.
Rak bátinn hratt að landi og að
brimgarðinum og tókst ekki að
koma línu í hann. Varpaði hann
þá tveimur ankerum en þau dróg-
ust nokkuð þannig að báturinn
stefndi í brimgarðinn. Þorsteinn
Vald sigldi þá inn í höfnina og
sótti þangað björgunarsveit SVFl
á Skagaströnd og nýtt dráttartóg
og tókst þessu liði að skjóta línu
með línubyssu yfir í Hring í ann-
arri tilraun. Mátti þarna litlu
muna. Þvi báturinn var komin
fast í brotin og höfðu skipverjar
sett út gúmmíbjörgunarbát sinn
og voru í bjargvestum.
Þegar dráttartóg hafði verið
sett á milli, var báturinn dreginn
inn í höfnina. Hringur er rúmlega
20 tonna bátur. Skipstjóri á Hring
er Örn Berg Guðmundsson en
skipstjóri á Þorsteini Vald er Sig-
urjón Guðbjartsson.
—fréttaritari.
alls óviðunanlegt og minnir á yfir-
vofandi verkfallshótun varðandi
samkomulag fyrir 1. apríl sl.
Ennfremur er sérstök athygli
vakin á einróma samþykktri til-
lögu Cesils B. Haraldssonar um
hugsanlega úrsögn LSFK (Lands-
sambands framhaldsskóla-
kennara) úr BSRB.“
kannaði stöðu áfengismála í
landinu og hann kvaðst ekki vita
til þess að slíkt tíðkaðist erlendis.
Hann sagði flutningsmenn frum-
varpsins hafa tekið upp flest þau
atriði, sem nefndin lagði til, í
frumvarpið. Hitt væri svo annað
mál hvað næði fram að ganga.
Hann taldi eins og að framan
sagði að menn yrðu sáttir við það
þótt áfengiskaupaskírteinin næðu
ekki fram af ganga ef reglan um
nafnskírteinin næði samþykki.
Eins væri með lágmarksaldur
gesta á veitingahúsum. Hann
teldi það persónulegra betra að
hafa 18 ára aldurstakmark ef
farið væri eftir því en ef aldurs-
takmarkið væri hærra og það
þverbrotið. Aftur á móti taldi
hann breytingartillöguna um vin-
veitingaleyfin sjálfsagða.
— Friðrik og
Guðmundur
Framhald af bls. 36
en um miðjan júní, en mótið í
Hollandi hefst 5. júlí. „En því
er ekki að neita að þetta er
girnilegt boð,“ sagði Guð-
mundur, „og ekki sizt vegna
þess að þarna getur rætzt okk-
ar draumur um að geta teflt
saman á móti erlendis. Ef dag-
skráin hjá mér væri ekki svona
strembin hefði ég svarað strax
játandi. En ég ætla að velta
þessu fyrir mér í nokkra
daga,“ sagði Guðmundur að
lokum.
Friðrik Ólafsson tók í sama
streng og Guðmundur. Hann
sagði að þeir hefðu talað um
það sín á milli að reyna að
stilla þvi þannig til að þeir
gætu einhvern tima teflt á
sama mótinu erlendis. Þannig
gætu þeir haft félagsskap og
hjálpað hver öðrum, t.d. í erf-
iðum biðskákum. „Ég vona
sannarlega að Guðmundur geti
þegið þetta boð,“ sagði Friðrik.
Sem fyrr segir er IBM-mótið
afar sterkt. Þar eru ekki færri
en 12 stórmeistarar skráðir til
leiks, en þátttakendur eru alls
16. Stórmeistararnir eru Frið-
rik, Kortsnjov og Vasjúkov frá
Sovétrikjunum, Kavaleik og
Smjekal frá Tékkóslóvakiu,
Anderson, Svíþjóð, Kurajica
og Ivkov frá Júgóslavíu,
Timman og Donner, Hollandi,
Miles, Bretlandi, Knaak, A-
Þýzkalandi, og nú hefur Guð-
mundur fengið boð á mótið.
Það stendur frá 5.—24. júlí.
— Saltfiskur
Framhald af bls. 36
lega 20 þúsund lestir af þessu
magni til Portúgals, en um 6 þús-
und til Spánar. Islendingar væru
ekki ábyrgir fyrir afhendingu á
nema 13.500 lestum, en síðan væri
það á valdi S.I.F. hvort 11.600
lestir yrðu seldar til viðbótar. Þá
sögðu þeir, að framleiðsla salt-
fisks á yfirstandandi vertíð væri
svipuð og í fyrra, nema hvað hún
hefði dottið niður af eðlilegum
ástæðum í verkfallinu. Alls nam
vertiðarframleiðslan á s.l. ári urn
32 þúsund tonnum.
Vitað væri, að menn reyndu að
salta sem mest um þessar mundir,
en þött verðið væri gott, gæfi það
ekki tilefni til að hægt væri að
greiða eitthvað í Verðjöfnunar-
sjóð.
Þá sögðu þeir, að búið væri að
ganga frá útborgunarverði til
framleiðenda og yrði það 280 kr.
pr. kíló á stórfisk nr. 1, 10—30
sporðar í pakka. Verðhlutfallið
milli annarra gæða- og stærðar-
flokka væri hlióstætt því sem
verið hefði undanfarin ár.
Þá kom fram að mikil tregða er
enn á innflutningi á saltfiski til
Spánar. 20% innflutningstollur
er þar á saltfiski og innflutningur
háður leyfum stjórnvalda. Stað-
fest hefði verið að birgðir þar
færu mlnnkandi og í Portúgal
væru litlar sem engar birgðir af
saltfiski. Á næstunni yrði rætt við
Itali og Grikki um kaup á saltfiski
frá Islandi, en um árangurinn af
þeim viðræðum væri ekkert hægt
að segja fyrirfram.
Þá sögðu þeir félagar, að
Portúgalir legðu sífellt meiri
áherzlu á, að Islendingar keyptu
meira af þeim. I þessari för hefðu
tveir fulltrúar L.I.Ú., Björn Guð-
mundsson og Gylfi Guðmundsson,
verió með i förinni og skoðað
veiðarfæraverksmiðjur og vörur
framleiddar í Portúgal og lúta að
sjávarútvegi.
— Gunelach
Framhald af bls. 17
Lardinois hefur ge: nt starfi
sínu siðan í janúar 19/3. Hann er
úr Kaþólska flokknum i Hollandi
og hafði verið landbúnaðarráð-
herra 1967—72.
Á blaðamannafundi viður-
kenndi Lardinois sjálfur að lík-
legt væri að Gundelach tæki við
af honum. Hann taldi öruggt að
eftirmaðurinn yrði frá einu hinna
minni aðildarlanda þar sem
stærri löndin gætu aldrei komið
sér saman um eftirmann frá ein-
hverju þeirra vegna innbyrðis
tortryggni.
Auk Danans Gundelach kemur
Laurens Brinkhorst, sem fjailar
um utanríkismál í framkvæmda-
nefninni, til greina sem eftirmað-
ur Lardinois.
— Spinola farinn
frá Sviss . . .
Framhald af bls. 1
Talsmaður brasiliska utanríkis-
ráðuneytisins sagði í dag að Spin-
ola mætti koma aftur til Brasiliu,
en honum yrðu sett þau hin sömu
skilyrði og áður fyrir búsetu: að
skipta sér ekki af stjórnmálum.
Spinola kom til Sviss frá Frakk-
landi og þar áður frá Brasilíu
fyrir nokkrum mánuðum og ósk-
aði eftir landvistarleyfi vegna
heilsufarsástæðna. Honum var
það veitt en uppálagt að hann
mætti ekki hafa nein stjórnmála-
afskipti.
Eftir að upp komst að Spinola
hefði reynt að semja um vopn frá
Vestur-Þýzkalandi semsendaátti
til Portúgals til að stuðla að valda-
ráni var hershöfðinginn tekinn til
yfirheyrslu. Var þar komizt að
þeirri niðurstöðu að hann hefði
ekki staðið við þau skilyrði sem
sett voru fyrir dvöl hans í Sviss og
honum gefinn nokkurra sólar-
hringa frestur til að fara úr landi.
Meóan Spinola bjó í Brasiliu
veitti hann fréttamönnum þó
nokkrum sinnum viðtöl og var þá
i meira lagi hvassyrtur i garð nú-
verandi stjórnvalda í Portúgal.
Spinola var veitt áminnig fyrir
vikið, en ekki aðhafzt neitt i mál-
inu. Áreiðanlegar heimildir telja
að Brasilíustjórn muni taka mun
harðar á öllu slíku velji hershöfð-
inginn að snúa aftur til Brasiliu.
— Vetrarvertíðin
Framhald af bls. 2
9. Valdimar Sveinsson VE 22
10. Leó VE 400
Botnvarpa:
1. Sigurbára VE 249
2. Björg VE 5
3. Baldur VE 24
4. Ingólfur VE 216
5. Frár VE 78
6. Jökull VE 15
7. Sæfaxi VE 25
8. Þristur VE 6
9. Haförn VE 23
10. Emma VE 219
— BSRB
Framhald af bls. 36
menn úr hverju ráðuneyti færu i
verkfall ef til þess kæmi. Þeir
sem myndu fara í verkfall væru
þeir lægst launuðu,' þeir sem
væru hærra settir fengju undan-
þágu. Enginn vissi hve langan
tíma verkfall stæði og þá síður
hve langan tíma tæki að vinna
það upp sem tapaðist i verkfalli.
Erlingur sagði að á fundinum
hefðu komið fram þrjár tillögur,
sem samþykktar hefðu verið og sú
veigamesta væri um það að stjórn
starfsmannafélags stjórnarráðs-
ins væri falið að framkvæma
allsherjarkönnun innan stjórnar-
ráðsins um samningana og þá
ekki sizt verkfallsréttarmálið.
Ætti þessi könnun áð ná til allra,
engu skipti hvort menn væru í
B.S.R.B. eða B.H.M.
— Samið um
Framhald af bls. 1
Viðræður um samninginn
hófust í september 1974 og töf
sem hefur orðið á þeim varð til
þess að samningurinn um tak-
mörkun kjarnorkuvígbúnaðar
sem var gerður kom ekki til
framkvæmda 31. marz eins og
ráðgert hafði verið. Hins vegar
varð að samkomulagi þá að líta
svo á að samningurinn hefði
tekið gildi þar sem búizt var
við skjótu samkomulagi um
kjarnorkusprengingar í frið-
samlegum tilgangi.
Samningur um kjarnorku-
sprengingar i friðsamlegum
tilgangi var talinn nauðsynleg-
ur viðauki við samninginn um
takmörkun kjarnorkuvígbún-
aðar þar sem auðvelt væri að
villast á kjarnorkusprenging-
um. Viðræðurnar snerust fyrst
og fremst um eftirlit á staðn-
um og nú virðast þau mál hafa
verið leyst þótt ekkí sé skýrt
frá samkomulaginu i ein-
stökum atriðum.
— Harmleikur
í Ecuador
Framhald af bls. 1
litils þriggja hæða hótels sem
hrundi og gróf tvö lík upp úr
rústunum. Óttazt er að fleiri
hafi grafizt undir rústunum.
Jarðskjálftinn fannst einnig
I höfuðborginni Quito en eng-
an sakaði þar. Upptök jarð-
skjálftanna voru á Kyrrahafi
um 100 km frá Esmeraldas,
sem er mikilvæg viðskiptamið-
stöð við ósa samnefnds fljóts,
tæplega 100 km frá landamær-
um Kólombíu. Ibúar eru um
60.000.
I Lima og Bogota var til-
kynnt að jarðskjálftinn hefði
fundizt í norðurhéruðum Perú
og hafnarborginni Tumaco í
Kólombiu. Ekki vaf tilkynnt
um manntjón eða eignatjón.
— Sýrlendingar
Framhald af bls. 1
liðhlaupa sem hafa stofnaó
„Líbanska Arabaherinn".
Tilgangur þingfundarins á
morgun er að ræða breytingar á
stjórnarskránni þannig að þingið
geti þegar í stað kosið eftirmann
Suleiman Franjieh forseta. Þing-
flundurinn er talinn forsenda
þess að takast megi að leysa
deilurnar í Libanon.
Sýrlendingar hafa þegar lagt
fast að vinstrisinnum að sýna
meiri sáttfýsi I deilunum við
284,2 32
265,3 29
tonn landanir
197,0 18
158,6 24
150,8 22
142,6 25
135,7 9
121,4 19
109,5 31
97,2 20
96,5 25
90,0 14
hægrimenn. Rúmlega 1.000 sýr-
lenzkir hermenn fóru samkvæmt
áreiðanlegum heimildum inn i
Líbanon í síðasta mánuði, dul-
búnir sem Palestinumenn, og
opinberlega hefur ekki verið
upplýst hvaða hlutverki þeir eigi
að gegna.
Fundurinn á morgun getur ekki
farið fram í þinghúsinu þar sem
það er á ótryggu svæði. Hann
verður haldinn í rammgerðu húsi
skammt frá víglinu kristinna
manna og múhameðstrúarmanna
í Beirút.
— Dauða Tengs
Framhald af bls. 1
þegar 120 særðust og kveikt var i
bifreíðum og byggingu, til að lýsa
yfir stuðningi við Teng. Fjölda-
fundir voru haldnir i Kanton og
fleiri borgum.
Fréttaskýrendur segja að þessi
hátiðahöld sýni að valdaforystan
vilji sameina þjóðina eftir þriggja
mánaða valdabaráttu. Opinber-
lega hefur ekkert verið látið uppi
um dvalarstað Tengs sem hefur
ekki sézt siðan i janúar.
— Vorster
Framhald af bls. 1
Afríkuríki, sem kunni að taka að
nýju upp stjórnmálasamband við
Israel, og hvatt Rhódesíustjórn til
að komast að samkomulagi við
blökkumenn. Blaðið Davar, sem
styður Rabin forsætisráðherra
segir að apartheid stefna Vorster-
stjórnarinnar sé Israelsmönnum
framandi, en slakað hafi verið á
þeirri stefnu og samskiptin hafi
batnað á undanförnum mánuðum.
— Ford
Framhald af bls. 1
stuðningskona fjölda-
morðingjans Charles Mansons,
skammbyssu á Ford í Sacra-
mento. 22. september skaut
Sara Jane Moore á Ford í San
Fransisco Hún og ungrú
Fromme voru báðar dæmar í
lifstiðarfangelsi.
— Þorskastríðið
Framhald af bls. il
brezki flotinn nú aðeins 24 freigátum á
að skipa til þess að kljást við islenzku
varðskipin. taka þátt í NATO-æfingum
og hafa gætur á Rússum þar sem fjórar
eru í lamasessi, þrjár vegna skemmda
af völdum átaka við varðskipin og ein
vegna skemmda af völdum veðurs Þar
við bætist að sögn blaðsins að i Ijós
hefur komið að sjóhæfni nokkurra frei-
gátna hefur ekki reynzt nógu góð i
þeim átökum sem eiga sér stað á
íslandsmiðum.
í flotadeildinni sem Bretar ætluðu að
senda til Indlandshafs áttu að vera
fjórar freigátur, en flotinn getur sem sé
ekki misst þær vegna þorskastriðsins
Einnig átti kjarnorkukafbátur að vera i
flotadeildinni auk flaggskipsins, eld-
flaugnatundurspillisins Devonshire,
sem er 6.200 lestir
Það sem veldur Bretum áhyggjum
vegna þess að þeir verða að hætta við
að senda flotadeildina á þessar slóðir
eins og venja hefur verið er gert ráð
fyrir að innan skamms muni fyrsta
flugvélamóðurskip Rússa, Kiev.
45.000 lestir, sigla út úr Svartahafi og
áreiðanlega halda rakleiðis til Indlands-
hafs Að sögn Daily Telegraph hlýtur
nærvera þessa stóra og kröftuga her-
skips að hafa mikil pólitísk áhrif i
löndunum við Indlandshaf, einkum í
Mozambique
Auk þeirra brezku herskipa sem hafa
verið níu mánuði ársins á Indlandshafi
hafa einu vestrænu herskipin á þessum
slóðum yfirleitt verið tveir bandariskir
tundurspillar og móðurskip sem hafa
bækistöðvar sinar við Persaflóa
Bandaríski flotinn á fullt i fangi með að
vega upp á móti áhrifum af nærveru
Kievs bæði af hernaðarlegum og póli-
tískum ástæðum Smíði herstöðvar á
brezku eynni Diego Garcia er enn ekki
lokið og því verða bandarískar flota-
deildir á Indlandshafi að fá allar vistir
og þjónustu i mörg þúsund kílómetra
fjarlægð í flotastöðvum við Kyrrahaf
Venjan hefur verið sú þegar banda-
risk flugvélamóðurskip hafa birzt á Ind-
landshafi að hávær mótmæli hafa verið
höfð í frammi í ýmsum löndum, eink-
um Indlandi, þar serri því er haldið
fram að slikar ráðstafanir auki spennu
Rússar hafa að staðaldri flotadeild á
Indlandshafi en hún verður ekki fyrir
slíkri gagnrýni þar sem Indverjar eru
mjög háðir vopnasendingum frá Sovét-
ríkjunum
„Þetta eru okkar
ítrustu tillögur”
— segir Helgi Seljan