Morgunblaðið - 10.04.1976, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. APRlL 1976
7
Verðmæta-
öflun og eyðsla
Það er staðreynd. sem'
enginn mælir i móti. að
þjóðin hefur um nokkurt
árabil eytt sem heild veru-
legum fjármunum umfram
það sem hún aflar með
verðmætasköpun í
landinu. Ytri og óvið-
ráðanlegar aðstæður hafa
þar nokkru um ráðið. þ.e.
lækkað verð útflutnings-
f ramleiðslu okkar á erlend
um mörkuðum og hækkað
verð innfluttra nauðsynja.
sem skert hafa kaupmátt
útf lutningstekna okkar
mjög verulega. Þetta
hefur leitt til versnandi
gjaldeyris og greiðslu-
stöðu út á við og veru-
legar skuldasöfnunar er-
lendis. Greiðslubyrði
okkar er talin verða á
þessu ári 18% af þjóðar-
framleiðslu og fara upp I
27% á árinu 1979, sem
þýðir. að rúmlega fjórða
hver króna af ráðstöfunar-
fé okkar það ár fer F
greiðslur afborgana og
vaxta. Þetta er Fskyggileg
þróun, sem við þó verðum
að horfast í augu v'.’á.
I þessu efni verður
rlkisvaldið að ganga á
undan með góðu eftir-
dæmi þ.e. hallalausum
ríkisbúskap. Þegar hefur
verið gripið til marg-
háttaðra aðhaldsaðgerða.
bæði til sparnaðar I rFkis-
búskapnum og til að ná
jafnvægi F efnahags-
málum okkar. En betur
má ef duga skal.
Síðustu fjárlög
vinstri stjórnar
Síðustu fjárlög vinstri
stjórnarinnar vóru fyrir
árið 1974. Niðurstöður
þeirra fjárlaga vóru um
það bil 29'/2 milljarður. En
þegar upp var staðið og
rikisreikningur ársins lá
fyrir reyndust heildarút-
gjöldin rúmlega 41
milljarður. Nýlega vóru
þvF lögð fyrir Alþingi fjár-
aukalög fyrir árið 1974 að
upphæð 11% milljarður.
Efalitið hefur verið erfitt
að sporna gegn þessari
umf rameyðslu. en engu
að sFður er hér um að
ræða sýnishorn af þróun-
inni ! heild og skorti á
nauðsynlegri aðhaldssemi
á þrengingartimum i efna-
hagsmálum þjóðarinnar.
Hér er og um að ræða
dæmigert sýnishorn af
þeirri arfleifð, sem
núverandi rikisstjórn tók
við og setur enn, þvi
miður, svip sinn á flesta
þætti efnahagsmála
okkar.
Hallalaus rikisbúskapur
er ein meginforsenda heil-
brigðrar fjármálastjórnun-
ar. Þær aðhaldsaðgerðir,
sem nú hefur verið gripið
til, vóru þvi óhjákvæmi-
legar, og tvimælalaust
þarf enn að herða á að-
haldi og sparnaði i rikis-
rekstri og ríkisfram-
kvæmdum. Þær einar
framkvæmdir, sem fljót-
lega skila arði og eru
verulega gjaldeyris-
sparandi, eins og t.d. á
sviði jarðvarma- og raf-
orkumála. eru réttlætan-
legar við rikjandi að-
stæður i efnahagsmálum
okkar; öðrum fram-
kvæmdum, sem þola bið.
ber að slá á frest.
Tekju- og
sparnaðarþörf
ríkissjóðs
Því miður er nú einsýnt
að verðbólgan vex hraðar
á yfirstandandi ári en
búizt var við — og raun
varð á sfðustu mánuðum
liðins árs. Þessi verð-
bólguvöxtur hefur að
sjálfsögðu áhrif á útgjöld
ríkissjóðs, ekki sfður en
heimilanna í landinu. Þar
við bætist að áframhald-
andi landhelgisstríð hlýtur
að kosta verulega um-
framfjármuni fjárlaga
áætlunar. Nýir samningar
við BSRB og ASÍ hafa og
sín áhrif. Þá hafa ýmsar
stofnanir ríkis og sveitar-
félaga verið gjaldskrár-
sveltar um árabil, sem
hlaut að enda i verulegri
hækkun á þjónustu
þeirra. Allt þetta leiðir
Ifkur að þvf, að rfkissjóður
verði, með einum eða
öðrum hætti að bera niður
með viðbótarskattheimtu
eða niðurskurði á útgjöld-
um til að mæta nýjum út-
gjöldum. Hvern veg
sú skattheimta eða niður-
skurður mælist fyrir skal
hér ósagt látið. En hitt
skal fullyrt, að þeim mun
meiri skilningi mætir hún
sem landsherrar sýna f
leiðinni rfkari viðleitni til
sparnaðar í rfkiskerfinu,
bæði f rekstri og frestun
framkvæmda, sem þola
bið unz betur árar.
Efnahagsmálin hafa,
þrátt fyrir stærð vandans,
sem þar er við að etja,
fallið nokkuð f skugga
annarra viðfangsefna, En
þvf verður naumast slegið
öllu lengur á frest að gera
þjóðinni í einlægni og al
vöru grein fyrir stöðu
þeirra og eðli sem og til-
gangi óhjákvæmilegra
viðbragða af hálfu rfkis-
valds og alls almennings.
íílfðður
Mm ílt Cí
ft a uiuiuuu Fjólublár, sem er lilur iðrunar
1 r 5 og vfirbótar, er einkennislitur
föstunnar.
Pálmasunnudagur
Dymbilvika. Guðspjall
dagsins er f Lúk. 19.
29.—40. Innreið Krisls f
Jerúsalem
DÓMKIRKJAN Fermingar-
messa kl. 11 árd. Séra Þórir
Stephensen. Fermingarmessa
kl. 2 sfðd. Séra Óskar J. Þor-
láksson dómprófastur. Barna-
samkoma kl. 10.30 í Vestur-
bæjarskólanum við Öldugötu
Hrefna Tynes.
ÁSPRESTAKALL Ferming í
LaugaAeskirkju kl. 2 siðd.
Séra Grímur Grímsson.
NESKIRKJA Barnasamkoma
kl. 10.30 Séra Guðmundur
Óskar Ólafsson. Fermingar-
messur kl. 11 árd. og kl. 2 síðd.
Sóknarprestarnir. Kvöldguð-
þjónusta fellur niður að þessu
sinni. Séra Guðmundur Óskar
Ólafsson.
FRlKIRKJAN í Reykjavík
Barnasamkoma kl. 10.30. Guðni
Gunnarsson. Messa kl. 2 sfðd.
Séra Þorsteinn Björnsson.
FlLADELFlUKIRKJAN
Almenn guðþjónusta kl. 8 síðd.
Einar J. Gíslason.
HATEIGSKIRKJA Fermingar-
guðþjónusta kl. 11 árd. Séra
Jón Þorvarðsson. Messa kl. 2
sfðd. Ferming. Séra Arngrimur
Jónsson.
ARBÆJARPRESTAKALL
Fermingarguðþjónustur i Ár-
bæjarkirkju kl. 10.30 árd. og kl.
1.30 síðd. Altarisganga. —
Banrasamkoma fellur niður.
Séra Guðmundur Þorsteinsson.
BUSTAÐAKIRKJA
Fermingarguðþjónustur kl.
10.30 árd. og kl. 1.30 siðd. Séra
Ólafur Skúlason.
DÓMKIRKJA KRISTS
konungs Land'ákoti. Lágmessa
kl. 8.30 árd. Hámessa kl. 10.30
árd. Lágmessa kl. 2 síðd.
HALLGRlMSKIRKJA Messa
kl. 11 árd. Séra Ragnar Fjalar
Lárusson. Fjölskyldumessa kl.
2 síðd. Séra Kárl Sigurbjörns-
son. Messa kl. 3.30 í umsjá séra
Jóns Dalbús Hróbjartssonar
skólaprests. Altarisganga.
BREIÐHOLTSPRESTAKALL
Sunnudagaskóli kl. 10.30 árd.
Messa kl. 2 síðd. i Breiðholts-
skóla. Séra Lárus Halldórsson.
ELLI- OG HJÚKRUNAR-
HEIMILIÐ GRUND
Guðþjónusta kl. 2 síðd. Séra
Þorgrímur V. Sigurðsson
messar. Fél. fyrrv. sóknar-
presta.
FELLA- OG HÓLASÓKN
Barnasamkoma i Fellaskóla kl.
11 árd. Fermingarguðþjónusta i
Bústaðakirkju kl. 4 síðd. Séra
Hreinn Hjartarson.
SELTJARNARNESSÓKN
Barnasamkoma kl. 10.30 árd. i
Félagsheimilinu. Séra Frank
M. Halldórsson.
LANGHOLTSPRESTAKALL
Fermingarguðþjónusta kl.
10.30 árd. Séra Sigurður
Haukur Guðjónsson. Ferming-
arguðþjónusta kl. 1.30 síðd.
Séra Árelíus Nielsson. Altaris-
ganga á skírdag kl. 8.30 siðd.
Sóknarnefndin.
HJALPRÆÐISHERINN
Helgunarsamkoma kl. 11 árd.
Sunnudagaskóli kl. 2 síðd.
Hjálpræðissamkoma kl. 8.30
síðd.vKapt. Daniel Óskarsson.
AÐVENTKIRKJAN Reykjavík.
Guðþjónusta kl. 5 síðd. Sig-
urður Bjarnason prédikar.
FÆR. SJÓM ANN AIIEIMILID
Síðdegissamkoma kl. 5. Johan
Olsen.
LAUGARNESKIRKJA M essa
kl. 10.30 árd. Ferming. Altaris-
ganga. Séra Garðar Svavarsson.
GRENSASKIRKJA F ermingar-
messur kl. 10.30 árd. og kl. 2
síðd. Séra Halldór S. Gröndal.
DIGRANESPRESTAKALL
Barnasamkoma i Vighólaskóla
kl. 11 árd. Guðþjónusta í Kópa-
vogskirkju kl. 10.30 árd.
Ferming. Séra Þorbergur
Kristjánsson.
KARSNESLPRESTAKALL
Barnasamkoma i Kársnesskóla
kl. 11 árd. Fermingarguð-
þjónusta í Kópavogskirkju kl. 2
síðd. Séra Árni Pálsson.
lAgafellskirkja
Fermingarguðþjónustur kl. 11
árd og kl. 2 siðd. Séra Bjarni
Sigurðsson.
GARÐAKIRKJA Barnasam-
koma i skólasalnum kl. 11 árd.
— Guðþjónusta kl. 2 síðd.
Ferming. Séra Bragi Friðriks-
son.
IIAFNARFJ ARÐARKIRKJ A,
Fermingarguðþjónustur kl.
10.30 árd. og kl. 2 síðd. Séra
Garðar Þorsteinsson.
FRtKIRKJAN i Hafnarfirði.
Guðþjónusta kl. 2 síðd.
Ferming. Altarisganga. Safn-
aðarprestur.
kalfatjarnarsókn
Barnasamkoma í Glaðhcimum
kl. 2 síðd. Séra Bragi Friðriks-
son.
NJARÐVlKURPRESTAKALL
Sunnudagaskóli í Innri-
Njarðvíkurkirkju kl. 11 árd og í
Stapa kl. 1.30 síðd.
GRINDAVlKURKIRKJA
Barnaguðþjónusta kl. 11 árd.
Sóknarprestur.
STOKKSEYRARKIRKJA
Barnaguðþjónusta kl. 10.30 árd.
Sóknarprestur.
HVERAGERÐISPRESTA-
KALL Messa i Hveragerðis-
kirkju kl. 2 síðd. Ferming,
altarisganga. Barnamessa kl. 11
árd. Sóknarprestur
AKR ANESKIRKJ A
Fermingarguðþjónustur kl.
10.30 árd. og kl. 2 siðd. Séra
Björn Jónsson
SAURBÆJARKIRKJA Kjalar-
nesi. Messa kl. 2 siðd. Séra
Einar Sigurbjörnsson.
BERGÞÓRSHVOLSPRESTA-
KALL Messa í Akureyjakirkju
kl. 2. Barnaspurningar eftir
messu. Sr. Páll Pálsson.
Skóbær
Laggavegi 49
simi 22755.
nefnist erindi Sigurðar
Bjarnasonar í Aðvent-
kirkjunni sunnudaginn
11. apríl kl. 5.
Verið velkomin.
Fermingarskór
litur svart
verð 4.300.—
Póstsendum.
Hvers vegna
margskipt
kristni?
Tölvuúrið
komið
r
Urið sýnir:
stundir, mín, sek,
mánuð, mánaðardag,
vikudag, vatns- og
höggvarið
1. árs ábyrgð
Úr og skartgripir
JónogÓskar
Laugavegi 70
simi 24910
sendum í póstkröfu.
Fermingarúr Model 1976
Pierpont, Jaquet-Droz, Certina
Camy, Atlandic, Farve-Leuba
Allar
nýjustu
gerðirnar
af dömu og
herraúrum.
Vatnsvarin,
höggvarin og
óslítanleg fjöður.
Verð, gæði og útlit fyrir alla.
Úr og skartgripir
Jón og Óskar Laugavegi 70
Sími 24910 — Sendum í póstkröfu.
ARNARFLUG HF
Stjórn Arnarflugs hf. boðar til
framhaldsstofnfundar laugardaginn 10. apríl
kl. 2 í Þjóðleikhússkjallaranum.
Tilefni fundarins er að ganga endanlega
frá stofnun félagsins.
Stjórn Arnarflugs hf.