Morgunblaðið - 10.04.1976, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. APRIL 1976
15
Aldarafmæli
Are Waerlands
Hinn 10. april 1976 eru liðin
100 ár frá fæðingu Are
Waerlands, en hann var kunn-
asti brautryðjandi náttúru-
lækningastefnunnar á Norður-
löndum, og til Islands kom
hann á vegum Náttúru-
lækningafél. Islands sumarið
1947, fór um mestallt landið í
fylgd með Jónas Kristjánssyni
lækni og nokkrum samstarfs-
mönnum hans, flutti 25 fyrir-
lestra á íslensku og erindi í
útvarp. Félagið hefir gefið út
margar bóka hans, þar á meðal I
Sannleikann um hvlta svkur-
inn og Matur og megin, sem |
seldist upp í þremur útgáfum.
Waerland las heimspeki við
háskólann í Uppsölum en
missti heiisuna og tók að brjóta
heilann um heilbrigði og or-
sakir sjúkdóma. Hann lagði leið
sína til Englands og lagði stund
á læknisfræði og heilsufræði,
m.a. við háskóla í London, Skot-
landi og Paris. Hann gerði
tilraunir á sjálfum sér og
öðrum með mismunandi matar-
æði og byggði smámsaman upp
mataræðis- og heilsuræktar-
kerfi, sem hann byrjaði þó ekki
að kynna opinberlega fyrr en
hann hafði prófað það á
sjálfum sér i ein 10 ár. Hann fór
þá að skrifa bækur og flytja
Are Waerland
fyrirlestra um öll Norðurlönd-
in, í Englandi og siðustu árin
aðallega í Þýskalandi. 1 Sviþjóð
stofnaði hann félag og hóf út-
gáfu tímarits, og nú hafa aðrir
Framhald á bls. 22
Vandamál um-
hverfismengunar
Fyrirlestur
þekkts
vísindamanns
Roger Henri Charlier, prófessor
í haffræði við Northeastern Illi-
nois háskóla i Chicago, heldur fyr-
irlestur mánudaginn 12. april, kl.
20.30 i bókasafni Menningarstofn-
unar Bandaríkjanna, Neshaga 16.
Fyrirlestur próf. Charliers fjall-
ar um vandamál umhverfismeng-
unar, skaða, sem þegar er orðinn,
vöxt og „þróun" annars vegar og
vernd umhverfis og eigin framtíð-
arviðhorf hins vegar.
Próf. Charlier kemur hér við á
heimleið frá Bordeaux i Frakk-
landi, en þar var hann sendikenn-
ari. Hann var hér síðast 1972 á
ráðstefnunni „Hafið og nýting
auðlinda þess“. Hann hefur ritað
margar vísindagreinar um auð-
lindir hafsins og umhverfismál,
og einnig hefur hann tekið þátt i
visindaráðstefnum í Bandaríkjun-
um, Japan og Evrópu. Próf. Char-
lier átti sæti á tveimur „Pacem in
Maribus" viðræðum, og hefur ver-
ið heiðraður í Bandaríkjunum,
Frakklandi og Belgfu. Einnig er
hann ráðgjafi i ferðamálasamtök-
um SÞ og framkvæmdastjóri í
Rannsóknastofnun þróunar í ám
og vötnum.
Stykkishólms-
búar í leikhúsi
Stykkishólmi, 6. aprfl.
LEIKFÉLAGIÐ Grímnir í
Stykkishólmi hefir undanfarið
sýnt leikritið Pétur og Rúnu eftir
Birgi Sigurðsson í Stykkishólmi
og viðar. Fimmta og seinasta
sýning þess i Stykkishólmi var i
Nýja félagsheimilinu s.l. sunnu-
dagskvöld.
Þann sama dag frumsýndi leik-
félagið barnaleikritið DREKANN
HÁSA, eftir Benny Andersen.
Leikstjórn annaðist Signý Páls-
dóttir. Voru tvær sýningar á leik-
ritinu á sunnudag, báðar fyrir
fullu húsi og við ágætar viðtökur.
Lætur nærri að 40% bæjarbúa
hafi sótt leikhús þennan dag.
Farið verður i leikför með bæði
leikritin á næstunni og verður
sýning á laugardag, 10. april að
Logalandi í Reykholtsdal. Barna-
ieikritið kl. 4 en hitt kl. 9.
A sunnudag verður svo sýning á
barnaleikritinu i Grundarfirði.
bingó
Glæsilegt páskabingó í
Sigtúni klukkan 3, á
sunnudag
Meðal vinninga eru utanlandsferðir, glæsilegar
matarkörfur, vönduð dömu og herraúr,
heimilistæki og fleira.
Styrktarfélag Í.A.
Reykjavík.
Námskeið i
hestamennsku
um páskana
UM páskahelgina hefur Reió-
skólinn i Vestra-Geldingaholti
í Gnúpverjahreppi starfsemi
sina á þessu ári. Eins og kunn-
ugt er hafa hjónin Rosemarie
Þorleifsdóttir og Sigfús Guð-
mundsson á undanförnum á£
um rekið reiðskóla á heimili
sínu, Vestra-Geldingaholti, og
hefur aðsókn að skólanum
jafnan verið góð.
Um páskana verða þau hjón-
in með vikunámskeið og hefst
það n.k. þriðjudag, 13. apríl.
Sumarnámskeið skólans hefj-
ast síðan 26. mai n.k. og eru
þau tvískipt annars vegar eru
byrjendanámskeið, sem standa
í 12 daga, og framhaldsnám-
skeið, sem standa i 7 daga.
Námskeið þessi eru bæði fyr-
ir fullorðna og börn en lág-
marksaldur er 12 ár. A það
skal bent, að þeir unglingar,
sem eiga hesta og vilja hafa þá
með sér, geta fengið að koma
með þá á sumarnámskeiðin.
Það er ferðaskrifstofan Urval i
Reykjavik, sem annast bókanir
fyrir reiðskólann og veitir hún
einnig allar nánari upplýs-
ingar.
Diskótek
Kynnt verður hljómsveitin GULLKORN
HVOLL
Sætaferðir frá B.S.f Selfossi.
Þorlákshöfn og Hveragerði
AUGI.ÝSINGASÍMINN ER:
22480
JH«r0unfiIatiih
Figaró-ný rakara-
stofa í Reykjavík
Fyrir skömmu var opnuð í
Reykjavík ný rakarastofa i Iðnað-
Hvöt með
kökubasar
A sunnudag kl. 2 efnir sjálf-
stæðiskvennafélagið Hvöt til
kökubasars á Hallveigarstöðum.
Hafa félagskonur bakað mikið af
góðum kökum, sem seldar verða
til ágóða fyrir starfsemina.
armannahúsinu við Ingólfsstræti.
Heitir hún rakarastofan Figaró og
er eigandi hennar Gunnar Guð-
jónsson en hann átti áður að hálfu
rakarastofuna á Klapparstíg. Þá
var Gunnar einn fimm fulltrúa
Islands sem fóru á Norðurlanda-
mót til Noregs sl. haust og kepptu
i hárskurði.
Á þessari nýju rakarastofu eru
þrír stólar og jafnt klippt hár
kvenna og karla.
A meðfylgjandi mynd eru t.f.v.
Diana Þórðardóttir, eiginkona
Gunnars, Gunnar Guðjónsson,
eigandi rakarastofunnar, Dóró-
thea Magnúsdóttir og Guðjón Þór
Guðjónsson, starfsfólk á stofunni.
Söngskemmtun
í Stykkishólmi
Stykkishólmi 6. apríl
Karlakór Stykkishólms
heldur söngskemmtun í
Félagsheimilinu í Stykkis-
hólmi, sunnudaginn 11.
apríl n.k. kl. 17. Á söng-
skránni eru lög eftir bæði
innlenda og erlenda höf-
unda. Einsöngvarar verða
Bjarni Lárentsínusson og
séra Hjalti Guðmundsson,
sem einnig er stjórnandi
kórssin. Kórinn hefir æft
vel í vetur og hefir á að
skipa áhugasömum félög-
um og eru þeir nú 24,
Opiö til 2.
Gaukar
leika í
kvöld.
Allar veitingar
Fjörið verður
á hótelinu
í kvöld