Morgunblaðið - 10.04.1976, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. APRIL 197tí
Minning:
Indriði Helgason
rafvirkjameistari
1 dag er til moldar borinn frá
Akureyrarkirkju öldungurinn og
höfðingsmaðurinn Indriði Helga-
son rafvirkjameistari. Hann lézt
25. f.m. háaldraður. Hann fæddist
í Skögargerði í Fellum 7. okt. 1882
og var því á 94. aldursári, er hann
lézt eftir skamma sjúkdómslegu.
Foreldrar hans voru Helgi Ind-
riðason, bóndi í Skógargerði, og
kona hans Ölöf Margrét Helga-
dóttir. Stóðu ættir hans mest um
Austurland, en þó átti hann
einnig til skaftfellskra og
eyfirzkra ætta að rekja. Meðal
ættingja hans var margt merkra
manna og má meðal þeirra telja
Gunnar Gunnarsson rithöfund og
Pál skáld Olafsson. En að öðru
leyti er ekki á minu færi að rekja
ættir Indriða.
Indriði ólst upp í heimahúsum
fram yfir tvítugt, en hleypti þá
heimadraganum og fór til náms i
Eiðaskóla 1904. Lét hann þar ekki
staðar numið og fór til náms í
lýðháskólanum i Askov í Dan-
mörku þar sem margir merkir
Islendingar hafa stundað nám.
Nam hann þar árin 1906 til 1908,
en að því loknu hóf hann í Dan-
mörku rafvirkjanám og nám í raf-
magnsiðnaði. Lauk hann þeim
prófum 1911 og mun vera fyrsti
Islendingur, sem stundaði nám i
rafmagnsiðnaði.
Aldraður vinur Indriða hefir
tjáð mér, að þegar fyrirhugað var
að virkja Fjarðará i Seyðisfirði
hafi hann verið hvattur til að
koma þangað til að annast raf-
lagnir þar. En sem kunnugt er var
virkjun Fjarðarár á sinum tima
önnur mesta vatnsaflsvirkjun hér
á landi, næst virkjuninni I
Hafnarfirði. Þýzkt fyrirtæki
annaðist framkvæmdir undir um-
sjón Guðmundar Hliðdals verk-
fræðings. Var virkjunin tekin í
notkun síðla árs 1913, og var þá
hátið mikil haldin og ort ljóð i
þakkarskyni til allra þeirra, sem
að því stóðu að raflýsa byggðina í
Seyðisfirði og var Indriða Helga-
syni ekki gleymt i því ljóði. Hann
hafði ásamt dönskum félaga
sínum, Nielsen að nafni, unnið
með öðrum merkiiegt braut-
ryðjandastarf. Vann Indriði síðan
að iðn sinni á Seyðisfirði og
nágrannabyggðum, m.a. á Eski-
firði, fram til ársins 1922. Þessi
aldni vinur hans hefir og tjáð mér
að á þessum árum hafi Indriði
tekið mikinn þátt í félags-
og skemmtanalífinu á Seyðisfirði
Konan mín
SIGURBJÖRG HELGADÓTTIR,
Mávahlíð 44,
verður jarðsungin fráFossvogskirkju, mánudaginn 1 2 apríl kl 3
Fyrir hönd aðstandenda
Jóhannes Ormsson.
+
Þökkum mnilega auðsýnda samúð vegna andláts og útfarar föður,
tengdaföður og afa,
KARLS MORTENSEN,
Ennisbraut 10,
Ólafsvfk.
Kay Mortensen
Friðjólf Mortensen, Kristín Guðmundsdóttir,
Paul Mortensen, Solveig Aðalsteinsdóttir,
Edda Mortensen, Magnús Guðmundsson
og barnaborn
+
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýnt hafa samúð og
vinarhug við fráfall
SIGURÞÓRS J SIGFÚSSONAR,
Sérstakar þakkir til lækna, hjúkrunar og starfsfólks St Jósepsspítala i
Hafnarfirði
Fyrir hönd ættingja
Guðrún Sigfúsdóttir.
+
Hugheilar þakkir til allra þeirra, sem auðsýndu samúð og vinarhug við
andlát og útför
HELGA PÁLSSONAR,
Ey, Vestur Landeyjum.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför
móður okkar
KRISTÍNAR ÞÓRÐARDÓTTUR.
frá Súðavík,
- Kristjana Einarsdóttir,
Þórunn Einarsdóttir,
GuSrún Einarsdóttir.
+
Þökkum innilega veitta samúð við fráfall og jarðarför
KRISTINS GUÐMUNDSSONAR,
Mosfelli
Sérstaklega þökkum vér rausnarskap sveitarstjórnar Mosfellshrepps,
Búnaðarfélags Mosfellshrepps og Búnaðarsambands Kjalarnesþings
Halldóra Jóhannesdóttir,
Sverrir Kristinsson, Sigriður Blöndat
og börn.
Helga Þórðardóttir, Magnús Benediktsson.
og ætíð verið hrókur alls fagnaðar
og varpaði þá oft fram vísum,
enda var hann hagmæltur vel,
eins og hann átti kyn til, en því
miður mun hann ekki hafa haldið
kveðskap sínum til haga. Indriði
var spilamaður góður hafði
gaman af að spila lomber og
bridge og átti marga góða spila-
félaga fram eftir öllum aldri.
Arið 1922 fluttist Indriði til
Akureyrar ásamt konu sinni, sem
hann hafði kvænzt sama ár. Þar
stofnaði hann fyrirtækið Electro
Co. og jafnframt rafvirkjastörfum
rak hann ágæta og alhliða raf-
tækjaverzlun.
Indriði sýndi frá upphafi
mikinn áhuga á rafmorkumálum
Akureyringa og Norðurlands í
heild. Arið 1938 var hann kjörinn
í bæjarstjórn og jafnframt i
stjórn Rafveitu Akureyrar og í
stjórn Laxárvirkjunar 1950 til
1965 og sýnir það vel traustið sem
til hans var borið. Var hann hinn
mesti grjótpáll i raforkumálum
Akureyringa og Norðlendinga yf-
irleitt og ber öllum kunnugum
mönnum saman um, að i þeim
málum var ekki völ á betri og
ötulli liðsmanni. Hyggindi hans,
gáfur og þekking nutu sín nánast
hvergi betur en á þeim starfs-
vettvangi.
1 bæjarstjórn sat Indriði til
1950. Hann var og sjálfkjörinn til
forustu meðal stéttarbræðra
sinna og var um skeið formaður
Iðnaðarmannafélags Akureyrar
svo og Iðnaðarráðs, auk þess sem
hann sat mörg Iðnþing. Hann var
sæmdur gullmerki Landssam-
bands iðnaðarmanna og kjörinn
heiðursfélagi Iónaðarmanna-
félags Akureyrar og Landssam-
bands iðnaðarmanna.
Mér, er þetta rita, er ekki
kunnugt um önnur félagsmála- og
trúnaðarstörf er á Indriða Helga-
son hlóðust, þótt ég efi ekki, að á
það hafi verið sótt, enda var hann
hlédrægur maður og vildi
áreiðanlega ekki takast á herðar
meiri störf af því tagi en hann
taldi sig geta sinnt af alúð og
einbeitni. Hann var þó félagi i
Oddfellowreglunni og er ekki að
efa, að hann hafi reynst þar sem
annars staðar hinn bezti iiðs-
maður.
Sama ár og Indriði Helgason
’ fluttist til Akureyrar gekk hann
sem fyrr segir að eiga eftirlifandi
konu sina Laufeyju Jóhanns-
dóttur, verzlunarmanns á Seyðis-
firði, Sigurðssonar og konu hans
Margrétar Björnsdóttur. Reistu
þau sér þvílíkt heimili á Akureyri
að engum mun gleymast, er því
kynntist. Einhver mesta gæfa lífs
míns var að búa á þessu heimili
fimm vetur af sex, er ég stundaði
nám við Menntaskóiann á Akur-
eyri. Var mér boóið þar skjól er
illa horfði um framhald skólaveru
minnar nyrðra vegna mikilla hús-
næðisvandræða 1940, er Bretar
höfðu hernumið Island. Það var
gott uppeldi að dvelja á því ágæta
heimili. Húsmóðirin stýrði
heimili sínu af mildi, en þó hæfi-
legum aga, ekki ströngum,
sivinnandi og alandi önn fyrir
bónda sínum og börnum, en vann
þó ætfð þannig að manni fannst
henni starfið létt, Það var þó
áreiðanlega ekki. Oft harma ég
með sjálfum mér að hafa ekki rétt
henni hjálparhönd.
Eindrægni á heimilinu var sér-
stök og ekki minnist ég þess, að
íriðurinn rofnaði nokkru sinni.
Matmálstímar voru menningar-
stundir. Húsfreyjan bar vel á
borð, og af stakri smekkvisi,
heimilisfólið gaf sér góðan tíma
og undir borðum var margt rætt,
Húsbóndinn var ekki margmáll,
en allir biðu þess með eftir-
væntingu sem hann hafði til
málanna að leggja. Ekki var um
harða dóma um menn og málefni
að ræða, heldur hollráð, sem ung-
um var hollt að hlíta.
Mér er minnisstætt, að eitt sinn
þótti Indriða, fóstra mínum, ég
brjóta skólaaga. Kom hann þá inn
til min og hafði fá orð um, en þó
slík, að ég reyndi slíkt ekki aftur.
Slikum mönnum er hollt að
kynnast og tel ég hann einhvern
bezta mann, óskyldan, og þau
hjón bæði, sem ég hefi nokkru
sinni kynnst.
Indriði Helgason var maður
glaðlyndur, en þó afar hæglátur
og sá ég hann aldrei skipta skapi,
þótt ég efi ekki, að hann hafi
verið skapmikill og fylginn sér,
svo sem sjá má af öllum störfum
hans. Hann rak umfangsmikið
fyrirtæki, hafði marga menn í
vinnu og tók lærlinga til náms og
kom þeim til þroska. Ævinlega
virtist hann hafa nægan tíma,
aldrei sá ég hann flýta sér, en
afköst hans voru mikil og góð
reiða á öllu hans starfi.
Utan erilssamra starfa undi
Indriði sér bezt við lestur góðra
bóka. Hann átti allmikið bókasafn
og vandað. Var þar mest um að
ræða þjóðlegan fróðleik. Indriði
fór höndum um bækur sem
sannur bókavinur.
Þeim hjónum Indriða og Lauf-
eyju varð fjögurra barna auðið.
Þau eru Margrét, fréttastjóri
hljóðvarps, gift Thór Vilhjálms-
syni rithöfundi, Helgi rafvirkja-
meistari á Dalvik, kvæntur Gunn-
hildi Jðnsdóttur, Jóhann raf-
magnsverkfræðingur í Reykjavík,
kvæntur Helgu Jónasdóttur og
Ólafur flugstjóri, kvæntur Nínu
Guðjónsdóttur.
Indriði Helgason var fremur
lágur vexti og feitlaginn, allra
manna fríðastur og göfug-
mannlegastur að ásjónu og sómdi
sér hvarvetna vel. Eins og fyrr
segir var hann hæglátur, en
fylginn sér, vitur maður og góð-
gjarn og efa ég mjög, að hann hafi
átt sér nokkurn óvildarmann.
Hann átti góðri heilsu að fagna til
hinztu stundar, þótt elli kerling
setti á hann sitt mark að lokum,
svo aldraður sem hann varð.
Þrátt fyrir háan aldur Indriða
Helgasonar dyl ég ekki söknuð
minn nú, er ég á þess ekki framar
kost að heilsa upp á hann, er ég
kem til Akureyrar. Enn er orðir.n
sjónarsviptir á þeim slóðum.
Með þakklátum huga og djúpri
virðingu kveð ég Indriða Helga-
son og bið Laufeyju konu hans,
börnum og tengdabörnum og
barnabörnum Guðs blessunar.
Ingimar Einarsson.
Hinn 25. f.m. andaðist á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur-
eyri í hárri elli Indriði Helgason
rafvirkjameistari og fv. bæjar-
fulltrúi. Með Indriða er genginn
einn af hinum síðustu fulltrúum
hinnar gömlu kynslóðar Akureyr-
inga, manna sem um langan tíma
settu sérstakan svip á bæjarlífið á
Akureyri og áttu svo mikilvægan
þátt í vexti og viðgangi Akureyr-
ar. Fullrúum þeirrar kynslóðar
fækkar nú óðum og er að þeim
mikil eftirsjá.
Indiriði var fæddur 7. okt. 1882
í Skógargerði f Fellum í N-
Múlasýslu. Mig skortir þvi miður
kunnugleika á að geta hér í
þessari stuttu minningargrein
rakið ættir Indriða eða frásögn af
æsku hans. Væntanlega verður
slíkt gert af öðrum sem betur
þekkja þar til. Indriði stundaði
rafvirkjanám í Danmörku á árun-
um 1908—1911 og mun hafa verið
einn af fyrstu Islendingum sem
lagði þá iðngrein fyrir sig. Að
loknu námi mun hann eitthvað
hafa stundað iðn sína í Dan-
mörku, en fluttist fljótlega heim
til Islands'og settist að á Seyðis-
firði.
Um það leyti sem verið var að
byggja fyrstu rafstöð Akureyr-
inga eða nánar tiltekið árið 1922
fluttist Indriði hingað til Akur-
eyrar og hér varð starfsvett-
vangur hans siðan. Þegar Indriði
hóf störf við iðn sína á Akureyri,
stofnaði hann ásamt Rögnvaldi
heitnum Snorrasyni kaupm. fyrir-
tækið Elektro Co. Fyrsta stóra
verkefnið sem það fyrirtæki tók
að sér, var að annast allar hús-
lagnir i sambandi við hina nýju
rafveitu á Akureyri.. Það er hægt
að gera sér í hugarlund hve geysi-
miklum erfiðleikum slík fram-
kvæmd hefur verið bundin í þá
daga, þegar tekið er tillit til þess,
hve mikill skortur var þá á starfs-
liði sem hefði nauðsynlega
reynslu og þekkingu til að bera,
sem framkvæmd sliks verkefnis
þarfnaðist. En I þessum málum
sem öðrum sýndi Indriði dugnað
sinn, fyrirhyggju og stjórnsemi.
Tókst honum að skila þessu verki
af sér á þann veg, að meginverk-
inu var lokið þegar rafstöóin tók
til starfa. Mun Akureyringum
sjaldan hafa verið veittur meiri
eða betri jólaglaðningur en þegar
rafljós gátu í fyrsta sinn logað á
heimilum manna um jólin 1923.
Rögnvaldur Snorrason meðeig-
andi Indriða að fyrirtækinu
Elektro Co. andaðist á árinu 1923
og rak Indriði fyrirtækið einn
eftir fráfall hans.
Indriði var nýtur, velmenntur
og dugandi iðnaðarmaður. Hann
starfaði mikið í samtökum
iðnaðarmanna. Hann var um
skeið formaður Iðnráðs og
Iðnaðarmannafélags Akureyrar
og sat á fjölda Iðnþinga og var
sæmdur gullmerki Landssam-
bands iðnaðarmanna. Hann var
kjörinn heiðursfélagi Iðnaðar-
mannafélags Akureyrar 1955 og
Landssambands iðnaðarmanna
1964. Indriða var mjög umhugað
um aukna iðnfræðslu á Akureyri
og var alla tfð mikill stuðnings-
maður iðnskólans á Akureyri.
Indriði Helgason var mjög
áhugasamur um stjórnmál og kom
mikið við sögu þeirra mála á
Akureyri. Hann var um langan
tíma forystumaður sjálfstæðis-
manna í bænum. I stjórn útgáfu-
félags blaðs sjálfstæðismanna Is-
lendings, var hann um langt ára-
bil og mun hann ekki hafa farið
varhluta af kostnaðinum við út-
gáfu þessa málgagns flokksins.
En hann var óspar á tíma og fjár-
útlát I því sambandi. I bæjar-
stjórn Akureyrar átti Indriði setu
árin 1938—1950. Atti hann ávallt
sæti í hinum þýðingarmeiri
nefndum bæjarstjórnar svo sem
fjárhagsnefnd og rafveitustjórn
og þegar bæjarráð var í fyrsta
skipti sett á stofn á Akureyri eftir
kosningarnar 1946, var hann
sjálfkjörinn fulltrúi flokksins
þar. Indriði var mjög áhugasamur
um raforkumál bæjarins og aukn-
ingu þeirra. Hann átti ásamt
öðrum að sjálfsögðu sinn mikla og
gifturíka þátt í fyrstu virkjunum
Rafveitu Akureyrar í Laxá og
þegar Laxárvirkjunarstjórn var
sett á laggirnar, var hann sjálf-
sagður fulltrúi I þeirri stjórn. Ég
hygg að með sanni megi segja og á
engan sé hallað, þegar ég lýsi
þeirri skoðun minni að hinar
fyrstu farsællegu framkvæmdir í
Laxá hafi ekki hvað síst verið að
þakka hyggjuviti, ráðhollustu og
skilningsgóðri reynslu Indriða, og
svo þeirra ágætu félaga hans
Jakobs Frímannssonar, fv. kaup-
félagsstj. og bæjarfulltr., og
Steins Steinsen fv. bæjarstjóra.
Enda var það svo um langan tíma,
að I orkumálum Akureyringa
þótti engum málum vel ráðíð
nema fyrst væri leitað álits
Indriða og skoðana hans í sam-
bandi við hin margvíslegu verk-
efni og ákvarðanatöku sem snerti
orkuframkvæmdir á vegum Akur-
eyrarkaupstaðar og siðar Laxár-
virkjunar. Indriði var manna-
sættir í þess orðs þestu merk-
ingu og hafði einstakt lag á því að
samræma mismunandi sjónarmið
manna, þannig að endanlegar
ákvarðanir mættu koma að sem
bestum notum.
Sá sem þessar línur ritar telur
sig standa i mikilli þakkarskuld
við Indriða Helgason. Ur.dir leið-
sögn hans steig ég fyrstu sporin í
bæjarstjórn Akureyrar, er við
hófum þar samstarf árið 1946.
Leiðsögn Indriða var mér ómetan-
leg og því meira sem ég kynntist
honum þvi meira lærði ég að meta
hæfileika hans, gáfur og reynslu.
útlaraskreytingar
blómouol
Groóurhusið v/Sigtun simi 36770