Morgunblaðið - 15.04.1976, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 15.04.1976, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. APRlL 1976 47 Nota skal Morning Moisture undir. Liquid Fondation. Af vesturhorni landsins AFLEIT VEÐRÁTTA: Frá áramótum að telja hefir verið hið mesta vandræða tíðar- far ríkjandi, suðlæg átt, og hlaup- ið útí vestan aftök með hafróti, sem staðið hefir dögum saman, og veðurfræðingar ekki ráðið við neitt, sjór gengið á land upp, og ' brotið land og girðingar. Frost hefir verið iítið en mikið snjóað. Nokkrar þíður hafa komið, og orðið að mestu snjólaust í byggð, en þíðan hefir ekki náð nema i 200 m hæð og varla það, en flesta vetur nær hún í 400 m hæð hér vestra þegar best lætur. Einmitt það, hvað kalda loftið er skammt fyrir ofan kollana á okkur er séreinkenni þessa vetrar hér, sem þýðir, að allir fjallvegir eru alltaf ófærir vegna snjóa. Hingað að Látrum hefir ekki verið bílfært síðustu þrjá mánuð- ina utan 3—4 daga, þó með mokstri. En okkur hér vantar ekkert, svo það breytir engu. Öðru máli gegnlr með þá sem þurfa að koma mjólk á markað, á því eru miklir erfiðleikar. Verst hjá okkur er með póstinn frá og til, en hann kemst stundum á vél- sleða. RAFORKA: Frá áramótum höfum við haft raforku frá samveitu, sem hefir staðið sig vel að kalla, og kunnum við þeirri orku mjög vel að vonum, finnst það hreint allt annað líf, og notfærum okkur þá orku. Það sem helst skyggir á þá ánægju er það að sambýli síma og raforku í jörðu niðri virðist vera slæmt, svo við höfum ekki getað talað í síma með nokkru lagi sið- astliðinn einn og hálfan mánuð. Það hófst eftir þrumur og eld- ingar sem yfir gengu með miklum látum, hús skulfu, brestir og smá- hvellir hváðu við eins og skot- hvellir, að sögn bóndans á Sel- látranesi en þar gekk mest á. Einhverjir spennar fóru sem skipt var um, en síminn ekki komist i samt lag aftur, þrátt fyrir aðvinnslu sérfræðinga. LANGÞRÁÐ ÖRYGGISMAL 1 HÖFN: Þá má sist gleyma því, að nú fyrir skömmu fengum við síma- þjónustu við okkar byggðar- kjarna, Patreksfjörð, allan sólar- hringinn, sem er auk þægindanna stórkostlegt öryggismál, og um- fram allt öryggismál. Leyfi ég mér að færa öllum þeim sem að því og raforkumálunum unnu okkar bestu þakkir fyrir fram- kvæmdina. FIÐURFÉNAÐUR: Hrafnahjónin sem okkar bæ var úthlutað til vetursetu á hrafna- þingi síðastliðið haust, hafa tjáð sig vel og skemmtilega í vetur, sambýlið gott við sjö ketti og smá- fugla. Veturinn hefir verið þeim svörtu vel bærilegur, enginn bjargarskortur heldur en hjá mannfólkinu. En nú eru krumm- arnir farnir að huga að hreiður- gerð, sem kostar mikla fyrirhöfn og aðdrætti, en þeir eru samtaka við þetta, og bensínhækkunin hefir engin áhrif á þeirra flutn- inga. En fleiri fiðurfénaður er farinn að líta á varpstöðvarnar þótt allt Framhald á bls. 53 Ibnijdation 0canir"' ;er litað dtigkrem fyrir þtirra og normal húð Nota skal Morning Moisture undir Foundation cream ■[ómidation |jt|iiid ... i.. l. ■ * Útsölustaðir í Reykjavík: Karnabær. Austurstræti 22. Laugavegsapótek. Laugaveg 16, Bonný, Laugaveg 35, Topptúkan, Aðalstræti 9, Vesturbæjarapótek v/Melhaga, Laugarnesapótek v/Kirkjuteig Snyrtivöruverzlunin, Glæsibæ Árbæjarapótek v/ Hraunbæ Verzl. Efribær, Breiðholti. Snyrtistofa Gróu, Vesturgötu 39, Rammagerðin. Hótel Loftleiðum Akranes: Elvaf Borgarnes ísbjörninn Sauðárkrókur: Túngata 1, Akureyri: Vórusalan. Húsavík: Kaupfélag Þingeyinga. Egilsstaðir: Elís Guðnason, Eskifjórður: Elis Guðnason. Vestmannaeyjar: Mozart, Keflavik: Kyndill. Hafnarfjörður: Elin Selfoss: Snyrtistofan Þelm lega fléttuð. Þetta er ekki af eintómri meinfýsni: ég safna bara svona víravirki. Þessi setning hljóðaði svona: „Af því tilefni hafði Sadat Egyptalandsforseti samband við Súdanforseta og ... óskaði honum til hamingju með að koma í veg fyrir að byltingartil- raunin heppnaðist ekki.“ Okkur verður öllum á í messunni annað slagið og það er eins auðvelt að mis- tala sig í sjónvarp eins og að fremja afglöpin í prentuðu máli. Aftur á móti er ekki eins auðvelt að verja ítölsku endaleys- una sem sjónvarpið er búið að vera að kvelja okkur með núna í nokkra mánuði. Ég var í fermingarveislu um daginn, og þegar þessi ótrúlega framleiðsla barst í tal þá hnerraði öll veislan ofan í aspassúpuna. Robin- son Crusoe hefði fremur synt á haf út en að þurfa að horfa á þessi ósköp og jafn- vel i dýflissunni þykist ég vita að greifinn af Monte Christo hefði afþakkað svona trakteringar. Hvilík- ur vetur! ★ Sjónvarpstæki með út- brotum, hótanir í opinber- um auglýsingum sem jaðra við ógnanir um likams- meiðingar og þvílíkur sora- pyttur kraumandi hér í Reykjavík og útum öll nes í allan liðlangan vetur að engu er líkara en að maður sé að horfa á hrollvekju frá Hollywood þar sem skugga- legir, mjóslegnir menn með skammbyssur undir ríghnepptum frökkunum smjúga útúr illa þokkuðum búium og smeygja sér inni ljóslausa bíla sem hverfa útí myrkrið, því að nú á að sjá fyrir einhverjum. Síðan komu jarðskjálftarnir og síðan fengum við okkur verkfall eins og lög gera ráð fyrir og dummuðum síðan að vanda einn snún- ing til gamans i dýrtíðar- hringekjunni, og höfðum þá eignast hina „verulegu kauphækkun“ eins og það heitir þegar þeir rísa upp frá samningaborðinu — sem að vanda og eftir þessa venjulegu mótleiki reynd- ist allnokkuð minni en ekki neitt. Þegar hér er komið klóra menn sér venjulega í höfðinu og segja: „Æi!“ og í þetta skiptið mátti heyra þegar menn voru að klóra sér, svo hlessa var allur skar- inn. Ég man reyndar ekki eftir því að mótleikirnir hafi áðitr verið öllu harka- legri en núna, en það bætir samt eflaust úr skák að núna eru þeir í apparatinu líka mikið að tala um sparnað, já það vantar nú ekki. Af öðru masi er helst eft- ir að nefna símalið í bless- uðum rauðsokkunum sem verða bráðlega búnar að rausa af sér alla stuðnings- menn sína af báðum kynj- um, fari þær ekki bráðum að ljúka sér af. Maður hélt að kvennaárinu yrði lokið með kvennaári, en það er nú eitthvað annað. Það er einkum Þjóðviljadeild kvenfrelsishreyfingarinn- ar sem heldur merkinu á lofti núna, en meinið er bara það að niðurúr þessu merki dinglar nú þvílik benda af dyntum og smá- munasemi að fer óðum að nálgast ofsóknarbrjálæði. Þetta er ósköp raunalegt því að málstaðurinn er vit- anlega alls góðs maklegur. En nú er það tíðast (las ég mér til um daginn) að það telst vera fruntaleg árás á kvenþjóðina og alls ekki þolandi þegar rætt er um ,,kvennadeildir“ ýmiskon- Framhald á bls. 53 sem opnar % og hreinsar húðina £ er griman, sem lokar húð- inni aftur. Hið eina sinnar tegundar á öllum mark- aðnum. o 0 Vissir þú þetta? mH l|crkil \aþCIKl' er juriagufubaS, I daglegu lífi nútimakonunnar e missir húðin meiri raka vegna minni útiveru og þvi nauðsynlegt o að bæta rakamissinn upp með góðu næturkremi Night cream er mesti rakagjafinn frá Mary Quant Night cream er nánast i fitulaus rakagjafi og hentar þvi þurri og normal hú^ mjog vel Rakamjólkin nauðsynlega hVort sem heldur er notaður farði eður ei. Dagleg notkun heldur húðinni mjúkri og Ifflegri. Heildsölubirgöir Björn Pétursson & Co. hf., sími 28155 Varalitir & naglalökk Mary Quant naglalökkin hafa þann hentuga eigin- leika að þorna óvenju® fljótt. Mary Quant varalitir eru sérstaklega o 0 mjúkir. Vinsælasti varalitur- inn á markaðnum. T* Qcansin Algjörlega fitulaus, en mild hreinismjólk fyrir normal og feita húS.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.