Morgunblaðið - 15.04.1976, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 15.04.1976, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. APRlL 1976 89 VELX/AKAIMDI Velvakandi svarar ! síma 10-100 kl. 14—1 5, frá mánudegi til föstu- dags # Um ost og spillta fæðu G.H. skrifar Velvakanda: Þér finnst það kannski skrítin matargerð að skrifa þér til í einu og sama bréfinu um ost, spillta fæðu og loks um páskaegg, en allt þetta liggur mér á hjarta í svip- inn, svo að það er best ég láti það flakka. 1 fyrsta lagi þykist ég nú illa svikin á viðskiptum mínum við ostaframleiðendur þessa lands. Ég er mikil Camembert-ostaæta, þó að ýmsir fúlsi við honum á mínu heimili, og hef leyft mér þann munað um langan tlma að kaupa hann. Nú brá hinsvegar svo við í síðustu viku, að þegar ég kom með lostætið heim, hafði framleiðandinn heldur en ekki tekið mig I bakaríið. Þú veist vís- ast, Víkverji góður, að þessi ostur er seldur i forláta tréöskjum, en sem ég opnaði mína öskju nú, hafði innihaldið bara minnkað um helming! Umbúðirnar eru semsagt allt í einu orðnar þriðj- ungi stærri en Camemberinn og hringlar I öskjunni vænu eins og i slælega fylltum pillustauk. Ekki hef ég mikið orðið vör við að framleiðendur tilkynntu við- skiptavinum sínum um þessa rýrnun á vörunni, sem hlýtur að hleypa verðinu upp um góðan þriðjung. Þetta er varla upp i nös á ketti lengur, það sem kemur úr öskjunni. Viltu nú ekki skila til framleiðenda að mér líki aðferðin þeirra stórlega illa. Og hrædd er ég um að útlendingurinn taki þetta óstinnt upp, ef stefnt er að vaxandi útflutningi islenskra osta. Þá er það spillti maturinn. Hvað veldur að neytendasam- tökin eru allt I einu orðin svo góðhjörtuð að þau nafngreina ekki þá matvælaframleiðendur sem þau hafa sjálf staðið að því að selja ekki einasta slæman mat heldur beinlínis lífshættulegan? Að pylsutegundir til dæmis frá ónafngreindum framleiðendum séu hættulegar heilsu manna kemur nú fram í tilkynningu sam- takanna sjálfra. Þetta finnst mér litil góðsemi, að minnstakosti gagnvart okkur, sem eitursins fáum að neyta og ég hélt satt að segja að Neytendasamtökin störf- uðu fyrir. Mér skilst að auki, að sumir hinna seku framleiðenda hafi verið staðnir að verki oftar en einu sinni. Þurfa þeir að drepa einhvern eða senda heilar ferm- ingarveislur á spitalann áður en Neytendasamtökunum þóknast að lýsa yfir opinberlega hvaða versl- anir það eru, sem selja okkur ómetið? hafði sérstakar mætur á móður yðar. Munið eftir því. Og svo þessar hálfkveðnu ástar- játningar úti á veröndinni fyrr um kvöidið. Það setti að honum velgju við tilhugsunina um þá stund. Hann sveiflaði sér þyngsla- lega fram úr rúminu og fór að ganga um gólf. — David! Gættu að þér! sagði Nicole áhvggjufull. — Segðu mér nákvæmlega hvað Marcel sagði við Paul, sagði hann hörkulcga. — Orðrélt og dragðu ekkert undan. Hún hikaði við og kyngdi nokkrum sinnum. Nú er hún meira að segja orðin hrædd við mig, hugsaði hann þreytulega. Hún er hrædd um að ég grípi til einhverra örþrifaráða. — Eins og ég sagði þér var Marcel drukkinn og var reið- ur út f Paul. Mig minnir hann hafi verið nýbúinn að klessu- keyra einn hflinn eða eitthvað svoleiðis. Og þá fór Marcel allt í einu að öskra á hann og sagði að hann væri svo yfirmáta heimskur og yfirgengilega leiðinlegur og hann myndi þurfa að eftirláta honum allt sem hann hefði með súrum sveita öngiað saman og svo # Og páskaeggin Loks páskaeggin, og þar með er þessu lokið. Ég sá I neyt- endablaði Bretans að samtökin þeirra hafa gert nokkuð merki- lega athugun á páskaeggjum af tilefni þeirrar hátíðar sem nú fer í hönd og datt svona i hug að miðla íslenskum lesendum af þeim fróðleik. Ég veit að visu ekki hvort „páskaeggjamenn- ingin“ okkar íslendinga er á svip- uðu stigi og Bretanna, en ýmsum kann samt að þykja þetta forvitni- legt. Bresku neytendasamtökin mældu súkkulaðiinnihald páska- eggjanna og gerðu svo úttekt á sælgætinu sem er innan i þeim. Rannsóknin leiddi i ljós, hvað kom mér raunar ekki á óvart, að því stærri sem eggin eru þvi minna fá menn í rauninni fyrir peningana sína. Breska neytendablaðið, sem þeir kalla „Which“ þarna úti, segir sem næst orðrétt: „Ef þú vilt gera sæmileg kaup í ár, þá virðist eina almenna reglan sú, að því veglegra sem páskaeggið er, því minna færðu oftast fyrir pen- ingana, ef miðað er við venjulegt sælgætisverð." Neytendasamtökin keyptu alls og rannsökuðu 42 páskaegg af öllum hugsanlegum stærðum og gerðum. Við athugun reyndust flest kosta að minnsta kosti 50 prósent meira en samsvarandi magn af súkkulaði og sælgæti og í 15 tilvikum kostaði egg og inni- hald helmingi meira en tilsvar- andi sælgætismagn i venjulegum umbúðum. Minnstu eggin voru sem sagt skástu kaupin. Ekki að ég telji þetta skipta stórmiklu máli, en mér datt sem sagt i hug að koma þessu á framfæri, svona til gagns og gamans. — Kveðja, H.G. # Sumarvísa Hallgríms Þorsteinn ö. Stephensen hefur lesið passiusálma Haligríms Péturssonar í útvarpinu á þessari föstu. Hann er afbragðs lesari og hafa þessir dýru sálmar komið vel til skila til þeirra, sem kunna að njóta. En þar sem passíusálmalestri er nú lokið, er páskahátiðin gengur í garð og sumardagurinn fyrsti á næsta leiti, (á fimmtudaginn eftir páska) finnst Velvakanda vel við eiga að birta hér fyrsta erindið af sumarvísu Hallgríms Péturs- sonar, okkur til umþenkingar. Hún hefst svo: Vetrartíð víst er umliðin nú, farsæl, blíð, blessunarfull var sú. Drottinn veitti lýðnum lið, um láðið og græði, heilsu, frelsi, fæðu, frið, flest náðar gæði. Menn og hjörð máttu ei neina um loft og jörð landplágu reyna. Þakkargjörð því skuium greina ástar lystilegum hug. Lofaður hafi gefið oss Guð gáfurnar sínar. HÖGNI HREKKVISI S»1976 McNaught Syndicate, Inc. „Þetta er ósvikinn peningur!“ 02P SIGGA V/öGA £ 'f/LVEftAU Austfirðingar Sumarfagnaður verður í Átthagasal Hótel Sögu laugardaginn 24. apríl kl. 21. Ómar Ragnarsson skemmtir. Allir austfirðingar velkomnir með gesti. Austfirðingafélagið í Reykjavík. Skínandi pottar og pönnur meö Brillo-sápu ei tt tpottu* u okkur Skírdag: Opið kl. 10—23.30. Föstudaginn langa: lokad Páskadag: lokad 2. páskadag: Opið frá 10- 23.30. WJAÍfO 0& ivö 9/VbK/í- IGO OG ^Korf

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.