Morgunblaðið - 15.04.1976, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 15.04.1976, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. APRIL 1976 57 Þessa gömlu, með tönnina einu og sönnu, hittum við á miðri höfninni I Aberdeen. Hún var þar í sportsiglingu. Og svo tók hún ofan fyrir okkur I góðra veðrinu, þræl- fín um hárið og þarf nú ekki aldeilis að hafa áhyggjur af vikulegri hárgreiðslu. Hún er að minnsta kosti sæl með sitt þótt lítið fari fyrir lífsgæðaúr- valinu. ! f f í junkahöfninni i Aberdeen var víða búsældarlegt um að litast þótt ekki væri allt úr harðviði. mér einkennilegt, eins kven- hollur og hann er, hve óstinnt hann tók það upp. Hins vegar hefur mér ávallt á ferðum mínum hér og þar við slíkar kringum- stæður þótt auðveldast að losna við ónæði af þessum annars ágætu stúlkum með því að borga fyrir þær drykk. Þá sitja þær stilltar við borð manns og vegna meðfæddrar kurteisi eru þær lengi að drekka úr glasinu. Þegar það er tæmt fara þær fyrst að láta á sér kræla aftur og þá er ágætt ráð, ef maður er þó ekki farinn, að kaupa i annað glas handa þeim. Að sjálfsögðu er þessi drykkur þeirra eitthvað vatnsgutl, því „mamman" sér um það, en bleik þótti mér brugðið þegar Sigurgeir þoldi ekki einu sinni byrjunar- framkvæmdir þessara verka- kvenna útlandsins. Var þá lítið talað um Siggafles, en ussað þeim mun meira með mikilli fyrir- litningu.Satt að segja kunni ég nú reyndar betur návist Ragnheiðar biskupsdóttur, sem fylgdi okkur þarna í gegnum dagana. Eitt kvöldið þegar innyflasin- fónlu Sigurgeirs var lokið, fórum við á næturrölt með Magnúsi Stefánssyni starfsmanni Cargo- lux, sem er hagvanur í Hong Kong, og bezti félagi, M.a. fórum við á næturklúbb einn sem var á þriðju hæð i kjallara eftir þvi sem ég kemst næst. Þar var húsakynn- um skipt I 7 bása og i hverjum bás var lítið upphækkað barborð með 8 sætum í kring og einhverjum minna háum. Að sjálfsögðu sett- umst við félagar við barborðið, því innan þessa litla kringlótta barborðs sat snotur stelpa án nokkurs tizkuklæðnaðar og okkur þótt sjálfsagt að kanna landslag og leiðir. Ekki virtist nú stelpu- skinnið spennt fyrir því að af- greiða okkur Sigurgeir með kókið en það varð nú að hafa það. Gerði hún þó sitt bezta með mjúk- legum hreyfingum svo minnti á langvíu í ástargleði. Þegar litla skinnið sneri sér við á púðanum til að afgreiða aðra viðskiptavini varð Sigurgeir á orði: „Skelfing er hún vel pússuð á bakugganum, greyið." „Þið ætlið þó ekki að segja mér að þið séuð að tala íslenzku“, heyrist þá sagt hinum megin við borðið. Jú, reyndar, og þar var þá kominn Þórður flug- maður búsettur í Suður-Afríku. Það var kynlegt að við Islendingarnir skyldum hittast þarna i kjallaranum, liklega einu Islendingarnir í Hong kong þann dag og auðvitað fylktum við liði fram á nóttu. Oteyjakallar eins og við Sigur- geir höfum litið yndi af því til lengdar að Spranga í næturlífi heimsmenningarinnar og það var því yfirleitt farið snemma til kojs og þeim mun fyrr á fætur i landi hinnar risandi sólar. Það var lika forvitnilegt að fylgjast með Hong Kong ganga til nýs dags. Víða á þökum húsa sást fólk í æfingum á karate og öðrum slíkum fyrir- brigðum og gátu þessar æfingar staðið klukkustundum saman. Sé8 yfir hluta junkahafnar- innar í Aberdeen, IFfsvett- vangi vatnafólksins. Á landamærum RauSa Klna var þessi mynd tekin af fð- tækri ungri stúlku með bróður sinn. Vinnusamt fólk Kinverjar og allir voru eitthvað að dudda. I byggingarvinnu unnu konur ekki siður en karlmenn bæði í móta- uppslætti og steypuvinnu. Eitt kvöldið sátum við Sigur- geir á svölum við hóteldyrnar og virtum fyrir okkur bæjarbraginn. Frískleg stúlka vatt sér að okkur og spurði hvort hún mætti ekki bjóða okkur í samkvæmi heim til vina sinna i te eða kaffi. Við ákváðum að kynnast gangi mála. Boðið var steinsnar frá hótelinu okkar, en ekki reyndust vinirnir svo mjög af báðum kynjum, því í vændishús hafði okkur saklaus- um sveitamönnunum verið boðið inn. Sigurgeir byrjaði óðara að sveia og fussa, fjandi tu, og skrattinn sjálfur og hafði allt á hornum sér. Eg bar mig hins vegar betur, enda hafði gestgjafi okkar engar áhyggjur af mér. Fyrir Sigurgeir leiddi hún hins vegar hvern „tefélagann“ á fætur öðrum en Sigurgeir var hinn versti og skemmti ég mér konung- lega þegar hann vísaði þessum huldukroppum á bug með nist- andi augnaráði, fokvondur, enda ekki mjög veiðilegt fyrir veiði- mann úr björgum Vestmanna- eyja. Samkvæmið flosnaði þvi skjótt upp eins og efni stóðu til þótt stelpuskinnin reyndu sitt bezta, en teinu gleymdu þær. A milli tuldurs Sigurgeirs rabbaði ég við gestgjafann þar sem hún sat á rúmdýnu sinni og við Sigur- geir á sitthvorri brik. Ég spurði hana m.a. af hverju hún væri að HallóaS hinum megin á hnettinum. k Á landamærum Rauða Kína var urmull barna a8 reyna a8 selja kver Maós. Kfnverskur kvennablómi vísaSi víSast til sætis á veit- ingahúsum. þessu næturbrölti sínu og hún svaraði hispurslaust að hún væri i vændi til þess að safna sér inn peninga fyrir skólanámi. Þar sem mér þótti hálf skammarlegt að hafa sóað tíma konunnar til einskis gaf ég henni 15 dollara á leiðinni út, svona upp i menntunarkostnað, en fyrir mér hafði ég svipað dæmi er við vinur minn Björn Ivar Karlsson ásamt fleirum vorum i fótboltaferðalagi í Danmörku her á árunum. Það var auðvitað litið í Nýhöfnina og málin rædd i mesta bróðerni og mesta sakleysi. Björn rabbaði stundarkorn við eina stúlkuna, en þegar við vorum að fara fékk hann bakþanka yfir því að hafa haldið henni frá vinnu með rabbinu, vatt sér að henni og rétti henni 10 kr. danskar. Hún skildi hvorki i þennan heim né annan, en skjótt stakk hún tikallinum inn á sig og sama gerði vinkonan í Hong Kong við 15 dollarana. Við fengum illt auga hjá húsverði vændishússins þegar við fórum út, enda slæmir viðskiptavinir og vist talsvert ókurteisir miðað við hætti þessara viðskipta. Það var auðséð að uppnám var um borð vegna heimsóknar þessara furðu- fugla, en líkastir höfum við þó líklega verið halaklipptum hund- um þegar við flýttum okkúr út úr húsinu áður en til stórtíðinda drægi og við yrðum drepnir eða eitthvað svoleiðis. Við sáum lika að við höfðum valdið leiðindum með glettni okkar, gengið til leiks Framhald á bls. 74.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.