Morgunblaðið - 15.04.1976, Page 6

Morgunblaðið - 15.04.1976, Page 6
50 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. APRlL 1976 Veiöimenn eru menn líöandi stundar o • Stutt upprifjun á minnisstœðum atvilmrn úr starfi blaða- manns, sem fylgzi hefur rneð viðburðum í lávdhelgismálinu o „ o - eftir Magnús Finnsson SAGNFRÆÐINGAR framtíðarinnar, sem fjalla munu um þorskastríðin tvö, 1972 til 1973 og núverandi þorskastríð, sem hófst 1975, munu eflaust í úttekt sinni rekast á þá skrýtnu staðreynd að i fyrra striðinu sat við völd á Islandi vinstri stjórn, sem var fremur róleg í tíðinni og lengi vel gilti það á miðunum, að varðskipin voru látin fara sér hægt. Þá sat við völd í Bretlandi stjórn, sem ennfremur var fremur róleg i tiðinni. Hún notaði að vísu freigátur, en það þótti tiðindum sæta, rækist freigáta á varðskip. Þetta var hægri stjórn. Á hinn bóginn munu þeir einnig sjá að i siðara stríðinu situr við völd á Islandi ríkis- stjórn, sem kölluð hefur verið hægri stjórn. Hún hefur sýnt mun meiri hörku og yfirleitt alls ekki haldið aftur af varð- skipunum. I Bretlandi situr vinstri stjórn, sem einskis hefur sVifizt og nú er svo komið að það þykir naumast ekki tiðindum sæta, þótt varðskip og freigáta skelli svo harkalega saman, að bæði þurfa að leita hafnar. Uti á miðunum rikir taugaspenna, sem aldrei hefur orð- ið eins mikil. Menn geta spurt hvar endar þetta. — Við því höfum við enn ekkert svar, en kannski gætu þau allt i einu átt við ummæli gömlu konunnar, sem sat og hlustaði á styrjaldafréttir í einni heimsstyrjöldinni og sagði: „Þetta endar með því að þeir drepa einhvern." Þegar blaðamaður sezt niður og reynir að rifja upp minnisverð tíðindi úr tveim- ur þorskastríðum, er margt sem kemur upp í hugann. Eftirminnileg er t.d. ferð til Grimsby og Hull á tímum, er hörð átök höfðu verið á miðunum, en allir virtust skvnja þíðu framundan, enda Ölafur Jóhannesson þá nýbúinn að ræða við Edward Heath í Downingstræti 10, þótt efni viðræðnanna hefði ekki verið gert uppskátt. Eftirminnileg er ferðin til Helsinki á öryggismálaráðstefnuna sem þar var haldin. Þar voru ýmis stórmenni saman komin og alltaf öðru hverju skutust utae.ríkisráðherrar frá viðræð- um um afvopnun stórveldanna út í horn til þess að ræða lifshagsmunamál Is- lendinga — á hvern hátt mætti koma á vopnahléi milli minnstu þjóðar Evrópu og þjóðar, sem eitt sinn réð öllum siglingum á heimshöfunum. Jafnframt er eftirminnilegt, er tveir ráðherrar í rikisstjórn Islands sendu Morgunblað- inu bréf, þar sem sagði að héldi blaðið uppi þeirri blaðamennsku, sem þeim félli ekki, myndu þeir endurskoða af- stöðu sina til blaðsins og ekki veita því viðtöl framar. Sumarið 1973 fór ég til Helsinki, en þar var þá haldin öryggismálaráðstefna Evrópu og nokkurra annarra ríkja, m.a. Bandarikjanna og Kanada. Fyrir tslands hönd sótti Einar Ágústsson utanrikisráð- herra ráðstefnuna og þar sem land- helgismálið var í brennipunkti og virtist þá jafn óleysanlegt og það er í dag. Það var þvi ekki úr vegi að fylgja Einari til Finnlands, þar sem einnig voru sir Alec Douglas-Home, utanrikisráðherra Breta, og Walter Scheel, utanríkisráðherra Vestur-Þjóðverja. Var viðbúið að þar mundu þeir ræða saman um þetta við- kvæma deilumál. Ráðherrarnir ræddu saman á ráðstefn- unni, en árangur þeirra varð enginn. Sir Alec vildi ekkert gefa eftir, sat fast við sinn keip og neitaði að kalla freigátur brezka flotans út fyrir 50 milna mörkin — Einar kvaðst þá ekkert hafa við hann að tala. Walter Scheel ræddi ekki við Einar sérstaklega um landhelgismálið og er ég spurði hann um það mál, þar sem ég hitti hann í anddyri hins mikla Finn- landiahúss, gerði hann aðeins að gamni sinu — og vildi alls ekki ræða málið af alvöru. Hann kvaðst ekkert vita um fisk- aðstoðarmaður sinn dr. Hans Apel sæi um það. Síðar þetta sama ár — eða í október- mánuði, fór Ölafur Jóhannesson til London. Eftir að hafa fylgzt með viðræð- um hans við Edward Heath lagði ég leið mína í „óvinabæina", Grimsby og Hull. Sú ferð var einkar lærdómsrík fyrir Is- lending. Ég lenti í Grimsby í hálfgerðum vandræðum fyrsta kvöldið, þar sem ég hafði ekki pantað mér neitt hótelher- bergi — hafði talið slíkt óþarft, þar sem i októbermánuði hlyti að vera auðvelt að komast í hótel i slikum bæ. En öll hótel voru yfirfull. Astæðan var að rétt utan við Grimsby er risinn mikill oliu- hreinsunariðnaður og verkamenn, sem við þann rekstur vinna koma víða að og búa á hótelum. Ég reyndi fyrst að fá herbergi á Grimsby Crest Motel, en þar var allt yfirfullt. Stúlkan I hótelaf- greiðslunni reyndi að útvega mér her- bergi og hringdi mjög viða. Alls staðar var yfirfullt af gestum, en loks fann hún hótel i Cleethorpes, sem er nágrannabær Grimsby, en samvaxinn henni. Fór ég þá á stúfana eftir leiðsögn hennar og fékk uppgefið heimilisfang hótelsins, sem lof- að hafði að hýsa mig. En er þangað kom — var útilokað að þar fengi ég inni. Gestgjafinn eða hótelstjórinn harð- neitaði að í hann hefði verið hringt, enda væri hótel hans yfirfullt. Ég bað hann þá að hringja i dömuna í Grimsby Crest Motel og ræddu þau eitthvað saman og lauk samtalinu með því að stúlkan skellti símanum á karlinn. Þetta var óskemmtileg staða fyrir Is- lending I Grimsby og ég fór að bera mig aumlega — sagðist langt að kominn o.s.frv. Karlinn vildi þá vita hvaðan ég væri. Ég sagði honum það og bjóst þá jafnvel við að verða endanlega sparkað út fyrir þröskuldinn. En viti menn Is- lendingur var algjört lausnarorð. „Jæja Islendingur,“ sagði karlinn og viðmót hans gjörbreyttist, „fyrir Islending geri ég allt. Þvi miður hef ég ekkert rúm handa þér að sofa í, en ef þú vilt gera þér að góðu sófann í stofu okkar hjónanna þá er þér velkomið að sofa þar.“ Þar svaf ég um nóttina og át morgunmat morgun- inn eftir, sem ég fékk ekki einu sinni að greiða fyrir. Islendingur átti allt gott skilið I augum þessa manns. Ástæðan var sú og það sagði karlinn mér, þegar við ræddum saman fram eftir nóttu um landhelgismálið og sitthvað fleira, að

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.