Morgunblaðið - 29.05.1976, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. MAl 1976
15
Fyrsta sovézka herskipið til Bretlands í 20 ár:
Sjóliðar hvattir
tQ frelsisbaráttu
Portsmouth, 28. maí. AP.
# FYRSTA sovézka her-
skipið sem heimsækir
Bretland f 20 ár sigldi í dag
inn í höfnina í Portsmouth
við jafnt fagnaðarlæti sem
mótmælaaðgerðir. Höfð
voru uppi mótmælaslagorð
á borð við „Mannréttindi
fyrir sovézka gyðinga“, og
ungir flokksmenn Frjáls-
lynda flokksins fóru á bát
umhverfis herskipið, sem
nefnist „Obraztsovy“, og
útvörpuðu um hátalara á
rússnesku: „Við vonum að
þið munið taka eftir þvf
persónufrelsi sem allir
borgarar í þessu landi
njóta. Við vonum að þið
sjálfir munið leggja lið
baráttunni fyrir þessu
frelsi í ykkar eigin föður-
landi og f öllum
Bardagar
harðna í
Líbanon
Beirút, 28. maí. AP. Reuter.
ELIAS Sarkis nýkjörinn for-
seti kallaði leiðtoga deiluaðila
f Lfbanon saman til aukafund-
ar f dag vegna harðra bardaga
sem hafa blossað upp að nýju f
Beirút og nágrenni og
líbanska stjórnin hét þvf að
halda flugvellinum opnum
þrátt fyrir kröftugar stórskota-
árásir sem hafa valdið miklu
tjóni.
Vinstriforinginn Kamal
Jumblatt sat ekki fundinn þar
sem hann var við útför systur
sinnar sem óþekktir menn
skutu til bana á heimili henn-
ar í kristnu hverfi f Beirút.
Viðstaddir útförina voru
sendiherrar Arabarfkja og
Ahmed Khati, leiðtogi
Lfbanska Arabahersins. Syst-
urdætur Jumblatts særðust í
árásinni en læknar sögðu í dag
að þær mundu halda Iffi.
Morðið hefur eitrað and-
rúmsloftið sem hafði batnað
vegna sáttatilrauna Sarkis, en
Jumblatt hefur skorað á stuðn-
ingsmenn sfna að hefna ekki
systur sinnar.
heiminum. Lengi lifi hinn
mikli sovézki fIoti!“
Síðasta flotaheimsókn Sovét-
manna til Portsmouth fyrir 20
árum varð mjög umtöluð vegna
dularfulls hvarfs brezka frosk-
mannsins Lionel ,,Buster“ Crabb.
Gátan um hvarf Crabbs leystist
aldrei, en hann var sagður hafa
verið að kanna herskipið
„Ordzhonikidze" er Niktta Kru-
shchev, þáverandi flokksleiðtogi,
kom í heimsókn til Bretlands.
Bretar með
gagnásakanir
Sameinuðu þjóðunum,
27. mai. Reuter.
BRETAR visuðu í dag á bug ásök-
unum Islendinga um að herskip
þeirra og dráttarskip aðstoðuðu
brezka togara við að halda uppi
ólöglegum veiðum innan íslenzku
fiskveiðilögsögunnar og reynt að
sigla á islenzk varðskip. Ivor
Irchard, sendiherra Bretlands hjá
Sameinuðu þjóðunum, sagði í orð-
sendingu til forseta öryggisráðs-
ins, Louis de Guiringaud frá
Frakklandi, að brezki verndar-
flotinn gegndi „eingöngu varnar-
hlutverki og hefur ekki nein fyr-
irmæli um að sigla á islenzk varð-
skip“. Orðsendingin er svar Breta
við bréfi Ingva Ingvarssonar,
sendiherra tslands hjá S.Þ., til
forseta ráðsins 11. maí s.l. Þar
segir Richard að ríkisstjórn sín
liti það „afar alvarlegum augum“
er varðskipið Ægir hefði reynt að
taka togarann Primellu til hafnar
12. maí eftir að hafa skotið nokkr-
um skotum að togaranum. Varð-
skipið hefði hætt við hinar
„hættulegu aðgerðir" sínar þegar
óvopnuð Nimrodþota kom á vett-
vang.
Concordeþotur
til Astralíu
Canberra, 28. mai AP.
ÁSTRALSKA ríkisstjórnin sam-
þykkti í dag umsókn British Air-
ways um reglubundið hljóðfrátt
farþegaflug með Concordeþotum
til Melbourne. Samgönguráðherr-
ann, Peter Nixon, sagði að þessi
ákvörðun hefði verið tekin eftir
gaumgæfilega umhverfisrann-
sókn. Fær risaþotan að fljúga yfir
Ástralíu yfir tilteknu svæði frá
Singapore. Búizt er við að far-
þegaflugið hefjist 1. janúar á
næsta ári.
Reyna að bjarga
sextán ára dóttur
Mexíkóborg, 28. maí. Reuter.
BELGtSKI sendiherrann I
Mexfkó, Andre Chaval, og
Mireille kona hans halda áfram
fjársöfnun til að bjarga sextán
ára dóttur sinni Nadine, úr hönd-
um skæruliðanna sem rændu
henni og neita að lækka lausnar-
gjaldið sem þeir kref jast.
Frú Chaval sagði blaðamönnum
að skæruliðarnir hefðu hringt I
sig og sagt að þeir mundu ekki
gera Nadine mein þegar frestur-
inn( sem þeir höfðu áður gefið
rann út, en þeir hótuðu að drepa
hana ef ekki yrði að lokum gengið
að kröfu þeirra um 800.000 doll-
ara lausnargjald.
Frú Chaval sagðist hafa fengið
um það bil helming upphæðarinn-
ar eftir samskot vina og stuðn-
ingsmanna og beðið um lengri
frest. Skæruliðarnir samþykktu
það og hafa engin ný tímamörk
sett.
Skæruliðarnir rændu Nadine
þegar hún var á leið í skóla sinn á
þriðjudag og fjölmiðlar hafa birt
þriðju fréttatilkynninguna frá
þeim að kröfu þeirra. Þar segjast
þeir ekki vera betlarar heldur
byltingarmenn og ef ekki verði
gengið að kröfu þeirra eða ein-
hver þeirra eða félagí úr samtök-
um þeirra verði handtekinn eða
drepinn verði Nadine tekin af lífi.
AP-mynd.
JARÐSKJÁLFTINN í SOVÉTRÍKJUNUM — Þessi mynd sýnir eyðilegginguna á
skólahúsinu í þorpinu Gazli i Uzbekhéraði í Sovétríkjunum, þar sem yfir 10.000
manns misstu heimili sín í jarðskjálfta í síðustu viku.
Rússar f allast á
eftirlit á staðnum
Washington, 28. mai.
AP. Reuter.
FORD forseti og Leonid Brezhnev
flokksleiðtogi undirrituðu sam-
tfmis f dag samning sem takmark-
ar stærð kjarnorkusprengja sem
tilraunir eru gerðar með f frið-
samlegum tilgangi og heimilar
bandarfskum eftirlitsmönnum f
Cannes, 28. maí. Reuter.
BANDARISKA kvikmyndin
„Taxi Driver", gerð af Martin
Scorsese, hlaut aðalverðlaunin,
„gullpálmann" á kvikmynda-
hátfðinni f Cannes í dag, sem
bezta kvikmynd ársins. Val dóm-
nefndarinnar hlaut neikvæðar
undirtektir á blaðamannafundi
þar sem tilkynnt var um það f
dag, og upphófust ólæti vegna
þess, en myndin, sem endar á
miklu blóðbaði, fjallar um hvftan
leigubflstjóra sem vinnur á
næturvakt f blökkumannahverf-
inu Harlem. Valið vakti athygli
m.a. vegna þess að formaður dóm-
nefndar, bandarfski rithöfundur-
inn Tennessee Williams, hafði á
meðan á hátfðinni stóð gefið út
fjölmargar yfirlýsingar þar sem
hann gagnrýndi harðlega vaxandi
ofbeldi og pólitfk f kvikmyndum,
og brugðust ýmsir kunnir leik-
stjórar ókvæða við þessum yfir-
lýsingum Williams.
Verðlaun fyrir bezta leik í karl-
hlutverki fékk Spánverjinn Jose
Luis Gomez fyrir leik sinn i of-
beldisrikustu mynd hátíðarinnar,
„La Familia de Pascual Duarte",
þar sem hann m.a. skýtur hund til
bana og stingur múlasna til dauða
fyrsta skipti að fvlgjast með slík-
um tilraunum Rússa.
Undirritun samningsins er ár-
angur flókinna samningavið-
ræðna og í Washington er talið að
hann geti orðið til þess að flýta
viðræðum sem hafa dregizt á
langinn i Genf um takmörkun
gereyðingarvopna.
i miklum blóðflaumi. Verðlaun-
um fyrir-bezta leik i kvenhlut-
verki skipta þær með sér franska
leikkonan Dominique Sanda fyrir
leik sinn í ítölsku myndinni
„L’eredita Ferramonti" og ung-
verska leikkonan Maria Torocsik
fyrir hlutverk sitt i myndinni
„Hvar ertu, frú Dery?“. Bezti
leikstjóri var valinn Italinn
Ettore Scola fyrir mynd sina um
fátækrahverfi Rómar „Brutti,
sportchi, cattivi".
Það vakti almenn vonbrigði að
„gullpálminn" skyldi ekki fara til
„Cria cuervos" frá Spáni eða „Die
Marquise von 0“ frá Vestur-
Þýzkalandi. Meðal mynda á hátið-
inni var t.d. siðasta mynd Luchino
Visconti, „L’Innocente", auk mik-
ils fjölda klámmynda sem flestar
gufuðu upp eins og dögg fyrir
sólu. Undantekning i því efni var
„Empire of the Senses” eftir
japanska leikstjórann Nagasa
Oshima, sem fjallar um þriggja
vikna kynlífstörn. Þá var sýnd á
hátíðinni, — þó án þess að um
þátttöku í henni væri að ræða —,
hin umtalaða nýja mynd Bern-
ardo Bertolucci „1900“, sem er
fimm klukkustunda löng og af
mörgum gagnrýnenda talin bezta
mynd hátiðarinnar.
Ford forseti sagði við undirrit-
unina i Washington að samning-
urinn markaði tímamót þar sem
hann gerði ráð fyrir eftirliti á
staðnum, kvað hann sýna að
Bandarikjamenn og Rússar gætu
gert með sér gagnlega samninga
þrátt fyrir mikla erfiðleika og
taldi að samningurinn væri mikil-
vægt framlag til varanlegs friðar
og bættra samskipta þjóða í milli.
Brezhnev sagði við undirritun-
ina i Kreml að samningurinn væri
„annar hlekkur í keðju ráðstaf-
ana sem miðuðu að því að halda
vexti vigbúnaðar í skefjum”,
Hann kvað menn hafa ástæðu til
ánægju við undirritun samnings-
ins en taldi margt ógert.
Samkvæmt samningnum verð-
ur stærð hverrar sprengju sem
tilraun er gerð með neðanjarðar
takmörkuð við 150 kilólestir, en
þær sprengjur eru sjö sinnum
öflugri en sprengjan sem varpað
var á Hiroshima.
Tilraunir i friðsamlegum til-
gangi eiga við um ráðstafanir til
að breyta árfarvegum, sprengja
göng gegnum fjöll og breyta höfn-
um. Samningurinn er framhald á
öðrum samningi sem var gerður
fyrir tveimur árum um takmörk-
un tilrauna með kjarnorkuvopn.
Viðræðunum um samninginn
lauk í Moskvu í aprílbyrjun og
hann var undirritaður til bráða-
birgða 12. mai. Formleg undirrit-
un hans hefur dregizt af „tækni-
legum ástæðum” að sögn banda-
rísku stjórnarinnar þótt gefið
hafi verið i skyn að Ford forseti
hafi ekki viljað undirrita hann
fyrr en eftir forkosningarnar i
Michigan.
— 82 þúsund
Framhald af bls. 32
ingar i hæsta flokki fólksbifreiða
svo sem allflestra bandarískra
bifreiða hækkar i 81.900 krónur
en var 54.600 kr.
Hægt er að fá húftryggingu nú
með engri sjálfsábyrgð en síðan
sjálfsábyrgð að upphæð 17 þús-
und kr. sem er grunnverð, 35 þús-
und kr„ 50 þúsund kr„ 75 þús. kr„
100 þúsund kr„ 140 þúsund kr. og
loks 200 þúsund kr. sjálfsábyrgð,
en þá er iðgjaldið 70% af grunn-
verðinu, sem talið var upp hér að
framan.
Sjötugsafmæli
SJÖTUGUR er i dag Jón bóndi
Árnason að Stóra-Armóti i Hraun-
gerðishreppi.
„Taxi Driver” fékk
gullpálmann í Cannes