Morgunblaðið - 29.05.1976, Side 29

Morgunblaðið - 29.05.1976, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. MAl 1976 29 VELVAKANDI Velvakandi svarar ! síma 10-100 kl 14—1 5, fra mánudeg'i til föstu- dags • Óvenjuleg fjölskyldumynd Bíógestur hafði samband við Velvakanda. Hann kvaðst hafa farið í bíó um helgina með fjölskyldu sína og vilja vekja at- hygli á því, að um þessar mundir er á ferðinni aldrei þessu vant, mynd fyrir alla aldursflokka jafnt. Þetta er norska myndin Álf- hóll í Stjörnubíói. Hann kvaðst oft hafa kvartað undan því hve lítið er um verulega góðar myndir fyrir börn, en að hann fengi mynd sem öll fjölskyldan hefði jafn gaman af, hefði hann ekki einu sinni þorað að vona. En þarna er hún sem sagt, og því vildi hann ekki að það færi framhjá þeim fjölskyldum, sem vilja fara saman í bíó og foreldrum eða öfum og ömmum, sem gjarnan vilja vera með börnum við skemmtanir. Þessi norska mynd er ævintýra- mynd með skemmtilegum „teikni- myndapersónum" og myndin falleg og í litum. Og líklega nær hún betur til okkar með kímni sína og blæ, vegna þess að hún er gerð af frændum okkar. Ekki má gleyma að myndin er spennandi. 0 Litli prinsinn Velvakandi sér ekki betur en að líka sé komin önnur mynd fyrir alla. Sé þetta mynd eftir bókinni Litli prinsinn eftir franska höfundinn Antoine de Saint-Exupery, þá er efnið að minnsta kosti við hæfi barna á aldrinum frá 5 ára til áttræðs. En þessi mynd er svo fádæma klaufa- lega auglýst að ógerlegt er að vita fyrir víst hvort þetta er sú hin fræga saga, sem fjölmargir hér á landi þekkja í þýðingu Þórarins Björnssonar skólameistara og halda upp á. Þar segir bara: „Frumsýnum nýja barnamynd um litla prinsinn sem kom til jarðar frá öðrum hnetti." En þá er fyrst til að taka, að bókin er ekki síður fyrir fullorðna en börn, og skrifuð sem slik. Og efnið i bók Saint- Exuperys er um prinsinn frá öðr- um heimi, sem hittir vin sinn, flugmanninn úti i eyðimörkinni og kynnir honum lífsspeki sína. En efnið í bókinni er fært fram á svo ljóðrænan hátt að það verður varla endursagt. í tileinkun segii höfundur að allir fullorðnir hafi einhvern tima verið börn, þó þeir muni ef til vill ekki eftir því. Þessi mynd er líklega komin i Laugarásbíó, en ekki veit Vel- vakandi hvernig farið er með efnið. Heldur ekki hvernig þýðingin á islenzka textanum er gerð. Von- andi hefur hin stórkostlega vel gerða þýðing Þórarins verið látin halda sér eins og hægt er, þvi slíku snarar enginn í fljótheitum, án þess að skemma og e.t.v. eyði- leggja viðkvæman textann. Norska myndin, sem talað er um hér að ofan, var satt að segja heldur illa leikin í þýðingu. í stað þess að þýða setningarnar, sem persónurnar segja úr norsku, var efnisþráðurinn endursagður á islenzkunni. Fer þar óneitanlega margt forgörðum. % Gjaldeyrir og ferðamenn Ferðalangur skrifar: Eg sá i fréttum að búið er að breyta eitthvað reglunum um gjaldeyri fyrir ferðamenn, þannig að nú ráða þeir svolítið hvernig þeir eyða skammtinum sínum. Hvort þeir búa á góðum dýrum hótelum, eða spara hótelin og matinn, til að geta verið svolítið lengur fyrir sömu upphæð. Það er gott og blessað og auðvitað alveg óþolandi stjórnsemi og langt út fyrir það, sem sæmandi er i frjálsu landi, að ríkisvald sé að skipta sér af því hvernig fólk í leyfi eyðir peningunum sínum. Ég skil satt að segja ekkert i þvi að fólk skuli ekki hafa kvartað meira. Ef nauðsynlegt er að skammta gjaldeyri þá það. En að stjórna öllu lifi fólks í sumarfrii þess er næsta hlálegt. I fréttinni um breytinguna kom fram annað, sem sýnir vel hvað hvilik ofstjórnun á lífi fólks er komin út i. Þar er frá því sagt að í ferðum til Suðurlanda, séu skoðunarferðir næstum úr sög- unni, vegna þess að fólk hafi ekki peninga umfram dvalarkostnað. Er það ekki alveg stórkostlegt að stjórnvöld skuli vera búin með reglum sínum að beina íslendingum, sem fara til útlanda, á baðstrendur og tryggja að þeir geti ekki einu sinni í leiðinni séð neitt annað meðal þessarar er- lendu þjóðar, sem þeir þó eru að heimsækja. Ég hefi ekki sjálfur getað farið utan og kynnzt menningu og lifi þeirra þjóða, sem ég vildi í leyf- inu mínu vegna t>ess arna. Gjald- eyrisskammturinn leyfir ekki að ég ferðist á eigin spýtur og milli staða og skoði sjálfur það sem ég vil. Ég á ekki annarra kosta völ en að fylgja ferðahópi með ódýrar ferðir, sem lítið sér eða eitthvað skammtað og þýtur yfir með meiri hraða en hægt er ef maður vill í rauninni kynnast einhverju. Ég hefði viljað safna gjaldeyris- skammtinum mínum og nýta hann annað eða þriðja hvert ár til að sjá og kynnast þvi, sem ég tel einhvers virði. En það má ég ekki. Aftur á móti get ég farið árlega eða jafnvel tvisvar á ári i ódýra ferð á erlenda baðströnd og séð aðra baðstrandargesti. Er ekki ríkisvaldið að taka sér meira vald — og heimskulegra en menn gera sér grein fyrir? — Við getum kannað það siðar. Þau stefndu út úr borginni f ðtt til þorpsins þar sem hús Boniface var. Þau höfðu ekki eytt tfma til spillis og kvöddu Mme Gautier fljðtlega með virktum en þegar út ð stigapallinn kom gat Davíd ekki ð sér setið og hafði tekið hana f fang sér og þrýst henni að sér. — Hvernig komstu eiginfega út úr gistihusinu. — Anya sð um það. Og reyndar gerðum við engar varúðarrððstaf- anir. Ég held ekki að mennirnir hafi haft nein fyrirmæli hvað mig snertir, aðeins um þig og hún talaði svo hátt og snjallt að ég held næstum þeír hafi verið hálf- hræddir við hana. Hún er stór- kostleg persóna og hún sagði mér magnaðar sögur úr starfi sfnu. — Hvar er hún þessa stundina? — Hún fylgdi mér hingað og sfðan fór hún á stúfana að finna Lazenby. Hún ætlar að skilja eftir boð á lögreglustöðinni svo að vfð getum náð f hana, ef þörf kref- ur. Hvert erum við að fara núna. Viltu að ég aki? Hann lét hana taka við stjórn- inni. Ferðin tók lengri tfma en hann hafði búizt við. Helen vissi ekki hvaða leið átti að fara og HÖGNI HREKKVÍSI Jf ,Þú veizt/ann þolir ekki að sjá þig dýfa í!“. Austurstræti 17 Starmýri 2

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.