Morgunblaðið - 05.08.1976, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 05.08.1976, Blaðsíða 5
MORCÍUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAt'.UR 5. At’.UST 1976 5 Leigutími Runólfs framlengdur: Vel heppnuð héraðsmót S j álf st æðisf lokksins EINS og undanfarin ár hefur Sjálfstæöisflokkurinn efnt til héraðsmóta víðsvegar um land- ið í sumar. Nú þegar hafa veriö haldin 12 héraðsmót. Mjög hef- ur verið vandað til marghátt- aðra skemmtiatriða á héraðs- mótunum og hefur skemmti- krafturinn Jörundur og óperu- söngvararnir Kristinn Hallsson og Magnús Jónsson skemmt og sungið við frábærar undirtektir samkomugesta. Hljómsveitin Næturgalar ásamt söngvurun- um Ágústi Atlasyni og Einari Hólm hefur og tekið þátt í skernmtiatriðunum og síðan leikið fyrir dansi og tekist með skemmtilegri framkomu sinni og fjörlegum tónlistarflutningi að skem.mta öllum aldursflokk- um. Á héraðsmótunum hafa for- ystumenn Sjálfsta'ðisflokksins flutt stutt ávörp. Um næstu helgi verða héraðs- mótin sem hér segir: Höfn i Hornafiröi föstud. 6. ágúst. Eg- ilsstöðum laugard. 7. ágúst og á Eskifirði sunnud. H. ágúst. Um aðra helgi verða héraðs- mót á Vestfjörðum — 13. ágúst á Patreksfirði, 14. ágúst í Bol- ungarvík og 15. ágúst á Flat- eyri. Hverjum aðgöngumiða á skemmtanir héraðsmótanna og dansleiki fylgir ókeyps happ- dra'ttismiði. Vinningar eru mjiig gla'silegir: tva'f sólarferð- ir til Kanaríeyja nteð Flugleið- um. Dregið verður unt vinning- ana 20. ágúst n.k. Aðgöngumiðaverði á héraðs- mótin er mjög í hóf stillt. Miða- verð á skemmtun. er stendur yfir frá kl. 9 til 11 er kr. 500.-. en á dansleik er stendur yfir frá kl. 41 til 2 eftir miðna'tti. kr. 1500.-. Allir eru velkomnir á héraðsmótin. Verður við kolmunnaveið- ar til næstu mánaðamóta Útgerðarmenn sýna veiðunum áhuga ÁKVEÐIÐ hefur verið að skuttogarinn Kunólfur frá Grundarfirði haldi áfram tilraunaveiðum fram til mánaðamóta ágúst-september, en f fyrstu var togarinn aðeins leigður til þessara veiða til s,l. mánaða- móta. Sem kunnugt er hafa þessar kolmunnaveiðar gengið mjög vel að undanförnu, og er Runólfur búinn að landa um 400 lestum af kolmunna, mest 1 Neskaupstað og á Höfn 1 Hornafirði. Vitað er að togarinn gæti verið búinn að veiða mun meira ef ekki hefði staðií á afskipun, en á hverjum stað hefur aðeins verið hægt að taka á móti mjög tak- mörkuðu magni til vinnslu. Jón Jónsson forstjóri Hafrannsókna- stofnunarinnar, sagði i samtali við Morgunblaðið í gær, að Run- ólfur hefði landað 30 lestum af kolmunna á Höfn í Hornafirði í gærmorgun, en aflinn fékkst i einu holi á Héraðsflóadýpi. Tog- arinn hélt á sömu mið í gær og á hann síðan að koma með afla til Reykjavíkur um helgina. Runólf- ur fer þá í slipp til botnhreinsun- ar, en heldur siðan á sömu mið og áður strax eftir helgi. Morgunblaðið fregnaði í gær, að nokkrir útgerðarmenn og skip- stjórar hefðu áhuga á að sækja um leyfi fyrir sín skip til kol- munnaveiða úti fyrir Austur- Iandi. Ekki er þó gert ráð fyrir að þau skip geti landað miklu af afl- anum til vinnslu í marning og þurrkun, heldur í bræðslu, en i gær var gefið út nýtt verð á kol- munna sem fara á í bræðslu. Hef- ur Verðlagsráð sjávarútvegsins ákveðið, að lágmarksverð á spær- lingi og kolmunna til bræðslu frá 1. ágúst til 31. október 1976 verði kr. 7.50. Er verðið miðað við að seljend- ur skili spærlingi og kolmunna á íslendingar sigruðu Færeyinga 17:3 í landskeppni í skák ISLENDINGAR og Færeyingar háðu landskeppni I skák f Þórs- höfn f Færeyjum í lok sfðasta mánaðar. Skáksamband tslands sendi 10 manna kapplið og tvo fararstjóra til Færeyja dagana 20.—25. júlf. Voru tefldar tvær umferðir og fóru leikar í þeirri fyrri svo, að tslendingar sigruðu, hlutu 8 vinninga gegn tveimur, en í sfðari umferðinni hlutu ts- lendingar 9 vinninga gegn einum, eða samtals 17 vinninga gegn þremur. (Jrslit á einstökum borðum urðu sem hér segir: InKvar Asmundsson — Ilans Pelersen 2-0 Strætisvajínar Revkjavíktir: Óskað eftir 20% hækkun fargjalda Á FUNDI borgarráðs á þriðjudag var samþykkt að fara fram á hækkun á fargjöldum Strætis- vagna Reykjavíkur um að meðal- tali 20%, og hefur erindi þess efnis verið sent verðlagsyfirvöld- um. Jafnframt samþykkti borgar- ráð, að sölu 1000 kr. farmiða- spjalda skyldi hætt þar til erindið hefði hlotið afgreiðslu verðlags- yfirvalda. 1000 kr. spjöldin verða því ekki til sölu frá og með deginum í dag, en 500 kr. farmiðaspjöld verða seld áfram svo og farmiðar barna •og aldraðra. Júlfus Friðjónsson — Petur Mikkelsen 2-0 Ásgeír Ásbjörnsson — Bjarki Ziska 14-V* Gunnar Finnlaugsson — Hanus Joensen 1V4-V4 Trausti Björnsson — Ragnar Magnussen 2-0 Framhald á bls. 16 FangaverSr mót- mæla vinnubrögð- um Kjarane&idai* MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi ályktun frá Fanga- varðafélagi tslands: „Fangavarðafélag íslands mót- mælir harðlega vinnubrögðum Kjaranefndar, þar sem hún í engu tekur til greina kröfur félagsins varðandi sérsamninga og fulltrú- um félagsins var ekki gefinn kost- ir á að ræða við ríkisvaldið um sín mál. Það er staðreynd að islenzkir fangaverðir eru ekki nema hálf- drættingar í launum og kjörum, ef miðað er við starfsbræður þeirra á hinum Norðurlöndunum, eri þar eru störf þeirra metin til launa með ábyrgðarmeiri störfum í þjóðfélaginu. Fangavarðafélag íslands mun á næstunni styrkja stöðu sína með inngöngu í Norðurlandasamband fangavarða, en sambandið vinnur mikið að samræmingu og sam- stöðu stéttarinnar i þessum lönd- um. Að lokum lýsir Fangavarðafé- lag íslends fyllstu samstöðu með baráttu annarra félaga Bandalags starfsmanna ríkis og bæja.“ I* i ú w* Kristinn Hallsson. Jörundur og Magnús Jónsson. Hljómsveitin Næturgalar flutningstæki við hlið veiðiskips eða í löndunartæki verksmiðju. Ekki er heimilt að nota dælu eða blanda vatni eða sjó í hráefni við löndun. Jafn afli hjá skel- fiskveiðibátunum Stykkishólmi. 31 ágúst. TÖLUVERÐ umferð var á Snæ- fellsnesi um þessa verzlunar- mannahelgi. Héðan var mestur straumur fólks til Flateyjar og fór Baldur nokkrar aukaferðir. Það var gott veður á Vestfjörðum og notuðu margir sér það til að ferðast um Djúp og vfðar og marga bfla flutti Baldur yfir Breiðafjörð fólki til hægðarauka og svo til að þurfa ekki að aka hring um Breiðafjörð. A sumar- hótelinu f Stykkishólmi voru næg verkefni og tjaldstæði sem útbúið hefir verið rétt ofan við bæinn var vel nýtt af ferðafólki vfðs vegar að af landinu. Talsverðar byggingarfram- kvæmdir eru i Stykkishólmi i sumar, eitt fjölbýlishús er í smið- um og auk þess mörg íbúðarhús. Þrátt fyrir þessar framkvæmdir eru alltaf húsnæðisvandræði, Framhald á bls. 16 Sýning á fornu brúðarskarti 1 DAG verður opnuð í Bogasal Þjóðminjasafnsins sýning. sem ber nafnið Brúðkaup og brúðar- skart. Sýningin er að stofni til deild tslands á sýningunni Love and marriage. sem haldin var á vegum Evrópuráðs í Antwerpen sumarið 1975. Að sögn Elsu E. Guðjónsson safnvarðar í Þjóð- minjasafninu er hugmyndin með þessari sý.ningu að gefa nokkra hugmynd um fatnað og aðra hluti, sem tengdir voru brúð- kaupi fyrr á öldum. A sýningunni verða flestir hlut- irnir, sem voru á sýningunni f Antwerpen, en auk þess hefur mörgum verið bætt inn í og eru sýningargripir á milli 80 og 90. Almenna Bókafélagið, Austurstræti 18, Bolholti 6. sími 19707 simi 32620 Ritsafn Gunnars Gunnarssonar Áður útkomnar Saga Borgarættarinnar Svartfugl Fjallkirkjan I, Fjallkirkjan II Fjallkirkjan III Vikivaki Heiðaharmur Ný útkomnar Vargur í véum Sælir eru einfaldir Jón Arason Sálumessa Fimm fræknisögur Dimmufjöll Fjandvinir Gunnar Gunnarsson befur um langt skeið verið einn virtasti hofund ur á Norðurlondum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.