Morgunblaðið - 25.09.1976, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 25.09.1976, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 1976 5 AFHENT TRUNAÐARBRÉF — Hinn 10. september s.l. afhenti Haraldur Kröyer sendiherra, framkvæmdastjóri Evrópuskrifstofu Sameinuðu þjóðanna, hr. Winspeare Guicciardi, trúnaðarbréf sitt sem fastafulltrúi tslands hjá skrifstofu Sameinuðu Þjóðanna f Genf. (Fréttatilk. frá utanrfkisráðun.) Yfirlýsing frá Skáksambandi íslands: r Ulfaldi gerð- ur úr mýflugu VEGNA fréttar f Þjóðviljanum f dag (24. sept.) um þátttöku Islendinga f Ölympfumótinu f skák f Israel, sér stjórn Skák- sambands Islands sig tilneydda til að leiðrétta missagnir eða misskilning f umræddri frétt. Þar segir ma. að komið hafi fram á blaðamannafundi Sl sl. fimmtudag, „að sá möguleiki væri talinn fyrir hendi að bandarískir áhrifamenn myndu sjá til þess að íslenskur fiskur yrði ekki keyptur i sama mæli til Bandarfkjanna og nú er gert“. Hér gætir mesta mis- skilnings. Þegar stjórn Sl breytti þeirri ákvörðun sinni að senda ekki lið til Israels, var það fyrst og fremst vegna eindreginna tilmæla móts- stjórnarinnar í Israel og vegna þess að horfur voru á að leysa mætti þann vanda, að kosta ferðina án þess að fjárhagur sambandsins gengi allur úr skorðum. Einnig hafði komið fram vilji íslenzkra stjórnvalda fyrir þvl, að sveit yrði send á mótið, ásamt bærilegum fjár- stuðningi. Engir bandarískir áhrifamenn komu þar á nokkurn hátt við sögu og hafa engin afskipti haft af þessu máli, hvað þá „hótað viðskipta- þvingunum," eins og það er orð- að í fyrirsögn umræddrar frétt- ar. Á blaðamannafundinum kom það hins vegar fram, að i um- ræðum um þetta mál hefði bor- ið á góma, að bandarískir kaup- sýslumenn, sem keyptu íslenzk- ar afurðir og margir hverjir væru Gyðingar, kynnu að taka það illa upp, ef Islendingar sendu ekki lið til Israels. Jafn- framt var á fundinum bent á það, að þar sem islenzkir rit- stjórar og borgarfulltrúar teldu fyrri ákvörðun stjórnar Sl póli- tiska og sýna samstöðu gegn fjandmönnum Israels, mætti með sömu rökum ætla að bandariskir kaupendur afurða okkar af kynstofni Davfðs gætu litið sömu augum á málið. Þá er rétt að taka fram, að ekkert loforð um fjárstuðning frá Sölumiðstöð hraðfrystihús- anna og Sjávarafurðadeild SlS hafði borizt þegar ákveðið var að senda liðið til Israels. Sá stuðningur fékkst þegar sam- bandið leitaði eftir stuðningi til fararinnar frá fjölmörgum fyrirtækjum og einstaklingum, og eru svör við þeirri málaleit- an enn að berast. Stjórn Skáksambands Islands lýsti þvi á blaðamannafundin- um, að hún harmaði þau póli- tisku átök, sem komið hafa upp innan FIDE, alþjóðaskáksam- bandsins, og itrekar þá afstöðu sina. Starfsemi Skáksambands Islands er algjörlega ópólitísk, á erlendum sem innlendum vettvangi, og það er einlæg von stjórnarinnar, að fjölmiðlar hér á landi virði þá afstöðu og forð- ist að draga skáklistina og skák- lífið i landinu inn i pólitiskar deilur. Með þökk fyrir birtinguna. Hausthátíð á Akranesi Akranesi 24. 9. HANDKNATTLEIKSRÁÐ Akraness efnir til hátíðar i Iþróttahöllinni við Vesturgötu sunnudaginn 26. sept. n.k. með fjölbreyttri skemmtiskrá. Inga og Silla syngja og dansa m.a. bump, Maríanne Hallgrimsson syngur og leikur á gítar lög frá ýmsum lönd- um, sjónhverfingamenn sýna list- ir sínar, hljómsveit Kalla Bjarna með splunkunýja dagskrá fyrir fólk á öllum aldri. Loks verður sérstakt tækifæri til að taka þátt i bingói sem hefur að bjóða ferð til Spánar að verðmæti 60 þús. kr. Siðan lþróttahöllin tók til starfa hefur nýting þess verið mjög góð og hafa allir verið mjög ánægðir með aðstöðuna, jafnt iþrótta- hljómlista- og ráðstefnu- fólk. Ekki sizt áhorfendur og hlustendur. — Júlfus. Ljósbroti að ljúka í Hamragörðum Ljósmyndasýningu Ljósbrots, sem haldin er i Hamragörðum, á horni Hofsvallagötu og Hávalla- götu, lýkur um helgina. Fjórir áhugaljósmyndarar sýna, en þeir heita Þorvaldur Jóhannesson, Þorsteinn Asgeirsson, Gunnar Elísson og Guðjón Steinsson. Alls er 31 mynd á sýningunni, ýmist svart-hvit eða i lit. Aðsókn hefur verið ágæt, og'sýningin hef- ur fengið góða dóma. Henni lýkur á sunnudagskvöld. Frá þingi norrænna barna- og unglingabókahöfunda: Samískir og grænlenzkir rit- höfundar standa verst að vígi — segir Ármann Kr. Einarsson í viðtali við Aftenposten FYRIR skemmstu var haldið í Geilo i Noregi. þing norrœnna barna og unglingabókahöfunda. Þing þetta sóttu 14 íslendingar og var Ármann Kr. Einarsson i þeirra hópi. Norska blaðið Aftenposten birti viðtal við Ármann þar sem fjallað var um þýðingar bóka hans erlendis og þá erfiðleika sem lítið málsamfélag á við að stríða. Við- talið fer hér á eftir, lauslega þýtt: „Ármann Kr Einarsson, sem þekktur er fyrir margar barna- og unglingabækur, sem Asbjörn Hildremyr hefur þýtt á norsku, segir m.a: — Norrænu málsvæðin er smá en þó eru sum minni en önnur og þar gætir þvi mest tungumálalegrar einangrunar. Bækur eftir norskan, sænskan eða danskan rithöfund get- ur fólk i Skandinaviu lesið án mikilla erfiðleika en það sama verður ekki sagt um bækur eftir islenzkan eða færeyskan rithöfund sem auk þess hefur mjög þröngan heimamarkað Þó eru samískir og grænlenzkir rit- höfundar allra verst staddir Ármann segir frá þvi að á þinginu i Geilo hafi samiskir og grænlenzkir þingfulltrúar farið fram á að norr- ænu þjóðirnar styddu við bakið á þeim í menningarlegum efnum og auðvelduðu bókaútgáfu á þessum þjóðtungum. Hlaupi — ÞESSU hlaupi er nú alveg að ljúka og í morgun, var rennslið í Skeiðará að- eins um 890 rúmmetrar á sekúndu, sagði Sigurjón Rist vatnamælingamaður Ármann Kr. Einarsson A þinginu var meðal annars sam- þykkt, að rikisvaldið styrkti betur fjárhagslega bókaútgáfu litilla þjóða og þjóðarbrota á Norðurlöndum og þá einkum útgáfu barnabóka sem skrifaðar væru á móðurmáli barn- anna; að rithöfundar meðal þessara minnihlutahópa fengju fleiri tæki- færi á styrkveitingum frá rikinu; að sem fyrst yrði komið á fót stofnun sem ynni í þágu samiskra bók- mennta; að stofnuð yrði samisk bókaútgáfa og, að lokum, að græn- lenzku menningarlifi yrðu sköpuð betri skilyrði. Af hálfu íslendinga fjallaði Ingólf- ljúka í þegar Morgunblaðið hafði samband við hann við Skeiðarárbrú í gær. Er spurt var um hvort skemmd- ir á mannvirkjum hefðu orðið ein- hverjar sagði Sigurjón, að þær ur Jónsson um þá erfiðleika sem menningarleg einangrun veldur og Ármann Kr Einarsson ræddi um stöðu barnabókmennta i dag — Ég er viss um að bókin mun halda sinum sessi í framtíðinni þrátt fyrir harða samkeppni, segir Ár- mann Bókmenntirnar láta ekki marka sér bás, þær eru alþjóðlegar og þekkja engin landamæri Þess vegna binda litlu málsvæðin á Norðurlöndum miklar vonir við norrænu þýðingamiðstöðina — í bókum þinum sækir þú oft fyrirmyndir til raunveruleikans. Til dæmis skrifaðir þú nýlega bók þar sem eldgosið í Vestmannaeyjum kemur við sögu? — Já, þessi bók, „Niður um strompinn", var fyrir nokkrum dög- um gefin út i Danmörku á forlagi Birgitte Hövrings, sem helgar sig einkum islenzkum bókmenntum eins og Fonna-forlagið i Noregi. — Og á norsku? — í Noregi er nú að koma út „Bestefargutten" eða „Afastrákur" eins og hún heitir á íslenzku. Hún er einnig sannsöguleg, það er að segja, hún fjallar um dótturson minn og þroska hans fyrstu æviárin — Og hvernig kanntu við ,,Afa- strák" i norskum búningi? — í þýðingu Asbjörns Hildre- myrs er hann einmitt sá afastrákur sem ég þekki bezt." Skeiðará væru mjög óverulegar og nánast engar. Ain héldi sig enn á sama staó og rynni í ál ekki langt frá eystri enda brúarinnar. Þar væri dýpið jafn mikið og áður eða um 5 metrar frá sökkulbrún. — Já, á morgun ætti þetta að vera alveg búið, sagði Sigurjón. Innritun daglega frá kl. 10-12 og REYKJAVÍK Brautarholt 4 simar 20345 og 24959 Drafnarfell 4 (Breiðholti) simi 74444 KÓPAVOGUR Félagsheimilið simi 38126 Arbær, 1-7. HAFNARFJÖRÐUR Góðtemplarahúsið simi 38126 SELTJARNARNES Félagsheimilið, s. 38126. KEFLAVÍK Innritun auglýst siðar Unglingar. Allir nýjustu táninga- dansarnir — svo sem Bus stop, Disco stretch, Footstomper, Cleveland continental, Rubi red- dress, Crazy fever, Taca- tu, Sing sing, Boogie og margir fleiri. Einnig Rock og Tjútt. sími 381 26. DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.