Morgunblaðið - 25.09.1976, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 25.09.1976, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 1976 6 vísindamenn fá NATO-styrki menntamalaráðuneytið hefur úthlutað af fé þvl sem kom I hlut Islendinga til ráðstöfunar til vlsindastyrkja á vegum Atlantshafsbandalagsins (NATO Science Fellowships) á árinu 1976. Umsækjendur voru 23 og hiutu 6 þeirra styrki sem hér segir: 1. Axel Björnsson, eðlisfræðing- ur, 500 þúsund krónur til jarð- eðlisfræðirannsókna, einkum á nýjum aðferðum f rafleiðnimæl- ingum, við jarðfræðistofnun Arósaháskóla og háskólana I Braunschweig og Göttingen i Þýzkalandi. 2. Hörður Kristjánsson, B.S., 250 þúsund krónur til framhaldsnáms og rannsókna í lífefnafræði við University of Maryland i Banda- rfkjunum. 3. Jóhann Þorsteinsson, lffefna- fræðingur, 500 þúsund krónur til að kynnast nýjum aðferðum við rannsóknir á nýtingu aukaafurða f fisk- og sláturiðnaði, við háskól- ann f Tromsö í Noregi. 4. Kristján R. Jessen, M.Sc., 250 þúsund krónur til rannsókna á sviði taugalfffræði til undirbún- ings doktorsprófi við University College í London. 5. Sigurður B. Þorsteinsson, lækn- ir, 200 þúsund krónur til að ljúka rannsóknum á öndunarvegasýk- ingum á sjúkrahúsum, við Baylor College of Medicine i Houston f Bandarikjunum. 6. Örn Helgason, dósent, 500 þús- und krónur til náms- og rann- sóknadvalar við Verkfræðihá- skóla Danmerkur f Kaupmanna- höfn til að kynna sér jarðeðlis- fræðilegar mælingar með sér- stakri geislamælitækni. Háskóla- kennarar undirbúa róttækar aðgerðir MORGUNBLAÐINU hefur borizt samþykkt frá almennum félags- fundi Félags háskólakennara frá 17. þ.m. um kjaramál, þar sem fram kemur að félagið muni undirbúa róttækar aðgerðir I kjaramálum slnum I haust: „Fundur um kjaramál f Félagi háskólakennara, haldinn 17. sept. 1976. lýsir yfir: 1.1 viðræðum samninganefndar FH við fulltrúa fjármálaráðu- neytisins um sérkjarasamning kom f ljós að umboð hinna sfðar- nefndu til gagntilboða var svo takmarkað og gagntilboðið sjálft svo lftilf jörlegt og óhagganlegt, að ógerlegt var fyrir FH að ná fram nokkrum breytingum á samningi sem verulegu máli skiptu. Þegar þannig er að málum staðið af hálfu rfkisvaldsins er augljóst að samningsréttur félaga er lftið annað en nafnið tómt. 2. Urskurður Kjaradóms sem kemur í stað sérkjarasamnings FH og fjármálaráðuneytisins, fól aðeins í sér fáeinar minni háttar lagfæringar á texta fyrri samnings, sem fulltrúar ráðu- neytisins höfðu talið sig geta fallist á sem lið i heildarsam- komulagi og þær litlu breytingar sem urðu á skipan f launaflokka voru ekki nema að mjög litlu leyti f samræmi við óskir FH um til- færslur til að koma á auknu sam- ræmi innan FH og við aðra hópa innan BHM. Kjaradómur hefur því reynst mjög hallur undir sjónarmið fjármálaráðuneytisins f úrskurði sfnum. 3. Sú mikla skerðing á raungildi launa háskólamenntaðra manna i opinberri þjónustu og háskóla- starfsmanna sérstaklega sem orðið hefur á síðustu tveim árum, er þegar farin að valda því að færri sækjast eftir störfum við Háskóla tslands en eðlilegt væri og að fleiri leita frá háskólanum en áður f önnur störf. Auk þess neyðast margir háskólastarfs- menn til þess að leita sér launaðra aukastarfa til þess að komast af. Ljóst er að þau bágu launakjör sem háskólastarfsmenn búa við Framhald á bis. 18 Bntxiliukalii — IVvaKkalii NÝTT SÆLUHUS FÍ Á EMSTRUM UM miðjan mánuðinn var farið með sæluhús inn áEmstrur, og er það fyrra húsið, sem Ferðafélag Islands setur upp milli Þórsmerk- ur og Landmannalauga. Fyrir- hugað er að velja hinu húsinu stað austan við Hrafntinnusker, en sökum þess hversu mikill snjór er enn á þessum slóðum frá þvf I fyrravetur, er ekki hægt að koma þvf húsi á sinn stað nú I ár. Farið var með húsið á bflpalli og því valinn staður nálægt Fremri-Emstruá. Þessi tvö göngu- hús eru byggð eftir sömu teikningunni. Þau eru að grunn- fleti 27 fm og rúma um 20 manns. Teikninguna gerði Jón E. tsdal, og hefur hann haft umsjón með smiði og uppsetningu húsanna, en Astþór Runólfsson bygginga- meistari tók að sér smíði á þeim. Með tilkomu þessara húsa breytist mjög til batnaðar aðstaða þeirra, sem leggja leið sfna fót- gangandi á milli Landmanna- lauga og Þórsmerkur, en það hef- ur aukizt f sumar að menn hafa farið þessa leið. A sumrinu 1975 var sett bílfær brú á Innri- Emstruá og fyrirhugað er að setja göngubrú á Fremri-Emstruá, en þessar ár hafa verið helztu farar- tálmar á þessu svæði. Er óskandi að Islendingar notfæri sér bætta aðstöðu og fari að ferðast meira fótgangandi um óbyggðir lands- ins. Um mánaðamótin júlf-ágúst urðu framkvæmdastjóraskipti hjá Ferðafélagi tslands. Tómas Einarsson, sem gegnt hefur starf- inu frá 1. aprfl, hætti, en hann er kennari að atvinnu og tók það að sér aðeins til skamms tfma. Þór- unn Lárusdóttir er nú fram- kvæmdastjóri, en hún hefur unn- ið hjá F. 1. sfðan 1961, f mörg ár aðeins að sumrinu, en frá 1. aprfl 1975 í fullu starfi. Stjóm S.H.Í. skorar á mennta- málaráðherra að hraða setn- ingu reglugerðar um Ijánasjóð 1 FRETTATILKYNN- INGU frá stjórn Stúdenta- ráðs H.í. segir að allar horfur séu á því, að af- greiðsla námslána hefjist ekki fyrr en í nóvember- lok. Segir stjórnin að þessa seinkun megi rekja til við- leitni ríkisstjórnarinnar til að skera niður útgjöld til námslána þar sem hún hafi ekki skipað sérstaka nefnd til að semja drög að reglu- gerð í samræmi við ný lög um Lánasjóð námsmanna, heldur falið stjórn sjóðsins það verkefni og hafi það tafið hana frá öðrum störf- um. Þá segir að fulltrúar rfkisvalds- ins i stjórn sjóðsins hafi lagt fram tillögur um breyttar úthlutunar- reglur og séu drög nú til athugun- ar hjá ráðherra og því sé það sýnt að úthlutun geti ekki hafizt fyrr en sfðari hluta nóvember. Telur stjórn S.H.Í. að þetta muni leiða alvarlegan skort yfir heimili námsmanna þar sem námsár sé þegar hafið. Stjórn Stúdentaráðs beinir þeirri áskorun til menntamálaráð- herra að hann afgreiði hið fyrsta reglugerð um Lánasjóð og beiti sér fyrir þvf að úthlutunarreglur verði tilbúnar innan fárra vikna. Það er álit stjórnar Stúdentaráðs að ástæðulaust sé að hrófla við meginatriðum núverandi reglna enda hafi þær verið f stöðugri mótun og endurmótun um árabil, eins og segir í tilkynningunni. 23 af 50 stærstu fyrirtækjum landsins utan Reykjavíkur TUTTUGU og þrjú af fimmtfu stærstu fyrirtækjum lslands eru utan Reykjavfkur, og allmörg þeirra sem talin eru eiga aðsetur I Reykjavlk og teljast til 50 stærstu fyrirtækja landsins eru með starfsemi um allt land. Fjög- ur stærstu fyrirtækja landsins teljast nú vera Póstur og sfmi, Samband fsl. samvinnufélaga, Flugleiðir og Kaupfélag Eyfirð- inga. Þetta kemur fram I grein, sem birtist 1 nýjasta tölublaði Frjðlsrar verzlunar. Samantekt Frjálsrar verzlunar miðast við framleiðslu- 'og þjónustufyrirtæki, sem starfa á »’mennum markaði. Þannig eru *ólar, barnaheimili sjúkrahús, strætisvagnar og stjórnsýsla ekki meðtalin, en aftur á móti opinber fyrirtæki á borð við Sementsverk- smiðju rfkisins og Bæjarútgerð Hafnarfjarðar. Stærðarröð fyrirtækjanna fer talsvert eftir þvf hvaða mæli- kvarði er hafður til viðmiðunar, t.d. velta, eignir eða vinnuafls- notkun. Þá segir að í myndina vanti upplýsingar um vinnuafls- notkun fiskvinnslufyrirtækja f Vestmannaeyjum. Ekkert þeirra hafi verið meðal 50 stærstu 1973 af þekktum ástæðum, en nokkur þeirra voru framarlega fyrir gos og eru áreiðanlega meðal 50 stærstu vinnuaflsnotenda á land- inu, að þvf er blaðið segir. Þá segir Frjáls verzlun, að mið- að við árið 1973 vekji athygli til- færslur á fiskiðjuverum, þó ekki hvað fiskvinnslufyrirtækin á Vestfjörðum varðar. Meðal 10 stærstu fyrirtækjanna hefur KEA skotizt upp fyrir Eim- skip. 20 stærstu fyrirtæki lands- ins eru eftir skránni þessi: 1. Póstur og sími, 2. Samband ísl. samvinnufélaga, 3. Flugleiðir, 4. Kaupfélag Eyfirðinga (með úti- búum) 5. Eimskip, 6. tslenzka ál- félagið, 7. Landsbanki tslands (án útibúa úti á landi), 8. Sláturfélag Suðurlands, 9. Energoprojekt við Sigöldu, 10. Mjólkursamsalan, 11. Utgerðarfélag Akureyringa, 12. lsbjörninn, 13. íslenzkir aðalverk- takar, 14. Olfufélagið, 15. Breið- holt, 16. tshúsfélag Bolungarvík- ur og Einar Guðfinnsson, 17. Bæjarútgerð Reykjavíkur, 18. Ólfufélagið Skeljungur, 19. Kaup- félag Arnesinga og 20. Olíu- verzlun tslands. VIKULEGAR HRAÐFERÐIR EINNIG REGLUBUNDNAR FERÐIR Fró PORTSMOUTH WESTON POINT KRISTIANSANO HELSINGBORG GDYNIA VENTSPILS VALKOM Fró ANTWERPEN - FELIXSTOWE - KAUPMANNAHÖFN - ROTTERDAM - GAUTABORG - HAMBORG mánudaga þriájudaga FERÐIR FRÁ ÖORUM HÖFNUM EFTIR FLUTNINGSÞÖRF miávikudaga fimmtudaga EIMSKIP HF. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANOS Si'mi 27100 - Telex nr. 2022 IS ff \ íl\i rj7 / • • • / \ / \ X I x h L Fl n J f

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.