Morgunblaðið - 25.09.1976, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 25.09.1976, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 1976 Minning: Sigríður Elísabet Guðmundsdóttir Fædd 28. 5. 1898. Dáin 17.9. 1976. „Að sævardjúpi er sólin gengin sumarirt liðió og komið haust.“ I hvert skipti er við sjáum á bak kærum vinum og samferðarmönn- um, þá erum við minnt á fallvalt- leik lífsins. Erum minnt á, að hér erum við sem ferðamenn. Enginn veit hvenam vegamót lífs og dauða verða á leið þeirra, sem eru okkur samferða í lífinu. Þegar við kveðjum einhvern af vinum okkar, þá finnst okkur stundum eins og sól sumarsins hverfi og fölva haustsins slái á lífið og tilveruna í kringum okk- ur. Engin má sköpum renna, að heilsast og kveðjast, það er lífsins saga. Minningarnar rifjast upp eins og myndir á tjaldi. Við yljum okkur við þær og geymum í þakk- iátum huga. Sigriður var fædd í Dýrafirði. F'oreldrar hennar voru Guðmund- ur Engilbertsson og Anna Bjarna- dóttir. Hún var tekin í fóstur til Helgu Halldórsdóttur og Olafs Péturs- sonar, velstæðra myndarhjóna, og fékk hjá þeim gott veganesti fyrir lífið. Sigríður átti því lání að fagna ung að árum að eignast góðan og glæsilegan lifsförunaut, sem ávallt mátti treysta. Hún giftist eftirlifandi manni sínum, Sigurði Hólmsteini Jónssyni blikksmíða- meistara, árið 1921. Eignuðust þau fjögur mannvænleg börn, sem öll eru gift: Baldur blikksmið kvæntan Huldu Þorláksdóttur. Magnús lækni, kvæntan Kristjönu Karlsdóttur. Ölöfu tannlækni, gifta Ásmundi Brekk- an lækni, og Hólmsteinn við- + Einlægar þakkir færum við öllum þeim sem auðsýndu samúð og vmarhug við andlát og útför, móður okkar og ömmu, JÓHÖNNU JÓNSOÓTTUR Sérstakar þakkir færum við st|órn og starfsfólki elltheimilts og sjúkrahúss í Vestmannaeyium fyrir góða umönnun og hjúkrun Sesselja Jónasdóttir Helga Árnadóttir. skiptafræðing, kvæntan Guðnýju Pétursdóttur. Hjónin voru sam- hent um að veita börnunum góða menntun og vistlegt heimili. Það sannaðist hjá húsmóðurinni hið fornkveðna, að heimili er höll konunnar, er hún með viljafestu og smekkvísi annaðist vel um. Okkur heimilisvinunum þótti gott að koma á Mimisveg 6. Eigum líka margar minningar frá ánægjulegum samverustundum með hjónunum og hinum stóra vinahópi, er þar var við hátíðleg tækifæri. Klúbburinn okkar þakkar hjartanlega 38 ára gest- risni og uppörvun i göðra vina hópi og harmar það skarð, sem höggvið er í þennan litla hóp, sem eftir er. Sigríður var um marga hluti sérstæður persónuleiki. Glæsileg, greind, vinföst, skapstór og ákveðin í skoðunum. Góður liðs- maður, þar sem hún vildi koma til liðs við menn og málefni. Að endingu sendi ég svo vini mínum Sigurði og börnum, barna- börnum, öðrum ættingjum og vin- um samúð mfna og bið að minn- ingarnar um góða eiginkonu og móður megi lifa meðal þeirra og græða sárin. Ég veit að Sigríður er gengin inn i gleði guðs síns og fær nóg að starfa guðs um geim. Hafi hún þökk fyrir allt og allt. Jónfna Guðmundsdóttir. Hinn 17. þessa mánaðar lézt í Borgarspítalanum í Reykjavík Sigríður Elísabet Guðmundsdótt- ir, gift Sigurði Hólmsteini Jóns- syni Mímisvegi 6 í Reykjavík. Sigríður var fædd 28. maí 1898 að Garði í Dýrafirði. Systkinin voru 12. Sigríður ólst upp hjá Ólafi Péturssyni kaupmanni og Helgu Halldórsdóttur frá Þing- eyri i Dýrafirði. Sigríður stundaði nám í Kvennaskólanum í Reykjavík veturinn 1919—1920 og giftist hún árið 1921 Sigurði Hólmsteini Jónssyni, siðar blikksmíða- meistara. Búskap hófu þau í útfaraskreytlngar btómouol Groðurhúsið v/Sigtun simi 36770 + Þökkum innilega sýnda samúð við andlát tengdamóður og ömmu. og útför móður okkar. HÓLMFRÍÐAR JÓNSDÓTTUR, Hofsvallagötu 61. Inga Skarphéðinsdóttir, Magnús Friðriksson, Ósk Skarphéðinsdóttir, Edvard Olíversson, Friðjón Skarphéðinsson. Jónina Garðarsdóttir og barnabörn Faðir okkar, HARALDURGUÐBRANDSSON, Bogahlið 24, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 2 7. sept kl 1 3 30 Blóm vinsamlegast afþokkuð, en þeim sem vildu minnast hins látna, láti líknarstofnanir njóta þess Kristjana Haraldsdóttir. Einar Haraldsson t Innilegar þakktr til allra sem auðsýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og úíför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, ÁGÚSTS MÁLMKVIST JÚLÍUSSONAR, trésmið. Heiðargerði 23, Reykjavík. Steinunn Jónasdóttir, Erna Ágústsdóttir Brynjar Sigurðsson Jón Ágústsson Anna Carlsdóttir Steinar Ágústsson, Elisabet Ólafsdóttir Guðrún Ágústsdóttir Árni Kjartansson og barnabörn Flatey á Breiðafirði, en fluttu til Reykjavfkur árið 1922 og hafa búið þar sfðan. Börnin eru fjögur, Baldur, blikksmiður, Magnús, læknir, Ólöf, tannlæknir, og Hólmsteinn, viðskiptafræðingur. Barnabörn eru 9 og barnabarna- börn 2. Sigríður var i stjórn Kvenfélags Hallgrfmskirkju og starfaði f Slysavarnafélagi íslands. 1 desember n.k. hefðu þau afi og amma Sigriður átt 55 ára hjúskaparafmæli. í 45 ár hafa þau búið á Mímisvegi 6. Ég minnist ömmu verandi sífellt á fleygiferð. Það var ávallt drífandi kraftur i kringum hana. Er víð hittumst barst talið oft að Hallgrfmskirkju, síra Jakob, konu hans Þóru eða kvenfélagsstarfinu. Það eru einmitt konur af þessu tagi sem um land allt eru drif- fjaðrir í félagssamtökum og vinna ótrauðar áfram og leiða mál sín til lykta þar sem hið opinbera er tvfstfgandi og oft mun seinna til aðgerða. Þessar konur eiga virð- ingu mína, sérstaklega konur og menn sem stuðlað hafa að byggingu Hallgrímskirkju. Sigrfður amma átti það til að vera hörð á meiningu sinni og ég á minni og vorum við því ekki alltaf sammála. En þess meiri var gleðin og fagnaðarfundir næst er við hitt- umst, er skoðun okkar á deilumáli var farsællega til lykta leidd sitt f hvoru lagi. Sigríður amma hafði unun af ferðalögum og minnist ég þess með miklu þakklæti er þau hjónin gátu verið mér samferða f öku- ferð um Noreg fyrir ári sfðan. Það voru góðir dagar, góð stemmning í sólskini og fögru umhverfi. Margir eiga góðar minningar frá Mímisvegi 6 enda gestagangur mikill. Gestrisnin var mikil og ávallt kæti. Sérhver sem kynntist Sigrfði Elisabetu geymir sínar minningar um hana og á ef til vill einhverja eina sérstaka minningu sem ber hæst. Ég hef kosið mér sólskinsminninguna frá Noregi og kveð ömmu með þakklæti fyrir hana og allt annað sfðust liðin tuttugu og fimm ár. Friðrik Ásmundsson — Brekkan Samgöngur mikilvægastar til að tryggja búsetu á Vestfjörðum Sagt frá ályktunum Fjórðungsþings Vestfirðinga Á ÞINGI Fjórðungssambands Vest- firðinga voru samþykktar fjölmargar ályktanir m.a. um samgöngumál sem voru annað aðalumræðuefni þings- ins. Um þau mál flutti Halldór E. Sigurðsson samgönguráðherra fram- söguerindi. I vegamálum leggur þingið áherzlu á að tengja betur saman akvegakerfi Vestfjarða og Strandasýslu með vegi yfir Stein- grímsfjarðarheiði. Þingið litur svo á að Vestfirðir skiptist i fjögur megin samgöngusvæði, Reykhóla , Patreksfjarðar-, isafjarðar- og Strandasvæði og er talið vanta mikið á að fullnægjandi samband sé milli svæðanna. Talið er nauðsynlegt að tengja hvert svæði betur við aðal- akvegakerfi landsins svo og að koma á betra vegasambandi innan hvers svæðis. Fjórðungsþingíð leggur áherzlu á að tryggður verði rekstur Fagraness og Baldurs þar sem samgöngur truflist verulega að vetrarlagi vegna snjó- þyngsla, sérstaklega við isafjarðardjúp. Einnig telur þingið nauðsynlegt að koma á vikulegum skipaferðum milli Reykjavikur og Vestfjarða og þurfi Skipaútgerð rikisins að auka sína þjón- ustu Verði ekki svo telur þingið rétt að stjórn Fjórðungssambandsins léiti samstarfs við þá aðila sem hafa hags- muna að gæta i þessu sambandi og kanni alla möguleika á því að Veslfirð- ingar sjálfir taki þessa þjónustu i sínar hendur. Jafnframt þvi sem Fjórðungsþingið metur mikils flugsamgöngur milli Vest- fjarða og annarra landshluta telur það nauðsynlegt að efla þær milli byggðar- laga á Vestfjörðum svo tengsl þeirra haldist og eflist. Vill þingið minna flugmálayfirvöld á að þörf sé umbóta í flugöryggismálum á Vestfjörðum og treystir því að bætt verði úr hið bráð- asta Varðandi flutning rikisstofnana telur þingið að álit og tillögur nefndar sem skipuð var til að gera tillögur um staðarval rikisstofnana gangi mjög i átt að hugmyndum landshlutasamtakanna um flutning þeirra nær ibúum dreif- býlisins Margir fleiri málaflokkar voru teknir til umræðu á þinginu og samþykktar „Aöalfundur Búnaðarsambands Strandamanna, haldinn á Borð- eyri 12.—13. sept. 1976, lýsir furðu sinni yfir því ófremdar- ástandi sem rfkir í dreifingu raf- magns til nýbygginga í sveitum. Vegna togstreitu milli ríkisstofn- ana hefur húsbyggjendum í sveit- um undanfarið verið neitað um raforku, nema þeir iáni ályktanir og má nefna m a ályktun um málefni aldraðra, að kannaður verði vilji sveitarfélaga á Vestfjörðum fyrir þvi að stofnað verði til samvinnu þeirra um að reisa og reka dvalarheimili Þingið vekur athygli á þeirri staðreynd að sjónvarpið nærekki til allra Vestfirð- inga og vill benda á að tryggja verði öllum landsmönnum aðgang að þjón- ustu fjölmiðla Fjórðungsþingið þakkar rikisstjórn skilning á orkumálum með frumvarp- inu um Orkubú Vestfjarða og leggur á það áherzlu að rannsakað verði hvar jarðhita sé að finna til húshitunar og hvar hagkvæmast verði að byggja raf- orkuver i framtiðinni. Rafmagnsveitum rfkisins vaxta- laust um óákveðinn tíma stórar fjárhæðir. Telur fundurinn slíkar aðgerðir jaðra við fjárkúgun, eða jafnvel lagabrot og krefst þess af stjórn- völdum að Orkusjóði verði gert kleyft að gegna skyldum sfnum f þessum efnum.“ Búnaðarsamband Strandamanna: „Orkusjóði verði gert kleyft að gegna skyldum sínum” Við flytjum ídag í nýtt og glæsilegt eigið húsnæði að Óðinsgötu 2. Hárgreiðslustofan VALHÖLL, Óðinsgötu 2, sími 22138.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.