Morgunblaðið - 25.09.1976, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 1976
7
Tækifærið
sem glataðist
Morgunblaðið birti (
gær viðtal við Gunnar
Tómasson hagfræðing
hjá Alþjóðagjaldeyris-
sjóðnum. Hann sagði
m.a. um þróun Is-
lenzkra efnahagsmála:
„Við valdatöku
vinstri stjórnarinnar (
júll 1971 hafði þjóðar-
búið náð sér á strik eft-
ir erfiðleikaárin
1967—68. Veruleg verð-
bólga hafði orðið 1969,
m.a. vegna gengisbreyt-
inga, sem nauðsynlegar
vóru til að skapa út-
flutningsatvinnuvegun-
um starfsgrundvöll við
hin breyttu skilyrði. A
árinu 1970 var verð-
bólga hins vegar minni
en 15% og lækkaði sfð-
an niður I 10% árið
1971. Frá sjónarmiði
verðlagsþróunar horfði
þvf mjög vel.“
„Ef okkur hefði verið
gefin spádómsgáfa,
hefðum við f árslok
1971 getað horft fram á
þriggja ára tfmabilið,
1972—74 og séð að út-
flutningstekjur þjóðar-
innar myndu verða að
jafnaði 100% meiri en
meðaltal áranna
1969—71. Við hefðum
einnig getað séð fram á
hagstæðari viðskipta-
kjör en nokkru sinni
fyrr; eftir að hafa batn-
að um 35—40% frá
1968 til 1971 héldust
viðskiptakjörin nær
óbreytt árið 1972 og
bötnuðu að mun árið
1973. öli ytri skilyrði
vóru þvf fyrir hendi f
tfð vinstri stjórnarinnar
til að ná fram bæði
miklum og stöðugum
hagvexti. Ef spurt hefði
verið um efnahagshorf-
ur um mitt ár 1971,
hefði svarið þvf orðið
mjög jákvætt frá hag-
fræðilegu sjónarmiði.
En reyndin varð önnur
sem kunnugt er.“
Verðbólgan
og hrun
gjaldmiðilsins
Gunnar Tómasson
segir áfram:
„Við skulum minnast
þess að við valdatöku
vinstri stjórnarinnar
hafði rfkt nær órofa
framfaratfmabil um tfu
ára skeið, þar sem kost-
ir skynsamlegrar hag-
stjórnar á grundvelli
frjálshyggju komu
glöggt f ljós. Fyrir þá
hugsjónamenn marx-
ismans, sem mótuðu
efnahagsstefnu vinstri
stjórnarinnar, var hér
um ógæfuþróun að
ræða. Marxistum, fs-
lenzkum sem öðrum,
eru þjóðfélagsátök á
sviði efnahagsmála
vopn gegn borgaralegu
lýðræði og harðnandi
átök eru þeim sem mið-
ilsboð úr óskalandinu. 1
hjarta hvers marxista
er greypt kenning Len-
Gunnar Tómasson.
ins: „Hrun gjaldmiðils
borgarlegs þjóðfélags
er forsenda þess, að þvf
verði gjöreytt."
Sfðan rekur Gunnar
Tómasson efni stjórnar-
sáttmála vinstri stjórn-
artnnar, framkvæmd
hans og þá þróun til
óðaverðbólgu og rýrn-
andi kaupmáttar launa,
sem setti svip sinn á
efnahagsmál okkar all-
ar götur fram á valda-
tfma núverandi stjórn-
ar, og raunar enn f dag,
þó tekizt hafi að hægja
dulftið á verðbólguvext-
inum. Sfðan segir hann:
„Marxistar mega
fagna góðum áfanga-
sigri, þar sem nú hrikt-
ir f stoðum lýðveldis
okkar og greiðsluþoli
þjóðarbúsins er forðað
með eyðingarsókn f
fiskstofna og erlendum
lántökum. Að mfnum
dómi er forsenda þessa
sú kröfuharka einstakl-
inga, hagsmunahópa og
byggðarlaga á hendur
þjóðarheildinni, sem
var eldiviðurinn f þvf
verðbólgubáli, sem
stefna vinstri stjórnar-
innar tendraði eftir
mitt ár 1971.“
Vísindalegur
marxismi
Um vfsindalegan
marxisma sagði hag-
fræðingurinn f viðtal-
inu:
„Marxismi og nazismi
Hitlers eru jafngóð vfs-
indi, enda báðar stefn-
urnar greinar á meiði
19. aldar þýzkrar heim-
speki. Tengslin hafa
lengi verið Ijós hugs-
andi mönnum: Halldóri
Laxness, Albert Camus
og Alexander Solzhenit-
syn, svo nokkrir séu
nefndir. Fyrir aldar-
fjórðungi gerði Albert
Camus þennan greinar-
mun einan á nazisma og
marxisma: „1 rfki naz-
ismans dýrkar böðull-
inn sjálfan sig, en f rfki
marxismans krefst böð-
ullinn tilbeiðslu fórnar-
lambsins.**
„Auk þess að vera of-
beldismönnum yfirskyn
til ódæðisverka þá hef-
ur marxisminn hagnýtt
sér óþreyju hins kúgaða
manns eftir þjóðfélagi
réttlætis og mannúðar.
Þrá mannsins eftir
slfku þjóðfélagi er jafn-
gömul manninum sjálf-
um, en marxisminn
einn boðar tilveru Fyr-
irheitna landsins hand-
an blóði drifins vfgvall-
ar feðra og sona, bræðra
og systra, ungra og ald-
inna, alinna og
ófæddra."
DÓMKIRKJAN. Messa kl. 11
árd. Séra Guðmundur Þor-
steinsson Arbæjarprestakalli
messar.
DÓMKIRKJA KRISTS kon-
ungs Landakoti. Lágmessa kl.
8.30 árd. Hámessa kl. 10.30 árd.
Lágmessa kl. 2 síðd.
LANGHOLTSPRESTAKALL.
Barnasamkoma kl. 10.30 árd.
Séra Árelíus Níelsson. Guð-
þjónusta kl. 2 sfðd. Séra Sigurð-
ur Haukur Guðjónsson.
HALLGRlMSKIRKJA. Messa
kl. 11 árd. I messunni verða
fermd þessi börn Guðlaug
Helga Ingadóttir Rjúpnafelli 3
Rvík og Sveinbjörn Gizurarson
Hlíðarvegi 24 Ytri-Njarðvik.
Séra Ragnar Fjalar Lárusson.
LANDSPlTALINN. Messa kl.
10 árd. Séra Karl Sigurbjörns-
son.
ASPRESTAKALL. Messa kl. 2
síðd. að Norðurbrún 1. Séra
Grímur Grímsson.
HJALPRÆÐISHERINN. Helg-
unarsamkoma kl. 11 árd.
Sunnudagaskóli kl. 2 síðd.
Klukkan 4 síðd. Hersamkoma á
Lækjartorgi. Hjálpræðissam-
koma kl. 8.30 sfðd. Kaft. Danfel
Óskarsson.
FRlKIRKJAN REYKJAVlK.
Messa kl. 11 árd. Séra Garðar
Svavarsson.
KIRKJA Óháða safnaðarins.
Messa kl. 11 árd. Séra Emil
Björnsson.
HATEIGSKIRKJA. Lesmessa
kl. 10 árd. Séra Arngrfmur
Jónsson.
HATEIGSKIRKJA. Messa kl. 2
síðd. Séra Auður Eir Vilhjálms-
dóttir umsækjandi um Háteigs-
prestakall messar. Utvarpað
verður á miðbylgju 1412 kh„
eða212 metrum. Sóknarnefnd.
GRENSASKIRKJA. Messa kl.
11 árd. Séra Halldór S. Gröndal.
BORGARSPlTALINN. Messa
kl. 9.45 árdegis. Séra Halldór S.
Gröndal.
arbæjarprestakall.
Guðþjónusta l Dómkirkjunni
kl. 11 árd. Séra Guðmundur
Þorsteinsson.
FlLADELFlUKIRKJAN. Al-
menn guðþjónusta kl. 8 síðd.
Einar J. Gfslason.
BREIÐHOLTSPRESTAKALL.
Messa ki. 11 árd. i,,Breiðholts-
skóla. Séra Lárus Halldórsson.
Guðspjall dagsins: Matt. 6,
24.-34.:
Enginn kann tveimur herr-
um að þjóna.
Litur dagsins: Grænn. Tákn-
ar vöxt, einkum vöxt hins
andlega lffs.
BUSTAÐAKIRKJA. Barnasam-
koma kl. 11 árd. Guðþjónusta
kl. 2 síðd. Séra Ólafur Skúla-
son.
NESKIRKJA. Guðþjónusta kl.
11 árd. Altarisganga. Sr. Guð-
mundur Óskar Ólafsson.
ELLI- OG hjúkrunarheimilið
Grund. Messa kl. 10 árd. Séra
Magnús Guðmundsson fyrrfv.
prófastur messar.
KÓPAVOGSKIRKJA. Guðþjón-
usta kl. 11 árd. Séra Þorbergur
Kristjánsson.
HAFNARFJ ARÐARKIRKJ A.
Guðþjónusta kl. 11 árd. Séra
Bragi Friðriksson. Sóknar-
nefnd.
KEFLAVlKURKIRKJA.
Sunnudagaskóli kl. 11 árd. Guð-
þjónusta kl. 2 siðd. Séra Ólafur
Oddur Jónsson.
EYRARBAKKAKIRKJA. Guð-
þjónusta kl. 2 siðd. Ástráður
Sigursteindórsson skólastjóri
predikar. Sóknarprestur.
STOKKSEYRARKIRKJA.
Barnaguðþjónusta kl. 2 síðd.
Sóknarprestur.
AKRANESKIRKJA. Barna-
samkoma kl. 10.30 árd. Messa
kl. 2 siðd. Séra Björn Jónason.
I I—^
Fyrirtæki óskast —
meðeign og samstarf
Óska eftir að kaupa innflutningsfyrirtæki með góð viðskiptasambönd.
Meðeign og samstarf kemur einnig til greina.
Viðkomandi hefur fjármagn, góð sambönd og mikla reynslu á þessu
sviði.
Þeir sem áhuga hafa, sendi nöfn sín til afgr. Mbl. fyrir 1. okt. n.k.
merkt: — „FYRIRTÆKI — 2800'
Með allar uppl. verður farið með sem algert trúnaðarmál.
SöUxtm
— Söluböm
Komið og seljið merki og blað Sjálfsbjargar á
morgun sunnudag. Mætið á eftirtalda staði
kl. 10 f.h.
Reykjavík:
Austurbæjarskóli, Álftamýrarskóli, Árbæjarskóli, Breiða-
gerðisskóli, Breiðholtsskóli, Fellaskóli, Fossvogsskóli,
Hlíðarskóli, Hólabrekkuskóli, Hvassaleitisskóli, Lang-
holtsskóli, Laugarnesskóli, Melaskóli, Skóli ísaks, Vestur-
bæjarskóli, Vogaskóli, Hátúni 12.
Kópavogur:
Digranesskóli, Kársnesskóli, Kópavogsskóli, Snælands-
skóli.
Garðakauptún:
Barnaskóli Garðakauptúns.
Hafnarfjörður:
Öldutúnsskóli, Lækjarskóli, Viðistaðarskóli,
Seltjarnarnes.
Mýrarhúsaskóli,
Mosfellssveit:
Varmárskóli,
Sjálfsbjörg félag fatlaðra.
I MIÐPUNKTI
VIÐSKIPTANNA
Rauðarárstig 18
'<&Wi
HOT|JL^OF
2-8^<66
\
Vetrarverð f sólarhring
með morgunverði:
Eins manns kr. 2.500
2ja manna kr. 4 200
Vetrarverð i viku
með morgunverði
Eins manns kr 1 3 500
2ja manna kr. 22 600
«/
V